Morgunblaðið - 09.11.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
17
Jón Ásgeirsson, Kanada;
Um gangbrautaslys
Myndin er slæm. Það var rigning, þegar ég tók hana á lélega vél. Á henni
sjást samt fjórir gangbrautaverðir. og einn vegfarandi að fara yfir. Þá sést
einnig, efst á myndinni. hvernig gangbrautir eru merktar. Krossinn er
upplýstur í myrkri.
Gangbrautaverðirnir eru með rauð (orange) belti um sig miðja og yfir aðra
öxlina. og flaggið er í sama lit. Þeir sjást því greinilega. Ég hef aldrei orðið
vitni að því, að þeim væri ekki hlýtt í einu og öllu. og ek ég þó hjá þeim á
tveimur stöðum að minnsta kosti einu sinni á dag.
(jrn Eiðsson
lágt framlag hins opinbera til
félagsmálastarfs íþróttanna. Þess
má einnig geta, að hvergi á
Vesturlöndum er eins vel búið að
íþróttastarfsemi og „íþrótta-
stjörnum" af hálfu hins opinbera
og á Norðurlöndum og í Vest-
ur-Þýskalandi, þar sem jafnaðar-
menn stjórna og hafa stjórnað
lengi. Þetta ætti Sigurður E.
Guðmundsson að hafa í huga og
taka sér til fyrirmyndar.
Nýlega voru lögð fram á Alþingi
fjárlög íslenska ríkisins. Upphæð
sú, sem íþróttahreyfingunni er
ætluð, er smánarlega lág og sú
sama og á síðasta ári, þó að dýrtíð
hafi aukist gífurlega. Ef kjörnir
fulltrúar á Alþingi ísiendinga sjá
ekki til þess að upphæðin hækki
verulega og meira en nemur
dýrtíðaraukningu er hætt við að
íslensk íþróttahreyfing verði þess
ekki megnug að starfa á eðlilegan
hátt. Því virðast nefnilega margir
gleyma, sem sífellt eru að puða við
að komast í stjörnuflokkinn á
iaunamarkaðnum, að íslensk
íþróttahreyfing er borin uppi af
sjálfboðaliðum í þúsundatali, sem
ekki hugsa um peninga fyrir sjálfa
sig. Ef starf þeirra að þessum
málum er ekki meira metið en hér
hefur verið lýst, er trúlegt, að
þeim fækki óðum, sem eyða
flestum frístundum sínum í þágp.
íþróttanna. ()rn Eiðsson.
myndirnar með listrænum blæ, og
sóma sér vel sem stofuprýði hvar
sem þær verða hengdar upp að
sýningu lokinni.
Það er svo umhugsunarefni öllu
venjulegu fólki að á sama tíma og
menn eins og Sigurður Gíslason og
Jakob V.. Hafstein taka sig saman
um að gleðja borgarbúa með þessu
listræna og menningarlega fram-
taki, þá eru einhverjir skuggalegir
menningarvitar á sveimi um
Klambratún og sækja nú að
Kjarvalsstöðum með hótunum um
að ieggja þar allt í rúst.
Magnús Sigurjónsson.
Leikarar
styðja
myndlist-
armenn
FÉLAG íslenskra leikara sam-
þvkkti á fundi sínum þann 4.
nóvcmber síðastliðinn að lýsa yfir
fullri samstöðu við kröfur Félags
íslenskra myndlistarmanna varð-
andi stjórnun á Kjarvalsstöðum
og styður bann félagsins eindreg-
ið. FIL hvetur um leið borgarfull-
ttúa til að leysa þetta mál hið
Skafið
rúðurnar
Þær hörmuiegu fréttir berast
frá Islandi, að tvær ungar telpur
hafi beðið bana í umferðarslysum.
Þær voru báðar á leið yfir götu á
gangbraut, er ekið var á þær.
Hér í Kanada er lögð mikil
áhersia áfgóða umferðarmenningu.
Eitt af því, sem vakti sérstaklega
athygli undirritaðs við komuna
hingað til Winnipeg var gang-
brautamenning akandi og gang-
andi vegfarenda.
Skólabörn læra umferðarregl-
urnar i skólunum, og einnig utan
þeirra. Þau eru látin taka virkan
þátt í því að bæta umferðarmenn-
inguna. Þar sem eru gangbrautir
nálægt skólum eru nemendurnir
látnir skiptast á vörslu. Þá fá þeir
sérstaka búninga og rauð flögg og
taka sér stöðu á gangstéttunum
við brautirnar.
Gangbrautaverðirnir sjá til
þess, að engir fari yfir göturnar á
gangbrautunum fyrr en þeir hafa
sjálfir gefið merki um að það megi.
Þá stíga þeir út á götuna og gefa
bílstjórum merki með handahreyf-
ingum, og flagginu, að þeir eigi að
stansa.
Það er svo ekki fyrr en allir
aðvífandi bílar hafa stansað, að
verðirnir gefa þeim, sem gangandi
eru, merki um að þeir megi fara
yfir. Bílstjórunum er loks gefið
merki um það, hvenær þeir mega
aka af stað aftur.
Allt fer þetta skipulega fram, án
allrar óvissu, — öryggið situr í
fyrirrúmi.
Þetta læra skólanemendurnir.
Flest barnanna verða síðar meir
bílstjórar, og þá kunna þau þetta,
og muna eftir þeim hættum, sem
geta verið í sambandi við gang-
brautir.
Þessa sjást líka merki. Þar sem
ekki eru gangbrautaverðir, en þeir
eru yfirleitt aðeins á mesta
annatímanum, og engin eru um-
ferðaljósin, — þar gefa þeir, sem
vilja komast yfir á gangbrautum,
ótvírætt merki um að þeir vilji
komast yfir. Fullorðnir eða börn.
Vegfarandinn stendur þá á
gangstéttinni og bíður eftir tæki-
færi. Réttir síðan fram höndina,
og fer yfir, þegar engir bílar eru
nálægt, eða nálægir bílar hafa
stansað. Ekki fyrr.
Hér eru þessi mál tekin föstum
tökum, hér er alvara á ferð, hér
eru mannslíf í veði.
SVONAEIGA
I IISBYGG.IEMHR
/ sýningarsölum okkarað Suðurlandsbraut 6
Reykjavík og Glerárgötu 26 á A kureyri, eru
margar ólíkar uppsettar eldhúsinnréttingar.
Þœr gefa ykkur góða hugmynd um hvernig
hœgt er að hafa hlutina.
Komið spyrjið okkur út úr um möguleikana
sem bjóðast — verð, afhendingartíma, greiðslu-
hagi :
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
skilmála ogyfirleitt hvað sem ykkur dettur í
hug.
Við tökum máU skipuleggjum og teiknum
ykkur að kostnaðarlausu og gerum tilboð án
skuldbindinga af ykkar hálfu.
Eldhúsinnréttingar frá okkur henta þeim er
gera kröfur um gœði.
Verslunin Glerárgötu 26,
Akureyri.
Sími: (96) 21507.