Helgarpósturinn - 03.12.1987, Page 35

Helgarpósturinn - 03.12.1987, Page 35
FÁRRA ÚTVAUNNA ,,Naflaskoöaniru sýna aö hinir ólíkustu stjórnmálaflokkar búa viö hin líkustu vandamál Áratugum saman tókst gömlu ,,fjórflokkunum“ aö verjast meiri- háttar ridlun á flokkakerfinu, en fyrir þá hafa síöustu ár veriö mar- tröö líkust. Kvennalistinn hefur fest sig í sessi og Borgaraflokkurinn býr sig til langdvalar. Klofningur og kosningaósigrar hafa leitt til þess að gömlu flokkarnir hafa í ce ríkara mœli litiö í eigin barm og spurt: Hvaö er eiginlega að? „Naflaskoö- un“ er þaö nefnt. Eitt af því sem einkennt hefur um- ræðu um stjórnmálaflokkanna er arma-talið. Sjálfstæðisflokknum hefur verið skipt upp í Geirsarm/flokkseigendafélagið, Gunnarsarm, stuttbuxnadeildina Albertsarm og svo framvegis. Framsóknarflokknum hefur verið skipt upp í Reykjavíkurliðið, dreifbýlisliðið, SÍS-liðið og svo framvegis. í Alþýðuflokknum er talað um verkalýðsarm, vinstri krata, hægri krata, BJ-liðið og gamla Reykjavíkurgengið. I Alþýðu- bandalaginu er talað um verkalýðs- arminn, gáfumannafélagið, flokks- eigendafélagið, lýðræðissinnana og svo framvegis. Borgaraflokkurinn samanstendur af gamla Hulduhers- kjarnanum, óánægðum sjálfstæðis- mönnum, félögum úr Gunnarsarm- inum, Lífsvonarfólki og svo fram- vegis. Minnst er talað um slíka hópa í Kvennalistanum og kannski er í þessu að finna skýringuna á því að flokkurinn eykur fylgi sitt upp úr þurru. Kvennalistinn þykir friðsamt athvarf! GAMLIR — í DAUÐADÁI Innan Alþýðuflokksins hafa engar sjálfsrýniskýrslur verið gefnar út hin síðari ár, þótt flokkurinn hafi þá ímynd að vera e.k. Islandsmeistari í klofningum og deilum. Á sínum tíma var Vilmundur heitinn Gylfa- son óspar á lýsingarorð um vanda flokksins og sömuleiðis Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann sóttist eftir að blása lífi í flokkinn. í HP var fjallað um Alþýðublaðsdeiluna, þar sem þessir tveir voru í sviðsljósinu og þá var haft eftir stuðningsmanni Vilmundar: „Flokksforystunni virð- ist líða best í dauðadái og innan um flokkseigendaklíkuna." Nú eru ýmsir landsbyggðarkratar óánægðir með sinn hlut gagnvart Jóna-veldinu úr Reykjavík, en það er í Framsóknarflokknum sem dreif- býlismenn og höfuðborgarmenn hafa hvað mest tekist á. Á þingi Sambands ungra framsóknar- manna 1985 var mikið kvartað yfir því að Framsóknarflokkurinn væri gamall og staðnaður kerfisflokkur, úr sér genginn og starfið í molum, með „lásí“ bændaímynd, þingflokk- urinn kvenmannslaus og laus við sjálfsgagnrýni. Á næsta þingi sam- bandsins átti að leggja fram „aftöku- listá' yfir óvinsæla þingmenn, sem víkja ættu fyrir hinum ungu og kon- um, en ungliðarnir guggnuðu þó á síðustu stundu. ALLS ÓLÍKIR FLOKKAR?? Það eru hins vegar Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðubandalag, flokk- arnir yst til hægri og vinstri ís- lenskra stjórnmála í gegnum tíðina, sem biðu ósigur í síðustu kosning- um og hafa opinberlega stundað „naflaskoðun" af því tilefni. Þetta eiga að heita þeir flokkar sem ólík- Alþingismenn að störfum. Valdaklíkur, samráðsleysi, deilur, stefnuleysi... NEFND OG NEFNDANEFND Sjálfstæðisflokkurinn hefur ólíkt Alþýðubandalaginu gert sitt ýtrasta til að forða niðurstöðum naflaskoð- unar sinnar frá almannasjónum. Reyndar má tala um eldra uppgjör ákveðinna afla í flokknum með bók- inni „Valdatafli í Valhöll", þar sem hrikalegir brestir voru tíundaðir. En í kjölfar kosningaósigursins nú var stofnuð „endurmatsnefnd“ undir forystu Friöriks Sophussonar, vara- formanns flokksins, en með honum unnu Jón Magnússon, Inga Jóna Þóröardóttir, Magnús Gunnarsson og Víglundur Þorsteinsson. Nefnd þessi skilaði af sér skýrslu til mið- stjórnar 19. júní. Þessari skýrslu var ekki dreift, heldur var stofnuð ný nefnd „til að fara yfir skýrsluna og undirbúa umræður um flokksstarf- ið“. í þessari endurskoðunarnefnd sátu Halldór Blöndal, Salóme Þor- kelsdóttir, Kristófer Þorleifsson og Katrín Fjeldsted. Sú nefnd samþykkti sérstaklega „að það þjónaði ekki til- gangi að dreifa skýrslu endurmats- nefndar", þ.e. skýrslu Friðriks og fé- laga. Þess í stað lagði síðari nefndin fram almennt orðaða minnispunkta um flokksstarfið, þar sem sniðnir höfðu verið af hörðustu gagnrýnis- punktar fyrri nefndarinnar. Þá út- gáfu fengu almennir flokksmenn að sjá. EINANGRUN í DAUÐSMANNSGRÖF Þrátt fyrir leyndina yfir skýrslu Friðriks-nefndarinnar síuðust punktar út. Fram kom, að forystan væri óvirk, að formaður flokksins væri fjarlægur almennum flokks- mönnum og stuðningsmönnum og hefði ekki tíðkað nægilegt samráð, að embætti varaformanns væri of rýrt, að viðhald og endurnýjun for- ystunnar hefðu verið vanrækt og ekki síst vakti athygli hörð gagnrýni á skipan mála í Valhöll, sem þótti e.k. dauðsmannsgröf! Þá tjáðu menn sig í Vogum, blaði sjálfstæðis- manna i Kópavogi, um ástæðurnar fyrir óförum flokksins og þar spar- aði einn nefndarmannanna ekki lýs- ingarorðin, Jón Magnússon minnt- ist meðal annars á pólitíska skamm- sýni, klaufaskap og mistök siðustu mánuðina fyrir kosningar, fræðslu- stjóramálið, námslánamálið, halla- rekstur ríkissjóðs, kádilják borgar- stjórans og ekki síst klofninginn i framhaldi af meðhöndluninni á Al- bert Guömundssyni. Þá taldi Jón að framboðslistar flokksins hefðu ekki höfðað til fólksins utan flokksins. Fróðlegt er í jjessu sambandi að rifja upp ummæli Matthíasar Bjarna- sonar þingmanns í HP nýverið, sem þess manns í flokknum sem hvað mesta reynslu hefur af flokksstarf- inu. Matthías var ómyrkur í máii sínu: „Á síðustu árum hafa vaðið þar uppi menn, sem allir hafa þóst kunna og geta og viljað sveigja flokkinn til óhóflegrar markaðs- hyggju.... þetta hávaðasama fólk hefur að mínum dómi hrætt fólk frá þvi að kjósa Sjálfstæðisflokkurinn." astir eru í stefnu og vinnubrögðum og því eðlilegt að bera þá sérstak- lega saman. I skýrslu mœöranefndar" Al- þýðubandalagsins 1985 var dregin upp sú ímynd af flokknum að hann þætti leiðinlegur, ólýðræðislegur og staðnaður kerfisflokkur, sem hefði brugðist í baráttunni fyrir bættum kjörum og ásjóna hans væri þung- búnir og ábúðarmiklir gamlir karl- ar. Starfsháttanefnd skilaði síðan skýrslu á landsfund flokksins í nóv- ember sama ár, þar sem pólitísk um- ræða innan flokksins var taiin ómarkviss, starf framkvæmda- stjórnar tilviljunarkennt og sam- hengislítið, að í raun væri flokkur- inn ekki flokkur kvenna og ungs fólks. Var síðan samþykkt tillaga um nauðsynlegar úrbætur. En átökin héldu áfram og lömuðu starfið. Fyrr á þessu ári var Varmalandsnefnd sett á laggirnar og 6 forystumenn flokksins rituðu skýrslur um ástand- ið. i OFRJORRI PATTSTÖÐU Á landsfundinum nú í nóvember lá loksins fyrir heildarskýrsla