Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 17 ÞAÐ er ekkert vafamðl að lið Gummersbach er mun betra en v-þýzka landsliðið, enda gjör- þekkja leikmenn liðsins hver annan og hafa gffurlega reynslu. Mér fundust þeir ekki leika á fullu gegn Vfkingunum hér I dag og t.d. vera lélegri I þessum leik heldur en þegar þeir unnu okkur með sömu markatölu fyrir viku sfðan. Það var Axel Axelsson sem mælti þessi orð í viðtali við Morg- unblaðið á sunnudagskvöldið, en hann kom til Kölnar síðdegis á sunnudaginn og fylgdist með leik Víkings og Gummersbach. Sjálfur var Axel einnig i eldlínunni um helgina, er lið hans — Dankersen — sigraði Salzburg 19:14 á Evr- ópukeppni bikarhafa. Axel gerði 7 mörk í leiknum, átti góðan leik og var markhæstur. Það er því enn eitt ,,íslenzkt“ lið með í Evr- ópukeppninni, þó svo að bæði Víkingur og FH hafi verið slegin út í fyrri umferðinni. Ólafur H. Jónsson lék ekki með Dankersen í leiknum gegn Austurríkismönn- unum. Hann meiddist á höfði i leiknum við Gummersbach á dög- unum og fékk því hvíld í leiknum við Salzburg, enda reyndar ekki eftir miklu að slægjast að vera með í þeim leik. og er að félagar minir aðrir hér í Dankersen-Iiðinu kunna heldur lítið fyrir sér í línuspili, sagði Axel. áij Asgeir skoraði STANDARD Liege, lið Ásgeirs Siqurvinssonar i Belgiu, vann þýðingarmikinn sigur i leik sinum við Lokeren á sunnudaginn. 2—1 urðu úrslit leiksins og skor- aði Ásgeir fyrra mark Standard I leiknum. Hefur Standard Liege nú hlotið 20 stig i 1. deildar keppninni en FC Brugge er i for- ystu með 23 stig. Mikil barátta er á toppnum, þar sem Standard er aðeins I 5. sæti i deildinni, þótt ekki muni nema 3 stigum á þvi og toppliðinu. Lið Guðgeirs Leifssonar, Charleroi. gerði jafntefli við Antwerpen á sunnudaginn 1 — 1 og hefur þar með hlotið 8 stig í deildarkeppninni. Guðgeir lék ekki með liði sinu að þessu sinni. I IDrúttlr | Eitt „íslenzkt” lið áfram í Evrópokeppni Ellert hlaut nær einróma stnðningsvf irlvsingu Gylfi Þórðarson og Hilmar Svavarsson nýir menn í stjórn KSI — Þeir léku algjöran göngu- bolta í leiknum og við stóðum óg horfðum á þá hnoða boltanum á milli sfn 20 mínútur í hvorum hálfleik og þegar við svo fengum boltann brunuðum við upp og oft- ast var skotið eftir stutta stund, sagði Axel um þennan leik. — Við unnum þá 28:13 í fyrri leiknum, sem fram fór í Austurríki og því var það aðeins leiðinlegt forms- atriði að spila seinni leikinn. Hefði Ólafur verið með í leiknum, hefði hann örugglega skorað ein 10 mörk, því línan var alltaf gal- opin. Það var þó ekki hlaupið að því að koma knettinum inn á lín- una, því ég verð nú að segja eins ÁRSÞING Knattspyrnusambands ís- lands var haldið að Hótel Loftleiðum um helgina. Var þingið mjög vel sótt og á því urðu miklar og fjörugar umræSur um hin ýmsu málefni knattspyrnuíþróttarinnar. Komu allmargar tillögur bæði frá stjórn KSÍ og einstökum aðilum til umræðu og afgreiðslu á þinginu. Starfsemi KSÍ var með miklum blóma á starfsárinu 1 9 7 5—1975, svo og fjárhagur sambandsins, en hreinn rekstrarafgangur þess var um 4 milljónir króna Spenna við stjórnarkjör Að venju var mikil spenna samfara stjórnarkjörinu á KSI-þinginu. Horna- fundir voru vinsælir og ýmiss konar bræðingur fór fram að tjaldabaki. Þegar kom að formannskjöri á sunnu- dagskvöldið kom aðeins tillaga um einn mann, Ellert B. Schram Þar sem hann hafði sætt talsverðri gagnrýni fyrri dag þingsins fyrir að taka laun