Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 9
NGIR BOTNINN MARKAÐI ÍUSA toppi allra tíma í október. Á tímabil- inu ágúst 1986 til febrúar — mars 1987 var verðið tvöfalt hærra en ár- ið áður. Hann hefði því hvatt sína framleiðendur til að framleiða á fullu og beðið dótturfyrirtaeki Ut- flutningsmiðstöðvarinnar í Banda- ríkjunum að selja vöruna jafnharð- an; Óttar kvað fjögur fyrirtæki annast hörpudiskssöluna í Bandaríkjunum. Útflutningsmiðstöðin hefði verið með um 3/4 íslensku framleiðsl- unnar um tíma, en nú væri ekkert þessara fyrirtækja yfirgnæfandi. Hin fyrirtækin eru Coldwater (SH), Sambandið og Ocean Harvest (Hall- dór Helgason). Þegar markaðurinn tók dýfu niður á við í maí í vor kom í ljós að stóru aðilarnir tveir áttu í vandræðum með sínar birgðir. Þeir höfðu hikað og ekki uggað að sér og sátu uppi með alla þessa árs fram- leiðslu og verulegt magn frá 1986. Óttar taldi sig hafa heimildir fyrir því að birgðir Coldwater væru 3—400 tonn, en Sambandsins eitt- hvað minni. Þá fór söludeild Cold- water á tauginni og sendi út afslátt- arjólatilboð til 20.000 útsala, sem gilda skyldi frá 15. október til 31. desember. Buðu þeir 20 senta afslátt frá skráðu verði, sem þá var komið niður í $3.40, sem gerir um 6—7%. Því til viðbótar skyldu þeir fá 15% afslátt á fyrstu pöntun og afsláttar- miða, sem gæfi 25% afslátt á ann- arri pöntun við framvísun beint til Coldwater. Þetta var þó bundið við 5 kassa aö hámarki, en hver kassi vegur u.þ.b. 14—15 kg. Það sem gerðist næst var að markaðurinn tók nýja dýfu niður í $2.50—2.80, án þess veruleg hreyfing kæmist á birgðirnar, I ályktun, sem stjórn SH birti í Mbl. á þriðjudag, segir m.a. að „öfl- ug sölufyrirtæki í nálægð við mark- aðinn hafi bolmagn til að reka markaðsstefnu og geti fjármagnað nauðsynlegt birgðahald, þegar stýra þurfi framboði. Sameinaðir hafi Islendingar yfir nægilega miklu og fjölbreyttu framboði að ráða til að vera leiðandi þátttakendur í verðmyndun og þar með skilað framleiðendum og þjóðarbúinu hæsta verði“. Af framansögðu virðist mega 'ráða, að sjálfhólið sé ekki 100% haldbært. Sitthvað geti farið úr- skeiðis hjá risaveldunum okkar góðu og að þeim geti verið hollt að mæta samkej>pni og vera ekki ein um að mata Islendinga á upplýsing- um um ágæti sitt. í lokin mætti spyrja: Hvert verður skilaverð til þeirra hörpudisksfram- leiðenda, sem trúðu mönnunum með áratugareynsluna fyrir afurð- um sínum? Hver átti að borga af- sláttinn og afsláttarmiðana? Þorsk- sjóður fyrirtækisins? Og hvað gerir jólasveinninn nú, þegar markaðs- verðið er komið langt niður fyrir jólaafsláttartilboðið? Frestar jól- unum? Sighvatur Björgvinsson, formaður fjárveitingarnefndar. „Eg lít á það sem skyldu mína sem formanns f járveitingarnefndar, ef gjaldalið- ir frumvarpsins hækka í meöförum nefndarinnar, að ganga á fund ríkisstjórn- arinnar og segja: „Svona lítur þetta út, herrar mínir, nú óska ég eftir afstöðu ykkar."" arinnar, að ganga á fund ríkisstjórn- arinnar og segja: „Svona lítur þetta út, herrar mínar, nú óska ég eftir af- stöðu ykkar.