Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 27 Frá borgarstjórn: Frestast afgreiðsla fjárhags- áætlunar fram yfir áramót? Urdráttur úr fyrri umræðu VIÐ fyrri umræðu um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1976, sem fram fór s.l. fimmtudag, átaldi Sigurjón Pétursson að ekki hefði verið tekið tillit til fyrirsjáan- legra breytinga á launagreiðslum, sem yrðu á næstunni. Taldi hann einsýnt, að þegar af þessari ástæðu yrði talsverð rðskun á áætluninni, þannig að f rauninni væri hún marklaust plagg. Þá benti hann á, að framundan væru breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem einnig mundu breyta áætlUnum. Taldi Sigurjón, að röskun af þessum sökum mundi hafa í för með sér aukinn kostnað, sem nema mundi hundruðum milljóna. Þá gagnrýndi hann að heimildir til álags á aðstöðu- og fasteigna- gjöld væru ekki notaðar til fulln- ustu, um leið og sú leið væri farin hvað viðkæmi útsvari. Lagði hann m.a. til, að álagsheimild á fast- eignagjöld væri nýtt til fulls nema þegar um væri að ræða íbúðarhúsnæði til einkaafnota. Sigurjón kvaðst vera þeirrar skoðunar að innheimta ætti hærra gjald en nú væri fyrir kvöldsöluleyfi. Samtals hefði borgin nú aðeins lmilljón f tekjur af leyfunum, en hægt væri að innheimta mun hærra gjald. Hann sagði, að ómögulegt væri að gera fjárhagsáætlun til 12 mánaða í verðbólguþjóðfélagi, þannig að hér þyrfti að viðhafa önnur vinnubrögð. Björgvin Guðmundsson tók í sama streng. Taldi hann frum- varpið marklaust vinnuplagg, sem yrði úrelt eftir skamman tfma. Hann vakti athygli á því, að gert væri ráð fyrir meira fé til rekstrargjaldahækkunar en til framkvæmda. Þá gerði hann at- hugasemd við, að ekki væri gert ráð fyrir framkvæmdafé til B- álmu Borgarspítalans, auk þess sem ekki væri gert ráð fyrir fjár- veitingu til heilsugæzlumiðstöðv- ar í Breiðholti. Hann taldi, að sameina mætti heilsugæzlu f skól- um í viðkomandi fbúðarhverfi. Hefði þetta hagræðingu og sparnað í för með sér, og lægi beinast við að athuga hvort ekki mætti koma þessu við í Selja- skóla, sem byggingarframkvæmd- ir væru ekki hafnar við. Þá benti Björgvin Guðmunds- son, á að stórlega yrði dregið úr íbúðabyggingum ávegum Reykja- vfkurborgar. Taldi hann að slikar framkvæmdir ættu þó að koma á undan leikhúsbyggingu. Þá benti hann á, að framlag til Bæjarút- gerðar Reykjavíkur væri óbreytt að krónutölu, en augljóst mætti vera, að raungildi þessa fjárfram- lags væri skert verulega og ekk- ert væri ætlað til uppbyggingar fyrirtækisins. Boðaði Björgvin tillögu frá sér um þetta efni við sfðari umræðu um fjárhags- áætlunina. í HAUST kom fram tillaga öddu Báru Sigfúsdóttur f borgarstjórn um, að frá næstu áramótum yrði tekin upp niðurgreiðsla dag- vistunar barna á einkaheimilum. Vfsaði borgarstjórn tillögunni til umsagnar félagsmálaráðs Reyk j avfkurborgar. Hefur félagsmálaráð nú mælt með því að borgarsjóður greiði niður dagvistun á einkaheimilum, sem eru undir eftirliti Félags- málastofnunar Reykjavíkurborg- ar, þegar í hlut eiga börn ein- stæðra foreldra, en f upphaflegri tillögu var ráð fyrir því gert, að um yrði að ræða niðurgreiðslu vegna barna, sem teljast til svo- kallaðra forgangsflokka. Mun félagsmálaráð ákveða Borgarstjórn og lóðamál: Þáttur áætlanagerðar aukinn EFTIRFARANDI tillaga Birgis Isl. Gunnarssonar borgarstjóra var samþykkt samhljóða f borgarstjórn s.I. fimmtudag, en tillagan kom f kjölfar tiflögu Kristjáns Benediktssonar um lóðamál f borginni, sem vfsað var til borgarráðs nýfega: „Borgarstjórn samþykkir, að undirbúningur nýrra byggingarsvæða og úthlutun fóða skuli fara fram eftir eins nákvæmri áætlanagerð og unnt er á grundvelli aðalskipulags borgarinnar. Jafnframt verði gerðar framkvæmdaáætlanir um aðra þætti fjárfestinga borgarsjóðs f nýjum hverfum, á Ifkan hátt og gert var með framkvæmdaáætlanir um Breiðholtshverfin, sem gerð var 1974. Framkvæmda- áætlanir veitustofnana