Helgarpósturinn - 15.04.1987, Side 40
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur
mynd Jim Smart
„Þaö er eins og skýin hafiyfirhöndina. Allt er svart og viö hugsum meö okkur: „Sólin
skín ekki í dag.“ Viö vitum aö sólin skín einhvers staöar, en okkur viröist hún samt ekki
gera þaö. Kannski hefur þú fariö í flugferö á slíkum degi. A degi þegar allt viröist svo
dimmt. Flugvélin hœkkar sig, smýgur inn í skýjaþykknið og þú sérö ekkert út. Þaö er
eins og sé nótt. En skyndilega flýgur vélin út úr skýjunum og sólin varpar geislum sínum
inn í flugvélina. Allir horfa út og brosa. Einn segir: „Erþetta ekki dásamlegt, sjáiö hvaö
allt er bjart!" Og annar bœtir viö: „Þaö er verst aö fólkiö niöri á jöröinni getur ekki
séö sólina meö okkur." — Sólin skín, en eitthvaö hefur komiö á milli hennar og fólksins.
Þaö sama gerist þegar sorgin nær tökum á okkur. Viö œttum aö vita aö dimmir dagar
vara ekki endalaust. Skýin fœrast þótt hægt sé. Sú manneskja sem sorgin umlykur er
viss um aö skýin veröi alltaf til staöar. Hún er viss um aö þaö hugarástand sem hún
býr viö núna veröi óbreytt meöan hún lifir. Hver einasta tilraun til aö telja henni trú
um annaö er vonlaus."
Þessi kafli er tekinn úr bandarísku bókinni
„Good Grief" sem er skráð af prestinum
Granger E. Westberg. Ofanritaður kafli
flokkast undir „stig þrjú", en talið er að stig
sorgarinnar séu tíu í allt. Þau þurfa ekki endi-
lega að koma í þeirri röð sem bókin segir frá
og ekki ganga allir í gegnum öll stigin. Reynsl-
an hefur samt sýnt að sorgin er svo ótrúlega lík
hjá flestum, sama hvernig hún kemur, hvort
fólk er að missa barnið sitt, maka eða góðan
vin. Það er reynsla þeirra kvenna sem við ræð-
um við hér á eftir.
Þœr hafa báðar horfst í augu við djúpa sorg;
sorg sem þeim fannst að myndi aldrei taka
enda. Jóna Dóra Karlsdóttir missti tvo syni
sína í eldsvoða fyrir rúmum tveimur árum og
Olga G. Snorradóttir missti eiginmann sinn
skyndilega fyrir tæpu ári og stóð ein uppi með
þrjá unga syni á aldrinum 14, 8 og 4 ára. Þær
höfðu aldrei hist fyrr en í vetur að þær mæltu
sér mót til þess að ræða möguleika þess að
koma hér á félagsskap syrgjenda. Þær höfðu
þörf fyrir stuðning — og þeir voru fleiri sem
voru sama sinnis. I allan vetur hefur hópur tíu
manna hist vikulega og þeim til stuðnings hef-
ur Páll Eiríksson geðlæknir setið fundina
ásamt Þóru Karlsdóttur hjúkrunarfræðingi.
Páll hefur til margra ára kynnt sér svipaða
starfsemi í Bretlandi þar sem félagsskapur
syrgjenda hefur gefið góða raun og starf Þóru
felur í sér að hún er sífellt í námunda við
dauðann og syrgjendur.
