Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 28
Viljir Þú Sameina Gæði & Glæsileik ! ■AUSTURSTRÆTI 14- ST2345- steypu full af kynjaverum. 1 borginni búa dýr af öllum gerðum. Menn sjást ekki lengur, þeir hafa verið gerðir höfðinu styttri. Yfir borginni hvílir ónotaleg dauðaslikja. Heimur sveitar í huga drengs verður ljúfsár minning lesandans, þegar hrollvekj- andi heimur íkornans tekur að nísta. íkorninn hittir aðeins einn sinnar tegundar. A auðum og andvana göt- um er hann einmana og smár. Skáldsagan deijir á borgina, and- snúna skapandi huga. Hauslausir menn eru huglausir, menn án hug- arflugs hætta að vera til. Moldugar hauskúpur í baðkari verða fornleif- ar, minnisvarðar um eitthvað sem var. Er þá von? Ég er ekkert farinn aö hreyfa mig enn, en sest nú upp vib dogg og tanna sœngurverid, framkalla nota- legt marr medan ég renni augum um þennan fjórveggja afheim sem hœgt er að einangra með lykli og mála í skjannalitum. Heimum má alltaf breyta. Viðfang Gyrðis er hugarflugið. Gangandi íkorni er óður til ímynd- unaraflsins, óður til andans í heimi þar sem efnið er allt að gleypa. Myndirnar spretta upp af hverri síðu og fylla út í rýmið, uns draumsólir vekja dreng til nýrra ævintýra. Gangandi íkorni biður lesandann að lesa hægt, og síðan aftur. Að háls- höggva ekki hugarfugl á flugi. Freyr Þormóðsson Paö fer aö hlýna Kjartan Arnason: Frostmark. Smá sögur. 177 bls. Örlagið. Það er mikil hlýja í þessum fimm smásögum eftir Kjartan Árnason, sem gætu eins vel hafa heitið Lífs- mark. Höfundurinn hefur mikið dá- læti á hinu ljóðræna og á (orða)leikj- um, og hann leggur mikið kapp á að koma bjartsýni sinni og lífsgleði til lesandans. Þriðja sagan heitir Mið- bik og fjallar einmitt um rithöfund, sem situr fyrir framan ritvélina og hugleiðir hvað hann vill. Hann kemst þannig að orði: ,,í dag skyldi skrifað! Já í dag skyldi ég skrifa ef ekki ódauðlegt þá að minnsta kosti endalaust verk sem hvergi hæfist en endaði heldur hvergi og teygði sig so langt inní framtíðina að eiginlega legði það tímann að baki og hrifi lesandann með sér útá hið takmarkalausa haf. . . takmarkalausa haf... — já, takmarkaiaust haf tímalausrar sælu. Þangað skyldi ég skrifa les- andann, útá takmarkalaust haf, útá endalausan hafsjó eilífrar nennu." Þá leið komumst við þó ekki án vinnu og strits, og er það partur af speki bókarinnar að vegurinn skipti meira máli en takmarkið. Það lærist Merði Tanngarðssyni til dæmis í fyrstu sögu bókarinnar, Hringanót- um. Hann hefur ráðið sig í þangskurð til Heyeyjar, en verður að bíða þolinmóður i nokkra mánuði áður en hann getur hafið ætlunarverk sitt. Fyrst þarf hann nefnilega að kynnast sjálfum sér og lífinu eftir að hafa gengið í gegnum mikinn einmanaleika — þegar það hefur gerst getur hann farið að skera upp. Sigur í sálarbaráttunni er forsenda fyrir að sigrast á náttúrunni. En þegar tími uppskerunnar rennur loksins upp koma Eyrarmenn skyndilega til eyj- unnar til þess að komast yfir gullið sem þeir halda að geymist þar. Það kemur til átaka og Mörður hverfur í sjóinn með búandliði eyjunnar. Hringanóra sækir form sitt til kynjaævintýranna. íbúar eyjunnar eru selir, sem koma í land á hverju ári, fella hamina og fara að slá gras og þang. Eyrarmenn hafa aldrei þorað að nálgast Heyey vegna dul- arfullra mannshvarfa og voveiflegra dauðsfalla, sem þeir settu í beint samband við digra sjóði sem Heyeyingar hlutu að vakta og neyta allra meðala til að vernda. En ráðn- ingarstofan Ráðning, sem starfar undir kjörorðinu Við veitum þér ráðningu, hefur samband við Mörð, sem lætur ráða sig í þangskurð. Og smám saman verður hann partur af hringrás eyjunnar. Hann stenst próf- ið og óljós grunur verður vissa. Næsta saga segir frá næturverði, sem starfar í risabanka úr marmara. Hann er lítt hrifinn af umhverfinu og kuldalegur bankinn verður í aug- um hans tákn hins illa og háskalega í tilverunni. Andstaða hans særir fram andstæðing, sem líkamnast og verður „ógnvaldur næturvarðanna, sjálfur Hinn“. Þeir eigast við og skylmast í þröngum göngum bank- ans. Næturvörðurinn sigrar í innri MEIRAPRÓFSMÁMSKEIP Námskeið til imdirbúnings meiraprófi verða haldin í Reykjavík og annars staðar á landinu þar sem næg þátttaka fæst. Umsóknir berist bifreiðaeftir- litinu fyrir 30. desember nk. BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS bifireiðastjóranámskeiðin. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.