Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975 16 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Tíðindasamt hefur ver- ið á fiskimiðunum við landið að undanförnu og átök milli varðskipa, togara, verndarskipa og freigáta tíð. Það, sem fyrst og fremst vekur athygli við þessa atburði er, að varð- skipum okkar hefur orðið ótrúlega mikið ágengt við að trufla veiðar brezkra togara enda þótt við ofur- efli hafi verið að etja. Nokkrum sinnum hefur varðskipunum hreinlega tekizt að klippa á togvíra brezkra togara enda þótt að þeim hafi verið sótt úr öllum áttum af togurum, hjálparskipum, dráttar- bátum og freigátum. Ef at- burðarásin nú og í síðasta þorskastríði er borin saman kemur í ljós, að fyrst eftir að herskipin komu inn í íslenzka fisk- veiðilögsögu í maí 1973 duttu klippingar niður í byrjun en smátt og smátt tókst varðskipunum að hefja klippingar á ný þrátt fyrir nærveru herskipanna þá. Nú hefur varðskip- unum' tekizt þegar í stað, eftir innrás herskipanna, að klippa á togvíra hvað eftir annað og hafa því náð mun skjótari árangri að þessu sinni. Þessi mikli árangur ber auðvitað fyrst og fremst vitni einstæðri hæfni skip- herranna á varðskipunum og áhafna þeirra. Þeir eiga við ofurefli að etja og eru fáliðaðir, ýmist eitt eða tvö skip innan um fjölda brezkra togara, freigáta, hjálparskipum, dráttar- báta. Þeir hafa við þessar aðstæður sýnt af sér svo einstæða sjómennsku, að aðdáun hefur vakið í Bret- landi, þar sem hæfni í sjó- mennsku hefur verið í há- vegum höfð um aldir. Fyrir þessa hæfni, harðfylgi en um leið framkomu, sem er íslenzku þjóðinni til mikils sóma eiga skipherrar og áhafnir varðskipanna að- dáun og virðingu lands- manna allra. Sá árangur, sem varð- skipin hafa náð við svo erf- iðar aðstæður, skiptir miklu máli. 1 fyrsta lagi hefur þeim tekizt, sem fyrr segir, að trufla veiðar brezku togaranna meir en við mátti búast eftir að her- skipin komu inn í íslenzka fiskveiðilögsögu. Þýðingu þess ber ekki að vanmeta. I öðru lagi er ljóst, að þessi einstæði árangur hefur stórkostleg sálræn áhrif á brezku togarasjómennina. Þeim varð strax ljóst, að hin svonefndu hjálparskip og dráttarbátar gátu litla vernd veitt þeim gegn ís- lenzku varðskipunum og þess vegna kröfðust þeir herskipaverndar og fengu hana. Nú hafa vaknað efa- semdir hjá þeim um það, að herskipin geti skapað þeim frið til veiða og þeir hafa kvartað sáran undan lé- legri frammistöðu herskip- anna í viðureign við varð- skipin. Þau sálrænu áhrif, sem það hefur á brezka tog- arasjómenn að sjá, að jafn- vel hinn konunglegi brezki floti getur ekki veitt þeim óskoraða vernd til veiða á Islandsmiðum verða seint ofmetin. í þriðja lagi veldur árangur varðskipanna því, að þorskastríðið er stöðugt í fréttum, a.m.k. í Bret- landi og á meginlandi Evrópu og sjálfsagt víðar. Það verður því stöðugt erfiðara fyrir brezku ríkis- stjórnina að skapa það ástand á íslandsmiðum í krafti hervalds, að land- helgisdeilan við Island gleymist umheiminum og það eitt út af fyrir sig skap- ar vissan þrýsting á brezk stjórnvöld að láta af þessum ofbeldisaðgerðum. Nú á tímum á ,,stórveldi“ af því tagi, sem Bretland er, afar erfitt með að standa í löngu stríði við smáríki á borð við ísland án þess að almenningsálit- ið í nálægum löndum snúizt smátt og smátt á sveif með lítilmagnanum. En um leið og ástæða er til að fagna þeim árangri, sem varðskipin hafa náð skulum