Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 30 daga gæzluvarðhald MAÐUR sá, sem tekinn var með mikið hassmagn á Keflavíkurflug- velli, var á laugardaginn úr- skurðaður í allt að 30 daga gæzlu- varðhald. Hann er í stöðugum yfirheyrslum hjá Ffkniefnadóm- stólnum og er rannsókn á máli hans á byrjunarstigi. Maðurinn, sem er rétt liðlega tvítugur, kom með rúmlega 2 kg. af hassi til landsins. Klakabrynja yfir öllu Siglufirði 8. des. STÁLVlK landaði hér í dag 90 tonnum af fiski eftir rúmlega viku útivist. Löndunin tók ekki nema fimm og hálfan tíma, og þykir það mjög gott. Brúarfoss er að landa freðfisk á Ameríkumark- að. Hér er klakabrynja yfir öllu og nánast skautafæri alls staðar. —mj. 473 atvinnu- lausir Á ÖLLU landinu voru 473 manns skráðir atvinnulausir þann 30. nóvember síðastliðinn. Þar af voru 247 konur. Tala atvinnu- lausra á sama tíma i fyrra var 361. Tiltölulega mest atvinnuleysi er í kauptúnum með færri íbúa en 1000. Þar voru 136 atvinnulausir. Flestir voru atvinnulausir I Reykjavik, eða 127 en þar voru i nóvember skráðir 1658 atvinnu- leysisdagar. Hvað snertir atvinnu- leysisdaga komu næst Keflavík með 1253 og Bíldudalur með 745. 22 iðnaðarmenn voru skráðir at- vinnulausir á landinu 30. nóvem- ber en 209 verkakonur og 130 verkamenn og sjómenn. Ekkert reynt við loðnuna UNDANFARIN ár hafa ávallt einhver Ioðnuskip reynt að hefja veiðarnar fyrir áramót og enn- fremur hefur eitthvert leitar- og rannsóknaskipið verið við loðnu- leit fram að jólum. Að þessu sinni bregður hins vegar svo við, að ekkert veiðiskip, mun nú hefja loðnuveiðar fyrr en eftir áramót og Árni Friðriksson mun ekki halda til loðnuleitar fyrr en 2. janúar, en skipið liggur nú bund- ið við bryggju I Reykjavík, af ástæðum, sem fram koma annars staðar f blaðinu. — Skip Framhald af bls. 2 sem er óvenju snemmt. Þetta er einfaldlega gert af fjárhagsvand- ræðum stofnunarinnar. Við von- umst hins vegar til að geta haldið út strax eftir nýár, sagði Jón. Hann sagði á fastamenn í skips- höfnunum væru ekki afskráðir, þar sem þeir hefðu 1—3 mánuði I uppsagnarfrest. Hins vegar gegndi öðru máli um lausráðna menn. — 20 þjófnaðir Framhald af bls. 40 inn því næst að beita glerskeran- um á aðalrúðuna, en það fór á sömu leið. Braut hann þá aðalrúð- una, seildist inn f gluggann og tók þaðan tvo kassa með gullhringum. Voru 40 kvenhringir f öðrum kassanum og 28 karlmannahring- ir í hinum, en söluverð hringanna hvers um sig er 10—15 þúsund krónur. Rannsóknarlögreglan fékk málið strax til meðferðar, en þrátt fyrir mikla eftirgrennslan og viðtöl við fólk sem býr í ná- grenninu er þjófurinn enn þá ófundinn og sömuleiðis þýfið. Er það ósk rannsóknarlögreglunnar að þeir sem telja sig geta veitt upplýsingar f þessu máli hafi þegar samband við sig. — Rækjubátur Framhaid af bls. 2 Arnórssynir og björguðust þeir f annan rækjubát Margréti Helga- dóttur IS, sem var þarna skammt frð. Glaður IS var 22 tonn að stærð. Morgunblaðið átti í gærkvöldi símtal við Júlíus Arnórsson en þéir bræður voru þá komnir heim til sín á Isafirði. Sagðist honum svo frá, að þeir bræður hefðu verið á heimleið úr róðri með 3—400 kg af rækju. Veður var gott, logn og kyrrt f sjó en svarta- myrkur. Skyndilega rakst bátur- inn á skerið og kom strax feiknar- legur leki að bátnum. Kölluðu þeir bræður á hjálp og náðu sam- bandi við Margréti Helgadóttur IS, sem þeir vissu að var ekki allfjarri. Var hún komin til þeirra eftir stutta stund