Helgarpósturinn - 07.01.1988, Page 7

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Page 7
andi, er íslenski flokkurinn sá minnsti í landinu. Af þessum ástæð- um, sem stafa af innanflokksósam- lyndi í fortíðinni og of íhaldssamri forystu, hafa frjálslynd öfl og verka- lýðssamtök, sem annars staðar mundi vera að finna í röðum sósíal- demókrata, leiðst til stuðnings við kommúnista og samtímis hafa þeir losnað við sinn hættulegasta and- stæðing." Trimble telur kommúnistaforingj- ana færa stjórnmálamenn, þraut- þjálfaða í Alþjóðastofnun Leníns í Moskvu og mjög lagna að hagnýta sér hefðbundinn fjandskap Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokks. Þannig hafi þeim tekist að komast inn í rík- isstjórn Ólafs Thors 1944 og þegar hafið að smeygja sínu fólki inn í (in- filtrate) ráðuneyti og stofnanir. Þá hafi þeir gert þá taktísku skyssu að segja sig úr ríkisstjórninni vegna Keflavíkursamningsins og sl. 20 mánuði reynt að leiðrétta þetta með samstarfstilboðum á báða bóga til Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Þeir notfæri sér þjóðernishyggju ís- lendinga af mikilli skarpskyggni. Peninga hafi þeir nóga, sennilega fengna úr sovéskum sjóðum í New York. LÆKNISRÁÐ VIÐ KOMMÚNISMA Til lagfæringar á þessu ástandi tel- ur Trimble upp 13 tillögur. Hin fyrsta er um nauðsyn erlends fjárstuðnings, ráðgjafar og aðstoðar til endurlífgunar Alþýðuflokksins. Kommúnistar séu með fjóra eða fimm skipuleggjendur á fullu í verkalýðsbaráttunni, meðan krat- arnir hafi bara efni á einum í hluta- starfi. Jafna þurfi rekstrarhalla Al- þýðublaðsins og forystumenn flokksins þurfi að komast í fleiri heimsóknir til Norðurlanda og ann- arra landa Norður-Evrópu. Sé hægt að koma slíkum fjárstuðningi við ætti hann að berast þeim um önnur lönd, helst sem gjöf frá norska Verkamannaflokknum, en ekki beint frá Bandaríkjunum. í tillögu tíu er bent á, að kommún- istar muni geta framið valdarán í landinu með ekki stærri hópi en 500 manna og haldið völdunum nógu lengi til að eyðileggja mannvirki á Keflavíkurflugvelli. Menn trúi því að þeir séu fyllilega undir þetta búnir, einnig hvað tæki snertir, hvenær sem fyrirskipun berist frá Moskvu. Til öryggis gagnvart slíkum atvik- um ættum við að hvetja hina ókommúnísku leiðtoga til að stofna vopnaðar flokksliðssveitir og gera ætti ráðstafanir til að sjá þeim fyrir léttum vopnum og skotfærum. í tillögu átta er lagt til að utanríkis- ráðuneytið komi í hendur íslenska forsætis- eða utanríkisráðherranum skjallegum gögnum, sem tengi Ein- ar Olgeirsson við sovéskan njósna- hring á heppilegum tíma fyrir kosn- ingar. Gögn þetta varðandi hafi ver- ið nefnd í upplýsingum til sendiráðs- ins snemma árs 1948 og talin þá vera í höndum CIC (gagnnjósna- stofnun) í Þýskalandi. Einnig væri gagnlegt að fá í hendur ljósmyndir er sýni meint (alleged) sovésk hern- aðarmannvirki á Spitzbergen (Sval- barða). í tillögu ellefu er komið á framfæri þeirri ósk dómsmálaráðherra (Bjarna Benediktssonar) að fá að senda einn eða tvo undirmanna sinna til að kynnast „aðferðum kommúnista og tækni hjá FBl. Hvetja ætti sendiráðið til að fylgja