Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 44

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 44
l vikunni var gerð hallarbylting í Alþýðubankanum að undirlagi Ás- mundar Stefánssonar, sem hafði náð samkomulagi við ýmsa aðra úr forystu verkalýðshreyfingarinnar, þar á meðal Guðmund J. Guð- mundsson. Var afráðið að sparka öllu bankaráðinu. Ástæðan var sögð vera 11 milljón króna halli bankans á sl. ári. Benedikt Davíðs- son fráfarandi formaður bankaráðs er sagður hafa verið ófús til þessarar miklu hreinsunar, en hann hafi lagt til að skipt yrði um þrjá af fimm bankaráðsmönnum; Bjarna Jak- obsson frá Iðju og Þórunni Valdimarsdóttur frá Framsókn, sem bæði höfðu látið í ljósi vilja til að hætta. Að auki er Benedikt sagð- ur sjálfur hafa boðist til að hætta, þrátt fyrir að hann hefði haft áhuga á að halda áfram. Þeir Ásmundur og Guðmundur eru sagðir hafa hafnað þessu boði — og sparkað öllu banka- ráðinu í burtu. I staðinn komu nýir bankaráðsmenn undir forystu Ás- mun^ar Stefánssonar. Jafnframt gengur fjöllunum hærra að reka eigi Stefán Gunnarsson, vinsælasta bankastjóra landsins, en hann er sagður hafa verið ófús til að veita fyrirgreiðslu á einkagrundvelli. . . B ■okaútgefendur og fleiri hagsmunaaðilará bókamarkaðnum eru nú í þann mund að leggja út í enn eitt héilagt stríð gegh ríkisvald- inu í þeim tilgangi að fá niðurfelldan söluskatt af bókum. Herferðin að þessu sinni á að vera bæði kröftug og áhrifarík og verður einkum stuðst við greinaskrif og áskorun sem senda á ríkisstjórninni. Þetta mál hefur lengi verið þeim sem standa að bókaútgáfu og tengjast henni með einhverjum hætti mikið kappsmál og í gegnum tíðina hafa rithöfundar verið fremstir í flokki við að gagnrýna núverandi fyrir- komulag á þeim forsendum að gróði ríkisins af bókum sé í engu sam- ræmi við framlag þess til menning- armála og allra síst til rithöfunda. Þess má geta að á núgildandi fjár- lögum fer 1% af útgjöldum ríkisins til menningar og lista til bók- mennta... l slendingar eru sagðir afskap- lega sjálfstæðir í skoðunum og Vest- 44 HELGARPÓSTURINN firðingar eru sagðir þeirra sjálfstæð- astir. Ef marka má framboðslista stjórnmálaflokkanna, þar sem fjöl- skyldur skipta sér á flokkana, eiga Austur-Barðstrendingar þó metið. Systkinin frá Miðjanesi í Reykhóla- sveit eru á þremur listum: Jón Atli Játvarðarson er í 6. sæti M-listans í Vestfirðingafjórðungi, Þórunn Játvarðardóttir er í 5. sæti V-list- ans og Haildóra Játvarðardóttir er í 3. sæti Þ-listans í kjördæminu. . . O._____________________ kosningabaráttunni. Um daginn sást til Bryndísar Schram, for- mannsfrúar Alþýðuflokksins, þar sem hún stóð og skoðaði ferðabækl- inga. Nærstaddur viðskiptavinur ferðaskrifstofu sneri sér að Bryndísi og spurði hvert ferðinni væri heitið. Og ekki stóð á svarinu hjá Bryndísi. ,,Eg er að velta því fyrir mér hvert ég geti farið með Jón Baldvin eftir áfallið".. . PIZZAHÚSIÐ GRENSÁSVEGI 10 108 R. Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni. Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu heim eða pantið í síma 39933. FRAMDRIFSBILL Á UNDRAVERDI Lada Samara hefur alla kosti til að bera sem íslenskar aðstœður krefjast af fólksbíl, í utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Það er ekki að ástœðulausu sem Lada Samara er metsölubíll, því verðið er hreint undur og ekki spilla góð greiðslukjör. Lada Samara 5 gíra kr. 265.000.- Lada Samara 4 gíra kr. 249.000.- Opið alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá 10-16. Beinn sími söludeiidar 31236 VERIÐ VELKOMIn RAGNAR ÓSKARSSON

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.