og tók þá um borð, en til öryggis voru þeir bræður búnir að setja út gúm- björgunarbát. Sökk Glaður á rúm- um hálftíma. — Höfum leyfi Framhald af bls. 40 á ljósmorsi til skipherrans á Þór, að ef hann hleypti af skoti á brezk skip, myndi skotinu svarað f sömu mynt. Takmark mitt með þessu var aðeins að freista þess að lægja öldurnar, en um svipað leyti hættu menn á Þór að taka yfir- breiðsluna af,“ sagði skipherrann á Falmouth. Þessum fréttum mótmælti Helgi Hallvarðsson eindregið eins og getið er f upphafi þessarar fréttar. Morgunblaðið bar þessa frétt undir Hálfdán Henrýsson, sem sagðist í fyrsta lagi ekki skilja, hvernig menn á freigát- unni gætu hafa talið sig sjá þetta, þar sem á meðan á þessum at- burðum stóð var svartamyrkur á þessum slóðum auk þess sem byl- ur var. Er Hálfdáni var sagt að í fréttunum væri átt við afturbyssu Þórs, en hann er eina varðskipið, sem bæði hefur byssu að framan og aftan, kvaðst Hálfdán ef til vill eygja skýringu á því sem fyrir hafi komið. Hann sagði að þegar slfkt ástand ríkti og varðskip stæði í stórræðum, væri það ávallt fyrirskipun skipherra að menn kæmu upp og væru uppi við. Því ættu allir, sem væru á frívakt, að koma upp. Bezti staðurinn til þess að fylgjast með því sem væri að gerast, auk þess sem þar væri skjólbezt, kvað hann vera á aftur- dekki við þessa byssu. Þá sagði Hálfdán það ekki vera vana að tala við önnur skip með ljósmorsi. Það væri löngu liðin tið, heldur notuðu menn nú svokallað VSF, sem er talstöðvarsamband á ör- bylgju. Því væri öll þessi saga hin ótrúlegasta, enda neitaði Helgi Hallvarðsson því að nokkur sam- skipti hefðu átt sér stað. Atburðir þessir, sem enduðu með því að Euroman sigldi á varðskipið, gerðust _að morgni dags klukkan 09,36 f sjógangi og snjókomu. Um 50 togarar voru að veiðum við landið I gær, en þá var veður skaplegt. Togararnir voru síðdeg- is að flytja sig norðar, en þeir höfðu verið út af Glettinganesi um helgina. Stefndu þeir á miðin út af Langanesi. Frá því er samningurinn við Breta frá 13. nóvember 1973 rann út hefur verið skorið á togvira 12 brezkra togara, 6 áður en flotinn kom í spilið og 6 eftir að hann kom. Hinn 15. nóvember skar Þór á togvíra brezka togarans Primellu H 98 á Halanum og sama dag skar Týr á togvira Bost'on Marauder FD 168 út af Hvalbak. Næsta klipping fór fram 18. nóvember, er varðskipið Týr klippti á togvfra St. Giles fyrir utan Gerpi. Daginn eftir eða hinn 19. nóvember klippti Týr aftur og þá á togvíra Benellu H 132 fyrir utan Lnganes. Hinn 21. nóvember var Týr aftur með klippurnar á lofti og þá fóru vírar Real Madrid GY 674 út af Þistilfirði. Daginn eftir klippti svo Ægir á togvíra Ross Sirius H 277 út af Langanesi. Þá var þolinmæði Breta þrotin og herskip kom brunandi á vettvang. Við Langanes var hinn 25. nóvember togarinn Wilfiam Wil- berforce GY 140 að veiðum og taldi sig öruggan í skjóli freigát- unnar Leopard. Varðskipið Ægir var á sömu slóðum og klippti við nefið á freigátunni og varpa Williams Wilberforce sökk til botns, sovézkum kafbátsforingj- um til hrellingar, enda komu þeir upp á yfirborðið daginn eftir. Næsta klipping varð 2. desember. Hún varð fyrir utan Vestfirði og þar missti Port Vale GY 484 vörp- una fyrir tilstilli Arvakurs. Dag- inn eftir klippti Ægir á togvíra Boston Commanche GY 144 við Gerpi og 5. desember klippti varp- skipið Þór á víra Ross Ramilles GY 53 við Glettinganes. 