Helgarpósturinn - 07.01.1988, Side 40

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Side 40
saga gengið fjöllunum hærra, að Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri sé á förum frá stofnuninni. Þeir sem gerst þekkja til segja að ákveðið hafi verið að Ingvi Hrafn ætlaði að hætta 1. febrúar eða í mars. Áður en þessi saga fór í gang hafði Ingvi Hrafn sjálfur oft látið í veðri vaka að hann ætlaði að hætta. Hins vegar hefur hann neitað þessu alfarið eftir að nýja sagan fór að berast um stofnun- ina. Sömu sögu fylgdi sú staðhæf- ing, að Markús Orn Antonsson útvarpsstjóri væri að hugleiða hverjir kæmu til greina til þess að taka við fréttastjórastarfinu. Mörg nöfn munu hafa verið nefnd, en hæst ber tvö þeirra: Sigrúnar Stef- ánsdóttur, sem fyrirhugað var að byrjaði aftur á fréttastofu sjónvarps- ins 1. janúar, og svo Boga Ágústs- sonar, sem nú starfar hjá Flugleið- um. Sem stendur ríkir mikil óvissa um þessi mál og gruna sumir út- varpsstjóra um, að hann sé að „plottá', þótt menn eigi erfitt með að átta sig á því nákvæmlega hvað vakir fyrir honum. Hvorki Helgi H. Jónsson né Guðni Bragason eru taldir líklegir í fréttastjórastarfið. . . JUS H W Henn hafa lengi undrast það að ekki skuli hafa verið skipað- ur eftirmaður Stefáns Gunnars- sonar í Alþýðubankanum, en hann var sem kunnugt er settur af, án skýringa, eftir að Ásmundur Stefánsson tók völd í bankaráði Alþýðubankans. Nú herma heimild- ir HP að búið sé að ganga frá ráðn- ingu annars bankastjóra. Sá mun vera Björn Björnsson, fyrrverandi hagfræðingur Alþýðusambandsins og núverandi aðstoðarmaður fjár- málaráðherra. Þykir þetta skondin ákvörðun, en eins og menn muna var Ásmundur Stefánsson einn þeirra sem höfðu hug á því að sam- eina Alþýðubankann öðrum banka og mun Björn Björnsson hafa verið sama sinnis. En skjótt skipast veður í lofti og nú stendur sem sagt til að Björn taki við bankanum, sennilega saddur lífdaga eftir veruna í fjár- málaráðuneytinu. . . D H^P ifreiðafríðindi hafa iðulega verið notuð til þess að hífa opinbera starfsmenn upp í launum. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, fékk slíka uppbót á laun sín nú stuttu fyrir áramótin. Þá sam- þykktu Sigurgeir Jónsson, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu, og Jóhannes Nordal Seðla- bankastjóri ósk Þórðar um kaup á Toyota Landcruiser. Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra ók um á bíl Þjóðhagsstofnunar meðan hann gegndi þar forstjórastörfum. Sá bíll var af gerðinni Citroén og er hann nú til sölu. Áætlað er að fyrir hann fáist um hálf milljón króna. Nýi bíll- inn hans Þórðar kostar hins vegar um tvær milljónir króna. Það er dá- lítið sérkennilegt að samþykki skuli hafa fengist fyrir þessum bifreiða- kaupum þar sem Þjóðhagsstofnun fór umtalsvert fram úr fjárhagsáætl- un á síðasta ári og í þeirri áætlun var engin heimild fyrir þessum bíl. Það er hins vegar kannski ekki skrýtið þó stofnunin fari fram úr áætlun. Ríkisstjórnin hefur verið iðin við að senda þjóðhagsspár aftur í höfuðið á nýja forstjóranum ef henni hefur ekki líkað við niðurstöður hennar. Slíkt þýðir að sjálfsögðu aukinn kostnað við reksturinn . . . odidas xx-.fi, <1 adidas SNYRTIVORUR SPORTMANNSINS Fást í helstu snyrtivöruverslunum

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.