Helgarpósturinn - 17.12.1987, Blaðsíða 41

Helgarpósturinn - 17.12.1987, Blaðsíða 41
| slenskar konur tóku heldur bet- ur við sér eftir að HP birti viðtal við þær Gudrúnu Ágústsdóttur og Arndísi Steinþórsdóttur um kvennavikuna, sem Norðurlanda- ráð stendur fyrir í Osló á næsta ári. Síminn á skrifstofu jafnréttisráðs hefur verið glóandi, því konur hvaðanæva af landinu hafa viljað til- kynna þátttöku. . . D ■^Leiknikúnstir fjármálaráðu- neytisins hafa vakið mikla athygli að undanförnu. Undir forystu Jóns Baldvins Hannibalssonar hafa menn í ráðuneytinu komist að því að viðbótin við niðurgreiðslunar á dögunum komi í raun til frádráttar tekjum ríkissjóðs. Ríkið afli í raun ekki þessara peninga með sköttum þar sem þeir fari í niðurgreiðslur. Þessa speki át Sighvatur Björg- vinsson síðan upp í fjárveitingar- nefndarræðu sinni. Það vekur dá- litla furðu að ráðuneytið skuli ekki taka allar niðurgreiðslur inn í þetta dæmi, þar sem slíkt gæfi mun hag- stæðari niðurstöðu fyrir ráðuneytið. Þrettán hundruð milljóna króna niðurgreiðslurnar sem ákveðnar voru í haust virðast þannig vera eitt- hvað lægra settar en þær tólf hundr- uð sem settar voru inn í fjárlögin í byrjun desember. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði á þingi um daginn að þessi speki væri álíka gáfuleg og ef Lífeyrissjóður verslunarmanna teldist ekki hafa neinar tekjur þar sem hann lánaði þær allar út á sama árinu... '-'v' adidas Eau de Tollette lOOml • 3,4 FLOZ: é ADIDAS-SPORTLINAN ILMUR ÍÞRÓTTAMANNSINS JÓLAGJÖFIN HANS adidas 14444 NÝTT OG BETRA VÖFFLUJÁRN FRÁ rlHr|sisjs|r| allt sem þarf til að gleðja heila fjölskyldu. V-þýsk gæðavara sem endist og endist.... ‘RÖNNING heimilistæki KRINGLUNNI - SiMI 91-685868 HELGARPÓSTURINN 41

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.