Helgarpósturinn - 20.08.1987, Page 15
og hvernig á að bera sig að við að
beygja sig niður eftir hlutum."
VIGDÍS FORSETI TIL
FYRIRMYNDAR
Unnur segist telja hina miklu
ásókn í námskeiðin stafa at því að
fólk gerir sér grein fyrir því að Is-
land er ekki lengur aðeins lítii, ein-
angruð eyja úti í hafi: ,,Það eru
margar ferðir á dag til og frá Islandi
út í hinn stóra heim. íslendingar
ferðast víða og viö höfum vakið at-
hygli fyrir fágaða framkomu. Við
höfum staðið okkur svo vel á ýms-
um sviðum að eftir okkur er tekið
hvar sem við förum. Við höfum
staðið okkur vel í sambandi við
heimsóknir embættismanna og
kóngafólks hingað til lands og við
eigum frábæran forseta sem allir líta-
upp til í sambandi við framkomu,
kiæöaburð og málfar. Hún er ekki
aðeins leiðtogi okkar í þjóðmálum
heldur er hún einnig leiðtogi allra
kvenna í framkomu. Hún er til fyrir-
myndar og þetta ætti hver einasti
þjóðfélagsþegn að hafa að leiðar-
Ijósi. Það er ekki spurning um auð-
æfi sem ákveður hvernig fólk getur
verið vel klætt, það er spurning um
að kunna að klæða sig rétt. Aðeins
það að hugsa um að raða saman
réttum litum, vita að maður ber sig
vel, það skapar hverjum og einum
innra öryggi og lætur honum líða
vel. Skólinn minn byggist því fyrst
og fremst á því að veita fólki stuðn-
ing, punkta til að hafa að veganesti."
„ÞETTA REDDAST!"
Þrátt fyrir að Unnur hefur þjálfað
sýningarfólk í yfir tuttugu ár segist
hún vera óánægð með einn þátt í
fari þess: ,,Ég hef oft fengið að heyra
— og finnst sjálfri það sama — að hjá
sýningarfólki á íslandi og sýningar-
fólki úti í hinum stóra heimi beri
ekkert á milli. Þessu held ég að allir
geti verið sammála því á Islandi eig-
um við úrval af góðu sýningarfólki.
Það sem mér finnst helst vanta hér
er að fólk geri nógu miklar kröfur til
sjálfs sín. Þetta almenna viðhorf
„þetta reddast" er alltof algengt hér
á landi. Ef sýningarfólk fitnar þá
hugsar það með sér: „Þetta reddast.
Ég fer bara í megrun áður en kemur
að næstu sýningu." Hins vegar verð-
ur alltaf að hafa í huga að hér á landi
er fólk við sýningarstörf í auka-
vinnu. Þetta fólk vinnur yfirleitt
fulla vinnu annars staðar eða er við
nám en engu að síður eru gerðar
sömu kröfur til þess og við gerum til
atvinnufyrirsæta. Það þýðir ekki að
hugsa sem svo að einhver hafi verið
í prófum allan daginn og geti því
ekki komið fram á sviði brosandi
um kvöldið. Sýningarfólk á íslandi
verður að gjöra svo vel að láta eins
og það sé alltaf úthvílt og til í slag-
inn.“
Hún leggur áherslu á að hennar
mat sé að allir hafi gott af leiðbein-
ingum: „Þótt sýningarfólk sé meira
í sviðsljósinu en aðrir verðum við að
hafa í huga að það eru allir í sviðs-
ljósi, hver á sinn hátt. Á vinnustöð-
um er ekki nóg að skrifstofur séu
búnar fallegum skrifstofuhúsgögn-
um og nýtísku tölvubúnaði, það er
alltaf manneskjan sjálf sem mestu
máli skiptir. Hver og einn verður að
hugsa um sig sem fallega rós innan
um húsbúnaðinn, ekki eins og fall-
inn túlípana."
ÓSKADRAUMURINN
Skömmu áður en okkur bar að
garði hafði Unni borist bréf frá
tileen Ford, eiganda Ford-Models í
New York. Með bréfinu fylgdi glæsi-
legur litprentaður bæklingur yfir
„Super-models 1987“, bestu fyrir-
sæturnar í alþjóðlegri keppni sem
Ford Models stóð fyrir. Ein af bestu
sýningarstúlkunum var valin
Andrea Brabin, stúlka sem hafði
verið sýningarstúlka hjá Módelsam-
tökunum. Unnur sagðist að vonum
afar ánægð með þann árangur sem
Andrea hefur náð í Bandaríkjunum
því samkeppnin væri gífurleg vest-
an hafs. Hvort hún ætti sér einhvern
óskadraum á tuttugu ára afmæli
Módelsamtakanna svaraði hún að
bragði: „Já ég á mér þann óska-
draum að áður en ég hætti verði
Módelsamtökin orðin miðlun fyrir
atvinnufyrirsætur. Ég hef þá trú að
það komi að því að fyrirsætustörf á
Islandi verði það eftirsótt og vel
launuð að við getum rekið hér fyrir-
sætuskrifstofu á sama hátt og gert
er erlendis."
EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON MYNDIR JIM SMART
Blum ótvíræða sönnun þess hvað
gerðist ef menn létu rúnirnar taka
fyrir sig ákvarðanirnar. Þá myndu
menn lenda í þjáningum og nauð-
ung og ófrelsi sem væri bein afleið-
ing af því að nota sér ekki rúnirnar
eins og ætti að nota þær, þ.e. sem
einskonar véfrétt, heldur sem eitt-
hvert algilt svar.
Geturdu lýst hvernig madur fer ad
því ad nota sér rúnir?
„Þú þarft að byrja á að spyrja sjálf-
an þig spurningar sem er að vefjast
fyrir þér. Það getur verið í sambandi
við einhvern einstakling, vinnuna
eða hvaö sem er. Síðan dregurðu
rún úr pokanum og lest þér til um
hvað hún merkir. Oftast er nóg að
nota eina rún, en ef spurningin er
erfið og margslungin þá þarftu að
nota þrjár. Sú fyrsta veitir þér þá al-
menna yfirsýn, önnur skýrir vanda-
málið og sú þriðja bendir á leiö til
eftirbreytni."
Ad lokum, hvaö ertu ad gera hér
á laridi?
„Ég verð hér á hinu svokallaða
Snæfellsássmóti og einnig mun ég
flytja fyrirlestur í Þrídrangi,
Tryggvagötu 18, á föstudaginn og á
laugardaginn verð ég með „work-
shop" í Hlaðvarpanum, þar sem ég
mun kenna fólki að ráða í rúnirnar."
HP ákvað að leggja nokkrar
spurningar fyrir rúnirnar og eftir
nokkra umhugsun urðu þessar fjór-
ar fyrir valinu, Hvernig verður með
bjórinn? Hvað eigum við að gera í
hvalamálinu? Hvernig verður fram-
tíðin í húsnæðismálum ungs fólks?
Eiga trúarhópar eins og þeir umtöl-
uðu íslensku hópar rétt á sér?
Hvernig veröur meö bjórinn?
Við þessari spurningu fengum við
upp rún nr. 13. Þetta er rún sem
stendur fyrir uppskeru og Blum
túlkaði hana á þann hátt að þegar
væri búið að setja niður útsæðið.
Hinsvegar væri ekki hægt að búast
við uppskeru innan skamms tima.
Hann sagði einnig, i óeiginlegri
merkingu, að einhverjir menn
þyrftu að deyja og þegar það sem
plantað var hefur náð fullum þroska
mun það brjótast fram.
Hvaö eigum viö aö gera í hvala-
málinu?
Við þessari spurningu fengum við
rún nr. 7, sem er rún þjáningar,
nauðungar og vöntunar. Þetta er
erfiðasta rúnin eftir því sem Blum
segir og hún tekur til þess þegar eitt-
hvað er lokað, kemst ekki lengra.
Þessi lokun verður að verða mönn-
um kennari. Menn verða að halda
aftur af sér vegna takmarka sem
þeir hafa sjálfir skapaö sér. Hval-
veiðarnar hafa ekki lengur viö-
skiptalegt gildi heldur siðferðislegt
eftir því sem rúnin segir.
Hvernig veröur framtíöin í hús-
nœöismálum ungs fólks?
Hér fengum við rún nr. 7, en að
þessu sinni kom hún upp öfug. Eftir
því sem Blum túlkaði svarið verður
unga kynslóðin að hjálpa sér sjálf í
þessum efnum. Hinar eldri munu
ekki gera það. Unga fólkið verður
að sætta sig við að búa í minna hús-
næði og deila plássi með öðrum, en
í staðinn verður það þeirra eigið.
Þetta vandamál kallar á skapandi
hugsun af hálfu ungu kynslóðar-
innar.
Eiga trúarhópar eins og þessir
umtöluöu islensku hópar rétt á sér?
Hér fengum við upp rún no. 12.
Þessi rún merkir gleði og ljós en þar
sem hún kom upp öfug merkir hún
að þessi gleði og þetta ljós fái ekki
að streyma fram eins og ætti að
vera. Blum túlkaði þetta sem svo að
framundan væru tímar átaka og allt
væri óljóst. Krafist væri skynsemi
og kærleika. Ljós og skuggi hafa
blandast saman og það stöðvar gró-
andann. Hér væri um próf að ræða,
hvort við værum raunverulega að
fylgja í fótspor Krists, eða hvort
stefnan væri sú að splundrast í litla
hópa sem ættu í stríði innbyrðis.
