Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 16

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 16
GENGUR AFTUR „Yndislegt ad lesa hana,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafrœðingur. Pollýanna kom aftur fyrir jólin. Þad fór ekki fram hjá mörgum. Eftir rúmlega tuttugu ára fjarveru birtist hún á ný og enn einu sinni sló hún í gegn. Prentud voruö 3.300 eintök, sem seldust upp hjá forlaginu í byrj- un desember. Ömmur og mömmur sem töldu víst aö hœgt yröi aö ganga aö þessari sívinsœlu barna- bók í verslunum rétt fyrir jólin reikn- uöu skakkt. Pöllýanna var komin — og farin. Það urðu margir vonsviknir. Eng- in Pollýanna í jólapakkanum. Sumir höfðu lesið bókina sem mamma átti þegar hún var lítil. Aðrir meira að segja bókina sem amma átti þegar hún var lítil. En flestar litlar stelpur vildu eignast sitt eigið eintak af Pollýönnu. Bók, sem hægt væri að lesa aftur og aftur og gefa síðan eig- in börnum eftir tuttugu ár eða svo. Enda Pollýanna alltaf í takt við tím- ann. Sagan af stelpunni sem bjó sér til leik til að sætta sig við lífið og þess mörgu myndir. Sagan af því hvernig leikurinn verður allt í einu óviðráðanlegur þegar eigin erfið- leikar blasa við. Leikurinn sem margir hafa reynt að leika eftir að hafa kynnst Pollýönnu. SÁLFRÆÐILEGA RÉTT SAGA Pollýanna var gefin út núna af Máli og menningu, MM ung. Þar er í forsvari Silja Aöalsteinsdóttir og spurningunni hvers vegna hún teldi Pollýönnu seljast svo vel svaraði hún: „Pollýanna er mjög skemmtileg og vel skrifuð bók. Hún er innlifuð saga um barn, sem verður einhvern veginn sprelllifandi í bókinni. En þrátt fyrir það hve Pollýanna er góð, þá er hún ekki aðeins sannur kar- akter, heldur einnig marghliða. Höf- undurinn vinnur nefnilega svo markvisst gegn væmninni í lokin því þegar Pollýanna er búin að leika leikinn sinn og heilla alla upp úr skónum, lækna fýlu og annað, verð- ur hún sjálf fyrir slysi og lamast í fót- unum. Þá getur hún ekki leikið leik- inn lengur. Þegar kemur að henni sjálfri þá reynist hún bara vera manneskja, sem bregst þegar mest á reynir, enda er Pollýanna bara barn. Höfundinum er fyllilega Ijóst að hún er með barn í höndunum sem hlýtur auðvitað að vera barn áfram og það er ekki fyrr en Pollý- anna sér fram á bata sinn að hún tekur gleði sína aftur. í rauninni er þetta sálfræðilega rétt saga fyrir utan það hvað hún er skemmtilega skrifuð og persónurnar lifandi. Poll- ýanna er snilldarverk, sem hefur allt til að bera." FRAMHALDSBÓKIN UM POLLÝÖNNU MISTÓKST Hvaö geturöu sagt okkur um höf- undinn? „Eleanor H. Porter fæddist í Bandaríkjunum árið 1868 og var mjög afkastamikill rithöfundur í heimalandi sínu. Hún hafði skrifað mikið áður en Pollýanna kom út, ár- ið 1913, og skrifaði einnig mikið eft- ir það, en Pollýanna er eina bók hennar sem hefur haldið nafni hennar á lofti. Eleanor H. Porter skrifaði mikið af barnabókum, sem og ástarsögum og sögum fyrir tíma- rit, og var allgóður afþreyingarhöf- undur og vinsæl sem slíkur. Samt er það eingöngu Pollýanna sem hefur haldið nafni hennar lifandi og veld- ur því til dæmis að nafn Porters er enn í bandarískum bókmenntasög- um og uppflettiritum, sem senni- lega væri ekki án Pollýönnu. Porter reyndi síðan að endurtaka leikinn með framhaldssögu um Pollýönnu, „Pollýanna giftist”, en mistókst. Eg held að höfundur hafi verið að skrifa býsna nálægt sjálfri sér þegar hún skrifaði Pollýönnu. Pollýanna er dóttir fátæks