Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 3 Hörður og Þórir Rvíkurmeistarar REYKJAVlKURMÓTINU í bridge, tvlmenning, lauk sl. sunnudag. Alls tóku 28 pör þátt í úrslitakeppninni. Sigurvegarar urðu Hörður Blöndal og Þórir Sig- urðsson sem hlutu 1652 stig eða rúmum 100 stigum meira en parið sem varð I öðru sæti, en það voru hinir margföldu Rvíkur- og Is- landsmeistarar Hjalti Ellasson og Asmundur Pálsson. Hörður og Þórir höfðu náð örlitlu forskoti fyrri daginn sem þeir juku smám saman sfðari dag- inn. Aftur á móti hafði Hjalta og Ásmundi gengið mjög illa fyrri daginn. I þriðja sæti urðu Jón Asbjörns- son og Sigtryggur Sigurðsson. Nánar verður sagt frá mótinu í bridgeþætti síðar. Gáfust upp við Máritaníu ÞÆR fregnir hafa nú borizt frá Máritanfuströndum, að íslenzku skipin, sem þar hafa verið á veið- um séu nú að leggja af stað til Islands, eingöngu vegna afla- tregðu. Vitað er að Asberg, óskar Halldórsson og Reykjaborg eru lögð af stað til Las Palmas á Kanaríeyjum, þar sem höfð verður viðdvöl, áður en lagt verður f siglinguna tif Islands. Þá hefur heyrst, að hin skipin þrjú, Börkur, Guðmundur og Sigurður séu einnig í þann veginn að hætta veiðum. Aflahæsta íslenzka skipið mun vera búið að fá um 3 þúsund tonn, en það sem minnst hefur fengið mun ekki hafa náð 1000 tonnum. Hins vegar munu norsku bátarnir tveir, sem þarna eru á veiðum vera búnir að fá hátt í 12000 lestir af markíl og sarinellu, eða yfir 5000 lestir hvort skip. Það hefur komið fram, að ástæðan fyrir þvf, að fslenzku skipin hafa ekki aflað nógu vel á þessum slóðum er, að nætur þeirra eru engan veginn nógu stórar né sterkar. Stórskemmdir á lager Norð- urstjörnunnar BROTIST var inn ð lager niður- suðuverksmiðjunnar Norður- stjörnunnar f Hafnarfirði um heigina og stórskemmdir unnar. Heiium stæðum af niðursuðu- dósum var hent um koli og eru þúsundir dósa ósöluhæfar á eftir. Þá voru meiri skemmdir unnar á sjálfu húsnæðinu, sem er við ös- eyrarbraut, m.a. voru öll ljósa- stæði brotin. Tjðnið nemur hundruðum þúsunda að sögn kunnugra. Þetta er í þriðja skiptið á stuttum tíma sem brotist er inn á þennan lager, en nú voru lang- mestar skemmdir unnar. Eru það tilmæli rannsóknarlögreglunnar í Hafnarfirði, að allir þeir sem ein- hverjar upplýsingar geta gefið um þessi skemmdarverk hafi sam- band við sig sem fyrst. Líklegast er talið að unglingar hafi verið þarna að verki, og ætti það að gefa vísbendingu ef unglingar hafa sést vera með í fórum sfnum niðursuðudósir frá umræddri verksmiðju. BBC um Helga Hallvarðsson skipherra: Kjarkmikill sjómaður Helgi Hallvarðsson, skipherra á Þór. BREZK BLÖÐ og fjölmiðlar hafa mikið skrifað um atburð- ina á miðunum og er Helgi Hallvarðsson skipherra þar einkum f sviðsljósinu. Frétta- maður BBC sagði f sérstakri fréttaútsendingu af miðunum, en hann er um borð f dráttar- bátnum Lloydsman, að Helgi Hallvarðsson væri yfirvegaður og kjarkmikill sjómaður. I fréttaskeyfi frá Reuter- fréttastofunni f London, segir að Helgi Hallvarðsson, sem sé 44ra ára, hafi á mjög snjallan hátt leikið á brezku freigáturn- ar og verndarskipin og þessi frammistaða hans hafi vakið mikla aðdáun Islendinga, sem Ifti á hann sem hetju. Þá rekur fréttastofan feril Helga og segir m.a. að hann hafi unnið það afrek f sfðasta þorskastrfði, að hafa klippt á togvfra f jögurra brezkra togara á 8 mfnútum, en þá hafi hann verið yngsti skipherra Land- helgisgæzlunnar. Fréttaskeytið um Helga Hallvarðsson endar sfðan á þvf að haft er eftir 11 ára gömlum syni hans, sem einnig heitir Helgi: „Ég held að pabbi ætti bara að taka þá í karphúsið." Stjórnarfrumvarp: Lækkun lögbundinna framlaga á fjárlögum um fimm af hundraði 1 gær var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um lækkun lög- bundinna framlaga á fjárlögum áranna 1976 og 1977 sem nemur allt að fimm af hundraði. Þetta ákvæði nær þó ekki til framlaga vegna slysa-, Iffeyris- eða sjúkra- trygginga og ekki til hreinna markaðara tekjustofna f gjalda- hiið fjárlaganna, þ.e. tekjustofna sem koma fram án mótframlags af nokkru tagi f gjaldahlið fjár- laga. Frumvarp þetta er flutt f sam- ræmi við stefnumörkun rikis- stjórnarinnar, sem kunngjörð var f framsögu fjármálaráðherra með frumvarpi að fjárlögum fyrir komandi ár, um nauðsyn þess að gera sérstakar ráðstafanir til að sporna við vexti ríkisútgjaida á næsta ári, vegna hins alvarlega efnahagsástands, sem þjóðin stendur nú frammi fyrir, einkum varðandi viðskiptastöðuna gagn- vart útlöndum og þróun verðlags- mála. Er hér um einn lið að ræða f fleiri samvirkandi aðhaldsað- gerðum stjórnvalda. Frumvarp þetta nær til þeirra ríkisútgjalda allra, sem ákveðin eru með sérstökum lögum, nema almannatrygginga, en lagt verður fram sérstakt frumvarp um að- haldsaðgerðir í tryggingakerfinu, og varðandi tekjustofna (skatt- lagning til ákveðinna fram- kvæmda), sem koma fram með sömu fjárhæð bæði á tekju- og gjaldhlið fjárlaga. Lausir úr gæzluvarðhaldi PILTINUM 16 ára, sem úr- skurðaður var f gæzluvarðhald vegna láts Guðbjargar Óskars- dóttur f Keflavfk, hefur verfð sleppt. Hann sat f gæzluvarðhaidi f rúman sðlarhring. Rannsókn málsins er vel á veg komin, að sögn Guðmundar Kristjánssonar, fulltrúa við embætti bæjarfóget- ans f Keflavfk. Er nú beðið eftir niðurstöðum krufningar. Þá var á laugardaginn sleppt úr gæzluvarðhaldi manni þeim sem var í gæzlu vegna innbrotsins í vélsmiðjuna Héðin á dögunum. Hann hafði verið í gæzluvarð- haldi í 7 daga. Maðurinn hefur algerlega neitað þvf að hafa átt hlutdeild f umræddu innbroti. LEIKFONG A SERTILBODS VERÐI * JÖf' A* :-t£* Sértilboo í eina viku eða meoan bnvðir endast. SKEIFUNN115 .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.