Þoð er ekki auðvelt að setjast niður með
tveimur konum sem hafa upplifað eitthvað
sem ég þekki ekki af eigin raun. Fyrsta hugs-
unin var sú að ég gæti ekki talað við þær; það
væri ómögulegt að fá þær til að opna sig og
tala um sorgina og hvað hægt er að gera til að
styrkja þá sem verða að lifa með henni. Þessa
tilfinningu þekki ég að vísu frá fyrri tíma, til-
finninguna að finnast maður standa utan við,
finna svo sterklega til vanmáttar að maður
veit ekki hvað á að segja eða gera, hvað þá
heldur hvernig á að koma fram. En það þurfti
ekki að óttast þær. Þær skildu einmitt svo
mæta vel hvernig „leikmanninum" líður: „Það
er ekki nema eðlilegt að umræðuefnið „dauð-
inn“ komi ekki upp manna á meðal," segja
þær. „Það er ekki hægt að tala um dauðann
nema að þekkja hann af eigin raun. Það sama
gildir um sorgina. En þegar að þessu kemur —
að maður upplifir þetta sjálfur — þá er þetta
svo allt, allt öðruvísi en maður átti von á."
Upphdf félagsskaparins segja þær að megi
rekja til viðtals sem haft var við eiginmann
40 HELGARPÓSTURINN
Jónu Dóru, Guðmund Árna Stefánsson í tíma-
ritinu Mannlíf í fyrra. Olga segist hafa lesið það
viðtal þar sem Guðmundur hafi m.a. sagt að
konunni sinni hefði dottið í hug að stofna ein-
hvers konar samtök fyrir þá sem misst hafa
ættingja sína. „Þetta viðtal birtist hálfu ári eftir
að ég missti manninn minn en auðvitað þorði
ég ekki að hringja til Jónu Dóru því við þekkt-
umst ekkert. Við áttum hins vegar sameigin-
lega vinkonu og ég bað hana fyrir skilaboð til
Jónu. Upp úr því hittumst við, fyrst bara tvær
og ræddum þessa hugmynd okkar en fljótlega
fóru fleiri að bætast í hópinn. Nú erum við
10-12 manns og hittumst vikulega. Páll Eiríks-
son læknir hefur setið þessa fundi með okkur
og hefur aðallega verið að byggja okkur upp til
að verða færari að hjálpa öðrum syrgjendum,
verða öðrum stoð. Það reyndist reynsla okkar
allra að mesta hjálpin hafi falist í því að hitta
og tala við aðra sem höfðu upplifað svipaða
hluti og við sjálf."
Jóna Dóra segir að ekki hafi allir átt þessa
möguleika: „Það var hins vegar ósk okkar
flestra að geta deilt sorginni með öðrum, tala
við einhvern sem skildi mann. Það var að
minnsta kosti heitasta ósk m'm. Ég átti að vísu
frænku sem hafði misst tvo syni sína — en ég
hafði ekki uppburði í mér að hringja í hana."
Olga samsinnir þessu og segir að „maður
treystir sér ekki til að hringja í neinn, treystir
sér ekki til að hafa frumkvæðið. Hins vegar
geta aðstandendur gripið þarna inn í og við
hugsum okkur þennan félagsskap — sem við
vonumst til að stækki innan tíðar — þannig að
við viljum gjarnan að símanúmer okkar liggi
frammi hjá þeim sem syrgjendur leita til, til
dæmis prestum, og þeir geti þá haft milli-
göngu um að koma þeim í samband við okk-
ur."
Þær leggja ríka áherslu á að það sé „ekkert
lausnarorð til. Fólk má ekki halda að það sé til
lyf við sorginni eða að svona félagsskapur geti
gert eitthvað sem veldur því að sorgin hverfi.
Við erum meira að segja á því að við höfum
sjálfar verið of bjartsýnar í byrjun, héldum
jafnvel að við myndum ganga út eins og nýjar
manneskjur eftir einn fund. Það er mesti mis-
skilningur. En auðvitað hefur það hjálpað okk-
ur mjög mikið að hittast og ræða þessi mál.
Samtal er sorgar léttir og samtal er það eina
sem við höfum til að deyfa sorgina, að tala
hana frá okkur. Hversu margir hafa ekki upp-
lifað það að finnast syrgjendur sífellt vera að
tala um það sama fyrst eftir dauðsfallið? Það er
bara allt í lagi, fólk má tala eins og það lystir,
það er það eina sem getur hjálpað því. Syrgj-
endur eru hins vegar oft að reyna að hlífa öðr-
um í fjölskyldunni, reyna að berjast á móti því
að gráta — og þess vegna er svo gott að setjast
niður með öðrum og segja það sem í brjósti
býr. Það er fátt betra en að gráta."
