Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 38
MÁL OG MENNING
Bölv og ragn (4)
í síðasta þætti rakti ég allmörg blótsyrði,
sem tengjast kvalastaðnum helvíti. Nú verð-
ur hins vegar fjallað um nokkur, sem tengjast
djöflinum.
Líklegt er, að orðið djöfull hafi borizt hing-
að með kristniboðum, áður en kristni var í
lög tekin á Alþingi. Orðið er títt í Biblíunni.
Ég hefi ekki tölu á tíðni þess í íslenzku Biblí-
unni, en samkvæmt orðstöðulykli (concord-
ance) yfir ensku Biblíuna kemur devil 60
sinnum fyrir og fleirtalan devils 55 sinnum.
Trúboðum hlýtur að hafa verið orðið djöfull
vel kunnugt. Óruggt dæmi um það í íslenzku”
er þó ekki finnanlegt fyrr en í kvæði, sem ort
var um 1120. Höfundurinn var Halldórr
skvaldri. Þó ber þess að geta, að í kvæði eftir
Þorgeir flekk (frá því um 1038), sem var
norskur, stendur: Þú elskar þá arma þjóö
dróttinsvika, es djöful hlægöu (ÍF XXVIII, 23,
Heimskringla), þ.e. þú hefir mætur á þeim
auma flokki landráðamanna, sem fengu
djöfulinn til að hlæja (skemmtu skrattanum).
í langflestum tilvikum var kristilegi orða-
forðinn sameiginlegur norsku og íslenzku.
Af því verður þó ekki ályktað, að krjstilegu
orðin hafi alltaf borizt frá Noregi til íslands.
íslendingar höfðu samskipti við ýmsar aðrar
þjóðir en Norðmenn.
Fræðimenn eru ekki á eitt sáttir um það, úr
hvaða máli orðið djöfull hafi verið tekið inn
í íslenzku. Hér er ekki rúm til að rekja það
mál. Hins vegar tel ég mig geta fært sterk rök
fyrir því, að orðið sé fengið úr fornsaxnesku
diabol. Menningarleg rök fyrir því eru, að
fyrir kristnitöku voru hér saxneskir trúboð-
ar, svo sem Frirekr biskup, sem dvaldist hér
981—986 og Þangbrandr (á fornsaxnesku
Thankbrandr = Þakkbrandr), sem var hér
skömmu fyrir kristnitöku. Upprunalega er
orðið komið úr grísku diabolos, sem merkir
„rógberi", sbr. gr. diabáUein „rægja“. Orðið
rœgikarl, sem rætt verður um í síðari þætti,
er (töku)þýðing á gríska orðinu.
Orðið djöfull er notað sem blótsyrði með
sögnum, svo sem gefa, t.d. gefa dauöann og
djöfulinn íeitthvaö, hamast, t.d. hamastdjöf-
ulinn ráöalausan o.s.frv. Einnig er það títt í
upphrópunarsetningum eins og djöfullinn
hiröi (hafi) þaö og hver djöfullinn, sem að
formi til er spurning, en er notað sem upp-
hrópun. Hins vegar er hvern djöfulinn sjálf-
an viltu upp á dekk spurning. Orðið djöfull
er notað í fleiri spurnarsetningum, t.d. í for-
setningarlið, t.d. ég man ekki, hvar í djöflin-
um ég sá hann og ég veit ekki, hvernig í djöfl-
inum hann fer aö þessu o.s.frv. Þá má ekki
gleyma upphrópuninni djöfullinn danskur,
sem er vægt blótsyrði, líklega í fyrstu sagt í
fyndni, en ekki sprottið af Danahatri. Þá er
djöfull notað sem atviksorð á svipaðan hátt
og helvíti, t.d. djöfull langur, djöfull lag-
lega af sér vikiö. Þessa notkun má finna í
Þjóösögum Jóns Árnasonar. Nú á tímum
virðist algengara, að menn noti myndina
djöfulli, t.d. djöfulli vitlaus, djöfulli kjána-
lega spurt. Þessa orðmynd þekkti ég ekki,
fyrr en ég sá hana í gagnfræðaprófsstíl vorið
1943. Hún kann að hafa verið staðbundin
(sunnlenzk?). Hún má vera til komin fyrir