þessari fyrirspurn eftir og jafnframt ætti að hvetja íslendinga til að koma upp gagnnjósnaþjónustu, sem ynni í nánu samstarfi við FBI og samsvar- andi stofnanir á Norðurlöndum". í tillögu 12 er beðist rannsóknar á gruni þeim að kommúnistum berist fé um Bandaríkin og væntanlegum sönnunargögnum komið í hendur utanríkisráðherra. Að lokum er minnt á, að hvaða ráða sem ákveðið verði að grípa til verði það að gerast skjótt og ,,í sam- ræmi við skammtíma- og langtíma- markmið okkar, meðal annars end- urnýjun Keflavíkursamningsins 1951.“ Þessar ráðagerðir voru teknar til skoðunar í bandaríska utanríkis- ráðuneytinu og sendar áfram til sendiráðsins til umfjöllunar 15. sept. 1948. Þar voru þær teknar til ræki- legrar skoðunar og flestum þeim fjarstæðustu algerlega hafnað. Því miður er ekki rúm til að rekja þann rökstuðning fyrr en síðar. William C. Trimble, stadgengill bandaríska sendiherrans: EG VAR GODUR VINUR STEFÁNS OG BJARNA Viö unnum saman aö þuí aö varöveita sjálfstœöi Islands Helgarpósturinn náði nýlega tali af William C. Trimble á heimili hans í Baltimore, Maryland í Bandaríkjunum og bað hann að rifja upp ýmis atriði frá þeim ár- um, sem hann starfaði hér. „Ég kom til íslands í endaðan janúar 1947 og dvaldist þar um hálfs annars árs skeið, eða þangað til í júní 1948.“ Manstu eftir Erling Ellingsen og Teresu Guðmundsdóttur og tillögu þinni til Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar um að þau yrðu rekin úr op- inberu starfi? „Ég man vel eftir Ellingsen. Hin- um man ég ekki eftir. Ellingsen sagði mér sjálfur að hann væri kommúnisti. Sem flugvallarstjóri sátum við saman í þriggja manna nefnd, sem sá um samstarfið á Keflavíkurflugvelli eftir að amer- íski herinn hafði yfirgefið landið og flugvöllurinn var rekinn af AOA (American Overseas Air- lines). Þessi nefnd var kölluð IAC (Icelandic Airport Committee). Það gekk bara ekki að það væri kommúnisti í þessari þýðingar- miklu nefnd.“ Ljóstaði Erling upp um einhver leyndarmál? „Nei, ekki man ég eftir því. Hann leyndi því ekkert að hann væri kommúnisti. Hann sagði mér það sjálfur. Við þrír áttum að mörgu leyti gott samstarf, en við vorum ósammála um margt og þar komu stjórnmálaskoðanir Ellingsens ti!.“ Þú hlýtur að hafa haft mjög náin tengsl við forsætisráðherrann, að finnast viðeigandi að stinga upp á því, að embættismenn væru rekn- ir. „Ég var mjög góður vinur hans og Bjarna Benediktssonar og raunar allra ráðherranna, held ég. Við unnum saman að því að reyna að varðveita sjálfstæði íslands og forða landinu frá ísmeygni (in- filtration). Stjórnin var nýmynduð, þegar ég kom, og ég kynntist öll- um ráðherrunum því við höfðum nána samvinnu um margt. Síld- veiðin brást og ég hjálpaði til að selja fisk til hernámssvæðanna í Þýskalandi. Landið varð olíulaust og mér tókst að fá tankskip með olíu." Þekktirðu forsetann, Svein Björnsson? „Já, vissulega. Hann var mjög góður vinur minn og ég heimsótti hann oft í forsetabústaðinn á Bessastöðum." Samkvæmt skýrslum frá þér á þessum árum virðist hættan af kommúnistum vera þér ofarlega í huga. „Já, þeir voru hættulega öflugir. Það urðu tvö mjög alvarleg verk- föll á þessum árum og stefndu efnahagslífinu í voða.