Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 19
TEXTI OG MYND EGILL HELGASON Kristinn R. Ólafsson í Madrid í HP-viðtali Á ASNAEYRUM ÁSTARINNAR Einhver vinsœlasti útvarpsmadur á íslandi talar til þjódarinnar óravegu utan úr löndum. Hann kemur örsjaldan til Islands og fátítt aö hann hafi samskipti við íslendinga, nema þá ígegnum suöandi símalínur. Samt þykir hann tala kjarnyrta íslensku og vera meö afbrigðum orðheppinn, fyrir- mynd margra landa sinna sem heima sitja um tungutak. Raunar hafa ein- hverjir höggvið eftir því að hann kveður undarlega hart að ,,err-hljóðum“ en það er kannski ekki furða þegar haft er í huga að maðurinn hefur búið suður á Spáni á annan áratug, þriðjung œvi sinnar. Kristinn R. Ólafsson heitir hann, fréttaritari útvarpsins á Spáni, fœddur og uppalinn Vestmann- eyingur, Madridingur, en samt íslenskur þjóðernissinni að eigin sögn. Það er stórhátíð í Madrid þegar mig rekur á fjörur Kristins R. Ólafssonar, á leið sunnan úr Portúgal í vorrigningar norður í Frakklandi. Það er árleg gleði sem kennd er við heilagan ísidór, bóndadurg sem slysaðist til að verða verndar- dýrlingur Madridborgar, og trónir síðan stytta með grastó í hendi. Meðan dagljóst er fara virðu- legar skrúðgöngur með hornablæstri um götur; á kvöldin er dansað undir marglitum ljósum. Öl- sölur eru opnar fram á rauða nótt og allir eru hrifsaðir með í gleðina, líka þungbúnir Norður- landabúar sem ekki kunna að dansa á götum. Þetta er heldur enginn sautjándi júní; á Spáni virðast menn álíta að ekki taki þvi að slá upp há- tíð nema hún standi að minnsta kosti í viku. Þar sem við Kristinn stöndum á götuhorni og horfum á skrúðgönguna með ísidór í farar- broddi vekur hann máls á því hversu fátækir ís- lendingar séu að alls konar tradisjónum. Við höfum til dæmis ekki fundið upp á því að setja Snorra Sturluson á stall, með voldugan fjaður- penna í hendi, og ganga með hann um götur og torg. Kristni virðist samt ekki vera neitt kappsmál að standa í drykkjugleði fram á nætur, enda er hann ráðsettur fjölskyldumaður, býr við Vonar- stræti Madridar ásamt innfæddri konu sinni, Maríu Sól, og dótturinni Öldu, sem er fjögurra ára. ÍSLENDINGAR KUNNA EKKI AÐ BLÓTA Kristinn segir frá því að í raun þurfi hann ekki að telja sig síðri Madriding en margir þeir sem eru suðrænni í háttum og útliti. „Borgin hefur í raun ekki orðið stórborg fyrr en á þessari öld,“ segir hann. ,,Það er fágætt að finna fólk sem er Madridbúar að langfeðgatali, fæstir fullorðnir borgarbúar eiga afa sem er héðan. Því er ég eng- inn aðkomumaður lengur, og kannski ekkert síðri Madridbúi en margur annar. Spánverji er ég svona tæplega hálfur, að minnsta kosti svo mikill að ég hellti mér yfir strætisvagnastjóra í Reykjavík á spænsku. Spænskan er nefnilega svo miklu ríkari að blótsyrðum en íslenskan. Is- lendingar kunna ekki að blóta. Ég held líka að ég hafi smátt og smátt verið að breytast í um- gengni minni við Spánverja. í umferðinni hika ég til dæmis ekki lengur við að bölsótast út í aðra bílstjóra og flauta á þá sem mér finnst keyra eins og kálfar. Ég er samt ekki ennþá jafn flautu- glaður og konan mín.“ Kristinn vill samt slá þann varnagla að þótt hann sé alþjóðamaður og oft spænskur í hátta- lagi, sé hann líka þjóðernissinnaður Islendingur. „Þetta er svo sem ekki mál sem sækir á mig dag- lega, hvort ég er íslendingur eða Spánverji. En það er ekki eins og ég búi í Nýju-Gíneu eða inni í svörtustu Afríku. Ég er meira eða minna í dag- legu sambandi við Island. Ég hringi í útvarps- menn og þeir hringja í mig. Svo er ég líka búinn að koma mér upp forláta stuttbylgjuútvarpstæki pg get hlustað á hádegis- og kvöldfréttir ofan af íslandi. Það er samt ekki oft að íslendingum skolar hér á land með holdi og blóði, svona eins og þér. Hér eru einhverjar stelpur annað veifið, á föstum eða lausum kili. Skólamenn koma hingað og gufa fljótt upp aftur. Þú getur haft það til marks um þá