Helgarpósturinn - 07.01.1988, Qupperneq 5
LUÐVÍK
ILYKILA
Refskák
tefld um bankastjóra
Það er nú undir viðbrögðum Þorsteins Pálssonar for-
sætisráðherra komið hvernig tekst til um ráðningu
bankastjóra í Landsbanka og Búnaðarbanka. Eftir að
stjórnarliðar í bankaráði Landsbankans klofnuðu í af-
stöðu sinni til þeirra Sverris Hermannssonar og Tryggva
Pálssonar sem væntanlegra bankastjóra Landsbanka sit-
ur Lúðvík Jósepsson, eini fulltrúi stjórnarandstöðunnar
í bankaráðinu, uppi með oddaatkvæði. Talið er að Lúð-
vík muni reyna að nýta sér þessa stöðu til að tryggja Geir
Gunnarssyni bankastjórastólinn sem næst losnar í Bún-
aðarbankanum.
EFTIR PÁL HANNESSON
Samkomulag stjórnarflokkanna
var, sem kunnugt er, að Kjartan Jó-
hannssort, alþingismaður Alþýðu-
flokks, skyldi fá sæti Stefáns Hilm-
arssonar, bankastjóra Búnaðar-
banka, Sverrir Hermannsson átti
að fá stólinn eftir Jónas Haralz og
Valur Arnþórsson sæti Helga Bergs.
Þegar Stefán Hilmarsson heyrði
hins vegar af þessu samkomulagi
fyrst á skotspónum firrtist hann við
og gaf í skyn að hann myndi sitja
svo lengi sem honum sýndist, jafn-
vel næstu sex árin. Eyjólfur K. Sig-
urjónsson, alþýðuflokksmaðurinn í
bankaráði Landsbankans, taldi þar
með útséð um að Kjartan flokks-
bróðir fengi stöðuna og taldi sam-
komulag stjórnarflokkanna úr gildi
gengið. Studdi hann því þá tillögu
Árna Vilhjálmssonar, sem er annar
fulltrúi Sjálfstæðisflokks og fyrrum
kennari Tryggva Pálssonar, að
Tryggvi, sem er núverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Lands-
bankans, skyldi verða næsti banka-
stjóri bankans. Kom þessi afstaða
þeirra fram á bankaráðsfundi sem
haldinn var 29. desember síðastlið-
inn, þar sem hugir manna til banka-
stjóraefna voru kannaðir. A sama
fundi lýsti Lúðvík Jósepsson stuðn-
ingi við Tryggva, en bað jafnframt
um frest áður en hann tæki endan-
lega ákvörðun. Pétur Sigurdsson,
Sjálfstæðisflokki, formaður banka-
ráðs, hélt hins vegar fast við ákvörð-
un flokksins um að Sverri skyldi
hlotnast staðan og fylgir Kristinn
Finnbogason, fulltrúi framsóknar,
honum fast á hæla, enda staða Vals
Þorsteinn verður að taka af skarið og
sýna að það er hann sem raeður. Tekst
honum það á næstu dögum?
Arnþórssonar sem verðandi Lands-
bankastjóra í veði.
Á bankaráðsfundi á gamlársdag
ákvað Pétur Sigurðsson formaður
að ákvörðun skyldi frestað fram til
15. febrúar, en fram að þeim tíma
yrði hann fjarverandi erlendis í
veikindafríi. Tók þá varamaður Pét-
urs, Jón Þorgilsson, sæti í bankaráð-
inu, en Kristinn Finnbogason vara-
formaður gegnir embætti for-
manns. Staðan í málinu er þvi sú að
í raun hefur Lúðvík Jósepsson odda-
stöðu um það hvort Sverrir eða
Tryggvi verða ráðnir, að öðru
óbreyttu. Sú staða býður Lúðvík upp
á ýmsa möguleika. Hann getur t.d.
