Helgarpósturinn - 17.12.1987, Blaðsíða 44
DÖGUN/BUBBA:
BUBBI: DOGUN
LP, KA & CD
Besta plata Bubba hingað til. “
Á.M.-Mbl.
.Skotheld skífa, hvort sem litið
erá lagasmíðar, útsetningar
eða annað." ÞJV -DV
, Ljóst er að Bubba hefur tekist
að gera plötu sem að mínu
mati er betri en „ Frelsið “.
GS-HP
MEGAS: LOFTMYND
LP, KA&CD
★ ★★★★ GS-HP
„Plata ársins" - ÞHG Stöð 2
„Efhægt er að tala um plötu
ársins hérlendis þá erþetta
hún.“ ÆÖJ - Þjóðv.
AthlÁ geisladisknum eru að
finna S viðbótarlög.
00 C'i O HÖH/Current 93: Crow- THElSMITHS ‘JBWIWÓítYS. HERt WE COMS
leymass 12“45 rpm I . f
>- 'AÍSKnbÉSEj-* C) Nýjasta snilldarverkið " ÆLv ''
Snl/lxg fró Hilmari Erni Hilmars-
& O a syni og Tibet. Magnað- asta krjólaplatan í ár.
^Bu?s—: Sérstakir gestir eru Guðlaugur Óttarsson og
u Rose McDowall. &d
Smiths: Strange-
ways Here We Come
Fyrsta breiðskífa The
Smiths þykir með bestu
frumburðum rokksög-
unnarog önnureins
grafskrift og
Strangeways er vand-
undin.
2LPÁVERÐI EINNAR.
CRIC CLAPTON
- The Collsctlon
Farið yfir blúsár g'ítar-
snillingsins Eric Clapton
1 f*
I >* *« 1« í.v
THECOLLECT!ON "S o
BUDDYHOLLY
~ TheCollectlon
Ef þú hefur garpan af La
Bamba tryggðu þér þá eintak
af þessari. Öll gömlulögin.
Arotho Franklin - Tho Coilection
Tho Mamas And Papas - Tho Collection
Them - Tho Coliection
Moody Bluos - The Collection
Marianno Faithfull - The Collectton
Small Facos - The collectlon
aiack Sabbat - Tho Collection
Konny Roaers - The Collectlon
Metal Killers - The Collection
Status Quo ~ The Colloction
Ton Yoars Aftor - The Collection
Thin Llzzy - Tho Collectiön
David Bowie - The Collection
Frank Sinatra - The Collection
Bob Marley - The Collection
Jim Croce - The Collection
Whito Boy Blues
JohnnyCash -The Collectlon
væntanlegt
ÍVIKUNNI
Bleiku Bastarnir
Sogblettir
JohnnyTriumph +
Sykurmo'arnir
Eigum einnig fyrirtiggjandi fjölbreytt úrval
afblues, rock’n roll, soul, jazz, tónlistar-
bókumofl. o.fl.
SENDUM í PÓSTKRÖFU SAMDÆÚURS,
SÍM112040.
„GÆDATONUSTA
GÓÐUMSTAБ
gramm
Laugaveg 17. Sími: 12040.
beri nafn Nessins eru Keykvíkingar
sjálfsagt í meirihluta golfleikara þar.
Það er líka tómt rugl að segja að allir
heildsalar á landinu búi á Seltjarnar-
nesi. Sumir þeirra búa á Arnarnesi
og jafnvel einn og einn í sjálfri
Reykjavík! Seltirningar eiga heldur
ekki borgarstjóra á borð við Davíð.
Þeir eiga ekki einu sinni nægilega
stóra tjörn til að setja bæjarstjórnar-
hús ofan í þótt þeir vildu. Þeir eiga
bara litla tjörn sem hamingjusöm
skautabörn á Nesinu nota að vild
þegar frost er.
Samt finnst mörgum innfæddum
Seltirningum að byggðin hafi stækk-
að of ört. Alltof ört. Það er af sem
áður var þegar aðeins eitt og eitt
hús stóð á Nesinu. Bíll kom akandi
með ferskan fisk af og til og þá var
bara ein lítil verslun á Melabraut-
inni. Nú er komin þar stór búð. Hún
er opin lengur en verslanir í Reykja-
vík. Seltirningar hafa nefnilega á
margan hátt verið á undan Reykvík-
ingum. Þeir vissu til dæmis langt á
undan öllum öðrum að útivinnandi
fólk þarf oft að kaupa í matinn eftir
sex. Meira að segja allt fram til
klukkan níu eða tíu á kvöldin. Sel-
tirningar voru líka langt á undan
Reykvíkingum að fatta að hundur-
inn er besti vinur mannsins. Þess
vegna hafa hundar verið velkomnir
á Nesinu lengi, lengi. Löggurnar á
Nesinu eru líka allt öðruvísi en aðr-
ar löggur. Eða hvar annars staðar er
persóna á við Sæma rokk við völd?