áhrif frá blótsyrðum, sem enda á -víti, -skoti,
-koti, t.d. ansvíti, andskoti, akkoti, sem öll
eru notuð sem atviksorð. Eignarfallið af djöf-
ull, ýmist án greinis eða með greini, þ.e. djöf-
uls eða djöfulsins, er notað sem lýsingarorð,
t.d. djöfuls hálfviti(nn), djöfulsins
hálfviti(nn). Af djöfull er til eignarfalis-
myndin djels. Hún virðist þannig til komin,
að djöfull breyttist með svo nefndri
afkringingu í djefill, sbr. fjögur verður fjegur,
smjör verður srnjer o.s.frv. Eignarfallið af
djefill hefir þá verið djefils, sem hefir verið
stytt í djels. Slíkar styttingar eru algengar við
skrauthverfa notkun orða. Ekki get ég
fullyrt, hve myndin djels er gömul, en hljóð-
breytingin jö verður je virðist vera frá því um
1600 — finnst þó ekki í Guðbrandsbiblíu
1584 — en hverfur svo nema í örfáum orð-
um, t.d. í ófjeti. í Þjóösögum Jóns Árnasonar
(II, 133) kemur fyrir déls hórusonurinn.
Marga nafna á hann Gestur, segir málshátt-
urinn. Líkt má segja um djöfulinn. Skal ég nú
rekja nokkur orð, sem um hann eru höfð, eft-
ir því sem rúm leyfir. Orðið andskoti er kunn-
ugt úr elztu íslenzku og merkir í fyrstu „óvin-
ur“, þ.e. „sá, sem skýtur á móti“. 1 Völuspá 33
er Höðr kallaður Baldrs andskoti, enda skaut
hann mistilteininum að Baldri samkvæmt
Snorra Eddu. Andskoti er einnig til í merk-
ingunni „djöfull" í fornmáli. Sem blótsyrði er
andskoti notað á mjög svipaðan hátt og djöf-
ull að öðru leyti en því, að eignarfalliö er allt-
af notaö meö greini sem lýsingarorö. T.d. er
alltaf sagt andskotans fífl, andrei *andskota
fífl, að því er ég bezt veit. Þessi sama regla
gildir um öll veik karlkennd blótsyrði, svo
sem fjandi, fjári, skolli, skrambi, skratti og;
ári. Verða þessi orð rakin hér á eftir. Nægir
að taka fram í eitt skipti fyrir öll, að þau eru
notuð sem blótsyrði á sama hátt og andskoti.
Orðið fjandi er myndað af sögninni fjá
(eldri mynd fía) ,,hata“, er í rauninni lýsingar-
háttur nútíðar af sögninni. Orðið hafði þegar
í fornmáli fengið merkinguna „djöfull", en
merkti jafnframt „óvinur“. Uppruni orðsins
fjári er ekki vís. Guðmundur Finnbogason
telur það orðið til úr *fíari, af fía (Skírnir
1927, 52). Þessi skýring er að minni hyggju
fulldjörf. Orðið er ekki kunnugt í íslenzku
fyrr en um 1790, þegar sögnin fía er löngu
horfin úr málinu. Elzta dæmi Orðabókar Há-
skólans er úr Lœrdómslistafélagsritunum
IX, 279 í samsetta orðnu flugufjári. Trúlegra
þykir mér, að fjári sé samrunamynd úr fjandi
og ári. Skolli kemur fyrir í fornmáli í merk-
ingunni „refur“, enn fremur orðið skollr
„svik“. Skolli merkir því líklega í fyrstu
„svikari". Skrambi er skylt norska mállýzku-
orðinu skramp „magur, stórbeinóttur maður
eða hestur". Orðið skratti er til í fornmáli í
merkingunni „galdramaður", sbr. einnig
seiöskratti. í sænskum mállýzkum kemur
fyrir skratte „fífl, fjandi". Orðið ári er veik
mynd af orðinu árr, sem merkti t fornmáli
„sendiboði" og var bæði notað um „engla"
(œrir guös) og „púká' (fjandinn ok hans ár-
ar). Af ári er komið árátta, sem í fyrstu hefir
merkt „djöfulleg tilhneiging".