6. desem- ber klippti svo Ægir á togvíra Kingston Jasinth H 198 við Langanes og Þór á togvfra Northern Reward GY 194 við Glettínganes. Af þessu sést að varðskipunum verður ekki síður ágengt, þótt bryndrekar hennar hátignar Elisabetar Bretadrottningar séu togurunum til verndar. En Bretum er kannski vorkunn, þar sem í fyrra þorskastríði urðu mun færri klippingar eftir að brezki flotinn fór að blanda sér í veiðar brezkra togara á Islandsmiðum. Flotinn kom á íslandsmið 19. mai 1973 og gerðust þá togvíraklipp- ingar varðskipanna mun strjálli en verið hafði áður. Varðskipið Öðinn klippti t.d. ekki á togvír allt frá 16. aprfl og fram til 12. ágúst það ár, en þó var klippt á samtals 15 togvfra frá 19. maí og til 13. nóvember, er bráðabirgaðsam- komulagið varð. Ægir klippti á 6 togvíra, Öðin á 3 togvíra, Þór á 5 togvíra og Arvakur á einn. Týr (Hvaltýr — það eð núverandi Týr var þá f smíðum) klippti ekki á togvíra neins togara. — Alþýðubanka- málið Framhald af bls. 40 ASl lýsti eindregnum stuðningi við umleitanir bankaráðs Alþýðu- bankans um fyrirgreiðslu hjá Seðlabankanum, jafnframt þvf, sem lýst var yfir, að miðstjórnin myndi beita sér af alefli fyrir þvf meðal aðildarfélaga sambands- ins, að aukning hlutaf jár bankans um 60 milljónir komist sem fyrst til framkvæmda. Guðni Þórðar- son, sem kom til Iandsins frá út- löndum um helgina hefur hins vegar kallað þessar aðgerðir „einstaka ofsóknarherferð" á hendur sér og telur sig hafa sannanir fyrir þvf, að hún sé runnin undan rótum bankastjóra Seðlabankans. Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, sagði f samali við Morgunblaðið f gær að hann teldi þessi ummæli ekki svara- verð og Ragnar Ólafsson, for- maður bankaráðs Seðfabankans sagði: „Þetta er eins og gengur hjá mönnum f svona ástandi." I gær sendi Seðlabankinn út eftirfarandi tilKynningu: „Við reglubundna könnun, sem bankaeftirlit Seðlabankans fram- kvæmdi nýlega hjá Alþýðubank- anum h.f., kom í ljós að misbrest- ur hafði orðið á töku trygginga fyrir verulegum útlánafjárhæð- um. Frekari könnun þessara mála hefur leitt í ljós mjög alvarlega fjárhagsstöðu eins helsta við- skiptaaðila bankans. Hefur bankaráð Alþýðubankans nú stöðvað öll viðskipti við hann og óskað dómsrannsóknar á fjár- hagsstöðu hans og viðskiptum, svo sem fram kemur í frétt, er Alþýðubankinn hefur sent frá sér. Bankaráð Alþýðubankans hef- ur vegna þeirra greiðsluerfið- leika, sem þetta mál kann að hafa í för með sér, leitað til Seðlabank- ans um fyrirgreiðslu til að tryggja greiðslustöðu bankans og gera honum kleift að sinna viðskiptum sínum á eðlilegan hátt. Hefur miðstjórn Alþýðusambands Is- lands lýst eindregnum stuðningi við þessa beiðni bankans. Einnig hefur hún heitið stuðningi sfnum við ráðstafanir til þess að koma bankanum yfir hugsanlega erfið- leika, m.a. með því að beita sér fyrir hlutafjáraukningu í sam- ræmi við heimildir veittar á síð- asta aðalfundi bankans. Bankastjórn Seðlabankans hefur í framhaldi af þessu gert samkomulag við Alþýðubankann um 125 millj. kr. lánsfyrir- greiðslu. Tilgangur láns þessa er að tryggja það, að Alþýðubankinn geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart innstæðueig- endum og veitt viðskiptaaðilum sínum eðlilega þjónustu. Mun sér- stakur fulltrúi Seðlabankans hafa eftirlit með öllum rekstri bank- ans, á meðan greitt er úr þeim vandamálum, sem upp hafa komið.