Hvar annars staðar sest löggan inn
til þín í kaffisopa þegar lítið er að
gera á vaktinni? Og hvar annars
staðar geturðu átt von á að þurfa að
hringja til Hafnarfjarðar til að ná í
vakthafandi lögregluþjón? Hvergi,
nema í Hafnarfirði. Og hvaða ann-
að, jafnlítið bæjarfélag getur státað
af sex þingmönnum?
Seltjarnarnesið breytist eins og
aðrir staðir. Það hefur tekið gífur-
legum breytingum á undanförnum
áratugum. Þar hefur íbúafjöldinn tí-
faldast og byggðin margfaldast. Þar
er risin einhver besta sundlaug
landsins. Þangað sækja Reykvíking-
ar í stórum stíl. Þar eru breiðar göt-
ur og hraðbraut í kringum allt Nesið.
A fáum stöðum eru eins glæsileg
húsakynni. Á fáum stöðum er enn-
þá jafnóskemmd náttúrufegurð. Á
fáum stöðum kýs fólk alltaf sama
flokkinn. En nú er Denni kominn í
kjördæmið. Þá er aldrei að vita
nema ýmislegt breytist.
HÆGFARA BREYTING í RÉTTA ÁTT
Gudrún Þorbergsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýdubandalagsins, er
aðflutt á Seltjarnarnes, en bjó þó
ekki langt undan á uppvaxtarárum
sínum í Vesturbœnum:
,,Við stelpurnar fórum oft í hjól-
reiðatúra og „picnic" út á Nes.
Höfðum með okkur appelsín og
vínarbrauð! Þá þótti þetta þó
nokkur vegalengd."
Aðspurð um það, hvort ekki
væri erfitt að halda uppi flokks-
starfi í þessu „íhaldshreiðri", sagði
Guðrún: „Það er hreint ekkert
erfitt. Munurinn á fylgi minni-
hlutans og meirihlutans er heldur
ekki jafnmikill og margir virðast
halda. Gagnrýnin á sjálfstæðis-
veldið hefur líka sífellt verið að
aukast á undanförnum árum.
Meirihlutinn hefur nefnilega ekki
gætt þess að sinna bænum nægi-
lega, t.d. að hirða hann vel og
annað slíkt. Margir eru þar að
auki óánægðir með skipulags-
málin og fjármálastjórnina, svo
sem eins og þegar 50 milljónir
voru settar í glerþakið á Eidistorgi.
Þá sárvantaði m.a. peninga til þess
að stækka Mýrarhúsaskóla, fyrir
utan ýmislegt annað, sem fjöldi
fólks hefði frekar viljað láta þetta
fé renna til.“
Guðrún kvað það oft taka á
taugarnar að starfa í minni-
hlutanum í bæjarstjórn. „Það
getur verið aiveg óskaplega erfitt.
Því auðvitað langar mann að vera
jákvæður og þurfa ekki sífellt að
vera með eitthvert „nöldur", sem
lítið er hlustað á. En ég fullvissa
þig um, að það á sér stað hægfara
breyting á Nesinu ... í rétta útt!
Og það er yndislegt að búa
þarna — rétt við miðdepil þjóð-
félagsins, en samt í nokkurri
fjarlægð frá mesta þéttbýlinu. Ég
kann vel að meta nálægðina við
náttúruna, sjóinn og ströndina.
Meira að segja vindinn!"
MAÐUR ÞEKKIR TÆPAST NÁTTÚRUNA LENGUR
Maður á besta aldri, sem var að
hluta til alinn upp á suðurströnd
Seltjarnarness en býr nú á norður-
ströndinni:
„Faðir minn er Seltirningur í
báðar ættir og ég held að
ættingjar mínir hafi búið þarna í
rúm 200 ár. Það var búskapur á
Nesinu fyrr á tímum og einnig var
hægt að stunda þaðan útgerð, sem
þótti að sjálfsögðu mikil búbót.
Ekki svo að skilja að útvegs-
bændurnir hafi verið mjög ríkir á
seinni tíma mælikvarða.
Ég held, að það hafi aldrei þótt
neitt fínna að búa á einum stað en
öðrum. Hvorki áður fyrr eða nú á
dögum. Það er vissulega skýlla á
suðurströndinni og ekki sami
garrinn og sjávarseltan þar og
norðanmegin. Betra fyrir
bílana . . . En það er hvergi guð-
dómlegra í góðu veðri en einmitt
á Seltjarnarnesi.
Þegar ég var að alast upp
kannaðist maður við flesta hérna,
þó maður væri kannski ekki beint
heimagangur á öllum heimilum.
Þetta er hins vegar breytt, eins og
svo margt annað. Maður þekkir
meira að segja tæpast lengur
náttúruna á Nesinu. Það má ekki
sjást hæð eða hóll, án þess að það
sé allt jafnað út, og svo er búið að
gjörbreyta ströndinni með upp-
fyllingum."
44 HELGARPÖSTURINN