Fleiri djöflanöfn verða að bíða næsta þátt-
ar.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA?
GUÐRÍÐUR ELÍASDÓTTIR
VARAFORSETI ASÍ
Páskarnir hjá mér einkennast fyrst og fremst
af kosningastarfi og mínu starfi fyrir verkalýös-
félagiö. Eg kem til meö aö vinna í kosningabar-
áttunni eins og gengur og gerist, en ég er áhuga-
söm um gott gengi Alþýöuflokksins íkosningun-
um. Þá verö ég upptekin nœstu daga, starfs
míns vegna, viö aö fara á vinnustaöina meö ný-
geröan kjarasamning viö Hafnarfjaröarbœ og
um hann veröa síöan fundahöld eftir páska. Um
sjálfa páskana œtla ég því aö reyna aö hafa þaö
sœmilega rólegt, utan hvaö sonur minn og fjöl-
skylda hans eru í heimsókn frá Svíþjóö og vita-
skuld fer maöur meö þau á milli og reynir aö
gera þeim gott. Ég fer því miöur alltof sjaldan í
kirkju en ég reyni aö hlusta á messurnar í út-
varpinu ogsjónvarpi. Aö ööru leyti eru páskarn-
ir sem sagt eins konar eyöa í erli dagsins.
STJÖRNUSPÁ
17.-19. APRÍL
HRÚTURINN (21/3-20/4
Þér finnst framtíðarhorfurnar eitthvað óspennandi,
en það gerir þér (raun þara gott. Það virkar eins og
nokkurs konar hemlakerfi á þig. Á laugardag máttu bú-
ast við töluverðum tilfinningasveiflum, en fólkið (kring-
um þig verður samvinnuþýtt og þú faerð óskir þínar
uppfylltar. Páskasunnudagurinn er vel fallinn til þess að
heimsækja aettingja, en ófyrirsjáanleg óheppni gæti
spillt fyrir áætlunum þlnum.
nmm
Það er að renna upp fyrir þér hve mikið þú átt ógert,
en fáir eru betur hæfir en þú til að ráða við flóknar að-
stæður og gefast ekki upp fyrr en allt liggur Ijóst fyrir.
En nú ættu ákveðnir aðilar að gæta að sér. Leggðu til
atlögu og láttu ekki þagga niður í þér. Komandi vikur
verða kannski stormasamar, þreytandi og stundum tár-
votar, en þú munt hafa þitt fram. Hættuekki fyrr en leik-
reglurnar eru orönar þannig að l(f þitt verði hamingju-
rlkara.
TVÍBURARNIR (22/5—21 /6]
Þú ert nú orðinn raunsærri eftir tilfinningarótið að
undanförnu. Þetta er tími vaxtar og þroska, enda veistu
núna betur hvað þú vilt. Það hefur l(ka komið í Ijós að
einhver aðili hefur gjörsamlega brugðist hlutverki s(nu
sem vinur þinn. Þú hefur um margt að hugsa, en gættu
þess að vanrækja ekki sambönd við fólk og haltu áfram
að sinna hugðarefnum þínum.
mMHnnmsmmmm
Ekki taka loforð samstarfsmanna of hátíðlega og
nýttu hæfileika þína til að setja upp „pókerandlit". Þú
þarft ef til vill að leggja mikið á þig í vinnu, án þess að
uppskera meira en venjulega. Láttu félaga eða maka
ekki hafa áhrif á þig, þar sem dómgreind þeirra getur
brugðist og þú misst gott tækifæri. Á sunnudag skaltu
varast að láta þig dreyma um eitthvað, sem aldrei getur
orðið.
