Helgarpósturinn - 03.12.1987, Blaðsíða 24
UM HELGINA
eih-leikhúsiö veröur með síðustu
sýningar á einþáttungum eftir Tsje-
kov næstu dagana, en sýningamar
fara fram i Djúpinu. í kvöld verður
sýnt kl. 20.30 og á laugardag og
sunnudag kl. 16. Þá veröur síðasta
sýning á Sögum úr dýragarðinum
eftir Edward G. Albee á sunnudag-
inn kl. 16.00.
Klukkan tíu mínútur yfir tíu í kvöld
sýnir Stöð 2 kvikmyndina Hinstu
óskina. í henni leikur Anne Bancroft
konu, sem berst gegn óréttlæti í
hvaða mynd sem er. Þegar hún
kemst að því að hún er haldin sjúk-
dómi sem hún getur ekki sigrast á
biður hún son sinn um aðstoð við að
láta stærsta draum sinn rætast.
Hann er sá að hitta Gretu Garbo, sem
sést öðru hverju á gangi í New York.
Myndin er bráðskemmtileg með al-
varlegu ívafi og Anne Bancroft vist
sjaldan verið betri en í þessari mynd.
A laugardaginn sýnir Stöð 2 svo í
Fjalakettinum myndina Réttar-
holdin. Þar segir frá nafniausum
manni sem ákærður er fyrir glæp,
sem hann sjálfur veit ekki nákvæm-
lega hver er. Orson Welles er leik-
stjóri og jafnframt einn aðalleikari
myndarinnar.
Bylgjan í Olátagaröi heitir þáttur i
umsjón Arnar Árnasonar sem flutt-
ur verður milli klukkan eitt og þrjú á
sunnudaginn. Þar er enginn óhultur
og hver sem er getur verið tekinn
fyrir í þessum þætti þar sem spaug,
spé og háð ráöa ríkjum. Á Bylgjunni,
FM 98,9 og 100,9 ...
Uppselt er á sýningar í Þjóðleik-
húsinu um helgina! A litla sviðinu
verða til dæmis tvær sýningar bæði
á laugardag og sunnudag á Bílaverk-
stæði Badda, og uppselt á allar fjór-
ar. Hjá Leikfélagi Reykjavíkur verða
síðustu sýningar fyrir jól á Hremm-
ingu núna á laugardaginn, 5.12., og
síðan föstudaginn 11.12. Þarerenn-
þá hægt að fá miða. Dagur vonar
verður sýndur annað kvöld, 4.12., og
síðan á laugardaginn eftir viku,
12.12., en þetta eru síðustu sýningar
fyrir jól. Uppselt er á Djöflaeyjuna
um helgina.
Sveiflan verður í hávegum höfð í
Listasafni Alþýöusambands ís-
lands á laugardaginn. Þar mun tríó
Guðmundar Ingólfssonar leika fyrir
sýningargesti kl. 17, en í Listasafni
ASÍ stendur yfir sýning á málverkum
Tryggva Ólafssonar. Sýningin er
haldin í tilefni af því að Listasafn ASÍ
og Lögberg bókaforlag hafa gefið út
listaverkabók um Tryggva. Tryggvi
Ólafsson er mikill áhugamaður um
djass og hefur orðið fy rir talsverðum
áhrifum frá þeirri tegund hljómlistar.
Sýningin er opin virka daga kl.
16—20 en laugardag og sunnudag
frá kl. 14—22. Henni lýkurnæstkom-
andi sunnudag, 6. desember.
Dallas, Dallas, Dallas! Og svo kom
villa i dagskránni siöast þegar Dallas
var. Skrásetjari sá ekki Dallas og veit
ekki hvað gerðist, en úr því verður
bætt á laugardaginn klukkan 12.50.
Þá verður Dallas frá þvi á mánudag-
inn endursýnt.
Tónleikar, Ijóðalestur, myndlistar-
sýning, málverkauppboð og
aðventuhlaðborð að ógleymdum
jólatónleikum Bubba Morthens, sem
haldnir verða á Þorláksmessu, eru
það sem Hótel Borg býður upp á fyr-
ir jólin. Sérstakur metnaður er lagður
í að gera aðventuhlaðborðið sem
glæsilegast, en það var sett upp í
fyrsta skipti á sunnudaginn var. Jóla-
sveinn mætir í heimsókn og leikur
við börn í salnum og sannkölluð jóla-
stemmning rikir á Hótel Borg á að-
ventunni.