Þœr segja að í hópnum sé aðeins einn karl-
maður: „Það er eins og karlmenn leiti síður
eftir styrk út á við. Hins vegar hefur maður
orðið var við að þegar karlmenn verða fyrir
sorg, þá virðist hún oft vera svo óendanlega
djúp. Kannski er það vegna þess að maður er
fcvo óvanur að sjá karlmann gráta að þegar að
því kemur þá virðist manni sem þeir finni svo
óendanlega mikið til. Karlmenn virðast líka
oft geta forðað sér úr sorgarmynstrinu með
mikilli vinnu og loka þannig á tilfinningar sín-
ar. Við treystum okkur þó ekki til að fullyrða
neitt um mismun á tilfinnin galífi kvenna og
karla en svona virðist þetta hins vegar út á
við."
Um þetta atriði, grát hjá karlmönnum, segir
séra Westberg í bókinni Good Grief: „Það er
erfitt fyrir karlmenn að gráta, því allt frá barn-
æsku hefur þeim verið kennt að „karlmenn
gráta ekki". Þegar fimm ára strákar detta og
meiða sig og fara að gráta, kemur einhver full-
orðinn og segir: „Svona, svona! Litli maður,
gráttu ekki!" Þegar „litli maðurinn" er orðinn
átta ára — eða jafnvel átján ára — þorir hann
ekki að gráta. Og þegar hann er orðinn 38 ára
og verður fyrir djúpri sorg — getur hann ekki
grátið, hversu mikið sem hann þarfnast þess.
En við verðum að sýna sorg okkar, annað
hvort með öðrum eða í einrúmi. Öðruvísi get-
um við ekki tekist á við hana."
Vií ræðum um framkomu við syrgjendur, þá
tilfinningu að finnast maður vanmegnugur
þess að styrkja þá sem orðið hafa fyrir sorg.
Hvað á að gera — fara til syrgjandans, jafnvel
þótt maður viti fyrirfram að maður verður
sjálfur niðurbrotinn? Þær brosa: „Já — það er
einmitt það sem á að gera. Hvaða skömm er
að því að gráta — jafnvel fyrir framan syrgj-
anda? Þegar maður finnur að einhver tekur
þátt í sorginni með manni af heilum hug — þá
er það gott. Það er allt betra en að heyra ekki
frá vinum sínum eða ættingjum. Aðalatriðið er
bara að fólk sé nógu eðlilegt. Hitt er annað mál
að það er margt sem ber að varast í framkomu
við þá sem syrgja. Ein setning, sögð á röngum
tíma getur sært svo óendanlega djúpt."
Við ræðum um dæmi þess og Jóna Dóra
nefnir að eitt það alversta sem við hana hafi
verið sagt var: „þú átt nú tvö önnur börn..."
„Það þurfti enginn að minna mig á það," seg-
ir hún. „Ég vissi það vel... Ég var ekkert reið
við fólk sem sagði þetta en þetta kallaði fram
sársauka án þess ég geti skýrt það nánar. Mín
sorg var alveg jafn mikil samt sem áður. Hálfu
ári eftir lát drengjanna las ég grein um sorg í
dagblaði og þar var birtur „bannlisti"; hvað
átti aldrei að segja. Meðal þess sem nefnt var
var einmitt þetta atriði: Aldrei að minna for-
eldra á að þeir eigi annað barn eða fleiri. Miss-
irinn er ekkert minni. Sorgin og söknuðurinn
breytist ekkert við það."