“ Ertu búinn aö fara á fund stjórn- arinnar? Nei, en ég mun gera það ef þessi niðurstaða kemur upp. Er það ekki orðið nokkuð Ijóst? Ég tel a.m.k. að ríkisstjórnin þurfi að taka sín mál til rækilegrar endur- skoðunar, ef þær óskir sem einstakir ráðherrar hafa lagt fram ganga eftir. Þú talar mikið um vald ríkis- stjórnarinnar. Seta í fjárveitingar- nefnd hefur alltaf verið talin til valdamestu embœtta þirigsins. Hvernig tilfinning er það að af- greiða umsóknir um margra millj- arða framlög á fáeinum dögum? Það er rétt að allar afgreiðslur hér gerast á skömmum tíma. En að baki þeim liggur margra mánaða skoð- un. Við höfum bætt mjög mikið all- an undirbúning. Þetta eru fyrstu fjárlög sem nefndin afgreiðir eftir að ríkisendurskoðun var sett undir Alþingi. Ég hef samið við ríkisend- urskoðun um að vinna með okkur og ég er sannfærður um að ég nýti mér þessa þjónustu mjög mikið í framtíðinni. Ég ætla líka að leggja áherslu á að nefndin vinni á vor- mánuðum að því að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaganna. Ætlið þið að vaka yfir aukafjár- veitingunum? Já. Aukafjárveitingar eru oft veitt- ar vegna þess að áætlanir í fjárlög- um eru ekki raunhæfar. Ætlar þú að passa upp á að Jón Baldvin skrifi ekki of mikið út? Ég ætla ekkert að vaka yfir Jóni Baldvin. Ég ætla að sjá til þess að áætlunum fjárveitinganefndar sé fylgt eftir. Og einnig að þessar áætl- anir séu byggðar á einhverju sem hægt er að segja að sé raunhæft. Að mínu áliti hefur eftirlitshlutverk nefndarinnar verið vanrækt. Við munum fylgjast með framkvæmd- inni og jafnframt hefja undirbúning næstu fjárlaga strax upp úr ára- mótum. Erþá gamla fyrirgreiðsluviðmótiö búið að víkja fyrir tœknikratískum vinnubrögðum? Nei, nei, nei. Þegar þú kemur á fund okkar núna mætir þú alveg sömu gömlu, góðu þingmönnunum og þú varst vanur. Nú er áhugi Þorvalds Garðars, forseta sameinaðs þings, á nýbygg- ingu Alþingis kunnur. Hefur komið fram beiðni um að eitthvert framlag verði sett inn í fjárlög til hennar? Það er eitt af því sem er í skoðun hjá okkur núna. Við höfum enga ákvörðun tekið. YFIRSÝN eftir Magnús Torfa Óiafsson Bandarísk hersveit í Úral og sovésk í Utah næstu 13 ár „Herstjórnir Sovétríkjanna og Bandaríkjanna mega eiga von á ýmsum kátlegum atvikum áður en öldin er úti,“ sagði Edouard Shevardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, við fréttamenn í Genf í síðustu viku. Hann átti við það sem á eftir fer næstu þrettán árin frá gildistöku samkomulags, sem hann hafði lagt á síðustu hönd ásamt George Shultz, starfsbróður sínum frá Bandaríkjunum. Genf stærði Sergei Akhromeiéff marskálkur, forseti yfirherráðs Sovétríkjanna, sig af að sovéska sendinefndin hefði tekið upp mun fleiri atriði til að tryggja traust eft- irlit en mótaðilinn. Þeir Akhro- meiéff og Paul Nitze, reyndasti af- vopnunarsamningamaðurinn í bandarísku samninganefndinni, gengu frá eftirlitsákvæðunum. Á tveim dögum tókst þemr utan- ríkisráðherrunum að ganga frá ákvæðum um gagnkvæmt eftirlit með að haldinn sé sáttmáli Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna um að ríkin útrými úr vopnabúrum sín- um