Islendingafjöld sem hér er, að í Madrid kusu tvær stúlkur í síðustu kosningum. íslendingar hafa miklu meira sótt til Barcelona, þangað sem ég kom líka fyrst." RAN NSÓKN ARBLAÐA- MENNSKA Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Það eru orðin tvö ár síðan Kristinn kom síðast til íslands, en allt í allt hefur hann ekki komið nema fjórum sinnum til íslands síðan hann flutti suður á bóginn. „Þessi er fjögurra ára en hefur samt ekki verið nema einn mánuð á Islandi," segir hann og bendir á Öldu dóttur sína. „Ann- ars höfðu þeir haft veður af því á útvarpinu að ég væri upprunninn í Vestmannaeyjum. Þess vegna sendu þeir mig til að stunda rannsóknar- blaðamennsku á þjóðhátíð, sem var mikil skemmtun. Ég varð þó altént að vera með hálfu ráði og rænu. Mér er ekkert sérstaklega annt um að álíta mig frekar Vestmanneying en íslending, en samt fékk ég gæsahúð þarna uppi í Fokkern- um þegar fyrst sá á Eyjar.“ Það kemur hálfpartinn flatt upp á Kristin þeg- ar ég segi honum að líklega gæti hann valið og hafnað atvinnutilboðum ef hann flyttist aftur til íslands. „Það gæti verið hnýsilegt að kynnast því hvernig útvarpsmenn starfa," segir hann grínaktuglega. „í raun er ég fyllilega sáttur við að hafa Island sem eins konar vé. Það gæti líka verið erfitt fyrir konuna mina að aðlagast þar norðurfrá. Svo er ég orðinn svo afvanur því að þurfa að mæta nokkurs staðar, mér finnst prýði- legt að vera sjálfs mín herra, minn eigin atvinnu- rekandi." — Hefurðu nokkuð verið að flýja ísland? „Nei, nei. Þetta eru bara tilviljanir lífsins. Hingað var ég teymdur á asnaeyrum ástarinnar og hér er gott að búa. Þetta er orðið mitt dag- lega líf, ég hef komið undir mig fótunum og þaki yfir höfuðið. Ég finn ekki lengur fyrir því að ég sé útlendingur." KANNSKI LÍÐURMÉR SVONA VEL Kristni hefur verið ýmislegt fleira til lista Iagt en að tala í útvarp. Á heimili hans hangir mikið skilerí, málverk og teikningar eftir hann sjálfan. Hann segist þó ekki hafa snert á pensli í nokkur ár. Og hann segist líka vera hættur að yrkja, nema þá einstöku lausavísur í munn náunga sem hann kallar Leiru-Jón. Hann játar þó með semingi að hafa á árum áður birt ljóð í Lesbók Mogga — hálfgerðar platvísur, segir hann — og svo gaf hann líka út ljóðabók hjá Helgafelli fyrir einum tíu árum. „Þetta var bókin Inn í skóginn eftir Króa, en það var ég kallaður í menntaskóla norður á Akureyri — lítilfjörleg bók undir dulnefni. Það er náttúrlega ágætt að fikta við svonalagað, en ætli ég sé ekki búinn að ausa úr skjóðunni. Kannski er ég orðinn svona mikill burgeis, kannski líður mér svo yfirmáta vel að ég hef enga þörf fyrir að standa í yrkingum lengur." Leiru-Jón yrkir þó enn, til dæmis þennan kviðling sem fauk í síðustu fótboltaheimsmeist- arakeppni þegar sænskur bölsýnismaður, Arne Gustavson að nafni, fylltist þungum áhyggjum vegna þess að karlar sinntu ekki lengur konum sínum, en gláptu í staðinn á fótboltastráka: Illa er komid, Árni Gúst, ástir vara ei lengi, kvenfólk hjarir kœrleiksfúst, en karlar stara á drengi. ÍSLENSKAN EINS OG SPARIFÖT Við sitjum í skrifstofu Kristins á heimilinu við Vonarstræti, eða kannski öllu fremur talstofunni þaðan sem hann flytur íslenskum útvarpshlust- endum tíðindi. Þar eru hljóðsnældur upp um alla veggi, stuttbylgjuútvarpið góða, atvinnu- tækið sími og íslendingasögur — reyfarakaup sem hann segist hafa gert í einni af ferðunum stopulu til íslands. Eg spyr Kristin hvort hann sé jafn gríðarlegur málvöndunarmaður og af er látið á íslandi. „Ja, eru íslendingar hættir að segja Mexíkan- ar," spyr hann á móti. „Ég tönnlaðist mikið á því í heimsmeistarakeppninni að það væri réttara að segja Mexíkómenn." Svo verður hann alvarlegur og segir: „Ég er mikill áhugamaður um mál og ég vinn með orð. Erlendis á maður oft í erfiðleikum að halda mál- inu hreinu, maður leggur sig kannski meira fram um að vanda sig. Þetta verða hálfgerð spariföt. Það hjálpar mér kannski líka að