Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 5
1.100 BILARI SJOINN 354 Á ÍSLANDSMARKAÐ HEKLA KEYPTI 354 MITSUBISHI-BÍLA í NOREGI ERUÁLEIÐ TIL LANDSINS NORSKIR BÍLAINNFLYTJENDUR VILDU SELJA ÞÁ í BROTAJÁRN FENGUST EKKI SKRÁÐIR í NOREGI Tveir fulltrúar frá bifreidafyrirtœkinu Heklu undirrit- uöu þridjudaginn 23. nóvember samninga viö norska fyrirtœkið Trans Motor a/s í Osló um kaup á 354 Mitsu- bishi-óíVum árgerð 1988 sem lentu á kafi 16. október sl. í óveðri sem gekk yfir Drammen í Noregi. / óveðrinu gengu sjór og vatn yfir geymsluaðstöðu innflytjenda norskra bíla og útkoman varð að um 1.100 bílar fóru á bólakaf. Tveir bílar flutu upp og rak út í höfnina. Hundr- uð þessara bíla eru á leið til íslands, en norskir bílainn- flytjendur hafa ekki tekið í mál að láta skrásetja bílana í Noregi. EFTIR HELGA MÁ ARTHURSSON MYNDIR JIM SMART Samkvæmt upplýsingum sjónar- votta í Drammen fylltust margir bíl- anna af sjó og vatni svo stóð upp fyr- ir stýrishjólið og allir fengu bílarnir á sig verulegan sjó og vatn. Eins og áður sagði flutu tveir bílanna upp af hafnarbakkanum og út á höfnina. Allir voru bílarnir á geymslu- svæði norsku bílainnflytjendanna og er um að ræða Toyota, Subaru, Mitsubishi, Daihatsu ogMazda. Alls 1.100 bíla. TRYGGINGAFELOG í BÍLASÖLU Mikið hefur verið rætt um þetta mál í Noregi og hefur það valdið deilum á milli tryggingafyrirtækja og bílainnflytjenda. Lauk deilunni með því að tryggingafélögin greiddu bætur fyrir bílana, en eign- uðust þá í leiðinni. Það eru þau sem nú eru að reyna að selja þessa bíla til að minnka tjónið sem þau telja sig hafa orðið fyrir. Nokkur stærstu tryggingafyrirtæki Noregs blandast inn í málið. Flestir bílainnflytjendur í Noregi hafa mótmæit þeim áform- um tryggingafélaganna að selja bíl- ana til þriðja lands vegna tjónsins sem það ylli þarlendum bílainnflytj- endum, enda telja þeir að líkur séu til að verulegar skemmdir komi fram í bílunum eftir að hafa lent undir sjó og vatni. HEKLA KAUPIR 354 BÍLA Nú þegar hefur verið gengið frá sölu á 354 bílum til Islands. Eru það Mitsubishi-bílar sem eru á leiðinni til Heklu. Þá hefur HP heimildir fyr- ir því að einstaklingar íKeflavík séu í samningaviðræðum við trygginga- félög í Noregi um kaup á Subaru-bif- reiðum. Einn þeirra sem orðaðir hafa verið við slíkan innflutning er Margeir Margeirsson í Keflavík, en HP fékk þær fréttir ekki staðfestar. Margeir Margeirsson er staddur í Noregi. Umboðsmaður Subaru á Is- landi er Ingvar Helgason og í sam- tali við fulltrúa fyrirtækisins kom fram að þeim hefði ekki boðist að taka tjónsbíla frá Noregi og þeir myndu aldrei selja slíka bíla. Tryggingafyrirtækið Store Brand Norden eignaðist með þeim hætti, sem hér hefur verið lýst, 331 Subaru-bíl. Þeir hafa nýlega gengið frá samningum við bandarískt fyrir- tœki, Twin Jay Inc., um kaup á þess- um bílum, en bandaríska fyrirtækið sérhæfir sig í sölu vöru til þriðja lands. Samkvæmt heimildum HP hyggst það fyrirtæki selja bílana áfram til Afríku, Mid-Austurlanda eda lraks. Store Brand gekk þannig frá samningum við Twin Jay Inc. að tryggt var að bílana mætti ekki selja á Norðurlöndum og var tekið fram að þá mætti ekki selja í Danmörku, Svíþjód, eda Finnlandi, en ísland gleymdist í þessum samningum. Þetta þýðir að Twin Jay Inc. getur selt bílana til lslands, án þess að brjóta samninga við norska trygg- ingafyrirtækið. Tryggingafyrirtæk- ið seldi bandaríska fyrirtækinu, auk Subaru, Toyotur og Daihatsu-bíla. SJÓAÐIR BÍLAR Á SPOTTPRÍS Verðið á þeim Mitsubishi-bílum sem Trans Motor a/s seldi Heklu er um 8 milljónir norskar kr. fyrir bíl- ana 354, eða um 50 milljónir ísl. króna. Innkaupsverð hvers bíls er um 22.000 norskar að meðaltali eða um 140 þúsund krónur íslenskar. Þessar tölur hafa komið fram opin- berlega í Noregi. Samkvæmt heimildum HP í Nor- egi er ekki vitað hve miklar skemmdir eru á þessum bílum, en þær eru það miklar og hættan á því að alvarlegir gallar komi fram í vél- um, rafkerfi og tölvukerfi bílanna talin svo mikil, að norskir bílainn- flytjendur gáfu strax út yfirlýsingu um að þessir bílar yrðu aldrei settir á götuna í Noregi. Hefur innflytjandi Subaru í Noregi t.d. farið fram á að bílarnir verði seldir í