skammdrægum og meðal- drægum kjarnorkuskeytum. Þetta er fyrsta samkomulag sem tekst milli risaveldanna um niðurskurð á kjarnorkuvopnabúnaði, og kem- ur til undirritunar á fundi þeirra Mikhails Gorbatsjoff og Ronalds Reagan í Washington um helgina. Með eftirlitsskilmálunum verða herstjórnir Bandaríkjanna og Sovétríkjanna að hleypa eftirlits- sveitum frá gagnaðilanum inn til eftirlits með þeim vopnaverk- smiðjum, sem hingað til hefur ver- ið vandlegast gætt að enginn óvið- komandi fengi nálgast, og þá allra síst útsendarar hins risaveldisins. í þrettán ár frá gildistöku af- vopnunarsamningsins hafa full- trúar bandarísku herstjórnarinnar rétt til að vera á vappi umhverfis verksmiðju í Votkinsk, rétt vestan við Úralfjöll, og aðra í Sverdlovsk austan undir sama fjallgarði. í Vötkinsk hafa verið framleiddar bæði meðaldrægu kjarnorkueld- flaugarnar SS-20 og langdrægu flaugarnar SS-25. Fyrsta þrep beggja flauga verður ekki að- greint með gervitunglamyndum, og því kröfðust samningamenn Bandaríkjastjórnar að fá að hafa fast eftirlit á staðnum. Bandarískir eftirlitsmenn í verksmiðjuhliði og á eftirlitsferðum umhverfis verk- smiðjusvæðið fá að ganga úr skugga um að framleiðslu SS-20- eldflauga sé ekki haldið áfram, frá Votkinsk komi hér eftir einvörð- ungu SS-25-eldflaugar. I Sverdlovsk eru framleiddir skotpallar fyrir flugskeyti af þeirri gerð sem Bandaríkjamenn kalla Cruise, tegund þá sem ætluð er til skots af landi. Þangað fær banda- ríska herstjórnin að senda eftirlits- flokka fyrirvaralaust nokkrum sinnum á ári hverju fram til alda- móta. í staðinn verða sovéskar eftirlits- sveitir með samskonar eftirlits- heimild og Bandaríkin fá í Vot- kinsk við bandaríska eldflauga- smiðju í Utah. Þar eru framleiddir aðalhlutar MX-eldflaugarinnar, þeirrar langdrægustu og öflugustu sem Bandaríkin ráða yfir og skjóta á af landi, það er að segja eftir að framleiðandi nær tökum á að smíða áreiðanlegt stýrikerfi fyrir hana, en á því hefur verið mis- brestur til þessa. Hin bandaríska kjarnorku- vopnasmiðjan, sem sovék eftirlits- sveit fær aðgang að, er nærri San Diego í Kaliforníu. Þar eru smíðuð Cruise-flugskeyti, sem hvort held- ur má búa til skots af landi eða hafi. Afvopnunarsamningurinn bannar þau á landi, og sovésku eft- irlitsmennirnir fá að ganga úr skugga um að öll framleiðslan eigi að fara til notkunar um borð í her- skipum, eftir að afvopnunarsamn- ingurinn gengur í gildi. Gagnkvæmt, langvarandi eftir- lit í nokkrum viðkvæmustu vopnasmiðjum risaveldanna er þó ekki nema hluti af eftirlitskerfinu sem ákveðið hefur verið að setja á stofn til að hvort um sig fái fullviss- að sig um að hitt haldi til fullnustu Gorbatsjoff og Reagan ætla þrjá daga til fundar í Washington, en gefa i skyn aö framlenging veröi ef vel horfir um árangur. ákvæðin um algera útrýmingu skammdrægra og meðaldrægra kjarnorkuskeyta. Eftirlitsflokkar verða sendir á vettvang til eld- flauga- og flugskeytastöðvanna í Vestur-Evrópu, Austur-Evrópu og Siberíu. Þar fylgjast þeir með þeg- ar vopnin eru tekin niður, kjarn- orkusprengjurnar teknar úr þeim og sprengja