Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 18

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 18
EFTIR SIGMUND ERNI RÚNARSSON MYND: JIM SMART Ólafur S. Björnsson byggingameistari og eigandi steypuverksmidjunnar Óss í HP-vidtali Ég Kann ekki að beygja mig Kannski ekki beint stressaður. En ör. Hann staldrar stutt vid á hverjum staö, og þó hann eigi stórt fyrirtœki og eigi aö heita for- stjóri þess kemur manni til hugar þegar maöur fylgist meö hon- um í návígi aö honum líöi hvergi verr en einmitt handan skrif- borösins á skrifstofunni sinni. Þaö er reyndar lítiö, mjög lítiö, óforstjóralegt. Og þaö glittir ekki í bindisnœlu. Ólafur S. Björns- son byggingameistari situr fyrir framan mig ígrófum vinnufötum og angar afsementi. Já angar er rétta oröiö, afþví honum finnst góö lykt af þessu efni sem er aö gera hann aö einum stœrsta iön- rekanda í landinu. VANUR AÐ TAKA MIKIÐ UPP í MIG „Barbarismi," segir hann seinna um „brans- ann“ í þessu samtaii okkar í Suðurhrauni í Garðabae, þar sem Steypuuerksmidjart Ós hefur verið að færa út kvíarnar nokkur síðustu ár — og hefur reyndar tekið slíkan vaxtarkipp hin síð- ari misserin að beygur er kominn í önnur firmu í greininni, þessi tvö norður á Höfða sem margir ætluðu fyrir örfáum árum að enginn gæti stugg- að við. Steypusala Óss óx um 72 prósent á ný- liðnu ári og Ólafur fullyrðir að hann verði orð- inn stærstur innan fárra ára, stærstur í steyp- unni. Hann segist vanur að taka mikið upp í sig, kveðst hafa vanið sig á það ungur að árum. Það ögri manni svo asskoti vel. Og hann segist þurfa ögrana við, en meira um það síðar. Ós stendur fyrir Ólaf S„ enda á sá sami fyrirtækið eins og það leggur sig. Hann byrjaði með það fyrir sextán árum, ekki löngu eftir að hann hafði reist sér og konu sinni einbýlishús, þá 21 árs gamall. Segir sitt — um það sem síðar átti eftir að koma á daginn. Hann stendur nú á fertugu og iðar í skinninu eftir næstu sigrum, næstu verkefnum sem færa honum frekari landvinninga. Hann hóf steypusöluna fyrir þremur árum, byggði hús og seldi þar áður, en sá þá fljótlega, að það væri miklu hagkvæmara að hræra sjálfur steypuna ofan í mótin. Hann rifjar upp orð Sverris Her- mannssonar, þáverandi iðnaðarráðherra, þegar steypuverksmiðjan var vígð. Sverrir hafði kom- ið við á staðnum daginn fyrir vígslu og spurt svona upp úr eins manns hljóði hvort Ólafur teldi sig græða eitthvað á þessu. Og ráðherrann svaraði sjálfur spurningunni um hæl „því ef þú græðir ekkert á þessu, þá nenni ég ekkert að koma hérna á rnorgun". Þessum ummælum ætl- ar Ólafur alltaf að muna eftir. SPARKAÐ ÚT ÚR BANKA! Kannski örlögin hátti því svo þannig að Sverr- ir láni Ólafi peninga til ávöxtunar á næstu árum, hugsanlegur bankastjóri í viðskiptabanka Óss. „Fyrirtækið var reyndar tii að byrja með í við- skiptum við „nútímabankann Iðnaðar" eins og ég kalla hann,“ segir Ólafur mér og bætir við: „En mér var svo hreinlega sparkað eftir að ég fór út í steypusöluna og styggði þannig þær tvær steypustöðvar sem fyrir voru, sem margir virtust vera sammála um að ætti að vera óum- breytanlegur fjöldi steypuframleiðenda í þessu landi. Iðnaðarbankinn hafði hjálpað mér dug- lega allt þangað til, en þarna fannst mönnum ég sennilega hafa seilst helsti of langt,“ segir Ólafur og bendir á að forstjóri BM Vallár er formaður Félags íslenskra iðnrekenda sem á 40 prósent í Iðnaðarbankanum og Sveinn Valfells, forstjóri Steypustöðvarinnar, er stjórnarmaður í sama banka. „En þetta er bara hjóm eitt í dag,“ segir hann, „bransinn er svona og ekkert við því að gera. En óneitanlega hefur það oft hvarflað að mér eftir þetta að það hafi átt að hleypa mér af stað, enda ekki um neinar smáfjárfestingar að ræða, en síðan hafi einhver hreinlega átt að kaupa mig.