Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 20.08.1987, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR Útvegsbankamálið: Samband íslenskra samvinnufélaga og þrjú fyrirtækja þess gerðu um helgina tilboð um kaup á 67% hlutafjár Út- vegsbanka íslands, eða 670 milljónum króna. Jóni Sigurðs- syni viðskiptaráðherra var afhent tilboðið á föstudagsmorg- unogþávoru jafnframt lögð fram5% nafnverðsins, eða 33,5 milljónir. Viðskiptaráðherra tók sér viku frest til að íhuga tilboðið, en á mánudag bar svo við að fulltrúar 33 fyrir- tækja, félaga og einstaklinga í sjávarútvegi, bankastarfsemi og þjónustu lögðu fram tilboð í allt óselt hlutafé ríkisins í Út- vegsbankanum. Er þá um að ræða 76% hlutafjár eða 797 milljónir króna. Meðal þeirra sem að tilboðinu standa eru Iðnaðarbankinn og Verzlunarbankinn og er það ásetningur þeirra sem að tilboðinu standa að Útvegsbankinn og Iðnað- arbankinn sameinist á næsta ári. Sambandið hafði hins veg- ar íhugað sameiningu Útvegsbankans og Samvinnubank- ans ef að tilboðinu yrði gengið. Jón Sigurðsson kynnti bæði tilboðin á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var á þriðjudag- inn en engin afstaða var tekin til þeirra. Skiptar skoðanir munu vera innan ríkisstjórnarinnar varðandi sölu hluta- fjárins og hefur verið skipuð þriggja manna nefnd til að fjalla um málið fram að ríkisstjórnarfundi sem haldinn verður í dag, fimmtudag. Sú hugmynd kom upp að hafna báðum tilboðunum, gera nýtt útboð og láta tilboðin vera lok- uð og taka því sem hagstæðast þætti. Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra mun alveg vera á móti þessari hugmynd en aðrir telja að þetta sé eina leiðin til að ná samkomulagi inn- an ríkisstjórnarinnar um sölu á hlutabréfunum. Útvegs- bankamálið er mikið hitamál og sagt er að það komi til með að reyna verulega á stjórnarsamstarfið. Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra fór þess á leit við ríkisendurskoðun í síðustu viku að könnuð yrði nánar um 900 milljón króna umframfjárþörf til flugstöðvar Iæíís Eiríkssonar. Framkvæmdastjóri byggingarnefndar flugstöðvarinnar segir að verðbólgan hafi reynst mun meiri á byggingartímanum en reiknað var með og einnig benti hann á að gengisfall dollarans hefði haft slæm áhrif. Stein- grímur Hermannsson utanríkisráðherra sagði í blaðavið- tali að hann undraðist afskipti fjármálaráðherra þar sem þetta mál heyrði undir sitt ráðuneyti. Á blaðamannafundi sem byggingarnefnd flugstöðvarinn- ar hélt á þriðjudaginn var því haldið fram að byggingar- kostnaður væri í samræmi við kostnaðaráætlun og hefði í raun orðið undir upphaflegri kostnaðaráætlun hefði ekki komið til fjögurra milljón dala gengistap. Fréttapunktar: • Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fór í opinbera heimsókn til Ólafsvíkur og Snæfellsness- og Hnappadals- sýslu um síðustu helgi, en þá átti Ólafsvíkurbær 300 ára verslunarafmæli. • Ungur maður lét lifið i bilslysi á Vesturlandsvegi í síðustu viku. Fjórtán manns hafa látist í umferðinni það sem af er árinu. A sama tíma í fyrra höfðu 17 manns látist í umferðar- slysum. • Kringlan, ný verslunarhöll Reykvikinga, var opnuð á fimmtudaginn. Talið er að 40.000 manns hafi heimsótt Kringluna fyrsta daginn eða helmingi fleiri en reiknað var með. • Breskir fiskkaupendur hafa farið þess á leit við fiskverk- endur á íslandi að þeir selji sér fisk beint til Englands í gám- um. Bjóðast þeir til að leggja fram fé til fiskkaupanna sem og launa íslendinganna. Pétur Björnsson forstjóri ísbergs Ltd. í Hull segist telja að slík viðskipti muni skaða íslenska fiskseljendur beini þeir viðskiptunum aðeins til þeirra stærri, því smáu kaupendurnir skapi hið háa verð sem fæst fyrir íslenskan fisk í Bretlandi. • Tivolí í Hveragerði gengst fyrir margslunginni skemmti- dagskrá næstu vikur sem ætluð er fólki á öllum aldri. • Fyrstu tónleikarnir i eldgig á íslandi voru haldnir i Ker- inu í Grímsnesi á sunnudaginn. Þar kom fram fjöldi tónlist- armanna og hlýddu um 6000 gestir á flutning þeirra. Að- gangseyrir rann óskertur til héraðssambandsins Skarphéð- ins og er ætlað að greiða það mikla tap sem héraðssamband- ið varð fyrir á útiskemmtun um verslunarmannahelgina. • Fjórir íslendingar hafa gengist undir nýja aðgerð við nýrnasteinum í Noregi. Aðgerðin felst í því að að sterkum hljóðbylgjum er skotið á steinana og þurfa sjúklingar ekki svæfingu fyrir hana. Landbúnaðarsýningin Bú ’87 var opnuð í Víðidal um síð- ustu helgi. Hér er um viðamikla sýningu að ræða sem flestir ættu að gefa sér tíma til að heimsækja. • Öll hótel í Reykjavik eru nú fullbókuð dagana 19.—23. september þegar sjávarútvegssýning verður haldin hér. Að auki hafa gestir verið bókaðir á hótel í Hveragerði, Keflavik, Njarðvikum og á Selfossi. • Ólafur Hauksson ritstjóri hefur verið ráðinn útvarps- stjóri Stjörnunnar. • íslenska landsliðið í bridge lenti í 4.-5. sæti ásamt Norð- mönnum á Evrópumótinu sem fram fór í Brighton. • Skúli Alexandersson alþingismaður og framkvæmda- stjóri Jökuls hf. á Hellissandi segir að úrskurður sjávarút- vegsráðuneytisins um kvótasvindl sé árás á sig. Ráðuneytið hefur m.a. hótað að gera aflann upptækan. Skúli segist leita réttar sins fyrir dómstólum ef á þurfi að halda. Langholtsvegi 109 (í Fóstbræöraheimilinu) Sækjum og sendum Greiðslukorta þjónusta Sími 688177 Tökt til h im hunda ígœslu mgri eða skemmri dvalar Hundagæsluheimili J4 Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags fslands mu. Arnarstöðum, Hraungerðishreppi 801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030 UMBOÐSMENN Peir umbodsmenn sem fengu senda h appdrœttism iöa vinsamlega geri skil á þeim sem allra fyrst og eigi síðar en 25. ágúst. DREIFINGARSTJÓRJ HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.