fyrir að safna auglýsingum fyrir KSÍ á Laugardalsvöllinn i sumar sem gáfu KSÍ drjúgar tekjur fór hann fram á, að þó hann væri aðeins einn í framboði, að leynileg atkvæðagreiðsla færi fram í þeirri atkvæðagreiðslu hlaut Ellert 118 atkvæði af 125 og fékk þessi dugmikli formaður KSÍ þvi nær ein- róma stuðning KSÍ þingsins Þrír menn áttu að ganga úr stjórn KSÍ að þessu sinni, Jens Sumarliða- son, Jón Magnússon og Páll Bjarna- son. Var Jens sá eini þeirra, sem gaf kost á sér til endurkjörs, en auk hans komu fram tillögur um þá Gylfa Þórðarson frá Akranesi, Hilmar Svavarsson úr Fram, Bergþór Jónsson Hafnfirðing, Jóhann Baldursson úr Kópavogi og Gísla Sigurðsson, Val Atkvæði féllu þannig, að kjöri náðu Jens með 91 atkvæði, Gylfi með 70 atkvæði og Hilmar með 69 atkvæði Gisli halut 52 atkvæði, Bergþór 48 og Jóhann 39 atkvæði. Til varastjórnar var stungið upp á Bergþórt, Gisla Sigurðs., Jóhanni, Vil- helm Andersen og Gisla Má Ólafssyni Kjöri til varastjórnar náðu Gisli Már með 93 atkvæði, Bergþór með 76 atkvæði og Vilhelm með 66 atkvæði Gísli fékk 65 atkvæði og Jóhann Baldursson 62 atkvæði Hættur eftir 23 ár og 1007 fundi Þrir heiðursmenn sem starfað hafa i langan tíma fyrir knattspyrnuhreyfing- una hættu störfum sem stjórnarmenn i KSÍ á siðasta ársþingi Voru það þeir Jón Magnússon, Páll Bjarnason og Vilberg Skarphéðtnsson Jón hefur lengst starfað í stjórn KSI af þeim þremenningunum og hefur hann setið i stjórn sambandsins und- anfarin 23 ár og fundir hans i stjórn KSÍ eru orðnir 1007 Við ræddum við Jón að loknu KSÍ-þinginu á sunnudag- inn og sagði hann að þvi væri ekki að neita að viss söknuður sækti að honum er hann sliti sig nú frá stjórnarstörfum í KSÍ. — Það hefur farið mikill timi i þetta hjá manni, en þeim tima hefur verið vel varið, sagði Jón — Ég hef starfað með fjórum formönnum KSÍ, fyrst Sigurjóni Jónssyni og siðan þeim Björgvin Schram, Albert Guðmunds- syni og Ellert B Schram Allt miklir sómamenn, eins og yfirleitt allir þeir sem ég hef starfað með hjá KSÍ. félags- lega þroskaðir og einstakir dreng skaparmenn Voru Jóni þökkuð giftudrjúg störf fyrir KSÍ með gjöfum og góðum orðum við lok þingsins á sunnudaginn Fram og Breiðablik prúðustu liðin Knattspyrnusambandi íslands barst i vor gjöf frá frönskum unnanda knatt- spyrnunnar, fagrar styttur. sem árlega skulu veittar þeim félögum i 1 og 2 deild, sem prúðmannlegasta knatt- spyrnu þykja sýna Voru styttur þessar afhentar á KSÍ-þinginu og hlutu Fram i 1 deild og Breiðablik i 2 deild gripi þessa Við ákvörðunina um það hvaða lið væru prúðust var tekið tillit til bókana i íslandsmóti í 2. deild fékk Breiðablik nokkru færri bókanir en önnur lið. en i 1 deildinni var mjórra á mununum þvi bæði Fram og FH fengu 5 bókanir Hins vegar fengu FH-ingar fleiri bókan- ir i bikarkeppninni en Framararnir Vik- ingur og Valur fylgdu Fram og FH svo fast á eftir með 6 bókanir hvort félag Breytingar á stjórn og þinghaldi Að sjálfsögðu voru mörg mál til umræðu á þinginu en þau sem mesta athygli undirritaðs vöktu voru breyt- ingar á stjórn og þmghaldi hjá KSÍ. Þannig var fjölgað i stjórn KSÍ og í framtiðinm mun einn fulltrúi frá hverj- um landsfjórðungi eiga sæti i stjórn KSÍ Fjöldi þingfulltrúa á þingi KSI verður mun minni á næsta þingi held- ur en t d núna er 127 fulltrúar áttu rétt á þingsetu í framtiðmni mun hvert félaganna i 1 deild eiga rétt á þremur fulltrúum, liðin i 2 deild á 2 hvert og liðin i þriðju