Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 27
■ ónlistarmenn úr ýmsum grein-
um munu nú hafa sæst heilum sátt-
um og ekki lengur rifist um hverjir
fái aö vera innandyra í Tónlistar-
höllinni miklu, sem rís í Laugardal.
Óperumenn sem lengi voru fúlir eru
orðnir ánægðir, enda er gert ráð fyr-
ir því að húsið verði mun stærra en
ráðgert var í upphafi. Fullbúið mun
það rúma um 2000 manns í sæti og
verður aðstaða fyrir tónlistarflutn-
ing af öllu tagi. En þetta er náttúr-
lega stór biti og nú blása tónlistar-
hússmenn enn til stórsóknar. Aðal-
fundur samtakanna verður á Sögu
þriðjudaginn næstkomandi og verð-
ur þar meðal annars kosið í stjórn.
Líklega verður þar einnig rætt um
fjáröflun, en í því sambandi er til
dæmis nefnt happdrætti í haust, jú,
og stórtónleikar. . .
A
A^^^ð vonum var ekki eins mik-
ið um dýrðir á 201 árs afmæli borg-
arinnar og á 200 ára afmælinu í
fyrra. Afmælið nú þótti vart frétt-
næmt og ekki mikið sem borgaryfir-
völd tóku sér fyrir hendur til að
halda upp á daginn. En ákveðin
borgarvaldaklíka Sjálfstæðisflokks-
ins var ekki aðgerðarlaus, öðru nær.
Afmælisdagskvöldið sást til Davíðs
Oddssonar og Ástríðar Thorar-
ensen eiginkonu hans þar sem þau
sátu að snæðingi á Hótel Holti með
Magnúsi L. Sveinssyni forseta
bæjarstjórnar, Markúsi Erni
Antonssyni fyrrverandi borgarfull-
trúa, núverandi útvarpsstjóra, mök-
um þeirra og síðan hinni makalausu
Elínu Pálmadóttur fyrrverandi
borgarfulltrúa og blaðamanni. Fór
að vonum vel á með þessu góða
fólki og sjálfsagt hefur kvöldverður-
inn ekki kostað borgarbúa nema
brot af því sem stóra afmæliskakan
kostaði í fyrra . . .
Tab-drykkurinn frá Vífilfelli
inniheldur cyklamat, sem ekki ku
vera ýkja hollf í miklu magni, en
hefur verið notað töluvert í fæðu
fyrir fólk með sykursýki. Á merki-
miða hverrar flösku stendur líka
stórum stöfum ,,Ætlað sykursjúk-
um“, væntanlega heilbrigðisyfir-
völdum til velþóknunar. Auglýsing-
ar á þessari vörutegund hafa hins
vegar tekið allt annan pól í hæðina.
Þar er ekki minnst á sykursjúka,
heldur lögð megináhersla á „Tab-
shape", eða fallegar útlínur þeirra
sem drekka þennan sykuriausa
vökva. . .
Það er þægilegt að greíða
orkureiiuiíngínn sjálfkrafa!
Nú býður Rafmagnsveita Reykjavíkur þér
nýja, mjög þægilega leið til að greiða
orkureikninginn. f>ú getur látið taka reglu-
lega út af EUROCARD/VISA reikningnum
þínum fyrir orkugjaldinu, án alls auka-
kostnaðar. Þannig losnar þú við allar rukk-
anir, færð einungis sent uppgjör og
greiðsluáætlun einu sinni á ári.
Með þessari tilhögun, sem er nýjung í
heiminum, sparar þú þér umstang og
hugsanlega talsverða peninga því að það
er dýrt rafmagnið sem þú dregur að
borga. Jafnframt ertu laus við áhyggjur af
ógreiddum reikningum og dráttarvöxtum.
Hafðu samband við Katrínu Sigurjónsdótt-
ur eða Guðrúnu Björgvinsdóttur í síma
68-62-22.
