Helgarpósturinn - 20.08.1987, Side 17
Reykjavík hafa eflaust tekið eftir því
að í sumar hefur umferðarljósum í
borginni fjölgað verulega. Hjá skrif-
stofu gatnamálastjóra fást þær
upplýsingar að þeir hafi sett upp um
tíu umferðarljós á höfuðborgar-
svæðinu í ár og eru þrenn umferðar-
ljós á Reykjanesbraut ekki talin
með. Þetta er liður í því að gera
borgina öruggari til aksturs, en þess
má geta að í samsvarandi borg er-
lendis, bæði vestan liafs og austan,
eru um 70—90 umferðarljós en í
Reykjavík eru þau aðeins um 40 eða
50 og eru þá gangbrautaljós ekki
talin með. Við eigum sem sagt langt
í land. Þess má geta að kostnaður-
inn við að setja upp ein umferðar-
ljós er um 1,2 til 1,3 milljónir króna
og er talið að þau borgi sig upp á
ekki lengri tíma en ári. . .
l^Hins og allir hundrað og eitt-
hvað þúsund gestirnir sem hafa
vísíterað í Kringlunni hafa séð
verður gaman að kaupa sér brenni-
vín í Reykjavík á næstunni. Húsa-
kynni nýja Ríkisins þar eru glæsi-
leg og ekki spillir fyrir að þar er
kúnst á veggjum, lágmynd eftir
Steinunni Marteinsdóttur, sem
tjáir alla þá gleði og böl sem hlýst af
vínsulli. Þar eru líka í anddyri fimm
málverk, öll eítir sama listamann-
inn, Einar Hákonarson, umsækj-
anda um stöðu forstöðumanns
Listasafns íslands, en hann hefur
einmitt verið öðrum málurum dug-
legri að mála stóreflis verk fyrir op-
inberar stofnanir og fyrirtæki. Hins
vegar er líka á það bent að öll
huggulegheitin í og við nýja
Kringluríkið geti haft neikvæðar
hliðar. Inni í Kringlunni er hlýtt og
notalegt, pottablóm og gosbrunnar
auka á stemmninguna og stutt að
fara eftir flösku. Því datt einhverjum
í hug að þarna yrði kjörinn sama-
staður fyrir útigangsmenn bæjarins.
En fílefldir öryggisverðir koma sjálf-
sagt í veg tyrir slíkar uppákomur. . .
H
H Hermálaráðstefna Félagsvís-
indastofnunar og Harvard-háskóla
(Center for International Affairs),
sem fram fór á Hótel Örk um þar-
síðustu helgi, var ekki aldeilis opin
hverjum sem var. Ágreiningur varð
með aðstandendum ráðstefnunnar
hvort hleypa ætti fréttamönnum inn
og munu íslendingarnir í undirbún-
ingsnefndinni hafa haft vinninginn
þar. Hins vegar var starfsmanni sov-
éska sendiráðsins (þ.e. frétta-
maður APN á íslandi) vísað öfug-
um frá, þegar hann mætti í Hvera-
gerði í von um að fá aðgang. Hann
gafst ekki upp heldur kom aftur á
sunnudeginum og þá reyndi hann
að fá ráðstefnugögn, erindi ráð-
stefnugesta og annað efni hjá
Magnúsi Guðmundssyni, frétta-
manni Norrænu fréttastofunnar
hérlendis. Það gekk heldur ekki. Þá
fregnaði HP, að einum eða tveimur
dögum fyrir ráðstefnuna hefði einn
forsprakka herstöðvaandstæðinga
hringt og óskað eftir seturétti. Því
var hafnað en notuð sú einfalda af-
sökun, að frestur til að sækja um
seturétt væri runninn út. Sannleik-
urinn er hins vegar sá, að herstöðva-
andstæðingum hefði aldrei verið
hleypt inn, hvort sem var. En ekki
nóg með það. Alveg undir drep voru
hinir og þessir ,,merkilegir“ menn í
þjóðfélaginu að reyna að fá aðgang
og tókst sumum, en öðrum ekki.
Einkum munu það hafa verið sendi-
herrar hinna ýmsu erlendu ríkja,
sem vildu fá -aðgang og fengu þótt
seint væri sótt, og mun það hafa ver-
ið réttlætt með því að ekki væri
ástæða til að stofna í hættu góðum
samskiptum íslands og ýmissa er-
lendra ríkja! . . .
ALLT FTRIR
RREINLÆTIÐ
SAUNA BOÐ
GUFUBÖÐ
Allt í einum pakka klefar í öllurn stæröum
og gerðum.
Ofnar ásamt öllum hugsanlegum
aukahlutum.
STURTUKLEFAR
Fljót og einföld uppsetning.
Frístandandi eöa innbyggöir í horn
eðaáveggi.
STURTUKLEFAHURÐIR
svo sem rennihurðir, fellihurðir og hurðir er
opnast beint út.
LATTU ÞER LIÐA VEL OG LITTU VIÐ
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚU 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMAR: VERSLUN 686455. SKRIFSTOFA 685966
Lyngháls 3 — Sími 673415—673416
HELGARPÓSTURINN 17