Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 12
E ins og sagt var f rá í síðasta ein-
taki HP hafa hitaveitustjóri, Jóhann-
es Zoéga, og fleiri ráðgert byggingu
hringsnúandi veitingahúss ofan á
hitaveitugeymunum á Öskjuhlíð.
Bygging hússins hefur hins vegar
aldrei verið formlega samþykkt af
þar til bærum ráðum borgarinnar,
en þrátt fyrir það eru teikningar
nánast frágengnar. Hins vegar hefur
fulltrúum minnihlutans verið haldið
utan atburðarásarinnar að miklu
leyti og fréttu þeir þannig fyrir til-
viljun að hitaveitustjóri og Ingi-
mundur Sveinsson arkitekt hefðu
setið á fundum hér heima með full-
trúum þeirra erlendu fyrirtækja
sem eiga að sjá um uppsetningu
hvolfþaksins og glerverksins. Bygg-
ingin sjálf á samkvæmt fyrstu áætl-
un að kosta rúmlega hálfan milljarð
og af því eru laun fyrir hönnunar-
vinnu og umsjón um 35 milljónir
króna .. .
| haust var auglýst eftir lög-
reglumönnum til starfa í Reykja-
vík, sem reyndar er ekki í frásögur
færandi. Einhverjir munu hafa sótt
um og voru sendir í Lögregluskól-
ann eins og til er ætlast. Þegar upp
var staðið kom hins vegar í ljós að
fæstir af umsækjendunum reyndust
skrifandi á íslenska tungu, rétt svo
að eigið nafn væri rétt stafsett. En
fall var ekki samþykkt, og bárust
skipanir „ofan frá” þess eðlis að
þessum og þessum skyldi hleypt í
gegn svo lögreglunni bættist liðs-
auki. Enda launin kannski ekki
þannig að búast megi við að lang-
skólagengnir þyrpist í störfin. . .
TT alandi um lögreglumenn.
Suður á Keflavíkurflugvelli starfa
íslenskir lögregluþjónar eins og
kunnugt er. Eftir að flugstödvar-
byggingin færðist út af Vellinum
munu lögreglumennirnir eitthvað
hafa fært sig upp á skaftið varðandi
þann munað sem bandarískum
hermönnum hlotnast og eru nú ís-
lenskir lögregluþjónar daglegir
gestir á Messanum, matsölustað
sem eingöngu er ætlaður Banda-
ríkjamönnunum. . .
TIZKAN
Laugavegi 71 II hæó Slmi 10770
-y>SÁ*
■*■■
. '■■
i ISI ;
Kr iA5O0<0*0^
átt
^SÍ&ít***■
'SSSmHSE*
tv^lL^rm krono
í 450
£fPuZíróna * án
qÓÐ^
sew
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
12 HELGARPÓSTURINN