Morgunblaðið - 26.11.1970, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.11.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FBÆMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1970 5 Björn Guðmundsson, útgm.; Þið eruð komn- ir í fiskibæ — EFTIRFABANDI ávarp var flutt við setningu landsfundar LÍÚ í Vestmannaeyjum: GÓÐIR landsfundarfulltrúar og gestir. Þessi landsfundur eða aðal- fumdur Landssambands ísl. út- vegsmanna er 31. aðalfundarsam koma innan samtakanna, og sú fyrsta að því er ég bezt veit, sem baldin er utan höfuðborgarinn- ar. Hér er því brotið blað. Þrjá- tíu aðalfundir samtakanna hafa verið haldnir í Reykjavík. Sá 31. er að hetfjast hér í Vestmanna- eyjum. Af þessu tilefni hefur okkur útvegsmönnum hér í Eyjum, sem buðum Landssambandinu til að- alfundarsetu hér, þótt tilhlýða að ávarpa gesti okkar nokkrum orðum í upphafi fundar, og þá fyrst og fremst bjóða ykkur hjartanlega velkomna. Megi fund arsetan verða ykkur til ánægju °g gagns, og dvölin hér þessa fáu daga til fróðleiks og gleði. Þessar óskir eru bornar fram af einlægum hug af því að við vit um, að þið hafið lagt nokkuð á ykkur til þess að sækja okkur heim, sýnið okkur virðingu og velvild um leið og þið afsalið ykkur nokkru af þeim þægind- um, er fundarseta á höfuðborgar ovæðinu hefur upp á að bjóða. Hins vegar vonum við, að nokk uð vegi upp á mótd, að þið eruð komnir í fiskibæ, sem um margt er sérstæður, bæði að náttúru og sögu. Náttúrufegurð Eyjanna ætla ég ekki að lýsa, þar er sjón sögú ríkari. En það er von mín, að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og Eyjarnar skarti sínu fegursta fyrir gesti okkar, og að vindmælirinn á Stórhöfða snúist ögn hægara þessa dagana, sem þið dveljið hér, heldur en hann gerir stundum á nóvemberdög- um. Hins vegar langaði mig til þess að víkja í fáum orðum að sög- unni, og þá einkum að einum þætti hennar, það er útgerðar- sögu Eyjanna. í því efni ætla ég að stikla á stóru, annars yrði of langt mál, því af miklu og mörgu er að taka. Rétt er þess að geta, að ekki flyt ég Eyjabú- um, er hér eru staddir í dag nokkurn nýjan fróðleik. En við höfum hér góða gesti, sem komn ir eru vel flestir um langan veg í þeim tilgangi að fjalla um mál- etfni útgerðarinnar. Þá þótti mér vel hlýða, að rekja nokkuð þætti hennar í sögu þessa byggðar- lags. Fram yfir aldamótin var sótt á sjóinn héðan úr Eyjum á svip aðan hátt og venja var um allt land, á opnum róðrarskipum. — 16 áraskipa rreu héðan á vetr- arvertíð árið 1900, en með 20. öldinni hetfst einnig öld vélbát- anna. Þá verða aldahvörf og framfaraskeið útgerðar og Eyj- anna hefst, sem staðið hefur nær óslitið síðan. Árið 1905 koma fyrstu vélbát- arnir til Eyja, og voru fyrst gerð ir út á vertíð 1906, þá aðeins tveir að tölu. Ekki þættu þetta merkileg skip í dag, en mönnum hló hugur í brjósti, striti árabarn ingsins lauk, og þá hófst hæg en markviss þróun vélbátaútvegs- ins, og þar með byggðarlagsins. Ekki var hægt um vik að taka stór stökk fyrstu árin, því eng ir voru hafnargarðarnir, engar bryggjur, fiskurinn seilaður