brotajárn, en tryggingafélögin neita því og selja þá áfram við vægu verði. Samkvæmt heimildum HP í Nor- egi koma Mitsubishi-bílarnir til landsins fljótlega og mun það vera skipafélagið Eimskip sem flyt- ur þá til landsins. Fyrstu 100 bíl- arnir koma til landsins í næstu viku. Norskar heimildir HP herma, að skipafélagið Eimskip hafi einnig verið beðið að flytja bíla frá Dramm- en til Amsterdam fyrir bandaríska fyrirtækið, en þar er fyrirhugað að þurrka bílana og dytta að þeim, áður en fleiri verða sendir til íslands eða Mið-Austurlanda! íssimiim, INGIMUNDUR SIGFÚSSON FORSTJÓRI HEKLU: — Er þaö rétt aö þiö ætliö aö kaupa 354 Mitsubishi-bifreiöir frá Trans Motor a/s í Noregi? „Já, viö erum að kaupa þessa bíla og höfum undirritaö samning þess efnis." — Hvenær er von á þessum bifreiö- um? „Þeir koma i tvennu eöa þrennu lagi frá Noregi og þá meö Eimskip. Fyrsta send- ing er væntanleg í næstu viku og þá koma aö ég held 100 bilar." — Er þaö rétt aö þeir kosti ykkur um 22 þúsund norskar krönur hver bill? „Nei, þaö er ekki rétt því þetta eru marg- ar gerðir af bílum. En þessir bílar höföu lent i flóöum og þess vegna fengum viö þá á mjög hagstæðu verði." — En er þaö rétt aö heildarandviröi bílanna hafi veriö um 8 milljónir norskar eöa um 50 milljónir króna islenskar? „Sennilega eru 60—65 milljónir nær lagi" — En nú lentu þessar bifreiöir i sjó- skaöa? „Nei, ekki í sjóskaða, þeir lentu i vatns- flóðum. Þetta var bara rigningarvatn. Ég fullyröi að þaö sé rangt aö þeir hafi lent i sjó." — En nú vilja Norömenn ekki setja þessa bila á almennan markaö. „Þaö er ekki það aö þeir vilji það ekki, ég held aö þetta hafi frekar gerst þannig aö þaö hafi verið gefin út einhver yfirlýsing strax og þetta gerðist að þessir bílar yrðu ekki seldir á markaönum. Þeir heföu alveg getað selt bilana. En þetta gæti líka hafa komið til vegna þess aö þaö gilda ööruvísi tollalög í Noregi, þeir geta ekki látiö taka til lækkaös innkaupsverðs." — Þú hefur tryggingar frá Noregi um aö bifreiöirnar hafi ekki lent i sjó? „Ja, við erum alveg vissir um þaö, viö erum búnir að skoöa alla bila og höfum kynnt okkur ástand þeirra, en þar að auki höfum viö ekkert reynt að fela þetta fyrir fólki." -phli ÞÓRIR JENSSON, FORSTJÓRI MAZDA-UMBOÐSINS: — Hafa ykkur f Mazda-umboöinu ver- iö boönir til kaups sjóskaöaöir japanskir bilar frá Noregi? „Nei, við vitum af þessu en okkur hafa ekki verö boönir þessir bilar." — Mynduö þiö selja slika bíla hér á göturnar? „Ja, þetta eru eiginlega ekki sjóskaöaðir bilar. Viö Drammen hagar þannig til aö þetta er nánast ferskvatn, sjórinn nær ekki þarna inn. Þaö kemur svo mikiö af fersk- vatni þarna inn i botni Oslófjarðar, þannig aö þetta er mjög lítiö sjóblandað. Ég get hins vegar ekki svarað því hvort við mundum selja svona bila, ég þekki ekki málið, en einhverra hluta vegna má ekki selja þessa bíla í Noregi." JÓHANN JÓHANNSSON, FORSTJÓRI DAIHATSU-UMBOÐSINS: — Hafa ykkur veriö boönir til kaups sjóskaöaöir japanskir bílar frá Noregi? „Nei." — Mynduð þiö selja svona bila hér? „ Þaö fer eftir, hvernig þeir eru farnir, ég þekki þaö ekki." JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON HJÁ SUBARU-UMBOÐINU INGVARI HELGASYNI: — Hefur ykkur boðist að flytja inn sjó- skaöaöa bila frá Noregi? „Nei, en viö vitum ýmislegt um máliö og fylgjumst meö þvi." — Mynduö þið selja slika bila? „Þaö myndum viö ekki gera, enda hefur japanski framleiöandinn lagt á þaö rika áherslu viö innflutningsaðilann í Noregi aö bilar þessir veröi ekki seldir áfram. Sé þaö gert þá er það í andstööu við framleið- endur." BOGI PÁLSSON, FRAMKVÆMDA- STJÓRI TOYOTA-UMBOÐSINS: — Hafa ykkur verið boðnir til kaups sjóskaöaöir japanskir bílar frá Noregi? „Nei, okkur var kunnugt um aö þaö voru bílar þar sem voru sjóskaöaöir, en okkur voru þeir ekki boðnir. Enda heföum viö ekki haft áhuga á sliku." — Þiö mynduð ekki selja slika bila á götuna hér? „Nei, þaö er alveg á hreinu. Við teldum þaö of varasamt öryggisins vegna, enda hljóta þeir aö vcra fallnir úr ábyrgö eftir þetta. Þetta eru bílar sem ég veit aö Norö- menn vildu bara selja tryggingafélaginu og fá afskrifaða vegna þess aö þeir fylltust af sjó." HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.