Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 39
VALSMENN FJÖLMENNUM Á HEIMALEIKI Verðlaunabókin LEÐURJAKKAR OG SPARISKÓR — bráðsmellin og spennandisaga. Bókin sem hlaut hæstu sem veitt hafa verið í samkeppni um barna- og unglingaskáldsögur hérlendis. snýst um daglegt , amstur og ástarskot nemenda ( 8. H — glettin og gáskafull — þangað til að Sindbað sæfari kemur til sögunnar. — Þá æsist leikurinn heldur betur og ótrúlegur háski vofir ýfir aðalsöguhetjunni.... ÆSKAN FRETTAPOSTUR Ólga í ríkisstjórninni Mörgum þykir sem líf ríkisstjórnarinnar hangi nú á blá- þræðí. Ágreiningsefnin eru mörg og deilur einstakra ráð- herra heiftúðugar. í upphafi deildu menn um húsnæðis- frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, en nú hefur tekist að miðla málum þar. Mikið hefur verið deilt um kvótamálið og tóku Alþýðuflokksmenn sér frest til að samþykkja frumvarpið, héldu um það sérstakan fund og komu síðan með breytingatillögur. Þingflokkur Alþýðu- flokksins sætti sig ekki við að frumvarp sjávarútvegsráð- herra um fiskveiðistjórn yrði lagt fram sem stjórnarfrum- varp nema á því yrðu gerðar grundvallarbreytingar og lagði Alþýðuflokkurinn fram tillögur í því máli. Tillögur Alþýðu- flokksins voru ræddar í vikunni, en ágreiningur mun eink- um vera um sölu veiðileyfa. Jafnvel var reiknað með að sætt- ir myndu þó takast fyrir rikisstjórnarfund sem halda átti í dag. Agreiningur er einnig um landbúnaðarmál. Jón Helgason landbúnaðarráðherra lýsti strax yfir óánægju þegar fjár- lagafrumvarp var lagt fram. Sérstök nefnd þingflokkanna sem skipuð var einum þingmanni úr hverjum stjórnar- flokki komst að samkomulagi um að hækka greiðslur til landbúnaðarins um 100 milljónir. Hins vegar kom á daginn að það samkomulag stóð ekki og niðurstaðan var sú að land- búnaðarráðherra og fjármálaráðherra gengu á fund for- sætisráðherra til þess að reyna að finna lausn á málinu. Allt þetta hefur orðið til þess að magna sögusagnir um hugsan- leg stjórnarslit. Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra hefur þó mótmælt því að stjórnarslit geti komið til. • Dagbók sem Halldór Laxness hélt á meðan hann dvaldi í klaustrinu St. Maurice i Clervaux er nú komin í leitirnar. Halldór hafði talið hana glataða en eftir langa leit fannst bókin loks í Landsbókasafni íslands, í óflokkuðum gögnum sem Stefán Einarsson prófessor lét eftir sig. Dagbókin er i litlu broti, rúmar 100 blaðsíður, og er nú unnið að því að búa efnið til prentunar. • Guðmundur Finnur Björnsson hefur nú verið týndur í tæpan hálfan mánuð. Víðtæk leit hefur farið fram en ekkert hefur komið í ljós sem gefið gæti visbendingu um hvarf Guð- mundar. • í nýútkomnu fréttabréfi Fasteignamats ríkisins kemur m.a. fram að íbúðir á Akureyri hafa hækkað mest í verði á þessu ári. íbúðaverð þar er nú orðið hærra en á Suðurnesj- um, öfugt við undanfarin misseri. • Leigutekjur Flugstöðvar Leifs Eirikssonar ættu að verða milli 160 og 170 milljónir króna á ári, en eins og komið hefur fram er þarna um dýrasta leiguhúsnæði á landinu að ræða. • í nýlegri skoðanakönnun Félagsvisindastofnunar, sem hún gerði fyrir Morgunblaðið, kemur í ljós að Kvennalisti og Framsóknarflokkur myndu bæta verulega við fylgi sitt frá alþingiskosningum i april færu kosningar fram nú. Sam- kvæmt könnuninni fengi Kvennalistinn yfir 17% atkvæða. • Yfirsakadómari hefur úrskurðað að Steingrímur Njáls- son kynferðisafbrotamaður skuli sæta gæsluvarðhaldi þar til dæmt verður í máli hans fyrir Hæstarétti. Síðasta dómi sem Steingrímur hlaut var vísað frá Hæstarétti í október vegna formgalla. • Tryggvi Pálsson, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Landsbankans, hefur gagnrýnt Seðlabanka íslands harð- lega fyrir framtaksleysi og lélega upplýsingaöflun um fjár- magnsmarkaðinn. