Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 39 — Fjármál Sunnu „Engin byssa á Arvakri og því tómt mál að tala um að taka togara ” segir Höskuldur Skarphéðinsson skipherra — ÞAÐ er tómt mál að tala um, að við hefðum átt að taka togar- ann Port Vale og færa til hafnar, þegar við skárum poka togarans frá, þar sem hann var á veiðum undan norðanverðum Vestfjörðum. Það er engin byssa á Arvakri og án hennar hefði ekkert verið hægt að gera, sagði Höskuldur Skarp- héðinsson, skipherra á Arvakri, í samtali við Mbl. f gær þegar Arvakur kom til Reykjavfkur með poka Port Vale, en hann er ólöglega frá genginn, þar sem ekki er gengið rétt frá tvöfalda byrðinu f pokanum. Aftast á hverjum poka á aðeins að vera einfalt byrði, þannig að ung- viðið geti sloppið út, en á poka togarans var byrðið tvöfalt. Höskuldur Skarphéðinsson sagði, að alla tíð hefði verið vandasamt að taka brezka tog- ara og færa til hafnar og það væri sennilega enn verra nú undir þessum kringumstæðum. Það vissi enginn með vissu, hvenær mannskap væri stefnt i hættu, og því væri betra að fara að með gát. — Ofbeldi kallar Höskuldur Skarphéðinsson skipherra (t.h.) og Benedikt Guðmundsson stýrimaður skoða poka Port alltaf á meira ofbeldi, sagði Höskuldur. Höskuldur var spurður að þvi hvort hægt væri að sanna að pokinn, sem Árvakur kom með til hafnar væri frá Port Vale. Hann svaraði þvi til, að stuttu eftir að klippingin átti sér stað hefði brezkur blaðamaður rætt við skipstjórann á Port Vale í gegnum Siglufjarðarradíó og i því samtali hefði skipstjóri tog- arans viðurkennt að Árvakurs- menn hefðu náð pokanum um borð til sín. Að sögn Höskulds er ekkert ólöglegt við riðil pokans, heldur aðeins það sem fyrr er getið, að pokinn er tvöfaldur aftur úr. Höskuldur Skarphéðinsson og meirihluti skipshafnar Ár- vakurs flyzt nú yfir á skuttog- arann Baldur, sem tekinn hefur verið á leigu til gæzlustarfa. Landhelgisgæzlan mun taka við skipinu í dag, en ekki er gert ráð fyrir að það leggi úr höfn fyrr en eftir helgi. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagði í gærkvöldi, að nú yrði farið í að setja byssu á Baldur og ýmis- legt annað þyrfti að gera áður en skipið léti úr höfn. Byssan, sem fer á skipið er til í landi. Framhald af bls. 40 neytisstjóri í samönguráðuneyt- inu, skýrði hins vegar Mbl. frá þvi að Sunna fengi ekki frest nema til 10. desember eða til morguns til að sýna fram á að ferðaskrif- stofan gæti staðið við skuldbind- ingar varðandi Kanaríeyjaflug, sem hefjast eiga n.k. laugardag. Samgöngumálaráðuneytið gaf út eftirfarandi fréttatilkynningu i gær: „Samgönguráðuneytið hefur fylgst með athugun bankaeftirlits Seðlabanka Islands á viðskiptum Alþýðubankans h.f. við Ferða- skrifstofuna Sunnu h.f. og tengd fyrirtæki og aðila, en niðurstöður þeirrar athugunar hafa leitt til þess, að Alþýðubankinn h.f. mun ekki eiga frekari viðskipti við um- rædd fyrirtæki og hefur Alþýðu- bankinn h.f. óskað eftir opinberri rannsókn á bókhaldi, fjárreiðum og öðru, er varðar rekstur og við- skipti umræddra aðila. Upplýst er, að einstaklingar, sem hyggja á þátttöku í hópferð- um til Kanríeyja á vegum Ferða- skrifstofunnar Sunnu h.f. fram til 10. jan. 