um borð í bátnum og dreginn að landi eða fluttur í land á smá kænum. En stór voru stökkin þó þvi að 1912 voru vélbátarnir orðn ir 58, en vel að merkja smáir. Hafnleysið hafði þar sitt að segja. En svo var hafizt handa um gerð hafnargarðamna 1914. Það mannvirki var Eyjabúum erf itt í skauti, en olli þáttaskilum. Björn Guðmundsson Vélbátunum fjölgaði, þeir stækk uðu, og þegar aldarfjórðungur er liðinn af vélbátaöldinni, eða Al- þingiishátíðarárið 1930 eru þeir orðnir nær 100, sá stærsti þá tæpar 40 lestir. Heimskreppan 1930 gerði strik í reikninginn. En þróunin heldur þó áfram, bátarnir stækka. Árið 1954 eru hér skráðir um 70 bát- ar, sá stærsti 85 rúmlestir. Þá fær um við okkur fram til dagsins í dag. Á sl. vertíð voru gerðir hér út tæplega 80 bátar, sá stærsti 264 lestir. Þegar maður lítur yfir þessa sögu, þá er rétt að við vitum af því, sökum þess að á fundum sem þessum er nú mjög gjarnan tal- að um útgerðarkostnað, og er gaman til fróðleiks, að geta þess, að árið 1908 er áætlaður útgerð arkostnaður vélbáts 8.185,00 kr. Helztu liðirnir eru salt 600,00 kr. veiðarfæri 500,00 kr., beita 750.00 ki\, steinolía 840,00 kr. og kaup 2.000,00 krónur. Svo sem að líkum lætur hafa aflabrögð verið misjöfn frá ári til árs. T.d. kom ein milljón fiska á land hér árið 1911, og dags- afli á netavertíð hefur komizt upp í 2.000 smálestir á dag. f ár eða til 15. september sl., er afl- inn orðinn tæpar 49 000 smálest ir, 38.400 smálestir veidduist hér á vetrarvertíð og 10.600 smálest ir hafa veiðzt hér á sumiarvertíð eða fram til 15. september. Að auki hafa borizt hér á land á sl. vertíð 74.000 smálestir atf loðnu en af því magni öfluðu Eyjabúar 19.000 smálesta. Árið 1954 var útflutningsverð- mæti framleiðslunnar hér í Eyj um um 100 millj. króna eða þá um tæp 12% af heildarútflutn- ingsverðmæti þjóðarinnar. Þetta hlutfall hefur haldizt nokkuð síð an. í fyrra var það um einn millj arður króna og í ár er talið að það geti orðið um 1300 milljónir króna, 1,3 milljarðar, einhvers staðar um 12—15% af útflutnings verðmæti landsmanna. Þetta er þó nokkur skerfur, þegar það er haft í huga, að hér búa liðlega 2% af þjóðinni. Þessi mikla verðmætasköpun hefði ekki getað orðið, nema miklar breytingar hefðu orðið á í framleiðisluháttum. Það hefur líka verið lagzt vel á árina. Næg ir þar að bendá á hin stóru fisk iðjuver, sem hér eru, þau stærstu á landinu, og eru þau vissulega éinn atf hymingarsteinum út- gerðarinmair hér. Á svona löngu tímabili í útgerðarsögunmi, eða síðan um aldamót, hafa orðið hér í Eyjum miklar breytingar á út- búnaði skipa og veiðarfæra, sum ar valdið stórbreytinguim, Árið 1897 er fyrst lögð lína í sjó, en árið 1901 er samþykfct fiskveiði samþykkt „Reglur á hafinu". — Árið 1916 er byrjað fyrir alvöru að veiða í þorskanet, þótt tilraun ir hefðu verið gerðar áður. Árið 1921 er byrjað með dragnót, raf lýsing og talstöðvar korna hér í báta á árunum 1927 til ársins 1930. Árið 1954 er byrjað hér á humarveiðum og 1952 er fyrst veiddur þorskur í nót af Eyja- báti á vetrarvertíð. Hér eru nokk ur