við ekki loka augunum fyrir því, að nú ríkir hættuástand á miðunum í kringum Iandið og lítið má út af bera til þess að ekki hljótist verra af. Tilraunir brezkra skipa til ásiglinga á íslenzk varð- skip eru mjög alvarlegar og óþolandi með öllu. En fréttir um, að skipherrar á brezku freigátunum hafi umboð til þess að beita skotvopnum án frekari samráðs við stjórnvöld í Bretlandi eru beinlínis ógnvekjandi. Þess verður að krefjast, að brezka ríkis- stjórnin geri ráðstafanir til þess að engin hætta verði á voðaverkum á íslands- miðum vegna þess, að skip- herrar á freigátunum hafi of frjálsar hendur og beri ef til vill ekki nægilegt skynbragð á það, hvað hlot- izt getur af því, ef farið er út fyrir viss mörk í þessari deilu. A.m.k. er alveg ljóst og fordæmi fyrir því úr síðasta þorskastríði, að slíkum aðgerðum af hálfu íslenzku varðskipanna er stjórnað úr landi og engar ákvarðanir teknar um beit- ingu skotvopna nema í fullu samráði við yfirstjórn Landhelgisgæzlunnar í landi. Upphaf hins þriðja þorskastríðs hefur verið harðara en áður eru dæmi um. Af hálfu okkar Is- lendinga er beitt því afli, sem við höfum yfir að ráða til þess að trufla veiðar brezku togaranna en það er þó gert innan vissra tak- marka. Við höfum nú yfir að ráða betri og hrað- skreiðari skipum en áður og árangur hefur ekki látið á sér standa. Það sýnir, að því fé er vel varið, sem eytt er til að efla Land- helgisgæzluna enda eru starfsmenn hennar að vinna að því að vernda þá lífsbjörg, sem afkoma þjóð- arinnar byggist á. Árangur varðskipanna Stóri bróðir byrstir sig Rússar hafa enn fordæmt til- raunir vestrænna kommúnista til að komast til valda með lýð- ræðislegum ráðum og það sýnir að hvergi nærri er lbkið kappræðum, sem skyndilega hófust um þetta efni í sumar. Síðasta viðvörunin frá Moskvu til vestrænna kommúnista er- á þá leið, að þeim beri að forðast „óleyfi- legt“ samkomulag við lýðræðis- flokka í því skyni að „tryggja sér aukabandamann eða þúsund aukaatkvæði í kosning- um“. Viðvöruninni er augljós- lega beint gegn ítalska flokkn- um og þeim franska, sem þegar hafa vísað á bug svipaðri við- vörun, sem var beint til þeirra i grein i Pravda í ágúst, á þeirri forsendu, að með þessu móti sé verið að hlutast til um innri málefni þeirra. Þó halda mennirnir i Moskvu uppteknum hætti — og þó reyna þeir á sama tíma að telja þá á að sækja ráðstefnu evrópskra kommúnistaflokka, sem Brezhnev vonast til að geta kallað saman fyrir sovézka flokksþingið í febrúar. Hvaða skýring er á þessu framferði Rússa? Eina hugsanlega skýringu er að finna í valdabaráttunni f Kreml, sem leiðir til þess af eðlilegum ástæðum — á sama hátt og svipaóar sviptingar fyrr á árum — að innbyrðis orða- skak harðnar og sömuleiðis inn- byrðis átök ólíkra flokksbrota. Það virðist að minnsta kosti einsýnt að sum öfl I Kreml hafi reynt að torvelda Brezhnev að fá vilja sínum framgengt. Hann hefur bæði einsett sér að hitta Ford forseta að máli og halda ráðstefnu evrópskra kommúnistaflokka en því nær sem dregur sovézka flokks- þinginu virðast vandkvæðiri á því að af þessum fundahöldum geti orðið aukast stöðugt. Brezhnev hefur vonað að þess- ir tveir fundir gæti aukið það álit, sem hann telur sig hafa sem röggsamur og dugandi flokksforingi, sem eigi skilið að halda stöðu sinni svo hann geti haldið áfram að vinna heilla- drjúg störf. Á svipaðan hátt getur verið að andstæðingar hans vilji sýna með