Gerðu ekki veður út af því þótt ástvinir þlnir virðist af-
skiptalitlir og fjarlægir. Afstaða himintunglanna er þér
hagstæð og það er engin hætta á að þú tapir þvl sem
þér er kært. Nú er um að gera að takast á við hlutina og
koma öðrum í skilning um að ek ki þýði að vera með svik
og pretti. Auövitað ertu að ganga í gegnum mikinn
reynslutíma og undir töluverðu álagi, en (næstu viku
minnka áhyggjurnar.
MEYJAN (24/8-23/9)
Nú er komið nóg af umræðum og ágreiningi og tími
til kominn að fólk skilji að þér er fúlasta alvara og að þú
ert ekki að koma þér undan ábyrgð. Þú þarft að endur-
skipuleggja ákveðin atriði íeinkalífinu. Það skeður ým-
islegt pirrandi og leiðinlegt þessa dagana, en þú slepp-
ur þó við alla meiriháttar erfiðleika. Láttu annað fólk
ekki spilla fyrir því að þú finnir varanlega lausn á heim-
ilis- og fjárhagsvandamálum.
i i im-Bmmamm
Þér er ekki gert lífið auðvelt á föstudag, því þá gæt-
irðu þurft að taka erfiða ákvörðun. Vandamál ættingja
valda þér áhyggjum og fjölskyld umeðlimir reynast óút-
reiknanlegir. Á páskasunnudag er nauðsynlegt að sýna
mikla þolinmæði til þess að gamalgróin sambönd fari
ekki í hnút. Annar í páskum er hins vegar tilvalinn til alls,
sem snertir heimilið og fegrun þess.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Samstarfsmenn þinir eru svolítið óútreiknanlegir á
föstudag og það getur spillt fyrir verkefnum. Þú verður
fyrir vonbrigðum, ef þú treystir um of á aðra. Páska-
sunnudagur verður eitthvað erfiður og þér mun veitast
erfitt að gera upp hug þinn í einhverju máli. Gættu vel
að heilsunni, andlegt álag getur verið mikið og ástar-
málin ganga kannski erfiðlega. Það verða þó engin stór-
slys, þar sem þú hefur heppnina með þér þrátt fyrir allt.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12;
Nú geturðu komið áætlunum þínum í framkvæmd,
en mundu að ættingjar og vinir eru kannski enn tregir
í taumi og veita þér ekki þá tryggingu og stuðning sem
þú þarfnast. Hvers vegna ferðu líka ekki þínar eigin leið-
ir um sinn og kemur öllum á óvart með frumleika þínum
og „stæl"? Byrjaðu upp á nýtt og hættu að sakna ein-
hvers, sem þú ættir að vita að tilheyrir fortlðinni.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Það getur komið upp misskilningur á milli þln og fjöl-
skyldumeðlima og það er best að setja ekkert á blað,
nema kanna fyrst rækilega staðreyndir málsins Þú
kannt að hneigjast til þunglyndis sfðla á föstudaginn,
en reyndu að velta þér ekki upp úr fyrri mistökum. Láttu
ekki óþolinmæði eða forvitni ná tökum á þér á laugar-
dag. Á sunnudag ættirðu siðan að varast að særa til-
finningar annarra.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Ekki hlaupa yfir smáatriðin og kannaðu vel allar upp-
lýsingar, sem þér berast. Láttu heldur ekki beita þig
þrýstingi. Á sunnudag verður ekki mikið um frið og ró
hjá þér, þó þetta eigi að heita helgidagur. Þú skalt þó
ekkert skafa utanaf þvfvið fólk, sem reynir að koma inn
hjá þér sektarkennd með því að segja þig sjálfselskan
og eigingjarnan.
FISKARNIR (20/2—20/3
Fólki mun finnast þú óáreiðanlegur, ef þú tekst ekki
á við vandamálin núna án frekari tafa eða ágreinings.
Þér ætti að ganga vel að ná settu takmarki, hvað svo
sem aðrir reyna að spilla fyrir með gagnrýni og leiðind-
um. Einhver hefur sett þig rækilega út af laginu með því
að segja eitthvað, sem særði illilega. Reyndu að skilja
ástæðuna að baki þessu. Viðkomandi gæti átt erfitt
með að útskýra það.
38 HELGARPÖSTURINN