deild eiga rétt á einum fulltrúa hvert Ýmis önnur mál voru til umræðu og sköpuðu reyndar mun meiri umræður en ofangreind mál Þannig var t d ákveðið að leikmenn 5 flokks megi i framtíðinni leika á knattspyrnuskóm með tökkum Allir knattspyrnuvellir, sem leikið verður á i komandi lands- mótum skulu vera kannaðir og metið hvort þeir teljist hæfir til að nota þá fyrir leiki i landsmótum Fjárhagur lið- anna i 2 deild var mjög til umræðu og margt fleira mætti telja til af málum þeim sem til umræðu voru, en of langt mál er að rekja það hér 16 milljén króna velta hjá KSÍ og tekjnafgangnr var nm 4 millj. NIÐURSTÖOUTÖLUR á rekstrar- reikningi Knattspyrnusambands islands árið 1974—1975 voru hvorki meira né minna en 16,3 milljónir króna. Var8 rekstrar- hagnaður sambandsins á árinu1 rösklega 4 milljónir króna sem telja verður mjög góða útkomu þegar tekið er tillit til þess hversu glfurlega mörg og viðamikil verk- efni sambandið hafði á sinni könnu á starfsárinu. Það sem fyrst og fremst gerir gæfumuninn hjá KSÍ að þessu sinni er sú mikla aðsókn er varð að landsleikjunum fimm sem leiknir voru á Laugar- dalsvellinum I sumar, en tekjur af þeim námu tæplega 9,2 milljónum króna, og eru þá reiknaðar með tekjur af sölu auglýsinga I leik skrá. Athyglisvert er að af þeim 16,3 milljónum króna sem KSÍ hafði I tekjur eru aðeins rösklega 800 þúsund krónur styrkur frá hinu opinbera sem kemur I gegn- um fSÍ. Auk þess fékk KSÍ svo 200 þúsund króna byggingastyrk frá fSf vegna nýbyggingarinnar I Laugardal. Samkvæmt efnahagsreikningi sambandsins er hrein eign þess nú um 8 milljónir króna, en raunveru- leg eign þess er þó langtum meiri þar sem verðbólgan hefur séð um margföldun verðs á húseign sam- bandsins, þótt bókfært verð hennar sé ekki nema 6.1 milljón króna. Það var landsleikur fslands og Sovétrlkjanna sem gaf KSÍ mestar tekjur iandsleikja s.l. sumar eða 2,391 millj. króna. Landsleikur við Noreg gaf 2.370 milljónir króna, landsleikur við A-Þjóðverja gaf 2,109 millj. króna, landsleikur við Frakka 1,576 millj. króna og landsleikur við Færeyinga 381 þúsund krónur. Þá námu tekjur KSÍ af þáttökugjöldum I landsmót- um kr. 851 þús., hagnaðarhlutur af Getraunum var 460 þúsund krónur og af öðrum stórum tekju- liðum KSÍ má nefna hagnað af bingói 452 þús. kr , og hagnað af auglýsingum á Laugardals- vellinum 1,304 millj. króna. Gjaldamegin á rekstrarreikningi KSf er kostnaður vegna landsliða lang stærsti liðurinn og nemur um 8 milljónum króna. Hæsti liðurinn þar er ferðakostnaður vegna landsliðsferðarinnar til Frakk- lands, Belgfu og Sovétrlkjanna en hann varð um 5 milljónir króna. Skrifstofukostnaður KSÍ var 1,1 milljón króna á árinu og af öðrum stórum útgjaldaliðum má nefna kostnað vegna Norðurlandaráð- stefnu 449 þús., verðlaunapen- ingar og áletranir 205 þús. kr. gengistap 213 þús. kr, og ársþingið 1974 en kostnaður við það nam um 206 þúsund krónum. í fjárhagsáætlun þeirri sem lögð var fram fyrir starfsárið 1975—1976 eru niðurstöðutölur rösklega 12,3 milljónir króna og er þar gert ráð fyrir að helzti tekjuliðurinn verði sem fyrr lands leíkir, en áætlað er að þeir gefi um 6,3 milljónir króna. Annars er fjár- hagsáætlun KSÍ fyrir árið 1975 talandi dæmi um það hversu óvænt hin glfurlega aðsókn að landsleikjunum I sumar var. KSÍ áætlaði að landsleikirnir gæfu 1.8 milljónir króna. en sem fyrr segir varð niðurstaðan 9.2 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.