Sigriöur Eyþórsdóttir og Tryggvi
Hansen sýna um þessar mundir í
Ásmundarsal meðal annars torf-
skúlptúra, en á undanfömum sumr-
um hefur mátt sjá þau hjónakomin
skera torf og hlaða hús í Vatnsmýr-
inni. Sýninguna kalla þau Jarðarvit-
und og henni lýkur á sunnudaginn
kemur.
I Glugganum, Glerárgötu 34 á Ak-
ureyri, stendur nú yfir sýning á nýj-
um málverkum Helga Vilbergs
Helgi er 36 ára gamall Akureyringur
sem lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1973. A
sýningunni eru rúmlega tuttugu
akrýlmálverk, flest máluð á þessu
ári. Sýningin stendur til 6. desember
en Glugginn er opinn daglega frá kl.
14-20.
í FÍM-salnum, Garöastræti 6,
stendur yfir um þessar mundir sýn-
ing á verkum Bjarna Ragnars. Þar
sýnir Bjarni Ragnar 27 olíumálverk á
pappir og striga, en þetta er níunda
einkasýning listamannsins. Auk
þess hefur Bjarni Ragnar tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum. í feþrúar
næstkomandi hefur Bjarna Ragnari
verið boðið að sýna í New York, þar
sem hann mun taka þátt i samsýn-
ingu tólf alþjóðlegra listamanna i
Mussavi Art Center í Soho-hverfinu.
Sýning Bjarna Ragnars er opin virka
daga kl. 16—21 og frá kl. 14—22 um
helgar. Sýningunni lýkur á sunnu-
daginn kemur, 6. desember.
Við minnum La Bamba-aðdáend-
ur á að Richie Valens verður látinn
víkja um jólin þegar Stjömubíó tekur
jólamyndina til sýningar. Þeim sem
láta sér ekki nægja að hlusta á La
Bamba og Donnu af spólu eða úr út-
varpi skal bent á að fara í Stjörnubíó
og hlusta á lögin i Ðolby Stereo.
Meira að segja Platters syngja í þess-
ari mynd.
I Háskólabíói er verið að sýna kvik-
myndina Hina vammlausu sem
margir gagnrýnendur telja frábæra.
Þetta mun vera mynd sem svíkur
engan, en hún er bönnuð innan sex-
tán.
Hvað gat ég annað gert? heitir
laugardagsleikrit ríkisútvarpsins
sem flutt verður á laugardaginn
klukkan hálffimm. Þetta leikrit er eft-
ir einn þekktasta rithöfund Finna,
Mariu Jotuni. María lést árið 1943,
en eftir hana liggja fjölmörg verk,
einkum smásögur og leikrit. Laugar-
dagsleikritið fjallar um konur, sam-
skipti þeirra við karlmenn og stöðu
þeirra í samfélagi þar sem ekki er
margra kosta völ. Tiu úrvalsleikkonur
fara með hlutverk í þessu verki sem
verður einnig endurflutt næstkom-
andi þriðjudagskvöld, 8. des. klukkan
22.20.
Þú ert nýbúin að setja andlits-
maskann á andlitið þegar hann birt-
ist óvænt með gesti: „Gettu hverjir
komu með mér heim?" Þetta og
margt annað má lesa um í nýútkom-
inni teiknimyndabók sem heitir Karl-
remban. Bókin er gefin út af Fjölsýn
forlagi og er þýdd af Braga Halldórs-
syni og Vilhjálmi J. Árnasyni. Á bók-
arkápu segir að hér sé loksins komin
bók þar sem konur fá aö segja álit sitt
á vonlausu háttalagi karlmanna, bók
sem komi öllum til að brosa.
Síðustu áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða
haldnir í Háskólabiói í kvöld,
fimmtudagskvöld 3. desember. Þar
veröur frumflutt nýtt píanóverk eftir
Jónas Tómasson. Þetta er konsert
fyrir tvö píanó, sem Jónas lauk við
að semja fyrir tveimur árum. Verkið
heitir „Midi" og er óður fyrir tvö
píanó og hljómsveit. Jónas Tómas-
son er eitt af afkastamestu tónskáld-
um okkar í dag og er búsettur á ísa-
firði, þar sem hann kennir við tónlist-
arskólann.’Einleikarar í verki Jónasar
verða píanóleikararnir Halldor Har-
aldsson og Gísli Magnússon, sem
báðir eru landskunnir einleikarar.