“ Manstu eftir afskiptum sendi- ráðsins af málefnum Laxness á þessum árum? „Nei, en ég kannast við nafnið. Framúrskarandi rithöfundur og skáld. En hann hafði ekkert sam- neyti við okkur og var yfirlýstur kommúnisti." Söfnuðuð þið upplýsingum um kommúnista? „Nei, nei. Ellingsen sagði mér sjálfur að hann væri kommúnisti." Enginn leyniþjónustumaður við sendiráðið? „Nei, enginn.“ Hversu nána samvinnu áttirðu við íslensk stjórnvöld í málum sem þessum? „Ekki mjög nána — þetta var þeirra mál, ekki mitt. — Ég sagði honum þetta með Ellingsen. En þetta var mjög eftirminnilegur tími og ég naut hans gífurlega. Sonur minn, William C. jr„ var fyrsti Amríkaninn, sem fékk inn- göngu í íslensku skátahreyfing- una. Því miður gat ég of lítið ferð- ast um; komst tvisvar til norður- iandsins. Og þetta var erfiður tími fyrir ísland. Eftir góða síldarvertíð 1947 hvarf síldin og tími efnahags- legra þrenginga fór í hönd.“ SKRANING KOMMÚNISTA TÍMAFREK — þrátt fyrir aöstoö tveggja stjornmalaflokka f viðtalinu hér á opnunni fer William C. Trimble sem mörgum öðrum: Minni hans frá eftirstríðs- árunum er ekki sérlega skarpt: Hann rekur ekki minni til þess að í sendiráöinu hafi verið safnað upplýsingum um meinta komm- únista. Með bréfi dagsettu 31. janúar 1949 og undirritað af Richard P. Bandaríska sendiráðið við Laufás- veg. ( lok fimmta og byrjun sjötta áratugarins skutu þarna upp kollin- um hugmyndir um alheimssam- særi kommúnista, sem berjast mætti gegn með ÖLLUM tiltækum ráðum — líka þeim, sem kommún- istar beittu andstæðinga sína á sama tíma. Butrick sendiherra er sendur listi yfir 384 nafngreinda kommúnista. Tekið er fram að á skrám sendi- ráðsins séu nú 900 nöfn persóna grunaðra um að hafa tengsl við kommúnista (Communist connections), en við samsetningu meðfylgjandi lista hafi nöfn allra, sem ekki hafi verið sannaðir (veri- fied) sem hugmyndafræðilegir kommúnistar, verið tínd úr. Sendi- ráðið vinni stöðugt að aukningu skráa sinna yfir kommúnista og verði fleiri nöfn send eftir því sem tækifæri gefist til að sannprófa þau eftir áreiðanlegum heimild- um. Trimble rekur ekki minni til að hafa haft afskipti af Halldóri Lax- ness. Efni skeytis varðandi það mál, dagsett 22. febrúar 1948 og undirritað af Trimble, var rakið í síðasta tbl. HP. Trimble rekur ekki minni til veð- urstofustjórans, Teresu Guð- mundsson, og telur sig hafa kvart- að undan Erling Ellingsen, af því að Erling sjálfur hafi ekkert farið í launkofa með að hann var komm- únisti. Þetta mál var þó stærra í sniðum en svo. Fimm mánuðum eftir viðræður Trimbles við Stefán Jóhann (sbr. Ijósmynd af skjali í 50. tbl. 1987) fara fram í utanríkis- ráðuneytinu í Washington viðræð- ur milli H. Francis Cunningham, Jr. úr Norður-Evrópudeildinni og Thors Thors sendiherra. Umræðu- efni: Starfræksla Keflavíkurflug- vallar skv. samningi við Island frá 7. október 1946 (Keflavíkursamn- ingnum). Cunningham skýrir Thor frá því, að er Butrick hafi heimsótt Washington nýlega hafi hann skýrt frá því, að íslenski utanríkis- ráðherrann hafi látið í ljósi þá