Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 12
12 ---- ........................ 1 ■ ■ 1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 Æskulýðsráð ríkisins: 3500 manns á félags- málanámskeiðum ÆSKULÝÐSRÁÐ ríkisins hefur sl. 3 ár beitt sér fyrir samræmdu átaki í félagsmálafræðslu æskulýðsfélaga og? samtaka. Á vegum ráðsins var samið námsefni fyrir félagsmálanámskeiðin, einnig hefur ráðið veitt æsku- lýðsfélögum nokkurn fjárhagslegan stuðning við fram- kvæmd slíkra námskeiða. Ásókn í þetta námsefni hefur síðan vaxið mjög og hafa ýmis önnur félög ásamt skólum á öllum skólastigum óskað samstarfs og aðstoðar Æsku- lýðsráðs við slíka fræðslu. Á þessum þremur árum hafa verið haldin 140 féla^smálanámskeið og hafa þátttakend- ur í þeim verið samtals 3500. I fréttatilkynningu frá Æsku- lýðsráði ríkisins er bent á að meðal þeirra verkefna, sem mest eru aðkallandi i starfi æskulýðs- félaga óg -samtaka nú er þjálfun og fræðsla forystumanna þeirra og leiðbeinenda. Segir í til- kynningunni að með aukinni þekkingu á stjórnun og rekstri félaga og skipulegum vinnubrögð- um ásamt virkari þátttöku félags- manna i funda- og félagsstarfi megi efla mjög alla almenna félagsstarfsemi. Auk þess að beita sér fyrir að samið yrði námsefni fyrir félags- málanámskeiðin, hefur Æsku- lýðsráð ríkisins efnt til 8 nám- skeiða fyrir umsjónarmenn félagsmálanámskeiðanna og fór það siðasta fram um mánaðamót- in okt. — nóvember að Flúðum í Hrunamannahreppi og voru þar mættir 30 fulltrúar landssamtaka æskulýðsfélaga, héraðssambanda og íþróttabandalaga. Nú eru i undirbúningi fram- haldsnámskeiö fyrir þá, sem sótt hafa fyrrnefnd félagsmálanám- skeið og er mikill áhugi á slikum framhaldsnámskeiðum og segir i tilkynningu ráðsins, að þess sé vænzt að fjárveitingar til þessa þáttar í starfsemi Æsku- lýðsráðs ríkisins verði auknar, þannig að samning og útgáfa námsefnis og fjárhagslegur stuðningur ráðsins við námskeiðs- haldið geti orðið með eðlilegum hætti. Þessi mynd var tekin á jólafundi Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna, f Átthagasal Hðtel Sögu s.L þriðjudagskvöld. Jólafundirnir hafa jafnan verið mjög vel sóttir, og var svo einnig að þessu sinni. INNLENT 12 ákeyrslur og vitni vantar að þeim öllum 59 af 60 Húsvlking- um hættu að reykja Spara sér 4 milljónir á ári Á ÁRI hverju verða tugir ef ekki hundruð bifreiðaeig- enda \ Reykjavik fyrir því að ekið er á bifreiðir þeirra og þær skemmdar, en sökudólgurinn stingur af án þess að láta vita af sér. Bíleigandinn stendur uppi með skaðann, nema þá að takist að hafa upp á tjónvaldinum. Er helsta vonin að auglýsa eftir vitn- Föstudaginn 7.11. Laust fyrir kl 20 45 var ekið á bifreiðina R-32994 Mercury fólksbifreið þar sem bifreiðin var i stæði að Leifsgötu 18 Dökk- græn Volkswagenbifr sást fara um götuna umrætt sinn og að sögn sjónar- votta var henni ekið á bifr R-32994, en ökumaður stakk af Hann er beðinn um að gefa sig fram við rannsóknarlög- regluna Skemmdir v afturhlið og höggvari Miðvikudaginn 12.11 var ekið á Minnispeningur um 200 mílurnar FYRIRTÆKIÐ ts-spor h.f. hefur nú hafið framleiðslu og sölu á minnispeningi í tilefni af útfærslu íslensku fiskveiðilög- sögunnar í 200 mílur. Minnis- peningur þessi er hannaður af > Jens Guðjónssyni gullsmið, sem einnig hannaði 50 mílna Land- helgispeninginn 1972. Land- helgispeningurinn 200 mílur 1975 er gefinn út með sam- þykki dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæzlunnar. A framhlið peningsins er merki Landhelgisgæzlunnar ásamt textanum: Island 200 mílur 15. okt. 1975. Myndin á bakhlið peningsins á að tákna fslenskan sjómann við vinnu sína á mörk- um 200 mílnanna. Peningurinn er framleiddur