Þeir hafa oft áður leikið með Sin-
fóníuhljómsveitinni auk þess sem
þeir eiga að baki langa samvinnu við
að flytja saman verk fyrir tvö pianó.
Síðara verkið á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar er Sinfónía
nr. 3, Eroica, eftir Beethoven. Stjórn-
andi á tónleikunum verður breski
hljómsveitarstjórinn Frank Shipway
sem hefur getið sér gott orð undan-
farnar vikur viö stjórn hljómsveitar-
innar. Þetta verða síðustu tónleikarn-
ir í vetur sem Shipway stjórnar. Tón-
leikarnirí kvöld hefjast klukkan 20.30
og verða miöar seldir i dag í Gimli við
Lækjargötu og í Háskólabiói við upp-
haf tónleikanna.
Hljómplata með nýjum verkum
fyrir klarinettu er nú komin út. Flytj-
endur eru Sigurður I. Snorrason
klarinettuleikari, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari og Sin-
fóníuhljómsveit fslands undir stjórn
Páls P. Pálssonar. Á plötunni eru
verkin „Ristur" fyrir klarinettu og
píanó eftir Jón Nordal, en þau samdi
Jón fyrir Sigurð og Önnu Guðnýju
árið 1985, Klarinettukonsert Páls P.
Pálssonar, sem saminn var fyrir Sig-
urð árið 1982 og „Steflaus tilbrigði"
fyrir klarinettu og píanó eftir Austur-
ríkismanninn og íslandsvininn
Werner Schulze. Platan var hljóðrit-
uð í Háskólabíói af Bjarna Rúnari
Bjarnasyni.
Výr strengur
skipar
sér á bekk
Af jólabókaflóði
í desember á hverju ári gerist hvort tveggja. Þá lengist
sá bekkur sem fremstu rithöfundar landsins sitja á og
hins vegar eru slegnir eitthvað um þrjú hundruð nýir
strengir í íslenskum bókmenntum. Fyrir utan þau feikn-
legu tímamót sem mörkuð eru og nýstárlegheitin öll sem
spretta fram úr pennum, eða tölvum eins og það er víst
núorðið. Nærri má geta að bekkurinn, samanber: „...hef-
ur skipað sér á bekk með fremstu skáldum þjóðarinnar“,
eða: „...bókin skipar honum/henni á bekk með þeim
höfundum sem best kunna að fara með íslenska tungu,
best kunna að segja sögu, best hafa skrifað“, o.s.frv. —
Bekkurinn er orðinn heljarinnar langur, nær svona sirka
milli Akureyrar og Húsavíkur, loftlínu þ.e.a.s. Já, nema þá
að rithöfundarnir sitji hver undir öðrum, sem er ekki síð-
ur líklegt.
EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Og nýju strengirnir. Hvert tón-
skáld yrði stolt af því um aldur og
ævi ef því tækist að slá þó ekki væri
nema brot af þeim strengjum sem
verið er að slá í bókmenntalífinu á
sögueyjunni í hverjum desember-
mánuði. Strengirnir eru hver öðrum
hljómmeiri og fegurri og þegar þeir
hljóma allir í senn eru engir strengir
jafnstórbrotnir í heild sinni, né held-
ur hljóma betur einstakir strengir út
úr heildinni. Hvergi nokkurs staðar
í heiminum gefur að heyra jafn
hljómmikla, stórbrotna og fjöl-
breytta sinfóníu eins og þegar rit-
höfundarnir slá á nýju strengina
sína. Og ekki nóg með það. Það er
ekkert verið að endurtaka sömu
tónana ár eftir ár. Nei, sinfónían er
ný og heilleg á hverju ári, tekur öll-
um þeim fram sem fluttar hafa ver-
ið.
