Helgarpósturinn - 17.12.1987, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 17.12.1987, Blaðsíða 2
Hvenær kemur þetta á geisla? Edda Björgvinsdóttir leikkona „Ja, Bibba hefur alltaf heimtað það frá upphafi að þetta komi á geisla, en henni er sagt að það verði að bíða aðeins og hún skilur nú ekkert af hverju. Hún er búin að sjá það að þetta er það sem er að vera „in", í dag, að vera á geisla, en svo eru þau bara á einhverri plastræmu. Þetta er dáldið fúlt finnst henni. En það er þessi Nonni í Skífunni, það er bara best að fara í hann. Hún talar nú við hann sex sinnum á dag um þetta og hún heldur því bara áfram. Nú, Einar Sigurðs- son á Bylgjunni vísar bara á þennan Nonna, þannig að þetta er allt í látum út af þessum geisla, þú getur sagt það. Þeir tala um árið 1997, strákarnir." — En hvenær kemst spólan á topp 10? „Hún á nú von á því bara núna um helgina og dáldið hissa að hún skuli ekki vera komin þangað." — Og svo var þetta með undirpílsið, fannst það í Glæsibæ? „Guð, já, það var reyndar búið að nota það sem borð- tusku í smátíma, en hún Bibba skolaði bara úr því." — Hvað finnst Bibbu um kvótamálið? „Bibba skiptir sér voðalega lítið af pólitík, skal ég segja þér. Hún kaupir bara Moggann af því það er hlutlaust blað og kýs Sjálfstæðisflokkinn af því þaö er hlutlausast." — En eru ekki miklar spekúlasjónir að koma þessu á framfæri erlendis? „Jú, það er náttúrulega næst. Fyrst þessum hlerunar- tækjum var komið fyrir heima hjá þeim á annað borð er bara best að koma þessu sem víðast á framfæri og þá kannski aðallega í Svíþjóð og Noregi, enda er þetta húmor sem helst höfðar til Norðmanna og Svía." — Þannig að Bibba fetar í fótspor Bubba? „Já, Bibba í fótspor Bubba, það er hennar mottó í dag." — Og hún gerir auðvitað ráð fyrir platínuspólu? „Já, hún er búin að negla naglann, það er allt tilbúið. Bibba reif niður stóra málverkið sem frístundamálarinn hún móðir hennar málaði eftir númerum. Hún tók það nið- ur, það er sko einn og fimmtíu sinnum níutíu, og hún tók það niður til að eiga pláss fyrir þessa fyrstu platínu og svo allt gullið sem kemur. Nonni segir að þetta verði svona og það er nú þess vegna sem hann er ekki eins æstur í að setja þetta á geisla og Bibba er. Það er líka erfiðara að festa geisl- ann á vegg, það fer ekki eins vel við veggfóðrið og geislar um alla íbúð. Það gæti truflað „interíordekkorinn"." — Lánaði Nonni ekki Bibbu bara sinn innanhússarki- tekt? „Nei, hann gerði það nú ekki, en Böddi bróðir hefur alltaf verið ægilega laginn við allt svona, þannig að hann skipu- lagði þetta svona. Hann fékk þetta fína betrekk á svo ægi- lega góðu verði, það er svona vínill og pluss í bland, upp- hleypt, kannastu við þetta? Þetta er voðalega vinsælt, skal ég segja þér, á indverskum matsölustöðum úti í heimi." — Þannig að Bibba og Halldór eiga góð jól í vændum? „Já, já, það er útlit fyrir það þó Bibba sé nokkuð heilsu- laus að vanda. Hún er 197% andlegur og líkamlegur aum- ingi eftir að ýsubein lenti í handleggnum á henni, þegar hún var í fiski sem ung stúlka. Hún er núna að berjast við tryggingarnar, en þeir segja, að meðan hún geti haldið á sígarettu og kveikt í henni sé hún ekki það slæm. Það hefur verið svona með alla hennar fjölskyldu." Einn vinsaelasti útvarpsþátturinn í dag, segja menn, er þátturinn um Halldór og Bibbu, eða „pakkið" á Brávallagötu 32. Nýverið kom út glenskennd snælda eða spóla, ætluð fyrir segulband, með