þvf að koma f veg fyrir fundahöldin, að hann sé svo veikur, að hann eigi fullt í fangi með að ná fram yfirlýstum markmiðum sinum, að hann sé ekki eins röggsamur og dugandi leiðtogi eigi að vera Brezhnev: þungur róður. Eftir Victor Zorza Foringjar franska og ftalska kommúnlstaflokksins, Georges Marchais og Enrico Berlinguer. Rússar vilja helzt ekki að þeir fari f stjórn. — og að ef til vill sé kominn tfmi til breytinga. En baráttan um markmið og leiðir er eins raunveruleg og baráttan um völdin og þetta tvennt er samtvinnað og óað- skiljanlegt eins og jafnan áður f Kreml. ítalski kommúnista- flokkurinn hefur gefið til kynna, að hann telji gömlu Pravda-greinina „sanninda- merki um kappræður, sem fari fram t Sovétríkjunum", En greinin i Pravda var eftir til- tölulega lágt settan flokks- starfsmann, Konstantin Zarodov, ritstjóra „World Marxist Review". Síðasta greinin er eftir miklu hátt- settari embættismann, Vadim Zagladin, sem er yfirmaður þeirrar deildar sovézka kommúnistaflokksins, sem annast samskipti við aðra kommúnistaflokka. Hann er persónulega viðriðinn mótun pólitískra ákvarðana — og deilurnar um þær. Þegar slíkur maður fordæmir vestræna kommúnista fyrir að hafa allan hugann við kosningar liggur við að um stefnuyfirlýsingu sé að ræða. En í sama tölublaði ritsins „Hin vinnandi stétt og heimur sam- tímans" og birti grein Zagla- dins birtist önnur grein um sama efni — sem virðist hnfga í þveröfuga átt. Zagladin varar vestræna kommúnistaflokka við þvf að tengjast lýðræðisflokkum svo nánum böndum, að þeir glati sérkennum sínum, Hann heldur því fram, að kosninga- hugleiðingar kommúnista muni valda því að þeir glati „byltingar“-einkennum sínum. Hann varar enn fremur við vanhugsaðri samvinnu við flokka andvfga kommúnistum. „Vafasöm brögð leiða aldrei til traustrar niðurstöðu", segir hann. Jafnvel þótt stefna þeirra hafi í för með sér tíma- bundinn ávinning, „verður að greiða hann dýru verði síðar.“ Hin greinin f sama tölublaði er eftir Timur Timofeyev, for- stöðumann Alþjóðaverkalýðs- málastofnunarinnar, rann- sóknarstofnunar Kremlar, sem kannar byltingarmögu- leika á Vesturlöndum. Timofeyev hefur tekið mikinn þátt í umræðunum í Kreml um horfur á byltingarlegum breyt- ingum á Vesturlöndum vegna „kreppu kapitalismans“. Síðast- liðið eitt eða tvö ár virðist af- staða hans hafa breytzt á þann veg, að fyrst var hann fylgjandi harðlínustefnu og sfðan frjáls- Iyndari stefnu, en nú sfðast harðlínustefnu á ný. I síðustu grein sinni leggur hann áherzlu á nauðsyn þess, að kommúnista- flokkar gangi til samstarfs við aðra flokka, en Zagladin leggur áherzlu á þá hættu, sem fylgi slíkum bandalögum. Kappræðurnar í Moskvu halda áfram. Zagladin er ekki eins harð- orður og Zarodov í Pravda, en rök hans eru hin sömu. Ymsir forystumenn vestrænna kommúnista töldu fyrri greinina lið í samsæri um að beina flokkunum frá hófsamri braut þeirra og spilla þannig fyrir möguleikum þeirra á þvf að mynda pólitfsk bandalög og taka sæti f samsteypustjórnum. Þá grunaði að valdamennirnir í Kreml ótuðust þá ógnun, sem einræðislegum þáttum sovézka kerfisins gæti stafað frá vest- rænu flokkunum er byggja á lýðræðislegri hefð, ef þeir fengju aðild að vestrænum rfkisstjórnum. Þegar fyrst var skýrt frá þessum grunsemdum í þessum dálkum áttu ýmsir vestrænir sérfræðingar bágt með að trúa Framhald á bls. 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.