dæmi nefnd, og stiklað á stóru. Þá er rétt að minnast á félags- mál útgerðariinnar. Þau hafa jafn an verið góð, og sum tímabil með miklium ágætum. Má í því sam- bandi minna á Bátaábyrgðiarfélag Vestrmanmaeyja, stofnað 1862, lið lega aldargamalt, en það hetfur verið sverð og skjöldur útgerðar hér í Eyjum, stendiur nú hagur þess með miklum blóma. Björg- unarfélag Vestmannaeyja var stofnað til að hamla á móti hin um miklu mannfórnum, er Eyja búar hafa orðið að færa í glím- unni við Ægi, en hápunktur þeirrar starfsemi var, er gamli Þór kom hingað árið 1920, og hann er í rauninni grundvöUur að landhelgisgæzlu íslendinga. Kaupin á Þór voru einstakt afrek fyrir svo lítið byggðarlag. Þá hafa útgerðarmenn stofnað ýmis félög til hagsbóta útgerð, svo sem netagerð, samlag um lifr arvinnslu, olíusamlag, samlag um flutninga á ísfiski á erlendan markað, og ekki sakar að minn- ast á Útvegsbændafélagið, sem í dag er rúmlega 50 ára gamalt, því það er stofnað 20. október 1920. Það er komið að lokaorðum mínum, en áður en ég lýk máli mínu, vildi ég mega biðja þeœs, að fundur þessi verði útgerðar mönnum og útgerð allri til heiUa og veltfarnaðar. Við hér í Eyjum eigum aUt undir útgerð og útgerðarmálum. Leysist þau mál vel og útgerð blómgiist, þá er okkar hag borg- ið. Hugsandi menn og velviljaðir vita, að það sem er gott fyrir út gerðina er gott fyrir þjóðina. Frá heimilum og fólki hér í bæ vil ég mega segja, að til ykkar streyma góðar óskir um, að þessi fundur vel takist. Verið hjartanlega velkomnir. Atvinnuffugmenn Aðalfundur FIA 1970 verður haldinn að Háaleitisbraut 68 fimmtudaginn 26. nóv. kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf. — önnur mál. STJÓRNIN. H afnarfjörður Stúlka ekki yngri en 18 ára óskast nú þegar til starfa allan daginn á skrifstofu í Hafnarfirði. Upplýsingar um menntun og tyrri störf sendist i pósthólf 67 Hafnarfirði. Þurrkað TEAK Þurrkuð EIK Þurrkað OREGON PINE Vandvirkir smiðir nota eingöngu bezta efni. TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDURHF KLAPPARSTÍG 1 - SKEIFAN 19 Auglýsing Samkvæmt ósk Húseigendasambands ís- lands, Félags löggiltra endurskoðenda og fleiri aðila, hefir ráðuneytið ákveðið, að kærufrestur til fasteignamatsnefnda í Reykjavík, kaupstöðum og sýslum, vegna nýja fasteignamatsins, framlengist til 20. desember 1970. Athygli er vakin á því, að framlagning á fasteignamatsskrám á áður auglýstum stöð- um rann út 21. þ.m. Á tímabilinu til 20. desember verða upplýs- ingar um matið aðeins fáanlegar hjá fast- eignamatsnef ndum. Fjármálaráðuneytið, 25. nóv. 1970. Mamma skilur mig ekki Samt er hún bezta mamma í heimi. En minnist ég á ís, segir hún: „Ekkert ís- kvabb, drengur, þú fserð ís á sunnudag- inn.“ Persónulega held ég, að hún geri ekki greinarmun á rjómaís og sælgæti, bara af því að ís er svo góður á bragð- ið. Samt er fullt af vítamínum, eggja- hvítuefnum og svoleiðis í ísnum. Ef ég gæti galdrað, þá mundi ég galdra, að það væri sunnudagur á hverjum degi. mm ^ ess íspinnarog ístoppar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.