Helgarpósturinn - 15.04.1987, Page 43

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Page 43
FRÉTTAPÓSTUR Samningamál Samningar tókust við fjögur félög háskólamenntaðra heil- brigðisstétta sem starfa á rikisspítölunum, ljósmæður, há- skólamenntaða hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félags- fræðinga. Samningar þessara hópa eru að mestu eins og þeir samningar sem náttúrufræðingar gerðu á dögunum. Enn er ósamið við marga hópa, svo sem sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, símamenn, háskólakennara, arkitekta, dýralækna, héraðs- lækna, málara, múrara og leiðsögumenn, en tveir síðustu hóparnir eru í verkfalli. Líffræðingar sem til skamms tima störfuðu á ríkisspítölunum hafa ekki endurráðið sig þrátt fyrir að samist hafi við félag þeirra, Félag íslenskra náttúru- fræðinga, í síðustu viku og óvíst er hvort og hve margir þeirra endurráða sig upp á þau kjör sem kveðið er á um í hinum nýja kjarasamningi. Uppsagnir á þriðja tug líffræð- inga ásamt uppsögnum annarra háskólamenntaðra heil- brigðisstétta á ríkisspítölunum, alls um 140 manns, tóku gildi 1. april. Vegna þessa hefur starfsemi Blóðbankans ver- ið í lágmarki en þar sögðu 14 líffræðingar upp störfum. Samkvæmt forsvarsmönnum Blóðbankans eru sífelld vandræði innan stofnunarinnar og mikil þreyta komin í þá sem orðið hafa að axla ábyrgðina. Sjúklingar eru milli steins og sleggju sem og allir aðrir sem þurft hafa á þjónustu bank- ans að halda. Ástandið er fyrir löngu orðið óviðunandi og raunverulega hættulegt. Lífeyrissjóður og ráðherra í síðústu viku kom upp mikii umræða um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna þegar fjölmiðlar upplýstu að fjár- málaráðherrar á hverjum tíma hefðu heimild til að ráðstafa hluta úr sjóðnum að eigin geðþótta. Þessi óskráða regla hef- ur verið i gildi siðan 1952 þegar þáverandi f jármálaráðherra óskaði eftir því við stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis- ins að lífeyrissjóðurinn ráðstafaði ákveðnum hluta af ráð- stöfunarfé sinu til útlána eftir nánari ákvörðun fjármála- ráðherra. Samkomulag þetta hefur síðan verið í gildi þó þannig að hlutur ráðherra af ráðstöfunarfé sjóðsins hefur á árabilinu 1952—1980 verið frá 5% í allt að 20%. Lánveiting- ar hafa á hverjum tíma verið með sömu kjörum, að því er varðar lánstíma, vexti og aðra skilmála, eins og gilt hefur á almennum lánum lífeyrissjóðsins. Hins vegar hafa ráðherr- ar getað ráðstafað fénu úr sjóðnum til manna sem ekki hafa lífeyrissjóðsréttindi eða eru ekki í lífeyrissjóðnum og hefur þetta vakið almenna óánægju og undrun. Þess má geta að núverandi fjármálaráðherra ákvað í lok síðasta árs að leita ekki eftir frekari heimildum til ráðstöfunar á lánum úr líf- eyrissjóðnum. Kosningabarátta Kosningabaráttan er nú að ná hámarki enda aðeins 10 dagar til kosninga. Stöðugt er verið að gera skoðanakannan- ir en afar mismunandi niðurstöður hafa fengist. Eini flokk- urinn sem virðist halda fylgi er Kvennalistinn en hinn nýi Borgaraflokkur virðist rokka m jög til. Fylgistap Sjálfstæðis- flokksins virðist verulegt og Alþýðuflokksins sömuleiðis. Alþýðubandalag og