197Q hafa samtals greitt um 10.2 millj. kr. til fyrirtækisins upp í væntanlegan ferða- og dvalarkostnað. I lögum um ferðamál nr. 4/1969, er gert ráð fyrir heimild ráðuneytisins til afturköllunar ferðaskrifstofuleyfis, ef fjárhags- staða ferðaskrifstofu er komin i óefni. Þó telur ráðuneytið rétt að reyna í lengstu lög að forða um- ræddu fólki frá því tjóni, sem það yrði fyrir, ef starfsemi Ferða- skrifstofunnar Sunnu h.f. yrði af framangreindum ástæðum stöðv- uð nú þegar. Þvi þykir ráðuneytinu rétt, eins og sakir standa, að afturkalla ferðaskrifstofuíeyfi Ferðaskrif- stofunnar Sunnu h.f., nr. 5, útg. 29. des. 1969 frá og með 15. jan 1976, þó þannig að heimilt sé að ljúka ferð þeirri til Kanaríeyja, sem hefjast á 10. jan 1976, en óheimilt að ferðaskrifstofan geri ráðstafanir varðandi ferðir eða aðrar slíkar ráðstafanir I sam- bandi við ferðaskrifstofurekstur, sem uppfylla þarf eftir 15. jan. 1976. Frestun ráðuneytisins til 15. jan. 1976 á afturköllun ferðaskrif- stofuleyfisins er þó háð þvi, að Ferðaskrifstofan Sunna h.f. geri ráðuneytinu fullnaðargrein fyrir því, eigi síðar en 10. þ.m., að full- tryggt sé að hún geti séð um um- ræddar ferðir til Kanarfeyja báð- ar leiðir, auk dvalarkostnaðar. Framangreind ákvörðun ráðu- neytisins er að sjálfsögðu háð því, að ekki komi til afturköllunar- ástæður samkvæmt a. -c. -liðum 9. gr. laga um ferðamál, nr. 4/1969, á þessu tímabili, m.a. vegnagjald- þrots eða sviptingar fjárráða fyr- irtækisins. Vegna fyrirspurna fjölmiðla um málefni Air Viking h.f. vill ráðunevtið taka fram, að félagið hefur flugrekstrarleyfi útg. 19. júlí 1974. til óreglubundins flugs. Um þá starfsemi gilda lög um loftferðir, nr. 34/1964, og ákvæði og reglur á þeim byggðar. Ekki liggur á þessu stigi neitt það fyrir varðandi rekstur Air Vikings, sem gefi tilefni til umræðna um afturköllun flugrekstrarleyfis Air Viking h.f.“ Samkvæmt 4. gr. laga um ferða- mál frá 1969, skal ferðaskrif- stofum gert að setja tryggingu að upphæð 1,5 milljónir króna á reikning í Landsbanka Islands sem tryggingu fyrir starfsemi sinni. Telji samgönguráðuneytið fjárhagsstöðu ferðaskrifstofu miðað við þessa tryggingu komna f óefni hefur það heimild til að svipta hana ferðaskrifstofuleyfi. Þar sem Sunna hefur ekki verið nefnd, sem skuldunautur við Al- þýðubankann, heldur aðeins Air Viking og ' Guðni Þórðarson, spurði Morgunblaðið Halldór E. Sigurðsson hvaða skuldir hér hefði verið um að ræða. Sagðist hann ekki geta sagt frá því, en hins vegar blönduðust fjármál Sunnu saman við fjármál Air Viking og Guðna Þórðarsonar, þar sem ekki væru hrein skil á milli þessara aðila. Þar sem ákveðið hefði verið að rannsaka viðskipti Air Viking hefði ráðu- neytið ákveðið að fara sér hægt og sjá hvað kæmi út úr þeirri rann- sókn. Auk þess gæfu þau gögn, sem ráðuneytið hefði, það til kynna að skuldir Sunnu væru það miklar að tryggingin kæmi þar hvergi fram á móti. ,,En þetta er mikið gert til að sjá hvernig úr þessu kann að rætast," sagði Halldór. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Guðna Þórðarson og spurði hann hvað hann vildi segja um ákvörðun samgönguráðu- neytisins. Hann sagði: „Ég vil ekki segja beinlínis að við séum sviptir leyfinu, þar eð okkur er nú samt leyft að starfa og standa við allar skuldbind- ingar til 10. janúar — ég hef síðan aldrei heyrt um það í réttarríki að þeir sem standa við allar skuld- bindingar sínar séu verðlaunaðir með því að svipta þá réttindum, og á ekki von á því að þetta verði túlkað þannig Ég vil taka það fram greinilega, að ferðaskrifstofan Sunna er ekki í neinum vanskilum við einn eða neinn og hjá samgönguráðuneyt- inu liggja engar kröfur á ferða- skrifstofuna Sunnu. Hún hefur staðið við allar sínar skuldbind- ingar og mun standa við þásr gagnvart sínum farþegum og við- skiptaaðilum. Það liggur ekkert fyrir um það að Sunna hafi ekki og muni ekki standa við allar sinar skuldbindingar." Sigurðar Guðnasonar minnzt á Alþingi ASGEIR Bjarnason forseti Sam- einaðs Alþingis, minntist Sig- urðar heitins Guðnasonar, fyrr- verandi alþingismanns og for- manns Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, á Alþingi f gær, með eftirfarandi orðum: Til þessa fundar er boðað til að minnast Sigurðar Guðnasonar fyrrverandi alþingismanns, sem andaðist f sjúkrahúsi hér í Reykjavík í gærmorgun, 7. desember, 87 ára að aldri. Sigurður Guðnason var fæddur 21. júní 1888 f Holtakoti f Biskupstungum. Foreldrar hans voru Guðni bóndi þar og víðar Þórarinsson bónda f Ásakoti og Bryggju f Biskupstungum Þórarinssonar og kona hans. Sunneva Bjarnadóttir, bónda f Tungufelli f Hrunamannahreppi Jónssonar. Hann stundaði búfræðinám á Hólum og lauk þaðan prófi 1909. Bóndi í Borgarholti í Biskups- tungum var hann 1917—1922. Árið 1922 fluttist hann til Reykjavíkur og stundaði verka- mannavinnu tvo áratugi. Hann var formaður Verkamannafélags- ins Dagsbrúar 1942—1954 og í stjórn Alþýðusambands Islands 1942—1948. Hann var kjörinn alþingismaður haustið 1942, var landskjörinn alþingismaður 1942—1946 og þingmaður Reyk- víkinga 1946—1956, sat á 15 þingum alls. Sigurður Guðnason var alinn upp f sveit, nam búfræði og var bóndi á miklum umbrotatfmum í verðlagsmálum eftir lok heims- styrjaldarinnar fyrri. A verka- mannsárum sfnum f Reykjavík lifði hann tfma kreppu og at- vinnuleysis á fjórða tug þessarar aldar. A löngum æviverli hans urðu mikil umskipti í baráttu ís- lensks verkalýðs fyrir auknum réttindum og bættum kjörum. Hann var stéttvís félagi í hópi verkamanna og eignaðist traust stéttarbræðra sinna, sem völdu hann til forystu f félagsmálum sínum. A Alþingi vann hann af skyldurækni að afgreiðslu mála, en tók ekki mikinn þátt f umræð- um. Þó gat hann hér sem annars staðar lagst þungt á sveif með verkalýðsstéttinni, ef honum þótti sem á hana skyldi hallað. Sigurður Guðnason var dag- farsprúður maður og vann ævi- starf sitt af látleysi og samvisku- semi, bjartsýni og heilindum. I góðu samstarfi við stéttarfélaga sfna lagði hann fram alla krafta í sókn til bættra Iffskjara. A næðis- sömum elliárum gat hann þvf litið sáttur yfir ævistarfið, þó að hann hefði gjarnan kosið að meira hefði áunnist. Ég vil biðja háttvirta alþingis- menn að minnast Sigurðar Guðna- sonar með því að rfsa úr sætum. Þingfréttir EFRI DEILD Frumvarp til laga um tekju- stofna sveitarfélaga var af- greitt sem lög frá Alþingi í efri