“ TRAUST BANKANS. I samtalinu við Morgunblaðið kvað Jóhannes Nordal bankaeftir- lit Seðlabankans alltaf gera við og við kannanir, eins og að ofan greinir og eru þá skoðaðir reikn- ingar hinna ýmsu innlánsstofn- ana. Talan 125 milljónir væri þannig ákveðin, að hún væri mat bankastjórnar Seðlabankans á þeirri aðstoð, sem væri nægileg til þess að ná þeim markmiðum, sem I tilkynningunni er lýst. Hann var spurður hvort þessi tala gæfi til kynna að einhverju leyti skuld Air Viking við Alþýðubankann, en hann svaraði því til, að 125 milljónirnar væru ekki beinlínis tengdar skuld fyrirtækja við bankann heldur raunverulegt mat á þvf hvað þyrfti til að hjálpa bankanum. Aðspurður hvort bankinn hefði orðið gjaldþrota, ef ekki hefði komið þessi 125 milljón króna að- stoð, sagði Jóhannes, að ekki væri beinlínis um það að ræða heldur hitt, að þegar upp kæmi svo alvar- legt mál hjá ekki stærri innláns- stofnun en Alþýðubankinn væri, væri jafnan hætta á því, að traust manna á stofnuninni veiktist og framangreind fyrirgreiðsla væri því gerð í því skyni að koma f veg fyrir það með því að treysta greiðslustöðu bankans. INNISTÆÐUR EKKI TRYGGÐAR Þá var Seðlabankastjóri spurð- ur að því hvort sparisjóðsinni- stæður væru yfirleitt tryggðar hér á landi. Jóhannes Nordal sagði, að hjá ríkisbönkunum, þ.e. Landsbanka, Búnaðarbanka og Utvegsöanka, tryggði ríkið spari- sjóðsinnistæður en í öðrum stofn- unum væru þær ekki tryggðar sérstaklega. Jóhannes tók það fram, að það væri einmitt eitt af verkefnum bankaeftirlitsins að meta stöður innlánsstofnana og þá fyrst og fremst með það fyrir augum að kanna hvort útlán væru nægilega örugg, þar sem það væri fyrst og fremst þau, sem væru trygging fyrir innlánum. Þá fer hér á eftir fréttatilkynn- ing Alþýðubankans: „Við nýlega úttekt á fjárhags- stöðu Alþýðubankans hf. hefur komið í ljós, að útlán til nokkurra aðila hafa þrengt mjög greiðslu- stöðu bankans og ennfremur að verulegar lánafjárhæðir eru án trygginga. Til þess að leysa tfma- bundna erfiðleika bankans af þessum völdum hefur bankaráð Alþýðubankans hf. í dag undir- ritað samning við Seðlabankann um tiltekna aðstoð, sem hvort tveggja í senn tryggir hagsmuni innlánsaðila bankans og skapar bankanum möguleika á eðlilegri útlánastarfsemi. Jafnframt leitaði bankaráðið eftir stuðningi Alþýðusambands Islands varð- andi eiginfjárstöðu bankans og studdi sambandið mjög að samn- ingunum við Seðlabankann og miðstjórn þess hvatti með ein- róma ályktun til öflugs stuðnings verkalýðshreyfingarinnar við Al- þýðubankann hf. Bandaráðið samþykkti á fundi sfnum 7. desember 1975 að óska eftir opinberri rannsókn á við- skiptum eins stærsta viðskipta- aðila bankans og leysti jafnframt bankastjórana frá störfum meðan sú rannsókn stendur yfir. Fyrst um sinn mun bankinn vera undir beinni stjórn bankaráðsins.“ BJUGGUST VIÐ FJARUTSTREYMI Bankastjórar Alþýðubank- ans, þeir Óskar Hallgrímsson og Jón Hallsson vildu ekkert um þessa tilkynningu segja f gær- kvöldi. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Björn Þórhallsson, rit- ara bankaráðs Alþýðubankans og var hann spurður hvort eitthvað hefði borið á fjárútstreymi úr bankanum. Björn sagði, að svo hefði ekki orðið en að stjórn bankans hefði búist við þeim möguleika, ef ofangreindar ráð- stafanir Seðlabankaans og I Alþýðubankans hefðu ekki verið gerðar enda ýmiss orðrómur á kreiki. Sagði Björn 125 milljónirnar vera lán til Alþýðubankans og sagði hann þá tölu ekki þurfa að gefa neitt til kynna um skuld Air Viking. Seðlabankinn væri einnig að greiða fyrir bankanum með