og eldflaug flutt sín á hvorn eyðingarstað. Sprengjurnar verða teknar sundur undir gagn- kvæmu eftirliti og sprengiefnið tekið til friðsamlegra nota sem eldsneyti í kjarnorkuverum. Eftir- litið tekur til allra þátta þessa verks, nema þess sem veitt gæti vitneskju um innri gerð sprengi- hleðslunnar. Eldflaugarnar eru mjög vand- meðfarnar, því eldsneytið í þeim er viðkvæmt fyrir hnjaski og stór- skaðlegt, sleppi það út í umhverf- ið. Bandaríkjaher hyggst brenna sínar eldflaugar á tilteknum stöð- um í Bandaríkjunum fjarri manna- byggð, og Sovétmenn hyggjast sprengja sínar eldflaugar með dýnamíti í auðnum Síberíu. Kostn- aður hvors risaveldis um sig af eyðingu skammdrægra og meðal- drægra kjarnorkuskeyta nemur milljörðum bandaríkjadollara, og mannaflinn sem við verkefnið fæst þau þrjú ár sem það stendur frá gildistöku samningsins skiptir þúsundum. Aðgangur sovéskra eftirlits- manna að stöðvum í löndum Vest- ur-Evrópu, þar sem bandarískar eldflaugar og flugskeyti hafa verið sett í skotstöðu, verður heimilaður með orðsendingaskiptum milli hvers ríkis um sig og Sovétríkj- anna. Ljóst er að Sovétstjórnin hefur algerlega söðlað um frá því sem áður var í afstöðu til að opna land- ið fyrir erlendu eftirliti. Á þessu sviði hefur ásókninni í leynd og lokun á utanaðkomandi verið af- létt. Á fundi með fréttamönnum í Ljóst er að Reagan forseti má hafa sig allan við að fá afvopnun- arsamninginn fullgiltan í öldunga- deild Bandaríkjaþings. Til þess þarf tvo þriðju deildarmanna, 67 atkvæði. Talið er að allt að 50 öld- ungadeildarmenn hafi þegar gert upp hug sinn að greiða fullgild- ingu atkvæði, en yfir tveir tugir séu jafn staðráðnir í að koma samningnum fyrir kattarnef, af því þeir vilja alls ekki semja við Sovétmenn á jafnréttisgrundvelli heldur buga þá í vígbúnaðarkapp- hlaupi. Andstæðingahópinn skipar hægri armur Repúblíkanaflokks- ins, sem telur Reagan hafa svikið málstaðinn með því að gera samn- ing við „veldi hins illa,“ eins og hann kallaði Sovétríkin í frægri tölu. Munu þessir öldungadeildar- menn leggja kapp á að koma fram breytingum, viðaukum eða skil- málum, sem geri samninginn að engu. Talsmenn Reagans segja, að hann muni því leggja megin- áherslu á að samningurinn sé að- eins fyrsta skref að enn stærri af- vopnunarmarkmiðum, og því sé fyrir öllu að hann nái fram að ganga óbreyttur. Átökin sem framundan eru í Washington má nokkuð marka af því, að kunnur harðlínumaður í landvarnaráðuneytinu sagði af sér fyrir rúmri viku og átaldi forset- ann um leið harðlega fyrir að ana út í fyrirhyggjulausa samnings- gerð við Sovétstjórnina. Þetta er Frank Gaffney, staðgengill aðstoð- arlandvarnaráðherra, og fór með mál sem varða takmarkanir á vopnabúnaði af hálfu ráðuneytis- ins. Gaffney hafði vonast til að verða aðstoðarlandvarnaráðherra og fjalla um alþjóða öryggismál í stað Richards Perle, annars enn frægari harðlínumanns. Þegar nýr landvarnaráðherra, Frank Carl- ucci, lét Gaffney vita að af slíkri stöðuhækkun og valdaaukningu yrði ekki fór hann í fússi og skellti hurðum. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.