Framsókn standa í stað. Fréttapunktar • Til tíðinda dró í timaritaheiminum á föstudaginn er út- gáfufyrirtækið Frjálst framtak hf. keypti Fjölni hf. Útgáfu- félögin hafa verið í dyggri samkeppni hvort við annað fram að þessu, m.a. með útgáfu tímaritanna Nýtt líf og Mannlíf. • Tap Alþýðubankans á liðnu ári var 11 milljónir króna. Verulegar breytingar munu fyrirhugaðar á bankaráði Al- þýðubankans. • Stjarnan úr Garðabæ varð bikarmeistari karla í hand- knattleik og Fram, Reykjavík, bikarmeistari kvenna. Fram varð einnig íslandsmeistari í kvennaflokki en Vikingar sigruðu í karlaflokki. Njarðvíkingar sigruðu bæði í íslands- mótinu og bikarkeppni karla í körfuknattleik. • Tuttugu og sjö íslandsmet voru sett á alþjóðlegu sund- móti í Aberdeen i Skotlandi um helgina. • Á aðalfundi Verzlunarbanka íslands hf. kom fram að hagnaður á síðasta ári var tæpar 20 milljónir og innláns- aukning, þriðja árið í röð, langt yfir meðaltalsaukningu innlánsstofnana. Markaðshlutdeild bankans i innlánum hefur því aukist og er nú rúmlega 6%. • Nýja flugstöðin á Keflavíkurflugvelli, Flugstöð Leifs Eiríkssonar var vígð þriðjudaginn 14. apríl. Tæplega 3000 gestir voru viðstaddir vígsluna, þar á meðal margir erlendir fréttamenn. • Verkfalli póstmanna, sem koma átti til framkvæmda á miðnætti fimmtudags, var afstýrt sólarhring áður. Samn- ingur póstmanna er mjög á svipuðum nótum og samningur Starfsmannafélags ríkisstofnana. Múrarar fóru í verkfall á miðnætti miðvikudags. • Fiskafli landsmanna fyrsta ársfjórðunginn hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. Aflinn er fjórðungi meiri en á sama tima í fyrra þrátt fyrir verkfall sjómanna í janúar. Loðnuaflinn munar þar mestu. Langmestur aflibarst á land í Vestmannaeyjum. • Ákæra á hendur forsvarsmönnum og endurskoðanda Hafskips hf. var lögð fram á fimmtudag. Sjö bankastjórar Útvegsbankans voru einnig ákærðir. Bankastjórarnir báð- ust lausnar, en var hafnað af hálfu bankaráðs og munu þeir því vera við störf til 1. maí er nýja fyrirtækið, Utvegsbanki Islands hf., tekur við rekstri Útvegsbankans. • Skemmtigarðurinn í Hveragerði var opnaður síðastliðinn laugardag undir þaki og mun starfsemi skemmtigarðsins verða aukin á næstunni. • Ný meðferðarstofnun verður opnuð 1. maí að Fitjum á Kjalarnesi. Það eru fjórir einstaklingar sem festu kaup á húsinu, þeirra á meðal Brynjólfur Hauksson læknir sem áður starfaði við meðferðarstofnunina Von við Bárugötu. ÍNÝJU FLUGSTÖÐINNI ER BANKI ALLRA LANDSMANNA Landsbanki fslands býður alla bankaþjónustu í nýju flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. [ brottfararsal er opin afgreiðsla alla daga frá kl. 6.30-18.30. Áhersla er lögð á gjaldeyrisviðskipti, ferðatryggingar og aðra þjónustu við ferðamenn. Á næstunni opnar svo fullkomið útibú á neðri hæð byggingarinnar. Afgreiðslan í gömlu flugstöðinni verður starfrækt með hefðbundum hætti. Við minnum einnig á nýja afgreiðslu á Hótel Loftleiðum, þar sem m.a. er opin gjaldeyrisafgreiðsla j v alla daga frá kl. 8.15-19.15. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna HELGARPÓSTURINN 43

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.