Morgunblaðið - 08.01.1974, Side 28
tt. JMmrgnn&Iatiiti
A^mnRCFniDnR
7| mRRRRfl VORR
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1974
Offsetprentun
tímaritaprentun
litprentun
FreyjugStu 14 Sími 17667
Á laugardag var opnuð sýning á myndlist tékkneskra barna í Bogasalnum, og
eins og sjá má vöktu myndirnar verðskuldaða athygli hjá yngstu kynslóðinni.
Heildaraftinn jókst
um 165 þús. lestir
Þorskaflinn minnkaði um 5 þús. lestir
FISKIFÉLAG tslands hefur sent
frá sér bráSabirgöatölur um afla
Islendinga á árinu 1ÍI73. Kemur
þar fram, að heildarafli lands-
manna á sl. ári var samtals 894
þúsund lestir af óslægðum fiski, á
móti 729,2 þúsund lestum árið
1972.
Hlutur þorskaflans i heildar-
aflanum nú reyndist samtals 380
þúsund tonn — 285 þús. lestir af
bátaafla og 95 þúsund lestir af
togaraafla. Er þetta röskum 5
Ræddu enn
fiskverð
þúsurid tonnum minni þorskafli
helduren árið 1972.
Loðnuaflinn sl. ár var samtals
437 þúsund lestir eða um 160
þúsund lestum meiri en árið 1972,
sildaraflinn var 45 þúsund lestir
eða um 3500 lestum meiri en
1972, rækjuaflinn 7 þúsund lestir
eða 1700 lestum meiri en árið á
undan, humaraflinn 3 þúsund
lestir eða um 1300 lestum minni
en 1972, hörpudiskaflinn var 3500
lestir eða 3800 lestum minni en
árið á undan og loks var hrogn-
kelsaaflinn 4500 lestir eða 1200
lestum meiri en árið 1972.
Fyllri upplýsingar um afla-
brögð landsmanna á sl. ári má
lesa í viðtali við Má Elísson, fiski-
málastjóra, sem birt er í blaðinu i
dag.
Frestun tollalækkana hjá EBE:
Nær 1/2 milljónar kr.
tap í meðalsöluferð
FYRSTI stýrimaður á togara, sem
fer í söluferð til Þýzkalands, tap-
ar allmikilli fjárhæð vegna þess,
að ekki hefur enn samizt við
Vestur-Þjóðverja í landhelgis-
málinu. Astæður þess eru, að
tollalækkanir í löndum Efnahags-
bandalagsins, sem samið hafði
verið um að kæmu til fram-
kvæmda 1. janúar 1974, hafa ekki
gert það, þar sem Efnahagsbanda-
lagið setti fyrirvara á gildistöku
þeirra um samkomulag í
landhelgismálinu. Ef samkomu-
lag hefði náðst og tollalækkanir
komið til framkvæmda, hefði toll-
ur á ísfiski la-kkað 1. janúar úr
15% í 9%. Fyrsti stýrimaður á
togara tapar vegna þess arna um
10 þúsund krónum í meðalsölu-
ferð og háseti á togaranum tapar
um 4.500 krónum.
Samkvæmt sérsamningi íslands
við Efnahagsbandalag Evrópu átti
tollur á ísfiski á markaði i Þýzka-
landi og Belgíu að lækka úr 15 í
9%, en þessi markaður er einhver
mikilvægasti ísfiskmarkaður Is-
lendinga. í Bretlandi átti tollur á
ísfiski að lækka úr 10 í 7%. Karfa-
tollur i Þýzkalandi og Belgíu áttí
einnig að lækka úr 8 í 5% og í
Bretlandi úr 10 í 6% I gömlu Efna
hagsbandalagslöndunum 6 átti
og tollur á ireðii.s i að lickkd úv
15 í 9% og frysi rækja úr 20'Vi i
Varnamála-
viðræðurnar um
mánaðamótin
Nli hefur verið ákveðið, að við-
ræðurnar miili Islands og Banda-
rikjanna um endurskoðun varnar-
samningsins muni fara fram í
Reykjavík eða Washíngton um
mánaðamótin janúar-febrúar
næstkomandi. Endanlegur
fundartími verður ákveðinn
síðar, segir í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu. úpphaf-
lega var ráðgert, að viðræðurnar
hæfust um miðjan þennan
mánuð.
12%. Hið alvarlega við rækjutoli-
inn var þó, að í tveimur mikilvæg-
um viðskiptalöndum islendinga,
Danmörku og Bretlandi, var
rækja tollfrjáls, en nú hefur
komið á hana þar 12% tollur. Á
ísfiski verður þar einnig 12% toll-
ur.
Meðalgóð söluferð togara til
Vestur-Þýzkalands hefur gefið
söluverðmæti að upphæð 8
milljónir króna. Lækkun tolla þar
átti að verða 6 prósentustig á ís-
fiski og tapa því sjómennirnir og
útgerðin til samans um 480
þúsund krónum í hverri einustu
söluferð. Skipshöfnin fær af því
um það bil 144 þúsund krónur og
er það þvi tap hennar. Útgerðin
tapar 336 þúsund krónum. Hjá
venjulegum háseta á togara getur
tapið numið um 4.500 krónum
með orlofi og lífeyrissjóðsfram-
lagi, en hjá fyrsta stýrimanni get-
ur það numið um 10 þúsund krón-
um.