borgar- innar verði samræmdar slfkri heifdaráætlun og vinnu hagað þannig, að fjármagn og vinna nýtist sem bezt. Lóðaúthlutun fari yfirleitt fram f upphafi árs, eins og tfðkazt hefur undanfarin ár. Reynt verði að ná samvinnu við nágrannasveitarfélögin um sameinað aðalskipulag höfuð- borgarsvæðisins og f þvf sam- bandi haft eins náið samstarf og unnt er á hverjum tfma um byggingarþörf og þróun byggðar á svæðinu. Þá telur borgarstjórn rétt, að á grund- velli aðalskipulags, þegar endurskoðun þess er fokið, verði gerð áætlun um endur- uppbyggingu þeirra svæða í borginni, þar sem endur- bygging á fram að fara.“ Björgvin sagði Alþýðuflokkinn andvfgan álagi á útsvör og fast- eignagjöld. í staðinn væri sjálf- sagt að fullnýta álag á aðstöðu- gjöld. Kristján Benediktsson sagði, að svo gæti farið, að Reykjavfkur- borg þyrfti talsvert á sig að leggja til að halda fullri atvinnu i borg- inni á næsta ári, þannig að sam- dráttur framkvæmda á vegum opinberra aðila væri engan veg- inn einhlít lausn. Hann sagðist ekki geta tekið undir gagnrýni Sigurjóns Péturs- sonar á fjárhagsáætlunarfrum- varpið. Hann sagðist ekki hafa áhyggjur af lagabreytingum um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga. Það hefði áður komið f ljós, að sveitarfélög hefðu haft verulegan hag af slíkum breyting- um. Hann benti á að fullnýting heimilda til álags á aðstöðu- og fasteignagjöld gætu gefið nokkur hundruð milljóna f aðra hönd. Þá ræddi Kristján ræðu Björgvins þar sem komið hefði fram áhyggj- ur af því, að Reykjavíkurborg ætti við fjárhagserfiðleika að stríða. Hann sagði: „Þetta tel ég rangt. Mér sýnist Reykjavíkur- borg hafa gnótt f jár, ef hún kann með það að fara. Enda þótt borgin hafi lent í greiðsluerfiðleikum og skuldasöfnun á sfðasta ári, þá hafa þeir, sem stjórna fjármálum borgarinnar, Iært af erfiðleikun- um.“ Þá sagði hann ljóst, að ýmsir útgjaldahættir borgarinnar mundu taka talsverðum breyting- um á næstunni m.a. með tilliti til breytinga á kaupgjaldi f þeim kjarasamningum, sem framundan væru. Lagði hann þvi til að af- greiðslu fjárhagsáætlunarinnar yrði frestað fram yfir áramót, er linur hefðu skýrzt f þeim málum. Annað væri tvfverknaður. Loks lét Kristján Benediktsson í Ijós áhyggjur sínar vegna mál- efna Reykjavíkurhafnar, en komið gæti til þess, að þar þyrfti borgarsjóður að hlaupa undir bagga, ef ekki kæmi til hækkun á gjaldskrám. Niðurgreiðslur vegna dagvistunar á einkaheim- ilum frá áramótum? niðurgreiðsluna í samráði við félagsmálastjóra, en fyrst um sinn verður litið á þetta sem til- raunastarf, sem endurskoðað verður að nokkrum tíma liðnum. Þá telur félagsmálaráð rétt að skipulögð verði dagvistun á einkaheimilum, og hefur félags- málastjórn verið falið að gera til- lögur að fyrirkomulagi slíkrar þjónustu. Er þetta gert til að koma enn frekar til móts við ein- stæða foreldra, námsmenn og f jöl- skyldur, sem eiga við erfiðar heimilisaðstæður að búa, að því er segir í umsögn félagsmálaráðs. Um þetta mál urðu nokkrar um- ræður á fundi borgarstjórnar s.l. fimmtudag. Adda Bára Sigfús- Framhald á bls. 30 Bókin sem ailir biða eftir w w __ Oldin okkar nýtt bindi Mú birtist þriðji hluti hins vinsæla ritverks ÖLDIN OKKAR og tekur yfir árin 1951—1960. Eru „Aldirnar“ þá orðnar átta talsins og gera skil sögu þjóðarinnar í samfleytt 360 ár í hinu lífræna formi nútíma fréttablaðs. Myndir í bók- unum eru á þriðja þúsund talsins og er í engu öðru ritverki að finna slíkan fjölda íslenzkra mynda, — „Aldirnar“ eru þannig lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum, sem geyma mikinn fróðleik og eru jafnframt svo skemmtilegar til lestrar, að naumast hafa komið út á íslenzku jafnvin- sælar bækur. Látið ekki undir höfuð leggjast að bæta þessu nýja bindi við þau, sem fyrir eru. Öldin er skemmtileg, fróðleg og frábær Tryggiðykkur eintak meðan tiler Iðunn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.