deild Alþingis í gær. Þá var frumvarp um ríkisreikning 1973 og frumvarp um eignar- námsheimild á hluta Ness í Norðfirði afgreidd til 2. um- ræðu og nefnda. Frumvarp úm innheimtu gjalda með viðauka (sama viðauka og f ár) og frum- varp um Húsnæðismálastofnun rfkisins voru afgreidd til þriðju umræðu. Umferðarlög Ölafur Jóhannesson dóms- málaráðherra mælti fyrir frum- varpi um umferðarlög, þ.e. 1!4% gjald á iðgjald skyldu- trygginga ökutækja, er renni til Umferðarráðs til umferðar- slysavarna. Ráðherrann rakti í ítarlegu máli störf og stefnumið Umferðarráðs og verða máli hans gerð nánari skil síðar. KAUPSTAÐARRÉTTINDI GARÐAHREPPS Gunnlaugur Finnsson (F) mælti fyrir nefndaráliti með frumvarpi til laga um kaup- staðarréttindi til handa Garða- hreppi. Nefndin mælti einröma með frumvarpinu. Ræðumaður vakti þó athygli á, að vaxandi þéttbýli byggðarlaga í viðkom- andi sýslu gætu innan tíðar leitt til þess, að aðeins tveir hreppar yrðu eftir sem aðildar- sveitarféHig að sýslunefnd. __ ENGINN A MÆLENDASKRA UM FRAMKVÆMDASTOFN- UN. Eitt tfmafrekasta mál þings- ins í vetur, frumvarp til laga um breytingar á skipan Fram- kvæmdastofnunar, var enn á dagskrá, framhald 1. umræðu. Énginn kvaddi sér hljóðs. Var málinu vísað til viðkomandi nefndar og 2. umræðu. VERÐJÖFNUNARGJALD A RAFORKU. Fram er komið stjórnarfrum- varp um framlengingu um 1 ár á gildistíma laga um verðjöfn- unargjald á raforku, enda er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1976 gert ráð fyrir þeim tekjum vegna rekstrar Rafmagnsveitna ríkisins. Er hér um að ræða 13% álag á söluverð raforku einstakra veitna, sem renna á til Rafmangsveitna ríkisins. HEIMILD TIL LANTÖKU ER- LENDIS. Stjórnarfrumvarp um heimild til lántöku ríkissjóðs erlendis á árinu 1976, að fjár- hæð allt að 3.580.m.k., var lagt fram á Alþingi i gær. I greinar- gerð með frumvarpinu segir: „1 athugasemdum með fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 1976, bls. 174, er rakið að hve miklu leyti lagaheimildir til ráðgerðra lántaka samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu eru fyrir hendi í sérstökum lögum, og i frum- varpinu sjálfu, 6. gr., er leitað heimilda til Iántaka innan- lands. Þar er og boðað að fyrir haustþingið muni lagt sérstakt frumvarp um heimild til sér- stakrar erlendrar lántöku sem á vantar, en ekki er talið að heimildir í fjárlögum nægi til að taka erlend lán. Það frum- varp, sem hér er lagt fram, er þannig ætlað til að tryggja nægar lagaheimildir vegna þeirra opinberu framkvæmda á fjárlögum sem ráðgert er að fjármagna með lánum. Sú fjár- hæð, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir, miðast við fyrirhugað- ar framkvæmdir í fjárlaga- frumvarpi, sbr. skýringar i at- hugasemdum fjárlagafrum- varps, bls. 178, en fjárhæðin kann að breytast þegar endan- legar ákvarðanir verða teknar um þessar framkvæmdir. I lánsfjáráætlun þeirri, sem lögð verður fyrir þingið, verður gerð nánari grein fyrir einstökum framkvæmdum, sem ætlað er að fjármagna með lánum, og verður þannig ljóst fyrir af- greiðslu fjárlaga hver þessi við- bótarlánsheimild til erlendrar lántöku þarf að vera.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.