Helgarpósturinn - 03.12.1987, Qupperneq 29
baráttu sinni, en hverfur sporlaust.
Annar maður tekur við af honum og
finnur sögu fyrirrennarans, Marm-
aramusterið, á samanvöðlaðri papp-
írsörk. „Marmaramusterið" var þá
handrit, nema hvað, og sagan getur
í sjálfu sér endurtekið sig.
Sagan heitir Davíd eftir kóngi
Israelsmanna, sem sigraði risann
Golíat og næturvörðurinn er maður
af holdi og blóði sem stígur fram úr
marmaranum. Hvarf hans má skilja
á þá leið, að hann sé aftur orðinn
marmarastytta en nú í höndum mik-
ils listamanns, eða þá í yfirfærðri
merkingu sem tákn fyrir að sigur-
vegari hins illa hljóti alltaf að vera
fjarverandi.
A eftir sögunni Midbiki kemur lítil
táknræn og hnyttin frásögn af
manni, sem veiðir steinbít í firðin-
um til að koma í veg fyrir að hann
éti landið og breyti því í sand:
„Garga þú nú grábítur / í grænum
sjó / þú mylur ekki meitilberg / á
meðan þó / Hæ og hó hæ og hó!“
Það gengur mjög vel, þangað til
hann rekst á geit á sundi í vatninu.
Það er „háfur af steingeitarkyni" og
maðurinn dröslar honum um borð.
Þar byrja* háfurinn nú að éta
landabréf, sem maðurinn hefur
breitt úr frammi í stafni til að slengja
fisknum á. Og maðurinn hefur
fengið nýjan andstæðing í baráttu
sinni fyrir jafnvægi í náttúrunni:
„Þú ert búinn með landið! Búinn
með bergið."
Að lokum kemur mjög löng saga
(rúmar 50 bls.), Frostmark, sem
smásagnasafnið dregur nafn sitt af.
Sagan er í raun skýrsla sem
aðalpersónan, Ebeneser Frostmark,
hefur sent ritstjóra Morgunpóstsins
frá eyju í Kyrrahafi. Blaðið hefur birt
frétt þar sem segir frá beinafundi
„og í fréttinni segir að þau séu bein
Ebenesers Frostmarks sem varð úti
á Þvergirðingseyri nokkru fyrir
síðustu aldamót". Frostmark vill
hins vegar hafa það sem sannara
reynist og rekur ævisögu sína: Hann
fór ungur maður úr Köldusveit til
Höfuðstaðarins til frekara náms, en
gafst fljótlega upp og fór til
Þvergirðingseyrar, eins konar
dvalarstaðar hugans þar sem menn
hitta fyrir heitustu drauma sína. Þar
leigir hann lítið herbergi, en leiguna
greiðir hann á óvenjulegan hátt
með því að útvega eigandanum
brennivín og gerast elskhugi móður
eigandans. Frostmark er enn í leit
að dýrasta djásni sínu þegar honum
verður ljóst að íbúar sælulandsins
hafa ætlað honum hlutverk
sökudólgsins í baráttu hvata og sam-
visku, og hann ákveður að láta sig
hverfa.
Ritstjóri Morgunpóstsins biður ný-
liða á blaðinu „að sjóða einhverja
stutta frétt uppúr þessu rausi" og
þannig gerist það að löng og litrík
ævisaga Ebenesers Frostmarks
verður að örstuttri fréttatilkynn-
ingu. Örlög sem flestir verða að
þola í lífinu, en Frostmark getur
sjálfur ályktað: „Ég, Ebeneser Frost-
mark, er til!“
Það getur raunar verið mjög erfitt
að skera úr um hver þessi Frostmark
er og í hverju tilvera hans er fólgin.
Fyrir utan að vera aðalpersóna
einnar sögu er hann með inngangs-
orð að hinum sögunum, og það er
vitnað í hann aftan á bókinni, þar
sem segir aö þetta sé bókin um
hann. Hann er í stuttu máli frost-
markið, þaðan sem það fer að
hlýna. Bókin fjallar um hann, mann-
inn sem leitar að sannleika og lífs-
fyllingu, en um leið er annarlegur.
Honum svipar til mannsins sem féll
til jardar og lítur á aðrar manneskj-
ur með undrun og forvitni.
Það er sameiginlegt með mörgum
persónum bókarinnar að þeim
finnst umhverfið framandi. Frost-
mark hefur sterka einstaklingstil-
finningu en á um leið erfitt með að
falla inn í heildina, og bókin um
hann setur fram smáheimspeki um
tengsl einstaklingsins við um-
heiminn, augnabliksins við eilífð-
ina: „Lifðu ekki í fortíð / og ekki í
framtíð / og ekki í nútíð heldur / því
í
EIRIABYRGÐ!
10.000króna tékkaábyrgd,
gegn framvísun bankakorts.
Notkun bankakorta eykur öryggi allra í
tékkaviðskiptum. Við ábyrgjumst tékka að
upphæð allt að 10.000 krónum - sé banka-
korti framvísað.
Á bankakortinu eru tvö öryggisatriði sem
þurfa nauðsynlega að koma heim og saman
þegar tékki er innleystur, til þess að við-
komandi banki eða sparisjóður ábyrgist
hann:
í115 0000 0003 3081
7175 9955-ÍÓ06 I27o53^??9
JðMIKA JÓHAMNSDÓTTIR
ULSi^úr Ot/89
Meiri ábyrgð með bankakorti
- því máttu treysta!
%
Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn,
Landsbankinn,
Samvinnubankinn,
Útvegsbankinn,
Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.
HELGARPÓSTURINN 29