Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST
MORGUNblaðsmenn geta verið
æði seinheppnir í fyrirsagnasmíð-
um sínum, þó hafa beri í huga að
þar fer vinur íslenskunnar nr. 1 að
eigin mati. Allir muna ill óseljan-
lega ferskfiskinn okkar í Bremer-
haven sem Moggi sagði svo frá
með breiðasta letri, en í þessari
viku kom svo önnur fyrirsögn,
ekki síðri að snúinni merkingu,
nefnilega Nauögunartilraun mis-
tókst. í næstu viku bíðum við les-
endur málgagnsins svo eftir
árekstri sem mistekst eða ein-
hverju þaðan af snúnara. . .
MIKIÐ hefur verið gaman að
fylgjast með því hvernig auglýs-
ingastofurnar hafa keppst við að
lýsa því yfir að þær séu ekki höf-
undar Grindauíkurmerkisins
fræga, sem svo augljóslega er stol-
ið úr öðru bæjarmerki, alla leið úr
útlöndum. Við HP-menn erum ill-
kvittnir og segjum hver þarna átti
í hlut — AUK, auglýsingastofa
Kristínar.. .
KRINGLAN hefur þegar fengið
viðurnefni eins og vænta mátti af
bókmenntaþjóðinni. Eins og kunn-
ugt er þeim sem mætt hafa á stað-
inn — og þeir eru nokkrir — teyg-
ir byggingin anga sína mjög víða
um nýja miðbæinn, ýmist ofan-
jarðar eða neðan, með brým,
turnum, rúllustigum og bílskýlum
að ógleymdum sérstaklega gerð-
um umferðaræðum út um nær-
liggjandi trissur. Og nýja viður-
nefnið já, auðvitað Stóra hryllings-
búöin. . .
GÚRKANí íslenskri fjölmiðlun
er nú að mestu að baki, enda
komið síðsumar. þjóöuiljamenn
fundu upp á því snjallræði til að
leyna eigin gúrkutið að verja
nokkrum hiuta af 2. síðu sinni
undir daglega frétt þess efnis hver
hinna fjölmiðlanna hefði flutt okk-
ur lélegustu fréttina daginn áður,
semsé gúrku dagsins. Þjóðfrelsis-
mennirnir stigu skrefið til fulls og
afhentu forsvarsmönnum þess fjöl-
miðils sem hverju sinni hlaut nafn-
bótina heila gúrku beint frá kaup-
mannninum. Græna dagblaðið
Tíminn fékk síðustu gúrkunafnbót
Þjóðviljans áður en kommarnir
hættu að nenna þessum leik — og
það broslega gerðist þegar Tíma-
menn, sem höfðu beðið í nokkra
daga eftir að fá síðustu gúrkuna
afhenta, fóru yfir til Þjóðvilja-
manna. Þá höfðu Össur og félagar
gleymt sér, byrjað að skera gúrk-
una niður fyrir sjálfa sig og eta
hana á brauði. En þetta heitir auð-
vitað græðgi frekar en
gleymska. . .
MEÐFYLGJANDI viðvörunar-
skilti mun vera hið eina sinnar
tegundar hérlendis. A.m.k. er
kindin á skiltinu hreint einstök og
heldur undarlega afvelta. Tíðinda-
maður Helgarpóstsins átti leið að
Stokksnesi, ratsjárstöð (o.fl.) Varn-
arliðsins við Höfn í Hornafirði. Á
girðingarstólpum sitt hvorum megin
við innkeyrsluna að stöðinni eru
viðvörunarmerki. Annað bendir á,
að bannað sé að aka um á fjór-
hjólum á svæðinu, en á hægra
girðingarstólpanum er svo þetta
merki. Eftir því sem við fáum best
séð er verið að vara kindur við
rafvæddri girðingunni umhverfis
svæðið. Skiltið virðist hafa borið
árangur, því ekki urðum við varir
við neinar kindur á svæðinu. En
þótt kindur fatti skiltið er ekki
eins víst að mannfólkið sé jafn
skynugt og er því þannig hér með
komið á framfæri, að girðingin
umhverfis Stokknesstöðina er raf-
vædd og því stafar mannfólkinu
álíka hætta af henni og kindum.
LIFGUNARtilraunir DV á
látnum amerískum leikurum ætla
engan endi að taka. Nýlega
hrukku lesendur síðdegisblaðsins
við þegar þeir lásu um slæmt
heilsufar Jackie Gleason á Sviðs-
ljóssíðum biaðsins, en þessi dáði
' gamanleikari var þá látinn fyrir
nokkrum mánuðum. í vikunni
birtist svo mynd af Yul Brynner og
Telly Saualas í lesendadálkum
blaðsins þar sem verið var að
fjalla um geislameðferð til lækn-
ingar á skalla. í texta undir
myndinni sagði: ,,Það er hætt við
að þesir tveir frægu skallar, Yul
Brynner og Telly Savalas, myndu
missa mikið af sínum sjarmör ef
þeir færu í geislameðferð." Eins og
sæmilega upplýst fólk veit lést
Brynner fyrir mörgum mánuðum
úr krabba — og spáir því ekki í
geislameðferð úr þessu.