látið hvorn hóp stjórnarliða fella til-
lögu hins með því að sitja hjá og
blása þannig upp og sýna fram á
óeiningu í röðum ríkisstjórnarflokk-
anna. Þar með hnykkir hann einnig
á þeirri staðreynd að sjálfstæðis-
menn í bankaráðinu láta ekki að
stjórn og sýnir þannig ítrekað fram
á veikleika Þorsteins Pálssonar sem
flokksleiðtoga. Hann gæti einnig
reynt að nýta sér stöðuna til þess að
gera tillögu um nýjan mann í stöðu
bankastjóra Landsbankans. Hann
Ekki er útséð með það enn hvort
Sverrir sest í bankastjórastólinn eða
ekki. Eiga gamlir flokksgæðingar
bitlingana skilið?
hefur því sterka stöðu.
Það sem er hins vegar talið lík-
legast er að hann geri tillögu um að
Geir Gunnarsson, alþingismaður Al-
þýðubandalagsins, verði næsti
bankastjóri Búnaðarbankans. Þar
með flýtti hann jafnframt fyrir því
að Ólafur Ragnar Grímsson kæmist
á þing sem varaþingmaður Geirs.
Styrkti það óneitanlega stöðu Ólafs
sem formanns Alþýðubandalagsins.
Er talið að Lúðvík sé tilbúinn að
styðja hvorn sem er, Sverri eða
Tryggva, fáist annar hvor hópurinn
innan bankaráðsins til þess að
ganga að þessu samkomulagi.
Þorsteinn Pálsson þarf að bregð-
ast við þessum hættum og það getur
hann tæplega nema með því að telja
Árna Vilhjálmssyni hughvarf og fá
hann til stuðnings við Sverri. Þar
með væri Sverri Hermannssyni
tryggður bankastjórastóllinn, jafnvel
þó Lúðvík legðist á sveif með
Tryggva, því Kristinn Finnbogason
mun styðja ákvörðun Þorsteins af
fyrrgreindum ástæðum.
Verði Árna hins vegar ekki hnik-
að í afstöðu sinni gæti Þorsteinn
neyðst til að ganga að ofangreindu
Tryggvi Pálsson er ungur og upp-
rennandi. Veröur hann latinn bíða
nokkur ár enn eftir stólnum?
samkomulagi við Lúðvík, enda
gætu tveir sjálfstæðismenn í banka-
ráði Búnaðarbanka, auk fulltrúa Al-
þýðubandalagsins þar, ráðið því
máli. Þorsteinn sæti þó enn uppi
með óleystan vanda sem væri Sverr-
ir Hermannsson auk þess sem
ganga yrði á fyrri yfirlýsingar for-
manns bankaráðs Landsbanka, Pét-
urs Sigurðssonar, sem opinberlega
hefur lýst yfir Stuðningi við Sverri.
Það kynni þó að verða auðveldari
biti að kyngja fyrir Þorstein en ef
Lúðvik Jósepsson gæti sýnt fram á
hrópandi ósamkomulag innan
stjórnarflokkanna og það sem verra
væri ódug Þorsteins Pálssonar.
Gerði Þorsteinn samkomulag við
Lúðvík liti a.m.k. þannig út að hann
ætti sinn hlut i ákvarðanatökunni,
en ekki að hann væri settur hjá sem
hver önnur hornkerling.
Þorsteinn átti fund með Tryggva
Pálssyni í gærmorgun, miðvikudag,
og mun Þorsteinn hafa gefið hlutað-
eigandi aðilum í skyn um áramótin,
að hann þyrfti nokkurra daga frest
til að höggva á þennan sérkenni-
lega pólitíska hnút, sem herðir ekki
síst að honum sjálfum.
Geir Gunnarsson veröur næsti
bankastjóri Búnaöarbanka gangi
leikflétta Lúöviks upp. Þar með mun
staða Ólafs Ragnarsá þingi styrkjast.
HELGARPÓSTURINN 5