prests, trúboða, og alin upp á fátækri trúboðsstöð. Höf- undur var líka alin upp við mikla fá- tækt og mikinn kristindóm. Mér finnst Pollýanna vera lifandi barn og það gerir bókina svona góða. Án þess ég viti það með vissu sýnist mér allt benda til þess að höfundur hafi verið að skrifa bók sem byggði á æsku hennar sjálfrar. Mér sýnist allt benda til þess eftir þeim upplýs- ingum sem ég hef orðið mér úti um um höfundinn. Það er nú þannig með allar bestu barnabækur heims- ins, að þær eru annaðhvort byggðar upp á bernsku höfundar eða skrif- aðar fyrir ákveðið barn og þá jafn- framt það barn. Lísa í Undralandi er til dæmis saga sem sögð var lítilli stúlku og varð til fyrir lifandi sam- skipti höfundar og barns. Þegar bók er hins vegar skrifuð eftir pöntun og eftir kröfum markaðarins, eins og „Pollýanna giftist”, þá dugar formúl- an ekki lengur. Galdrarnir eru búnir og Pollýanna lifnaði ekki við aftur. Seinni bókin um Pollýönnu náði aldrei sömu vinsældum og sú fyrri, enda gerist hún á mjög löngum tíma og aðrar persónur eru miklu frekari til plássins á síðum bókarinnar en Pollýanna sjálf. Margt fólk hefur spurt mig hvort ég ætli ekki að gefa síðari bókina út líka, en ég tel mig alls ekki skylduga til þess enda finnst mér sú bók slæm og greini- lega skrifuð eftir pöntun." LEIKURINN GENGUR í ÖLLUM VENJULEGUM NAUÐUM Er eitthvaö í Pollýönnu sem allir vilja finna hjá sjálfum sér? „Pollýanna gerir manni mjög glatt í geði vegna þess að hún er svo bjartsýn. í því sambandi dettur mér í hug þáttur sem sýndur var í sjón- varpinu um jólin, þar sem endurtek- ið var viðtal við Vigdísi Finnboga- dóttur forseta frá því 1980. Þar vitn- ar hún til þess að maður verði að vera bjartsýnn til að setja þennan heim í hendur afkomendanna og bókin um Pollýönnu er einmitt í þessum anda, —- hún reynir alltaf að byggja upp. Hins vegar sýnir hún líka hvað það getur verið erfitt að vera bjartsýnn þegar menn eiga virkilega bágt. Leikurinn hennar Pollýönnu gengur í öllum venjuleg- um nauðum manns — að reyna að sjá það besta út úr hlutunum." LITLAR STELPUR ÞEKKJA POLLÝÖNNU AF MYNDBANDI Helduröu aö þaö hafi eingöngu veriö mömmur og ömmur sem keyptu bókina, þœr sem þekkja Pollýönnu og vilja láta sín börn lesa hana? „Nei, það held ég ekki. Eg fylgdist með því að sjö ára stelpur keyptu Pollýönnu til að gefa vinkonum sín- um í jólagjöf. Það spilar sjálfsagt inn í að bókin var ódýr og að auki var þessi útgáfa falleg. Svo má ekki gleyma því að Pollýanna hefur verið kvikmynduð tvisvar og myndin með Hailey Mills í aðalhlutverki gengur hér á myndbandaleigunum og margar litlar stelpur hafa séð hana og vita þess vegna hver Pollý- anna er, þótt bókin hafi ekki komið út á íslandi í rúm tuttugu ár. En auð- vitað voru margar mömmur og ömmur sem keyptu bókina. Endan- lega þýddi þó ekkert af þessu neitt ef bókin stæði ekki fyrir sínu, en það gerir hún. Eg las margar bækur í sumar til að taka ákvörðun um hver af klassísku bókunum yrði endurútgefin hjá MM-Ung, en féll alveg fyrir Pollýönnu. Mér fannst yndislegt að lesa hana aftur, bæði grét og hló yfir henni og jafnvel þótt ég sé orðin hundkrítísk og hundleið- inleg sem lesandi, þá fannst mér bókin ábyggilega jafngóð núna og mér fannst hún þegar ég las útgáf- una frá 1945, sem var ein af fyrstu stóru bókunum sem ég las." 16 HELGARPÓSTURINN lEFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR TEIKNING: JÓN ÓSKARl

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.