ósk að fljótlega yrði náð samkomulagi um óleyst vandamál sem upp hafi komið í sambandi við starfrækslu flugvallarins. Butrick hafði æskt frekari skilgreiningar á þessum efnum. Cunningham rekur síðan ýmsar kröfur Bjarna Benedikts- sonar og svör Bandaríkjastjórnar við þeim og klykkir síðan út með því að segja orðrétt: „Þau atriði, sem eftir eru, og Benediktsson tel- ur óleyst, eru, eins og Butrick benti honum á, úr lausu lofti gripin og einfaldlega gömlu kommúnista- ásakanirnar.” Cunningham er hér m.ö.o. að saka Bjarna Benedikts- son um að taka að einhverju leyti undir ásakanir Eriings Ellingsen, sem hann lýsir svo: „Ég sagði að svo virtist sem hr. Ellingsen, flug- málaembættismaður, sem væri kommúnisti, hefði skrifað skýrslu dagsetta 1. apríl 1947, að því er virtist sem trúnaðarmál til ís- lensku ríkisstjórnarinnar, og í henni gagnrýnt með hverjum hætti flugvallarsamningurinn frá 1946 væri framkvæmdur. Þessi skýrsla hafi svo verið prentuð í Þjóðviljanum, dagblaði kommún- ista í Reykjavík, 6. október 1947 eða þar um kring. Viö litum á skýrsluna sem kommúníska aö- geröaáœtlun til þess sniðna að gera Bandaríkjunum ókleift að starfrœkja flugvöllinn samkvœmt samningnum.“ Cunningham rekur síðan í hverju hann telji villur eða afbak- anir Ellingsen liggja. Síðar í sam- talinu segist hann vona, að Thor hafi fullan skilning á, að Banda- ríkjastjórn óski ekki eftir að ráða kommúnista til starfa á Vellinum. „Því væri nauðsynlegt að ein- hvers konar prófun fari fram á stjórnmálaskoðunum umsækj- enda. Mér hefði skilist, að Butrick heföi fengiö til liðs viö sig tvo stjórnmálaflokka til að fara yfir nafnalista vœntanlegra umsœkj- enda. Þetta reyndist hins vegar vera tímafrekt fyrirkomulag. Því miður væri sannleikurinn sá, að engin hraðvirk eða áreiðanleg heimildamiðstöð væri til um ís- lenska kommúnista. Thor Thors tók fram að hann skildi tregðu okkar á að ráða kommúnista.” í beinu framhaldi af þessu segir Cunningham: „Ennfremur benti ég á, að Mr. Trimble hefði komið því á framfæri við íslendinga fyrir nærri ári síðan að deild banda- rísku Veðurstofunnar á Keflavýk- urvelli væri reiðubúin að þjálfa ís- lendinga í nokkra mánuði á sinn kostnað. Hugmyndin að baki var sú, að eftir þjálfunina færu íslend- ingarnir á launaskrá íslensku Veð- urstofun.nar. ísland gæti síðan snú- ið sér til ICAO (Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar) og beiðst endur- greiðslu. Tilboð okkar stæði enn opið og Butrick mundi sennilega minna Islendinga á það. Við gæt- um ekki skilið hví engir umsækj- endur gæfu sig fram. nema ástæð- an gæti verið sú að Teresa Guð- mundsson kæmi í veg fyrir ráðn- ingu vegna kommúnistatilhneig- inga sinna. Mr. Thors spurði hvort við litum á hana sem kommún- ista? Ég sagði að það gerðum við. Hann sagði að leiðin til að yfirstíga hindranir, sem hún setti í veginn, væri sú að leita til æðri stjórn- valda. Ég sagði, að við hefðum þegar sett okkur í samband við æðri stjórnvöld og mundum gera svo aftur.“ Gegn þessum skjölum verður sakleysisleg frásögn hr. Trimbles heldur tortryggileg. HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.