vera kominn af spjallkynslóð, eins og ég kalla það. Ungur varð ég oft áheyrandi að löngu spjalli. Fyrir tíma sjón- varps sátu menn heilu dagana yfir kaffibolla heima hjá mér í Eyjum, röktu ættir og sögðu fiskisögur. Ég er ekki frá því að það hafi haft áhrif." Við ræðum nýyrðasmíð og veltum því fyrir okkur hvaða orð íslensk Kristinn geti eignað sér. Hann segist halda upp á orðið „fótboltafíkill", yfir fólk sem leggur ofurást á boltaspark. Hann segist ekki vita hvort hann geti eignað sér orðið „grænfriðungur", sem hann segist hafa notað fyrir alllöngu, þegar umhverfisverndarmenn mótmæltu því að geislavirku sorpi væri hent í Biskæjaflóann norður af Spáni. „Erfðafjötlun" eða „erfðafikt", segir hann að sé íslenskun hans á því sem á ensku heitir „genetic manipulation". Önnur orð sem Kristinn segir að hann hefði gaman af að sjá á prenti segir hann að séu gaml- ar lummur; „lauður" fyrir sjampó, „skyrja" fyrir jógúrt, „sjá" fyrir vídeó. MENN Á STUTTBUXUM „Annars leik ég mér með orð og alls konar orðskrípi, ekki síst í íþróttapistlunum. Slíkt flúr hjálpar mér að breiða yfir þekkingarleysi mitt á íþróttum. Eftir þessi ár er ég raunar orðinn sæmilega að mér í fræðilegu hliðinni, mér tekst að kríta svona í kringum það sem ég les í spænskum sparkblöðum. Við Islendingar þurf- um heldur ekki að vera blankir að orðum þegar íþróttir eru annars vegar. Það þarf ekki annað en að fletta upp í Islendingasögunum. Þær eru fullar af vígamáli, sem hæfir knattspyrnunni al- veg prýðilega." — Nú hefur þú verið helstur umfjallari í tveim- ur heimsmeistarakeppnum í fótbolta... „Já, það voru reyndar einhverjir sem fettu fingur út í það í fyrra að maður sem sat á stutt- buxum úti á svölum á Spáni skyldi fjalla um menn sem hlupu á stuttbuxum hinum megin á hnettinum. En ég varaði mig á því að fara með fleipur og byggja allt á fræðingum. Gests augað er glöggt og það getur kannski stundum verið kostur að vera ekki stóríþróttamaður, þótt mað- ur sé að fjalla um íþróttir." — Þú ert sumsé enginn íþróttamaður sjálfur? „Ég er enginn fótboltafíkill og fer hérumbil aldrei á völlinn, enda er ég svo lágur í loftinu að það fer lítið fyrir mér í miklum fjölda. Mín íþróttaiðkun er ekki meiri en svo að ég skokka stundum með veggjum." EKKI LENGUR HANDLANGARI Það er að heyra á Kristni að hans vegur hafi farið nokkuð vaxandi þarna suðurfrá. „Lengst- um hef ég verið talinn „collaborador" eða hand- langari og kannski hálfgert núll og nix. Nú er ég kominn á skrá sem fullgildur íslenskur fréttarit- ari og var til dæmis hafður til ráðgjafar um draugagang í Höfða þegar leiðtogafundurinn stóð á Islandi. Á tíðum er ég hálfgert sendiráð hér í Madrid. Samt er ég auðvitað ekki í neinni aðstöðu til að stunda mikla og sjálfstæða frétta- öflun upp á eigin spýtur. Ég hlusta á fréttir, hleyp út á morgnana og kaupi blöðin, fletti þeim og velti vöngum. Ég spegla það sem gerist hér suð- urfrá, túlka það sem hér er sagt, en get ekki haldið því fram að ég stundi einhverja alvöru- blaðamennsku. Það kemur þó fyrir að ég hringi í ráðuneyti og stundum hef ég líka henst út og suður eftir frægu fólki; fótboltakappanum Butrageno, Munoz landsliðsþjálfara og Vigdísi forseta, sem hér var í heimsókn fyrir nokkrum árum." Og Kristinn bætir við: „Ég hef bara einu sinni náð að ota hljóðnema að Gonzalez forsætisráð- herra. Það var í forsetaheimsókninni að mér tókst að skjóta að honum einni þorskaspurn- ingu. Hvort þau hefðu rætt þorsk, þjóðarleiðtog- arnir?" — Það orð fer af þér að þú sért óvenju af- kastamikill, að í útvarpi á Fróni sé meira frá Spáni en nokkru landi öðru... „Ég reyni auðvitað að bjarga mér í lífsbarátt- unni. Stærsti hlutinn af þessu hefur eiginlega verið íþróttasnakk. En kannski stendur Spánn nær íslendingum en mörg önnur lönd. Til Spán- ar selja ísiendingar býsn af saltfiski og hingað koma íslendingar til að sóla á sér magann."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.