Helgarpósturinn - 07.01.1988, Side 14

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Side 14
Fyrir viku kvaddi enn eitt árið með gleði sinni og sorgum og framundan er splunkunýtt og óskrifað blao, órið 1988. Sumir lóta sér nægja að taka þvi sem að höndum ber og lóta hverium degi nægja sína þjóningu, ón þess að líta of langt fram í tímann. Aðrir eru forvitnir, spó og spekúlera, og þyrstir óvallt í fróðleik um framtíðina. Fyrir þó birtum við spódóm bandarísks stjörnuspekings fyrir komandi ór. HRÚTURINN Þú munt leita þér að stærra sviði árið 1988 og endurmeta þau takmörk, sem þú hefur sett þér. Ef þú hefur lagt þig fram og farið eft- ir settum reglum ertu nú að nálgast toppinn og þetta ár gæti því lofað góðu. En ef þú hef- ur byrjað á of mörgum verkefnum, án þess að ljúka við þau, þarftu að endurvinna ýmis- legt. I febrúar verðurðu reynsiunni ríkari í vinnu eða í skóla. Fjármálin glæðast upp úr marsmánuði og þú munt vinna fyrir tölu- verðum peningum á þessu ári. Reyndu að setja eitthvað af þeim til hliðar og varastu að eyða um efni fram, t.d. í mars. Astamálin verða helst í sviðsljósinu í jan- úar og október. Þú laðast að eldheitum, ástríðufullum einstaklingum, sem eru ekki ólíkir þér sjálfum. Að öllum líkindum fellur þú fyrir slíkri persónu á árinu og ástarlogarn- ir verða eldheitir. Láttu ekki sjálfselsku eða skort á samstarfsvilja á mikilvægu augna- bliki verða til að slökkva bálið. Notaðu apríl til að sinna grundvallaratrið- um. Mikilla breytinga er að vænta í maí. Snúðu þér að fjölskyldumálefnum í júní. Ef þú ferð í frí í júlí skaltu gefa þér góðan tíma til þess að íhuga lífið og tilveruna — í ein- rúmi. Hlutirnir fara að ganga upp í septem- ber og í október geturðu byrjað upp á nýtt. VOGIN Breytingar á heimilislífinu virðast nánast óumflýjanlegar, en þær færa þér líka þá ró sem þú sækist eftir. Annaðhvort muntu upp- götva nýja hæfileika eða nýta betur þá, sem þú vissir um. Þú hefur alltaf þráð náið samband við aðra manneskju og í ár gæti sá draumur ræst. Ef þú ert ólofaður gæti leiðin legið upp að altar- inu. Ef þú á hinn bóginn ert í föstu sambandi bendir allt til þess að það styrkist til muna. Peningamálin ganga líka vel og þú hefur áhuga á að fegra umhverfi þitt og njóta lífsins með þínum nánustu. Áherslan verður á heimilið og þér mun líða mun betur þar en oft áður. Um miðjan febrúar verða skyndilega mikl- ar breytingar á högum þínum. Aðili, sem allt í einu birtist á sjónarsviðinu, lætur ókyrrlega og þessu getur fylgt aukin ábyrgð. Þá reynir líka á alla þína hæfileika til að róa fjölskyldu- meðlimi og koma skipulagi á hlutina. Þú ættir að nota júní til ferðalaga. Bæði febrúar og nóvember verða eftirminnilegir mánuðir. NAUTIÐ Vegna trygglyndis þíns áttu erfitt með að segja skilið við hluti í fortíðinni, en það gerist margt spennandi hjá þér árið 1988. Þú tekur miklum breytingum, jafnvel í útliti. Þú munt verða fullur orku og töfra og draumar þínir í ástamálum rætast. Ef þú ert ekki í föstu sambandi gæti vinátta orðið að djúpri ást og jafnvel endað í hjóna- bandi. Ef þú ert í hjónabandi munu gamlar glæður taka við sér og ef til vill fjölgar í fjöl- skyldunni. Heitast er í rómantísku kolunum í apríl og september. Þér reynist svolítið erfitt að taka ákvarðan- ir í febrúar. Þig langar til að gera grundvallar- breytingar, en eitthvað dregur úr þér kjark- inn. Það léttist á þér brúnin í mars og bjart- sýni og velgengni einkenna vorið. Þú tekur eingöngu stór skref, en láttu það ekki ná til mataræðisins, því þá gætir þú þyngst um of. í vinnunni gengur allt vel, ef sjálfstæði þitt og frumleiki fá að njóta sín. Taktu ekki of mikið mark á því, sem aðrir segja — einkum í júní og október. Júlímánuður verður mikil- vægur, bæði í einkalífi og í vinnunni, og í september geturðu hafið nýja sókn. SPORÐDREKINN Forvitni þinni um alla dularfulla hluti verð- ur rækilega svalað á árinu 1988. Þú nýtur þess að rannsaka alls kyns leyndardóma og gætir gert merkilegar uppgötvanir — sér- staklega varðandi sjálfan þig. Reyndu hins vegar að vinna ekki of mikið. Fjárhagurinn skánar í febrúar og þá áttu líka auðveldara með að sinna öðrum og há- fleygari hlutum. Það er þér lífsnauðsyn að vinna þar sem hugkvæmni þín fær notið sín, svo sem við skriftir. En þér lætur betur að vera bakvið tjöldin en í kastljósinu. í ástamálum laðastu að rólegum, hjálp- sömum og samúðarfullum persónum, sem gefa sér tíma til að hlusta á þig. Ekki er ólík- legt að slíkir aðilar væru t.d. fæddir í Fiska- eða Meyjarmerkinu. Alvarleg ástarsambönd verða helst á dagskrá í janúar og október, en