þeim hjónum. í því tilefni var rætt við kunningjakonu Bibbu, Eddu Björgvinsdóttur leikkonu, sem fylgist náið með ferli Bibbu enda munu þær hafa svipað skopskyn. FYRST OG FREMST MEÐFYLGJANDI mynd mátti sjá í hinu virta fréttariti Newsweek í desemberbyrjun. Blaðið birti mynd af þeim ,,vinkonunum“ frú Reagan og frú Gorbacheu, þar sem þær sitja með frosið bros og tilbúna kaffibolla og bíða þess þolinmóðar að ljósmyndararnir hafi myndað nægju sína. Undir myndinni stóð svo ,,The First Ladies in Iceland last year“, eða „Eiginkonur leiðtoganna á íslandi í fyrra". Sá, sem tók þessa mynd, hlýtur að vera aldeilis frábær töframaður — svo ekki sé meira sagt. Það tókst a.m.k. engum öðrum að festa konurnar tvær á filmu á meðan á Reykjavíkur- fundinum stóð ... m.a. vegna þess, að Nancy Reagan kom alls ekki hingað með manni sínum. JÓLASTJÖRNUR, sem sumir kalla jólarósir, setja hátíðarblæ á mörg heimili og vinnustaði síðustu vikurnar fyrir jól. Margir hafa hins vegar tekið eftir því, að jóla- stjörnurnar í ár eru óvanalega litlar og ræfilslegar, a.m.k. að stórum hluta. Blaðamaður HP heyrði þá skýringu hjá einum blómasalanum á höfuðborgar- svæðinu, að það væri einn og sami aðilinn sem ræktaði alla græðlingana á markaðnum og í ár hefði eitthvað farið úrskeiðis við framleiðsluna. ÞEIR eiga það greinilega báðir til að ,,fara yfir strikið", feðgarnir Ingi Björn Albertsson og Albert Gudmundsson. Fyrr í vetur lét Ingi Björn vægast sagt niðrandi orð falla um læknastéttina, eins og við sögðum frá á sínum tíma, og núna hefur hann beðist form- lega afsökunar á þeim ummælum. Albert Guðmundsson gerðist síðan uppvts að karlrembu á hæsta stigi á Alþingi í síðustu viku. Hann sagði í ræöustó! að félagsmála- ráðherra, Jóhanna Sigurdardóttir, ætti bara að hætta stjórnmála- afskiptum og snúa sér í staðinn að heimilisstörfum. Síðan óskaði hann ríkisstjórninni til hamingiu með að losna við ráðherrann. Og ekki hefur jafnréttissinninn Aðalheiöur Bjarnfreðsdóttir heldur heyrst áfellast flokksforingjann fyrir kvenfyrirlitninguna. JÓLASVEINARNIR voru á sínum tíma heilmiklir karlar í krapinu, en á síðustu árum hefur yngsta kynslóðin verið kynnt fyrir enn fræknari görpum í sjónvarpi, myndbandi og kvikmyndum. Og samkeppnin getur verið grimm — m.a.s. fyrir syni Grýlu og Leppa- lúða. Við fréttum t.d. af jólaballi, sem haldiö var á vegum dag- heimilis í höfuðborginni sl. laugar- dagskvöld, þar sem lítill snáði vatt sér að Hurðaskelli og spurði hvasst: „Ertu eins sterkur og He- ManT' COSSIGA, forseti Ítalíu, ætlaði að koma í opinbera heimsókn til Bretlands i lok nóvember. Þegar allt kom til alls átti forsetinn hins vegar ekki heimangengt vegna stjórnmálaástandsins á Ítalíu. Gestgjafarnir urðu auðvitað að kyngja því, sem varla hefur verið gaman. Það var nefnilega búið að verja hvorki meira né minna en rúmum 7 milljónum íslenskra króna í undirbúninginn .. . Skattafídusar. . . HELGARPUSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR Vinnualag Alþingis Auövitaö er þingið þreytt, þaö hlaut bara aö vera, enda hefur það ekki nqjtt haft óralengi að gera. Niðri „Þú getur lagt niður einn eöa tvo banka. Það gerist ekkert annað en fólk þarfað leita sér að annarri vinnu." PRÖSTUR ÓLAFSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI DAGSBRÚNAR I VIÐTAU VIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 12.12. '87. I 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.