Þœr nefna einnig í sambandi við röng við-
brögð að fólk forðist að tala um þá sem farnir
eru: „Það er eins og maður eigi að gleyma
þeim. Þetta er mesti misskilningur. Við þurf-
um og við viljum tala um þá sem eru farnir. Við
verðum að tala um það sem við áttum með
þeim. Aftur á móti er stundum eins og fólk
verði hálf vandræðalegt, reyni jafnvel að
skipta um umræðuefni og heldur að það komi
illa við okkur að ræða um þá látnu. Það er hins
vegar ekkert sárt — og í rauninni miklu minna
sárt en margir gætu haldið. Hitt er miklu sár-
ara, að upplifa að vinir manns reyni að forðast
að tala um þá látnu því þá fær maður á tilfinn-
inguna að fólk vilji gleyma þeim. Þetta kemur
auðvitað til af því að fólk er að reyna að segja
eitthvað jákvætt, er að reyna að setja sig í spor
spyrjandans. Það hugsar með sér: „Efég stæði
í þessum sporum núna þá vildi ég örugglega
að...“ Þetta er bara ekkert hægt. Þetta fólk hef-
ur ekki staðið í þessum sporum og maður
hugsar allt öðruvísi þegar hlutirnir hafa gerst."
Olga nefnir í þessu sambandi að vinkona
hennar hafi misst mann sinn fyrir fjórum ár-
um: „Þá var ég svona leikmaður, vissi ekkert
hvernig ég ætti að koma fram. Hugsaði með
mér að ég væri ekkert að fara til hennar því
hún vildi örugglega vera ein. Hugsaði jafnvel
að ég skildi ekki hvernig hún gæti lifað þetta
af. Þremur árum síðar stóð ég í nákvæmlega
sömu sporunum — og þá fyrst sá ég hversu
röng viðbrögð mín voru."
Þær segja flesta í hópnum hafa rekið sig á
sama hlutinn: Fólk reyni að forðast þá sem
misst hafa ástvini sína, forðast að tala við þá
og viti hreinlega ekkert hvernig eigi að koma
fram: „Fólk verður bara að vera sem eðlileg-
ast“ leggja þær áherslu á. „Fæstir vilja vera
einir þegar sorgin hefur kvatt dyra. Kannski
einstaka manneskja, — en það er sjaldgæft.
Við einmitt þráum að hafa einhvern hjá okkur,
einhvern sem við getum talað við og þurfum
ekki að dylja tilfinningar okkar fyrir."
Þau tíu stig sem talað er um að sorgin hafi
geta varað misjafnlega lengi og viðbrögð við
sorginni geta komið fram á mismunandi tím-
um. Þær benda á líkamleg einkenni sem geti
gert vart við sig allt frá viku eftir dauðsfall upp
í hálft eða heilt ár:
„Ég fór að finna fyrir gífurlegri þreytu hálfu
ári eftir að drengirnir fóru," segir Jóna Dóra.
„Þetta lýsti sér með algjöru magnleysi og
þróttleysi, mér fannst ég ekkert geta gert,
langaði ekkert að gera — og gerði heldur ekki
neitt. Svaf mestan hluta sólarhringsins og
gerði bara það al-nauðsynlegasta á heimilinu,
þvoði upp á nokkurra daga fresti og bara það
að setja þvott í vél var erfiði. Eins og þetta er
nú ólíkt mér!“ bætir hún við brosandi. „Á
þessu tímabili var ég viss um að annað tveggja
væri að mér: Annað hvort væri ég með
krabbamein og væri að deyja — og var reynd-
ar farin að trúa því! — eða að nú væri ég orðin
geðveik. Það er svo auðvelt að trúa hverju sem
er, því maður hefur ekki hugmynd um að þetta
sé hluti af sorginni. Aftur á móti hafa allir gott
af að vita að þetta getur gerst og að þetta er
eðlilegt — því annars getur fólk orðið dauð-
skelkað." Olga samsinnir þessu og segist líka
hafa upplifað þetta: „Sorgin hefur meira að
segja hellst svo yfir mig í miðri kennslustund
að mér finnst ég vera að hníga niður og verð
að fara úr tíma. Þetta er þó spurning um að
taka sig á og þegar maður hefur upplifað þetta
gífurlega þunglyndi sem hefur í för með sér
algjört magnleysi lærir maður að taka sér tak