Það sem væri sannleikur fyrir krist-
indómnum væri lækning og heil-
lyndi, sundrung væri ekki leið til
Krists.
Ralph Blum hefur selt yfir hálfa milljón eintaka af bók sinni um rúnirnar og merkingu þeirra. Hér með eina af hinum
fornu norrænu rúnum.
Eftir þann tíma ákvað ég aö skriía
um þær bók og það er semsagt þessi
bók sem heitir Bókin um rúnir
(Book of Runes).
Og til hvers brúkar maöur þessar
rúnir?
„Þær eru eiginlega aðferð til betri
breytni og til að tala við sjálfan sig.
Þær eru einskonar véfrétt, fyrsta
heimavéfréttin ef svo má segja. Það
er enginn kraftur í þeim samt, kraft-
urinn er alltaf í manninum sjálfum,
en þær veita þér aðgang að eigin
krafti og þær eiga að geta ráðlagt
þér, hvenær sem er og við hvaða
kringumstæður sem er, hvernig
hægt er að bregðast við ákveðinni
spurningu eða aðstæðum."
Er þetta þá svipuö notkun og var
í fornöld?
„Já, það má segja það. Á víkinga-
tímum voru þessar rúnir meginregl-
ur hins daglega lífs og 16 þeirra, þær
eru alls 24, er lýst í Hávamálum sem
slíkum. Það sem býr að baki er hug-
myndin um hinn andlega hermann
sem er tilbúinn að takast á við það
að vera einn og tala við sjálfan sig
og taka ákvarðanir. Það má því
segja, kannski í gamni, að þetta sé
einskonar anti-geðlækna-herferð."
En er ekki hœtta á aö fólk fari aö
treysta um of á rúnirnar og eftirláti
þeim aö taka ákvaröanir?
„Kannski og kannski ekki. En
rúnirnar geta aldrei tekið ákvarðan-
ir fyrir mann. Þær geta aðeins ráð-
lagt manni og vísað veginn.
Ákvörðunin sem endanlega er tekin
verður alltaf að koma frá manni
sjálfum. Viö getum líka spurt rúnirn-
ar um það hvað gerist ef maður læt-
ur þær einar um ákvarðanirnar.
Ralph Blum lét nú blaðamann
draga rún úr pokanum og upp kom
rún nr. 7 sem er rún þjáningar, nauð-
ungar og vöntunar. Þetta svar taldi
Ralph Blum er maður um fimmtugt, hefur unnid í 10 ár með rún-
irnar og selt þær um allan heim. Bókin sem hann hefur skrifað um
það hvað rúnirnar merkja hefur selst í meira en hálfri milljón ein-
taka og rúnasteinarnir sjálfir í svipuðu uppiagi. Hann hefur ráðið í
rúnirnar fyrir allskonar fólk. Allt frá frægum filmstjörnum, eins og
James Coburn og Shirley McLaine, til venjulegra meðaljóna, sem
leita eftir einhverju tæki til að ráðgast við í sundruðum heimi þar
sem spurningarnar eru óteljandi en svörin svo fá.
Hvernig kynntist þú þessum rún-
um fyrst?
„Ég átti í hinni týpísku amerísku
tilvistarkreppu þegar ég var fertug-
ur. Konan mín var farin frá mér, ég
var blankur, hafði enga vinnu, þjáð-
ist af þunglyndi og gat ekki sofið. Ég
komst í tæri við rúnirnar þegar ég
var í Englandi á ferðalagi og tók þær
með mér heim til Bandaríkjanna og
af tilviljun tók ég þær fram eina
nóttina þegar ég gat ekki sofið. Ég
hellti þeim á borð og datt í hug að
spyrja þær hvernig ætti að notast
við þær, í hvaða röð þær ættu að
liggja. Síðan velti ég þeim við þann-
ig að auða hliðin sneri upp, hreyfði
þær síðan til og frá og sneri þeim
svo við og lagði þær í þrjár raðir. Þá
kom upp þessi röð sem ég sýni í bók-
inni, fyrst rúnin sem merkir sjálfið
og síðast sú sem er auð og merkir
hið guðdómlega og það sem var svo
skrýtið var að röðin milli þeirra var
fullkomlega lógísk."
Þetta var upphafið að breytingu á
mínu lífi og næstu tveimur árum
eyddi ég í að ráða í rúnir fyrir fólk.
Hér sést bókin góða, nokkrar rúnanna og pokinn sem rúnirnar eru teknar úr þegar
leita þarf ráðgjafar þeirra.
KAUFORNÍUBÚIFÆRIR RÚNIRNAR
AFTUR TIL HINS NORRÆNA HEIMS
HELGARPÓSTURINN 15