úr bronsi, silfri og gulli. um að ákeyrslunum I MorgunblaSinu, og hafa ótrú- lega margar ákeyrslur upplýst á þann hátt. Hér á eftir verður skýrt frá alls 12 ákeyrslum I Reykjavlk a9 undanförnu, og er það ósk rannsóknarlögreglunn- ar að þeir sem telja sig geta veitt einhverjar upplýs ingar um eftirfarandi ákeyrslur hafi samband við sig: bifreiðina Y-1 1 16, sem var mannlaus við húsið Lágmúla 9, og stungið af Sjónarvotta og ökum. vantar. H hlið og hurð voru dælduð Miðvikudaginn 12.11. milli kl 17.15—17 25 var ekið á bifr. R- 8757 Peugeot 404 rauða að lit þar sem bifreiðin var við verzl. Fossberg við Skúlagötu og dældaður afturhögg- vari og fl Ökum stakk af frá árekstrin- um 13.—14. nóv. var ekið á bifreiðina R-33835, rauðan Volkswagen á tíma- bilinu frá kl 1 8 30 þann 13. til 1 2.45 þann 14. nóv. og dældað vinstra fram- bretti, hurð og afturbretti. Bifreiðin stóð I botnlanga að raðhúsunum Snekkjuvog 3—9, og var fyrir framan nr 3 þegar ekið var á hana. Sá sem ók á bifr R-33835 stakk af og er beðinn um að gefa sig fram og svo vitni. Föstudaginn 14.11 var ekið á bif- reiðina R-45337 sem er Fiat 126 dökkrauður að lit. Ekið var á bifreiðina þar sem hún var i stæði við aðalbygg- ingu Háskólans Ákeyrslan varð milli kl. 08.00—10.35. Bifreiðin var skemmd á vinstra frambretti. farang- ursloki, hurð og dyrapósti Fimmtudaginn 20.11. var ekið á bifreiðina R-772 sem er Vauxhall Viva fólksbifreð. þar sem hún var við Heilsuverndarstöðina Barónsstlgsmeg- Framhald á bls. 30 Húsavfk, 6. des. f GÆRKVÖLDI kom saman ð Húsavfk 60 manna hópur sem hætti að reykja 9. nóvember á námskeiði fslenzka bindindis- félagsins. Þar ákváðu þeir sem hættu að reykja að stofna með sér félagsskap og var skipuð 12 manna undirbúningsnefnd til framhaidsstofnfundar. Leiðbeinendur námskeiðsins, Jón H. Jónsson og Gísli Auðuns- son læknir, og frumkvöðull að þessu námskeiði, Guðrún Sigfús- dóttir, komu á fundinn og munu starfa áfram með félaginu. Á framhaldsfundi á að kanna full- komlega raunverulegan árangur af herferðinni en vegna þess að fundurinn var boðaður með stutt- ■ um fyrirvara náðist ekki til allra námskeiðsmanna. Af þeim 60 sem mættu höfðu aðeins 4 tekið sigarettu og þrfr þeirra ekki nema nokkur stykki svo að segja má að 59 af þessum 60 séu hættir að reykja. Sparnaður þeirra í 26 daga nam krónum 292.600 en á ársgrundvelli mun sparnaðurinn verða rétt um 4 milljónir. Getið var framkominnar þings- ályktunartillögu um herferð gegn tóbaksreyningum og var lýst yfir ánægju með það að hún skuli fram komin, því með samstilltu átaki sé sýnilegt að markverðum árangri megi ná f þessum málum. fréttaritari. Morgunblaðið hafði samband við Hauk Logason hjá Kaupfélagi Þingeyinga og spurði hann hvort tóbakssala hefði minnkað f sam- bandi við herferðina miklu gegn tóbaksreyningum sem verið hefur í gangi f bænum að undanförnu. Sagði Haukur að sala á tóbaki hefði stórlega minnkað á undan- förnum vikum. Ný bók frá Leiftri: Launhelgar og lokuð félög KOMIN ER hjá Leiftri bókin „Launhelgar og lokuð félög“ eftir sænskan prófessor i trúarbragða- fræðum, Efraim Briem, en hann er látinn fyrir 30 árum. Bókin er tæpar 500 blaðsíður og Björn Magnússon hefur íslenzkað hana. Bókin var fyrst gefin út í Svíþjóð 1932. Höfundur segir svo í formála: „I riti þessu er gerð tilraun til að lýsa þróun launhelgafélaga á jörðu hér. Eins lengi og rann- sakandi hugur manns fær rakið, hefur djúpsett þrá eftir lífi, er dauðinn fær eigi grandað, verið rótfest í Iífi mannkyns. Þessi Framhald á bls. 13 HALLVEIGAHSTIG t Ö Handunnir W AFRiKANSKIR A ❖ LISTMUNIR VIRÐULEG JÓLAGJÖF U RAFTjíEKI 1,4f ^ ^ ,a. u, HUSGOGN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.