Eins og af þessu sést, tapa ís-
lendingar miklum fjármunum,
vegna þess að ekki semst við Þjóð-
verja í landhelgismálinu. Einar
Agústsson utanríkisráðherra tjáði
Mbl. i gær, að ekki hefði enn
verið ákveðið neitt um það,
hvenær framhaldsviðræður verða
vegna deilunnar, en samningavið-
ræðum var frestað í nóvember
síðastliðnum um óákveðinn tima,
en á meðan áttu sérfræðingar að
fjalla um sérstök atriði samning-
anna. Þá hefur og verið gerður
sérstakur samningur um fisksöl-
ur islendinga til Þýzkalands inn-
an ramma væntanlegs samkomu-
lags í landhelgisdeilunni, sem að
sjálfsögðu kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en málið er leyst i
hei'H
YFIRNEFND verðlagsráðs
sjávarútvegsins sat á fundi í allan
gærdag og fram á nótt við verð-
ákvörðun á vertíðarfisknum og
eins loðnu til frystingar. Þegar
Morgunblaðið hafði samband við
nefndarmenn seint í gærkvöldi
var verðákvörðunin ekki komin,
en menn vonuðust eftir að mjög
væri fárið að styttast í hana. Fyrr
um daginn hafði verð á loðnu til
frystingar verið á dagskrá en
verðákvörðun ekki tekin. Verði
ákvörðun á loðnu til bræðsju
hefur enn ekki verið vísað til yfir-
nefndar, en fundur var boðaður
um það mál í ráðinu á miðviku-
dag.
Indriði Kristinsson
Beið bana í
umferðarslysi
TÆPLEGA fimmtugur Hafnfirð-
ingur beið bana í umferðarslysi á
Reykjanesbraut á sunnudag, er
bifreið hans skall framan á
áætlunarbifreið. llann hét
Olíusjóður að upphæð
270 milljónir króna?
SJAVARÚTVEGSRADHERRA
hefur farið fram á það við Lands-
samband íslenzkra útvegsmanna
— eins og skýrt var frá í Mbl. í
fyrradag, að loðnuútgerðin greiði
ákveðinn hundraðshluta af út-
flutningsverðmæti loðnu í svo-
nefndan olíusjóð, sem sfðan
greiði þann ntikla kostnaðarauka,
sem fiskiskipaflotinn stendur
frammi fyrir vegna hækkaðs olíu-
verðs. Er nú rætt um allt að5% af
útflutningsverðmæti loðnu, en
jafnvel er búizt við því, að það
verði á þessu ári um 5 til 6 millj-
arðar króna og nemur þá sú upp-
hæð, sem hugsanlega gætí runnið
I olíusjóðinn uin 270 milljónum
króna. Sjómannasamtökin sam-
þykktu þessa ráðstöfun fyrir sitt
leyti í gærkvöldi.
Framleiðsluverðmæti loðnuaf-
urða á árinu 1973 var áætlað í
skýrslu Loðnulöndunarnefndar
3.360 milljónír króna og hafði þá
frá árinu 1972 hækkað um 31%,
en þá var framleiðsluverðmætið
820 milljónir króna. Aflaverð-
mæti skipanna hafði þá aukizt um
251%, en aflaaukningin varð hins
vegar aðeins 37%. i skýrslu
Loðnulöndunarnefndar segir:
,,Flest bendir nú til þess, að
mikil verðmætaaukning verði á
næsta ári (1974 — innskot Mbl.)
vegna loðnuveiðanna, jafnvel þó
að aflinn verði svipaður og á
þessu ári. Kemur þar allt til, mjöl-
og lýsisverð hefur stórhækkað frá
síðasta ári, líkur eru fyrir aukinni
sölu á frystri loðnu til Japans og
jafnframt verulega hærra verði
fyrir þær afurðir."
Eins og áður segir, er búizt við
því, að útflutningsverðmæti
loðnuafurða geti orðið allt að 6
milljörðum króna á þessu ári.
Verðlagsráð sjávarútvegsins hef-
ur og ekki ákveðið verð á loðnu til
bræðslu enn og dráttur hefur orð-
ið á því, að erlendir loðnukaup-
menn, sem væntanlegir voru til
landsins á laugardag, kæmu og
þvi hefur samningafundum með
þeim veríð frestað um nokkra
daga. Er talið, að þessir samn-
Framhald á bls. 27
Indriði Kristinsson, til heimilis
að Kelduhvammi 7 I Hafnarfirði.
Slysið gerðist úm kl. 15.30 á
sunnudag á Strandaheiðinni,
miðja vegu milli Vogaafleggjar-
anna tveggja. Þar var áætlunar-
bifreið á leið til Reykjavíkur með
hóp fólks en á móti kom VW-
sendiferðabifreið, er Indriði heit-
inn ók. Skyndilega sveigði bifreið
hans fyrir áætlunarbifreiðina, og
skullu þær saman af miklum
krafti. Mun Indriði hafa beðið
samstundis bana. Við áreksturinn
þeyttist VW-sendiferðabifreiðin á
mannlausa fólksbifreið, er stóð á
vegabruninni þar hjá og kastaðist
hún út fyrir veginn, og er talin
gjörónýt. Ökumaður og tveir far-
þegar i áætlunarbifreiðinni
meiddust lítillega við árekstur-
inn.
Aðalfundur
L.Í.Ú. í dag
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Landssambands íslenzkra
útvegsmanna hefst í dag
kl. 15.30 að Hótel Esju, en
aðalfundi þess var frestað á
síðastliðnu hausti þar til nú,
vegna óvissu um rekstur út-
gerðarinnar.