Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 5
og þau áhrif sem það kann að hafa
á sjálfstæðismanninn og fyrrum
borgarstjórann Birgi ísleif. En enn
sterkara samband er kannski milli
menntamálaráðherra og Nordals-
ættarinnar. Jóhannes Nordal, faðir
Beru, er náinn vinur Birgis Isleifs frá
því þeir sátu saman í stóriðjunefnd.
„VEIÐIFÉLAGINN GAF
FORSKOT"
Afskipta Jóhannesar Nordals af
þessu máli er jafnvel þegar farið að
gæta, að mati sumra heimildar-
manna HP. Rekstrarstjóri Listasafns-
ins, Karla Kristjánsdóttir, var settur
forstöðumaður þess til tveggja mán-
aða þegar Selma heitin veiktist, en
eftir fráfall hennar, fáeinum dögum
fyrir stjórnarskipti, lét Sverrir Her-
mannsson það verða eitt sitt síðasta
verk í embætti menntamálaráð-
herra að svipta Körlu setningunni,
sem er nánast einsdæmi í embættis-
sögu landsins, og setti Beru í for-
stöðumannsstarfið í staðinn til
óákveðins tíma. Úr hópi myndlistar-
manna heyrðust strax þær raddir að
þarna hefði Sverrir, veiðifélagi
Jóhannesar Nordals, gefið Beru
„forskot" á aðra umsækjendur um
stöðuna, og reyndin mun vera að
þessi ákvörðun Sverris hleypti illu
blóði i myndlistarmenn og aðra
tengda greininni. Á hinn bóginn er
á það bent að setning Körlu, sem
ekki er listfræðimenntuð, hafi verið
„viss mistök"; skammt var til opnun-
ar á fyrstu sýningu í nýju húsnæði,
Bera hafði menntunina til að bera
við uppsetningu hennar, og var auk
þess nærtæk.
Burtséð frá ættar- og vinatengsl-
um þykir Bera vera mjög vænleg í
starf forstöðumanns á nokkuð öðr-
um forsendum en Einar Hákonar-
son, Gunnar og Ólafur Kvaran. Hún
hefur að vísu ekki enn sýnt nægi-
legt sjálfstæði í starfi, en þykir opin
og kreddulaus og hefur til að bera
það umburðarlyndi sem margir
telja að forstöðumaður þurfi í starfi.
Hún velur ekki menn „eftir sinni
línu“ eins og nokkrum öðrum um-
sækjendum er legið á hálsi fyrir.
Menn eru sammála um að þetta eigi
líka við um Aðalstein Ingólfsson,
ákaflega vandaðan og sanngjarnan
mann, sem allir sem leitað var til
kváðust treysta vel til að gegna for-
stöðumannsstarfinu. Skipun Aðal-
steins í stöðuna yrði einna óum-
deildust, fullyrða menn, en telja
hinsvegar að hann líði fyrir þann
flokks- og ættarhnút sem málið er í
og Birgir ísleifur þarf að höggva á
fyrr en seinna.
BARÁTTA MILLI STÉTTA
í grófum dráttum lítur því dæmið
þannig út: Birgir ísleifur á kost á
einkar hæfum bræðrum í starfið,
auk Aðalsteins, sem er ekki síður
með traustan bakgrunn, svo og
Einari og Beru, annarsvegar virkum
og virtum flokksbróður og hinsvegar
dóttur náins vinar síns. Það er við-
tekin venja á íslandi að embættis-
veitingar taki tillit til vensla og skoð-
ana, og svo er trúa margra að enn
verði hér.
Baráttan milli Einars og Beru er
barátta tveggja ólíkra skoðana um
hverskonar manngerð og menntun
dugir best í forstöðumannsstarf
Listasafnsins. Hún er líka barátta
milli stétta, milli listamannsins og
listfræðingsins. Eins og fyrr greinir
telja margir myndlistarmenn tíma
til kominn að maður úr þeirra röð-
um taki til hendinni í Listasafninu,
maður sem af eigin raun þekkir til
aðstæðna myndlistarmanna. List-
fræðingar benda aftur á móti á að
starfandi listamenn séu í of mikilli
nálægð við listina til að geta metið
þróun hennar og það besta sem hún
bjóði upp á á hverjum tíma. Einnig
geti verið siðferðislega háskalegt að
myndlistarmaður hafi vald til að
velja úr verkum kollega sinna til
ríkiskaupa.
Hver svo sem ráðinn verður af
þessum sex umsækjendum, sem
nokkrum orðum hefur verið farið
um hér að framan, stendur eftir
aðalatriði þessa máls. Listasafn ís-
lands hefur búið við þröng skilyrði,
bæði fjárhagslega og húsnæðislega.
Nýtt húsnæði skapar aðrar kring-
umstæður, stór og ögrandi bíða
verkefnin nýs forstöðumanns. Og svo
hann fái glímt við þau af viti þarf
hann að finna samtakamátt þeirra,
sem vilja láta sig myndlist varða í
landinu, svo og peninga. Það má
Birgir ísleifur líka vita.
Kjötvinnslur — verslanir
Vorum aö fá nýja sendingu af hinum frábœru
MAINCA-hamborgaravélum á góöu veröi.
300 hamborgarar á tíma
Nákvœm þyngdarstilling
Auöveldar í notkun
Möguleiki á aukaformplötu fyrir t.d. kjötbollur
PI.1SÍM llf/
KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900®^
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BÍLPLAST
Vfegnhöfda 19, felml 668233.
PóstMndum.
Ödýrir sturtubotnar.
Tökum aö okkur trefjaplutvinnu.
Vfefjtö Islfenskt.
HANDMENNTASKÓLI ÍSLANDS
Sfmi 27644 box 1464 121 Reykjavík
Handmenntaskóli Islands hefur kennt yfir 1250 íslending-
um bæði heima og erlendis á síðastliðnum sex árum. Hjá
okkur getur þú lært teikningu, litameðferð og skrautskrift
- fyrir fullorðna - og föndur og teikningu fyrir börn í
bréfaskólafomi. Þú færð send verkfæri frá okkur, sendir
ókkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka.
Þeim, sem minni tíma hafa, bjóðum við uþþá stutt
hæfileikapróf á þessum sviðum. - Biddu um kynningu
skólans með því aö snda nafn og heimilisfang til okkar eða
hringdu í síma 27644 núna strax, símsvari tekur við
pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeið-
anna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt,
hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er
tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra teiknun
og skrautskrift á auðveldan og' skemmtilegan hátt. Þú
getur þetta líka.
IÉG ÓSKA EFTIR AÐ FA* SENT KYNNINGARRIT
HMI MER AD KOSTNADARLAUSii
KÉRÁS1ASE
'FRÁ L'ORÉAL PARÍS
ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ.
LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU-
MEISTARANUM.
SPURÐU HANN UM KERASTASE.
FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM.
HELGARPÓSTURINN 5