þessu fjármagni, þannig að hann geti ekki aðeins staðið þetta af sér heldur einnig haldið áfram eðli- legri starfsemi. Björn sagði að- spurður, að ekki væri heimilt að gefa upplýsingar um fjármál ein- stakra viðskiptaaðila, en hins vægar mætti búast við því að eitt- hvað kæmist upp á yfirborðið, þegar rannsókn málsins er hafin. Björn sagði, að bankaráð Al- þýðubankans hefði talið fulla ástæðu til að fara fram á opinbera rannsókn og sagðl að það væru fleiri fyrirtæki sem fengið hefðu mikla fyrirgreiðslu í bankanum og sem þörf væri á að athuga. En hann tók það fram, að í engum eða fáum þeirra tilfella væri fjár- munum beinlfnis hætt. „En hjá ekki stærri stofnun er óhyggilegt að eiga mikið fé hjá fáum aðil- um“, sagði hann. Um framtíðarhorfur bankans sagði Björn, að í ljósi þess góða stuðnings, sem hann hefði fengið hjá verkalýðshreyfingunni ætl- uðu forsvarsmenn bankans að leggja aftur á brattan og endur- vekja traust hans og teldu þeir að það myndi takast. ASÍ VILL STYÐJA ALÞYÐUBANKANN A fundi sínum á sunnudag gerði miðstjórn Alþýðusambands íslands eftirfarandi samþykkt: „Bankaráð Alþýðubankans h.f. hefur skýrt miðstjórn Alþýðusam- bands Islands frá því, að nýleg úttekt á fjárhagsstöðu bankans hafi leitt f ljós, að mjög verulega vanti á tryggingar fyrir skuldum Guðna Þórðarsonar og Air Viking h.f. við bankann. Telji bankaráðið hættu á, að bankinn verði fyrir útlánatöpum af þessum sökum. Einnig liggi fyrir, að verulegur hluti af ráðstöfunarfé bankans sé bundinn f útlánum til fárra aðila, sem valda muni bankanum erfiðri lausafjárstöðu fyrst um sinn. Alþýðubankinn hefur nú leitað til Seðlabanka Islands um láns- fyrirgreiðslu til að tryggja greiðslustöðu bankans og gera honum mögulegt að starfa á eðli- legan hátt. Miðstjórn Alþýðusambands Is- lands lýsir yfir eindregnum stuðningi við þessa fyrirgreiðslu- beiðni bankans. Mun miðstjórnin gera það sem í hennar valdi stendur til stuðnings bankanum, þannig að hann komist yfir þessa erfiðleika og geti áfram gegnt því hlutverki, sem honum er ákveðið í lögum. Jafnframt lýsir mið- stjórnin yfir þvf, að hún mun beita sér af alefli fyrir því meðal aðildarfélaga sambandsins, að sú aukning hlutafjár um 60 milljónir króna, sem heimiluð var á síðasta aðalfundi Alþýðubankans, komi til framkvæmda eins fljótt og framast er unnt.“ OFSÓKNARHERFERÐ Morgunblaðið spurði Guðna Þórðarson, forstjóra Air Viking um álit hans á aðgerðum banka- ráðs Alþýðubankans og stjórnar Seðlabankans. Hann hafði þetta að segja: „Ég tel þetta vera einstaka ofsóknarherferð og mér er ekki kunnugt um neinar hliðstæður slfkra ofsókna í viðskiptalífi hér á landi. Ég hef sannanir fyrir þvf, að bankastjórar Seðlabankans standa á bak við þessa ofsókn og stjórni aðgerðum öllum. Ég mun lýsa nánar á blaðamannafundi á morgun (þ.e. f dag,) hvernig hér er um að ræða glórulaust ofstæki og ofsókn á okkar fyrirtæki og ég kann enga aðra skýringu á þvf en að þar liggi á bakvið óeðlilegar hvatir, sem hljóti að vera við- skiptalegs eðlis.“ Um skuldir Air Viking sagði Guðni, að fullyrðingar um að skuldirnar við Alþýðubankann væru óeðlilegar væru út f hött. Sagðist hann telja að fullkomlega eðlileg trygging væri fyrir þeim. „Ég held raunar að séu þessi við- skipti borin saman við ýmislegt annað í þjóðfélaginu og viðskipta- lífinu, þá séu það æði mörg við- skiptin sem síður myndu þola að sjá dagsins ljós,“ sagði Guðni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.