BÓKARKÁPUR
Baksíður bókarkápa eru orðnar
hreinar auglýsingar, þar sem verið
er að reyna að lokka lesandann til
að lesa bókina. Stundum, þegar
lengst er gengið, minna bókarkáp-
urnar á bíóauglýsingu í dagblaði;
„stórskemmtileg, spennandi og
djörf ný stórmynd" hefur hljómað
svo oft að enginn tekur lengur
minnsta mark á því, ekki frekar en
konan sem sagði um verðbólguna
að hana væri lítið að marka, þjóðin
hefði verið að fara á hausinn síðan
hún myndi eftir sér og væri hún þó
komin á sjötugsaldurinn. Smám
saman hættir fólk líka að taka mark
á því þó að standi á bókarkápunni
að það sé garanterað að höfundur-
inn slái nýjan streng og skipi sér þar
með á bekkinn margnefnda. Allir
vita að þetta er ekki annað en harð-
ur bissness að reka bókaútgáfu og
menn gefa helst ekki út nema það
sem selst alveg örugglega. Selst
vegna þess að það er svona eða
hinsegin, kannski spennusaga, við-
talsbók við fræga persónu, erótískar
lýsingar í bókinni, bók kunns höf-
undar eftir langt hlé, fyrsta skáld-
saga manns sem er kunnur fyrir
annað, ljóðskáld sem skipt hefur yfir
í skáldsögu, bók eftir konu, bók eftir
konu sem er kannski líka góður höf-
undur, bók eftir ungan mann, efni-
legan höfund, fyrsta bók höfundar
og svona mætti lengi telja. Bókum
er í fáum tilfellum gefinn kostur á að
standa undir sér vegna þess að þær
séu góðar, vel skrifaðar eða eitthvað
annað. Höfundarnir standa sjálfir
undir bókum sínum með eigin per-
sónu og þá er betra að vera svolítið
sérstakur, hafa eitthvað sem enginn
annar hefur, því án þess getur aug-
lýsingamaskínan tæplega gert eitt-
hvað úr efniviðnum.
TUTTUGU OG FIMM
PRÓSENT
Og nú eru bókabúðirnar ekki
orðnar nægilegur vettvangur fyrir
bækurnar. Það þarf endilega að
halda sýningu á öllu því sem er að
koma út á einum og sama staðnum.
Allar 400 bækurnar, eða hvað það
er, samankomnar í einum sal þar
sem almúginn getur rölt um og séð
í besta falli nokkrar afbragðsgóðar
bækur, í versta falli talandi dæmi um
það hvernig bókaþjóðin hefur
ákveðið að eyða u.þ.b. einum og
hálfum milljarði af krónum á einum
litlum mánuði. Þessi tala er auðvit-
að bara gróf ágiskun, kannski langt
frá lagi, en það veit enginn fyrr en
reikningarnir verða gerðir upp ein-
hvern tímann óralangt í burtu hand-
an við áramót með flugeldum og
blysum. Og allir kvarta auðvitað,
fólk kvartar af því bækur eru dýrar,
um tvö þúsund fyrir eina venjulega
skáldsögu. Rithöfundarnir kvarta af
því þeir fá ekki nóg í sinn hlut, bók-
salarnir kvarta af því þeir geta eins
haft lokað afganginn af árinu, útgef-
endurnir kvarta af því fólk vill ekki
kaupa allt sem þeim einu sinni dett-
ur í hug að gefa út og svo kvarta allir
í kór yfir því að ríkið skuli voga sér
að taka tuttugu og fimm prósent af
andvirði hverrar bókar, eitthvað um
þrjú hundruð og fimmtíu milljónir
fyrir þessi jól munu líklega renna í
ríkiskassann nokkuð viðstöðulaust,
að því er mönnum skilst. Ríkið
kvartar ekki, enda engin ástæða til,
og það er líklegt að þeir sem eiga
prentsmiðjunar kvarti ekki heldur,
kápuhönnuðirnir una glaðir við sitt
og svo allir hinir sem með einum
eða öðrum hætti byggja lífsafkomu
sína á því að jólabókaflóðið flæði
með ofsahraða inn á stofugólf lands-
manna á aðfangadagskvöld þegar
guðhræddir menn eiga að vera með
hugann við gamlar bækur og sögur
frá austurlöndum nær.
ARKITEKTAR OG
SJÓNVARPSMENN
Og bókasöfnin svigna og bólgna
og tútna út þegar bækurnar
streyma inn í desember. Nema auð-
24 HELGARPÓSTURINN