Þú gefiir upp númerið á greiðslukortinu
þínu og málið er afgreitt!
Láttu orkureikninginn
hafa forgang — sjálfkrafa!
RAFMAGNSVEITA
REYKIAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT34 SIMI6862 22
gráta. Hún var örugglega búin að
vera ekkja í hundrað ár, en bara gift
kona aftur í nokkra daga! Núna er
hún ekkja upp á nýtt, alveg eins og
hún var. Svo eignast hún líka allt,
sem Guðjón átti. Hann var víst rík-
ur. . .
Mamma varð rosalega reið, þegar
ég var að tala um þetta við hana.
Hún sagði að ég væri efnismann-
eskja (eða efnishugsunarmann-
eskja, eða eitthvað. . .) og hefði eng-
ar tilfinningar frekar en pabbi! Hún
er nú líka svo brjáluð út í hann þessa
dagana. En hún hefði ekki sagt
þetta, ef hún vissi hvað ég er sjúk-
lega hrifin af honum Kristjáni á
Grenimelnum. Eg gæti dáið af ást,
ég sver það! Og éru það ekki tilfinn-
ingar, eða hváð?
Pabbi segir, að við verðum að láta
okkur hafa það þó mamma sé soldið
skrítin þessa dagana. Það er út af
fóstureyðingunni. Mamma var
nefnilega alveg hörð á því að eign-
ast barnið, þó það væri eitthvað
skyldunni. Við erum öll að fara til
útlanda! Jibbí, maður. Algjört æði
með rjóma og sykri... Amma ætlar
að bjóða okkur ÖLLUM til London.
pabba og mömmu, mér og Adda
bróður. Svo kemur hún líka sjálf
með til þess að jafna sig eftir jarðar-
förina og það. Stebba vildi hins veg-
ar frekar fá peninginn og nota hann
í stúdentsferðalagið með vinkonum
sínum næsta vor. Hún er orðin of
merkileg til að láta sjá sig með fólki,
sem ekki er rétt um tvítugt, fallegt,
nýtískulega klætt og búið að fara í
a.m.k. 20 sólartíma á góðri stofu. Og
fyrir utan hana eru allir í fjölskyld-
unni annaðhvort hrukkóttir, með
æðahnúta, unglingabólur eða eitt-
hvað. Svo það gengur ekki fyrir
hana að fara með okkur, eins og gef-
ur að skilja! (Ég er sko guðsfegin, en
myndi náttúrulega aldrei segja það
við hana. Þá myndi hún ekki lána
mér naglalakk eða peysur framar.)
Bless. Dúlia.
vanskapað eða óheilbrigt, en pabbi
og læknirinn fengu hana til að láta
eyða því. En konur verða víst þar að
auki alltaf miður sín eftir svona, því
hormónarnir fara í steik við þetta.
Það segir stóra systir mín að
minnsta kosti og hún þykist vita alla
skapaða hluti. . .
Eitt meiriháttar frábært kemur þó
út úr þessum hryllingsfréttum í fjöl-
~ AGBÓKIN
ENNAR
_ ÚLLU
Kæra dagbók.
Mikið þrái ég venjulegt heimilislíf.
Það hefur hins vegar ekki verið í
miklu framboði heima hjá mér síð-
ustu daga, eins og ástandið er.
Amma á Einimelnum er komin
heim með líkið af nýja kallinum sín-
um og við erum búin að fara í kistu-
lagninguna. (Ég þorði náttúrulega
ekki að horfa á hann, þegar prestur-
inn tók lakið af. Samt var ég alveg
ákveðin í að gera það... En svo vildi
ég bara ekkert taka sjénsinn á að
það liði yfir mig og pabbi þyrfti að
bera mig út. Hann hafði nóg með
ömmu greyið.)
Mér finnst bráðum tími til kominn
að amma herði sig upp og hætti að
HELGARPÓSTURINN 27