“ Hann lemur hraustlega í borðið eftir að ég spyr hvort hann telji sig vera nógu sterkan til að standa í þessum slag: „Nú fyrst er lag. Nú fyrst er ég kominn niður í sökkulinn til að geta farið að gera eitthvað." Hann þýtur upp úr stólnum sínum á skrifstofunni eins og fjöður og kveðst ólmur vilja sýna mér nýju álmuna í fyrirtæki sínu sem á að framleiða steypta einingaveggi. Þetta reynist heljargámur og þarna er Ölafur á heimavelli. Hann kastar kveðju á vinnumenn sína sem eru að leggja langa járnbrautarteina um þvert og endilangt gólfið sem einingarnar fara að renna eftir seinnipartinn í febrúar. Ég sýni efasvip um að það hafist. Hann glottir bara, „það hefst, sjáðu þessa stráka hérna hjá mér. Ég þoli ekki letingja. Ég er sjálfur öfgamaður til vinnu og ætlast til þess sama af þeim sem vinna undir minni stjórn. Enda eru þetta úrvalsstrákar hérna. Toppfólk". ALGJÖRLEGA HOBBYLAUS — Huadan fœrdu orkuna? „Þetta er mér bara eiginlegt. Ég hef aldrei get- að verið kjur, hvorki í huganum né líkamanum. Strax og ég var í læri fóru allir kaffitímarnir hjá mér í að hugsa út leiðir til að vinna verkin betur og hraðar en áður og ég hef sjálfsagt af mörgum vinnufélaganum þótt uppáþrengjandi og yfir- þyrmandi leiðinlegur að ræna þá svona andlegri hvíld yfir kaffinu. En ég hef bara svo gaman af þessu." — Kemst ekkert annad að en uinna? „Ég er alltaf að, algjörlega hobbýlaus, og er alltaf með hugann við þetta. Ég reyndi einu sinni, og sýndi mikla viðleitni í þá átt að fá mér eitthvert hobbý, þegar ég sótti nokkra siglinga- tíma. En þegar ég komst að því eftir fáeinar sjó- ferðir að ég hafði aldrei fest hugann við leið- beiningar kennarans, heldur verið að útfæra byggingar í þess stað þarna úti á Ballarhafi, sá ég að þetta var vonlaust." — Viðurkenndur öfgamaður til uinnu? „Já, ætli það ekki, finnst þér það svakalegt?" — Nei, en getur þetta ekki kostað einhœfni i lífinu, fullþröngan stíg að fara eftir? „Tja... það er kannski að fjölskyldan sé ekki ánægð með þetta, ég veit ekki. Það er bara þessi ákafi, þetta mikla energí sem maður verður ein- hvern veginn að fá útrás fyrir. Ég hugsa að í mínu tilviki væri það bara eitthvað annað ef það væri ekki steypa og byggingar. Líttu á marga athafnamenn, það er svo stutt í það að menn geti verið athafnamenn og drykkjumenn, drykkjumenn og glæpamenn, því það er þessi ákafi, þessar öfgar, sem menn eru að fá útrás fyr- ir. Þetta er fast í huganum á mönnum, einhver kraftur — eða ókraftur." — Og þú lœtur þér athafnirnar nœgja? „Og held mínu striki." ALDREI AÐ VINNA HJÁ ÖÐRUM Hann segir þessu næst að það hafi alla tíð frá barnæsku verið klárlega ljóst hvað hann ætlaði sér. Það var að rífa sig áfram „og aldrei að vinna hjá öðrum“ eins og hann rifjar upp að hafa sagt við bóndakonuna í Biskupstungum þar sem hann var í sveit á tóifta ári. Sumarið áður hafði hann selt fyrsta húsið sitt, dúfnakofa, í hendur vini sínum fyrir morðfjár. Þetta voru athafnaár þá sem nú hjá verkamannssyninum sem þekkti eignaleysið og baslið af eigin raun. „Ég þakka mínum sæla fyrir að vita hvað það þýðir raun- verulega að vera blankur, því ella hefði ég aldrei komist að því hvað er að eiga peninga eftir að aurarnir fóru að koma inn.“ — Ólafur, mér sýnist suolítið afþessu öllu sem að framan er sagt að þú hafir farið með bœgsla- gangi. Og œtlir heldur að gefa í frekar en hopa af pinnanum. Huers uegna ekki bara að slappa af úr þuí sem komið er? „Það hafa margir spurt mig einmitt að þessu. Hvers vegna ég hætti ekki þessum helvítis hamagangi, staldri að minnsta kosti við og gefi mér tíma til að iíta yfir farinn veg. En þá erum við bara aftur komnir að því sama og við vorum að ræða áðan; ég ætlaði mér að rífa mig upp, ætlaði að gera betur en aðrir..." — Erþetta þá ekki bara minnimáttarkennd úr fáteekt föðurhúsa? „Neinei, ég er bara þessi keppnismaður, gífur- legur keppnismaður, eiginlega allt frá því ég var smábarn. Ég sætti mig hreinlega ekki við það að vera jafn öðrum. Og er ófeiminn við að láta það í ljós, ég hef tekið gífurlega mikið upp í mig í samtölum við fólk. Eg sagði til dæmis hérna við opnuna í steypuverksmiðjunni þar sem voru 800 manns að 75 prósent þeirra hefðu þangað til alltaf sagt að þetta tækist aldrei hjá mér en 25 prósent hefðu fullyrt hitt og svo hefðu hlutföllin nú allt í einu snúist þannig við að 75 prósent segðust alltaf hafa vitað að ég gæti þetta og af- gangurinn ekki. Þetta er nú bara svona dágóð lýsing á okkar þjóðfélagi — móralnum." KLÁRASTUR MILLI FJÖGUR OG FIMM — Finnst þér gott að ögra sjálfum þér? „Ég lifi beinlínis á því, það er mín aðferð til að komast af. Ég hef aldrei í lífinu fundið fyrir því að ég væri að gefast upp. Ég kann ekki að beygja mig. Og vil ekki hjálp." — Huenœr uaknarðu á morgnana? „Svona fimm. Stundum fjögur, því mínar bestu stundir eru milli fjögur og sjö. Þá er ég klárastur. Mér finnst fínt að sofa svona þrjá og hálfan tíma úr sólarhringnum." — Ertu einfari? „Ja, einfari að því leyti að ég bið aldrei neinn

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.