annars viðrar vel fyrir þess háttar allt árið. Ef þú ert ekki þegar í hjónabandi eru töluverð- ar líkur á því að þú hittir tilvonandi maka á þessu ári. Aðrir verða þér hjálplegir, en þú ræður sjálfur best fram úr flestum málum. Fylltu umhverfi þitt af tónlist, bókum og blómum og hugleiddu ýmis heimspekileg málefni. Lærðu að vera einn, án þess að vera ein- mana. TVÍBURARNIR Þú ættir að hægja á þér á þessu ári og horfa i kringum þig. Þá sérðu hve öryggi trausts ástarsambands getur verið mikils virði. Kannski kemstu líka að þeirri niður- stöðu, að það geti verið ágætt að taka þátt í ákveðinni samvinnu. Hafðu ekki áhyggjur þó þér finnist þú háð- ari öðrum, því það kemur síður en svo niður á pyngjunni. Þú hefur sjaldan haft meiri pen- inga handanna á milli og heppnin og bjart- sýnin hafa þar mikið að segja. Þó getur smá- vægileg kreppa dunið yfir um miðjan febrú- ar. Þú laðast að persónu, sem veitir þér hlýju og öryggi, en eldri kona eða foreldri blanda- st á einhvern hátt inn í ástalíf þitt. Ástin blómstrar í mars, ágúst og desember. Janúar, mars og október henta best fyrir ferðalög, enda er frelsisþráin þá mikil. Það er ekki ólíklegt að þú flytjir á árinu, ef til vill í apríl. BOGMAÐURINN Þú uppskerð á þessu ári laun fyrra erfiðis og staða þin í samfélaginu styrkist. Upp á síð- kastið hafa togast á í þér íhaldssemi og þörf fyrir að breyta til, en upp úr miðjum febrúar minnkar álagið. Þá færist áherslan yfir á fjár- málin og þér mun vegna vel á þeim vett- vangi — sérstaklega ef vinna þín tengist á einhvern hátt tækni og tölvum. Á nýbyrjuðu ári verður þú reiðubúnari en áður að festa ráð þitt. Ástríður mun ekki skorta, en þú leitar líka að öryggi. Rómantík- in blómstrar aðallega fyrstu fjóra mánuði ársins, en hápunktar verða í febrúar og des- ember. Það gæti verið Steingeit, sem höfðar mest til þín. Snemma í maí fer allt að ganga betur í vinnunni og heilsa þín batnar. Samstarfsaðil- ar þínir verða líka afskaplega hjálpfúsir og það er ekki ólíklegt að þú fáir stöðuhækkun eða hækkir verulega í launum. Einnig verð- ur tekið eftir því hve fús þú ert að axla ábyrgð — bæði af yfirmönnum og ástvinum — og þú græðir á því. Hlutirnir ganga upp í september og þú verður áþreifanlega var við velgengnina. Spennandi ferðalög gætu verið á dagskrá í apríl eða júní, en gerðu ráð fyrir mikilli sam- veru með fjölskyldunni í júlí. í ágúst muntu hins vegar vilja vera einn í ró og næði. KRABBINN Þú lætur ekkert halda aftur af þér á þessu nýbyrjaða ári, víkkar sjóndeildarhringinn og snýrð þér að nýjum áhugamálum. Þér reyn- ist auðveldara að losa þig undan valdi fortíð- arinnar og annars fólks. Ferðalög, veislur og ævintýr eru á dagskrá. Það eru helst þeir hressu og kátu, sem eiga upp á pallborðið hjá þér í ástamálum. Þú lað- ast að útlendri persónu eða aðila, sem hefur ferðast mikið og lært. Skoðanir þínar á ást- inni eru að breytast, en um miðjan febrúar þarftu að taka skyndiákvörðun í tengslum við ákveðið samband. Þetta gæti tengst tog- streitu á milli tveggja sambanda og það mun eflaust ganga mikið á. Þú eignast vitran vin í mars og þá gætu ýmsir draumar farið að rætast. Njóttu lífsins, án_þess að vanrækja fjölskylduna. Árið 1988 er áherslan á útlit þitt og líkama. Gættu þess að fitna ekki um of og halda áfram að stunda líkamsrækt þrátt fyrir aukið félagslíf. Maímánuður verður mikilvægur. Taktu nýja stefnu í júlí, t.d. í ástamálum. Osk- ir þínar rætast í september. STEINGEITIN Líf þitt tekur nýja stefnu árið 1988. Þú munt gegna mikilvægara hlutverki en fyrr — forystuhlutverki — og upplifa ævintýr, sem þú hefur ekki einu sinni látið þig dreyma um. Þetta verður tími mikilla breytinga, enda muntu slíta ákveðin tengsl við fortíðina og leita nýrra leiða til að byggja upp nýja tilvist. Hvað ástamálin varðar muntu laðast að djörfum persónum, sem hafa annan fótinn í framtíðinni, og allt bendir til þess að þú verð- ir lukkulegur. Sérstaklega eftir 9. mars. Þú verður örlátur við ástvini þína, en gættu þess að fórna ekki gjörsamlega eigin hagsmun- um. Einhver, sem hefur verið alltof háður þér, þarf að læra að standa á eigin fótum. Þú verður sjálfstæðari en áður í vinnunni, segir jafnvel upp og ferð að vinna sjálfstætt. Hins vegar máttu búast við mikilli innri tog- streitu, vegna þess að frelsisþráin og skyldu- ræknin togast á. Þörf fyrir frelsi verður sér- staklega áberandi í janúar og október. Ágúst verður mikilvægur mánuður í tengslum við ástamál, virðingu og peninga. Rómantíkin blómstrar raunar líka í janúar, maí og október. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.