Varmalandsnefndar. Þar kom með- al annars fram að bæði langtíma- þróun og skammtímaklúður skýrðu ófarir flokksins í kosningunum. Kjördæmisráðin þóttu vannýtt, mið- stjórn flokksins óvirk, verkalýðs- málaráð flokksins vart starfandi, fjármálaráð flokksins hefði lognast útaf, lítið færi fyrir starfi málefna- hópa og starfsnefnda, þingmenn væru sambandslausir við flokksfé- laga, þingflokkurinn ósamhentur og áfram mætti telja — af nógu er að taka. í skýrslunni er að finna fundar- gerðir nokkurra funda nefndarinn- ar með flokksfélögum og kom þar meðal annars fram hjá einstökum forystumönnum að flokkurinn væri ekki trúverðugur kostur út á við, að Þjóðviljinn væri leiðinlegur og þar skorti fagmennsku, að fram- kvæmdastjórn flokksins væri í ófrjórri pattstöðu og að flokkurinn væri stefnuiaus vegna skorts á skýru uppgjöri. Varmalandsnefndin lagði fram tillögur til úrbóta, en minnti um leið á að tillögur starfs- háttanefndarinnar frá 1985 hefðu í fæstum efnum komist í fram- kvæmd. Enda sendi landsfundurinn forystunni tóninn og samþykkti ábendingu til hennar um að fram- fylgja samþykktum. Svavar Gestsson, fv. formaður Al- þýðubandalagsins. Af niðurstöðum mæðranefndar, starfsháttanefndar og Varmalands- nefndar að dæma var flokkurinn ein- rjúkandi rúst er Svavar skilaði af sér. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins. Jafnvel eftir ritskoðun var niðurstað- an að „mikiar breytingar til hins verra hafi orðið á stjórnskipulagi flokksins eftir 1983". ER ÞORSTEINN „ANARKISTI"? Matthías nefndi sérstaklega að formaðurinn hefði lítið samráð nema við fáa útvalda og að loft væri lævi blandið í flokknum. Það er í samræmi við þetta að sérstök nefnd skuli hafa verið sett í að endurskrifa og prúðbúa niðurstöður Friðriks- nefndarinnar. Þó þótti ástæða til að vekja athygli flokksmanna á fullyrð- ingum fyrri nefndarinnar þess efnis „að miklar breytingar til hins verra hafi orðið á stjórnskipulagi flokks- ins eftir 1983“. Fast skot á Þorstein Pálsson þarna. Kallað var á betra samband málefnanefnda við þing- flokkinn, nauðsynlegt talið að fram- kvæmdastjórn og þingflokkur ynnu betur saman, að erindrekstur flokksins þarfnaðist endurskoðunar við, að endurskipuleggja þyrfti sali Valhallar, að efla þyrfti starf flokks- ins í launþegahreyfingunni, að yfir- bragð flokksins væri að „harðná' og að efna þyrfti til sameiginlegs átaks flokksins og Morgunblaðsins til að kynna stefnu og störf flokks- ins. KLÍKUR — KLOFNINGUR — KLÚÐUR Því er niðurstaðan sú, að þótt Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubanda- lag séu ólíkir flokkar út á við, með ólíkan fylgisgrundvöll, gjörólíka stefnuskrá, með forystumenn úr sitt hvorum jarðveginum og ólíkt skipu- lag, þá eru tíundaðir nokkurn veg- inn sömu agnúarnir i flokksstarfinu. Skipulag og samþykktir í molum, um ræða innan flokkanna er ómark- viss, flokksstofnanir vannýttar, for- ystan einangruð og sambandslaus og ótrúverðug út á við, stefnan um- deild, forystan ósamhent í eilífum deilum og klofningi og klúðri fyrir kosningar. Sameiginlegt einkenni þessara ólíku flokka eru valdabar- átta, klíkuskapur, tortryggni, róg- burður, hagsmunagæsla, stjórn- leysi, deiiur. Valdagráðugar og við- kvæmar persónur. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYNDIR JIM SMARTl HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.