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra tók undir þessa gagnrýni og sagði að Seðlabankinn hefði brugðist því að beita virkri peningastjórnun. Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri sagðist undrast þessi um- mæli Tryggva og sagði ennfremur að Seðlabankinn hefði of lítið valdsvið því að þing og ríkisstjórn ákvæðu hvaða stjórn- tæki og valdsvið Seðlabankanum væru fengin. • Útvarpsstjóri, Markús Örn Antonsson^ hefur óskað eftir umsögn siðanefndar Blaðamannafélags íslands um frétta- flutning Ríkisútvarpsins, hljóðvarps, um meint tengsl Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fyrrverandi forsætisráð- herra, við bandarísku leyniþjónustuna, UIA. Þsssi Ósk út- varpsstjóra kemur í kjölfar harðrar gagnrýni útvarpsráðs á vinnubrögð fréttastofunnar. • Samband íslenskra samvinnufélaga hefur ákveðið að flytja aðalstöðvar sínar að Kirkjusandi á Laugarnesi. Þessi ákvörðun kom nokkuð á óvart þar sem talið var nær öruggt að Sambandið myndi flytja höfuðstöðvar sínar í Smára- hvammsland í Kópavogi. Svo sýnist sem flutningi Sam- bandsins í Kópavog verði frestað um óákveðinn tíma, þar sem þeir hafa sagst tjalda til meira en einnar nætur á Kirkjusandi. • Flugleiðir hafa ákveðið að hækka þær hámarksbætur, sem flugfarþegar þeirra geta fengið vegna flugslyss, úr 830 þúsund krónum í fimm milljónir króna frá og með 1. des- ember. Fargjöld félagsins hækka ekki vegna þessa. • Nú hefur endanlega verið gengið frá skipulagi hins nýja ullariðnaðarfyrirtækis se_m til varð við samruna Álafoss hf. og ullariðnaðardeildar SÍS. Fyrirtækið mun halda nafni Álafoss og verða höfuðstöðvar þess á Akureyri. Forstjóri verður Jón Sigurðarson, sem áður var forstjóri iðnaðar- deildar Sambandsins. Starfsmenn verða alls 550 en 140 var sagt upp störfum, 80 á Akureyri og 60 i Mosfellsbæ. Hlutafé hins nýja fyrirtækis er um 800 milljónir. • Lausafjárstaða viðskiptabankanna hefur versnað að und- anförnu og þrír bankar uppfylltu ekki lausafjárskylduna i lok október, en lausafé þeirra verður að vera 8% af ráðstöf- unarfé. Ástæða þessa er mestmegnis sú að eftirspurn eftir lánsfé hefur aukist mjög mikið. • Össur Skarphéðinsson hefur sagt starfi sínu lausu sem ritstjóri á Þjóðviljanum. Össur mun taka við lektorsstöðu við Háskóla íslands. • Bensínsala hefur aukist það sem af er árinu um 13% mið- að við sama tíma í fyrra. Af þessu leiðir að tekjur vegasjóðs verða um 150 milljónum króna meiri en áætlað var. • Viðgerðarverkstæði sem ábúendur á jörðinni Káraneskoti í Kjósarhreppi eru með í smíðum eyðilagðist í vikunni öðru sinni á einum mánuði vegna hvassviðris. HARTOPPAR HÁRTOPPAR Bylting frá TRENDMAN Hártoppur sem enginn sér nema þú. Komið, sjáið og sannfær- ist. Djúphreinsa og fríska upp hártoppa af öllum gerðum. Pantið tíma hjá Villa rakara í Aristókratanum, sími 687961. Opið á laugardögum. MjHI ^ y Síðumúla 23 HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.