Við bíðum með nokkrum hrolli
eftir næstu afturgöngum á
síðum DV...
SMARTSKOT
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Útvegsbcmkiitn ,,Ein hugmynd er líka sú aö selja
Nú vilja allir eig'ann sem áður menn töldu feigan. erlendum feröamönnum, sem og viljugum
löndum, rolluákeyrsluréttindi."
Hver hampar hæstri tölu? — PIRRAÐUR ÖKUMAÐUR OG FERÐALANGUR í
Er Hafskip líka til sölu? Niðri LESENDADÁLKI DV NÚ í VIKUNNI
Svo nú ertu bara
orðinn venjulegur
launþegi!
SIGURÐUR PALSSON
„Akkúrat!"
Hvernig tilfinning er að fá svona starfslaun?
„Hún er mjög góð."
Er það rnikill heiður?
„Það verða aðrir að dæma um."
Nú fylgir þessum starfslaunum hálfgerð kvöð, ekki
rétt? Er það ekki viss pressa fyrir listamann?
„Nei, hún er ósköp eðlileg. Það er sú pressa sem maður
hefur hvort sem er og reynir — og hefur alltaf reynt — að
haga málum þannig að maður geti stundað þessi störf. Að
sjálfsögðu auðveldar þetta þá stöðugu viðleitni. Þannig að
það breytist ekkert annað en það að starfslaunin virka
mjög hvetjandi að gera betur."
Þarftu að senda eitthvað visst frá þér?
„Það er nú ekki farið fram á neitt ákveðið magn en ég
mun gera greinargerð fyrir þeim verkefnum sem ég sótti
um."
Hver voru þau?
„Það er aðallega Ijóðakyns og leikritakyns."
Eru þessi starfslaun sambærileg við það sem gerist
annars staðar í heiminum?
„Já, það eru svona „stipendium" víða annars staðar. Þeir
sem eru lengst komnir í svona styrkjakerfi upp á meira en
eitt ár eru Norðurlandabúar og þar fer það allt upp í fimm
ár. Það eru kerfi þar sem mönnum eru tryggðar ákveðnar
tekjur í talsverðan tíma þannig að þeir geti skipulagt störf
sín og gert lengri og viðameiri áætlanir. Það kerfi er komið
langlengst á Norðurlöndunum. Þessi laun eru veitt bæði af
borgum, ríkisvaldinu og í þriðja lagi af einkaaðilum. Það
finnst mér mjög hvetjandi, að það sé ekki alltaf aðeins ríkið
sem eigi að hvetja og efla menn."
Þú ert formaður Rithöfundasambands íslands. Hvað
er efst á baugi þar?
„Það eru samningar við ríkisútvarpiö og einnig mál varð-
ancii greiðslur fyrir bækur fyrir söfn. Hins vegar er nýlokið
miklu máli, sem eru nýir samningar við útgefendur, þannig
að maður er ennþá hálfdasaður eftir það."
Muntu segja starfi þinu lausu hjá Rithöfundasam-
bandinu og helga þig eingöngu ritstörfum?
„í fyrsta lagi þá er þetta ekki fast starf og launað að vera
formaður, enda er það innifalið í þessum starfslaunum að
sjálfsögðu að gegna ekki fastlaunuðu starfi. Það skuldbind-
ur maður sig að sjálfsögðu til að gera, annað væri óeðlilegt.
„Kjörtímabili" mínu sem formanns lýkur næsta vor og þá
hætti ég."
Þú varöst pabbi í fyrsta sinn fyrir skömmu. Hvernig til-
finning er aö eignast fyrsta barnið svona „seint"?
„Eg hef ekki reynslu af neinu öðru þannig að ég get ekki
borið saman. Tilfinningin er hins vegar góð."
Sonurinn heitir Jóhannes Páll. Hvort er hann skírður
fremur f höfuðið á páfanum eða öfum sínum?
„Hann er nú skirður í höfuðið á öfum sínum, annar hét
Jóhannes og hinn Páll. Hins vegar er ekki verra að Karol
Wojtila skuli hafa tekið sér þessi góðu nöfn!"
Hvenær brettirðu svo upp ermarnar og byrjar að
skrifa?
„Ég sit hér og er að skrifa."
Átvö hundruð ára afmæli Reykjavíkurborgar, 18. ágúst í fyrra, var
ákveðið aö efna til sérstakra starfslauna sem úthlutað yrði reyk-
vískum listamanni til þriggja ára í senn. Sigurður Pálsson rithöf-
undur er fyrsti listamaðurinn sem hlýtur þau.
HELGARPÓSTURINN 3