Morgunblaðið - 09.11.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
Mynd þcssi var tckin í bænum Ujire í Chikmagaiur. kjördæmi Indiru
Gandhi. fyrir kosningarnar þar á sunnudag. Stúdentar fóru í
hópgönRU til að mótmæla dauða ungrar stúlku, sem sagt er að
lögreglan hafi banað.
Indira Gandhi
endurreist
Bandarísku kosningarnar:
Eini blökku-
maðurinn f éll
Brooke missti sæti sitt í öldungadeildinni
Washington, 8. nóv. — AP
TALNINGU er ekki cndanlega lokið í kosningunum í Bandarikjunum,
en ljóst er að flokkur demókrata hefur áfram meirihluta þingsæta og
ríkisstjóraembætta, þótt rebublikanar hafi unnið nokkuð á. Kosið var
á þriðjudag um öll 435 sæti fulltrúadeildar þingsins 35 af 100 sætum
öldungardeildarinnar, og 36 af 50 embættum rík ríkisstjóra. Samfara
þessum kosningum greiddu kjósendur atkvæði um margvísleg
hagsmunamál, allt frá því hovrt takmarka ætti smíði kjarnorkuvera
til þess hvort unnt ætti að vera að kaupa gervitennur hjá tannsmiðum
jafnt og hjá tannlæknum.
Nýju Delhi, 8. nóv. AP.
INDIRA Gandhi fyrrum for-
sætisráðherra Indlands
vann yfirhurðasigur yfir
frambjóðanda stjórnar-
flokksins í aukakosningun-
um í Chikamagalur á sunnu-
dag. Illaut hún 249.376
atkvæði, en Veerendra Patil,
frambjóðandi Janataflokks-
ins 172.043 atkvæði.
Er þetta áfall fyrir ríkis-
stjórnina, sem tók við af
flokki Indiru Gandhis fyrir
tæpum tveimur árum. Þótt
Morarji Desai forsætisráð-
herra hafi reynt að láta
kosningarnar afskiptalausar,
héldu margir ráðherra hans
uppi harðri baráttu fyrir
kjöri Patils.
Þegar úrslit voru ljós lýstu
stuðningsmenn Indiru
Gandhi því þegar yfir að með
baráttu sinni fyrir kjöri
Patils hafi meðráðherrar
Desais gert aukakosningarn-
ar að nokkurs konar skoðana-
könnun á fylgi ríkisstjórnar-
innar, og tapað illilega.
Einn helzti stuðningsmað-
ur Indiru Gandhi, þingmað-
urinn F.M. Khan, sagði úr-
slitin sanna að hún væri
óumdeildur leiðtogi alþýðu
Indlands. Krafðist hann þesá
að nú þegar yrði efnt til
nýrra þingkosninga. Ólíklegt
er að þeirri kröfu verði
framfylgt, því að Janata-
flokkurinn hefur enn 304
þingsæti af 544 í neðri
málstofu þingsins, og því öll
völd í sínum höndum.
Indiru Gandhi hefur nú
verið boðið embætti leiðtoga
stjórnarandstöðunnar á
næsta þingi, sem kemur
saman 20. þessa mánaðar.
Óskaði hún eftir að fá frest
til að hugsa málið.
Samkvæmt þeim tölum, er fyrir
liggja, ættu demókratar á fá 58
sæti í öldungadeildinni í stað 61
áður, en republikanar 41 í stað 38.
Einn þingmanna er óhaður.
I fulltrúadeild virðast demó-
kratar hafa tapað 13 sætum, en
hljóta 275 sæti af 435, og því
öruggan meirihluta áfram. Þá
hafa demókratar tapað 5 ríkis-
stjóraembættum, en halda 32 og
republikanar fá 18.
Algengast er að flokkur ríkjandi
forseta tapi fylgi í kosningum á
miðju kjörtímabili forsetans, eins
og þeim sem nú fóru fram, og sagði
Jody Powell blaðafulltrúi Carters
forseta að úrslitin nú væru mikill
sigur fyrir demókrata.
Meðal þeirra þingmanna öld-
ungadeildarinnar, sem ekki náðu
kjöri, var Edward W. Brooke
republikani frá Massachusetts, en
hann var eini blökkumaðurinn,
sem sæti átti í öldungadeildinni.
Hann hefur átt í málaferlum
vegna hjónaskilnaðar, og eru þau
talin hafa dregið úr fylgi hans.
John Warner, sem kvæntur er
leikkonunni Elizabeth Taylor,
virðist hafa náð kjöri fyrir repu-
blikana til öldungadeildarinnar,
en þar munar litlu á atkvæðum, og
segist mótframbjóðandi hans ætla
að bíða átekta þar til öll atkvæði
hafa verið talin. Þrír fyrrum
þingmenn demókrata í fulltrúa-
deildinni höfðu verið ákærðir fyrir
fjármálamisferli, og náðu tveir
þeirra engu að síður endurkjöri,
þeir Daniel Flood frá
Pennsylvaniu og Charles Diggs frá
Michigan. Þrír af þingmönnum
demókrata frá Kaliforníu höfðu
hlotið vítur á þingi í sambandi við
mútugreiðslur frá Suður-Kóreu, og
voru tveir þeirra endurkosnir, þeir
Edward Roybal og Charles H.
Wilson.
Martha Keys fyrrum þingmaður
demókrata frá Kansas missti sæti
Sitt, en eiginmaður hennar,
Andrew Jacobs, var endurkjörinn í
Indiana. Þau voru einu hjónin,
sem sæti áttu í fulltrúadeildinni.
Auk kosninga á þing og í embætti,
voru greidd atkvæði um margvís-
leg hagsmunamál, sem fyrr segir,
pg skal hér drepið á nokkur þeirra.
I Oregonríki var tillaga um bann
við að nota opinbert fé til að greiða
fyrir fóstureyðingar hjá konum á
opinberu framfæri felld með
naumum meirihluta.
Kjósendur í Kaliforníu sam-
þykktu með yfirgnæfandi meiri-
hluta að dauðarefsing skyldi ná til
Þessi munur kom ljóslega fram.
á mótinu í Strasbourg, þar sem
rúmenska stjarnan Nadia Coman-
eci, sem var svo sigursæl á
Ólympíuleikunum í Montreal fyrir
tveimur árum, þá smávaxin og 14
ára, þurfti hvað eftir annað að
sætta sig við ósigur, enda orðin tíu
kílóum þyngri en þá.
fleiri glæpa en nú er gert ráð fyrir
í lögum. Kjósendur í Oregon
samþykktu einnig að taka á ný upp
dauðarefsingu fyrir ákveðna
glæpi.
55% kjósenda í Kaliforníu voru
andvígir því að banna eða tak-
marka reykingar á opinberum
stöðum.
Kjósendur í Montana sam-
þykktu með miklum meirihluta
atkvæða að setja svo strangar
hömlur á smíði kjarnorkuvera að
þar er nánast um algjört bann að
ræða.
Það var svo í Oregon sem
kjósendur samþykktu með 78%
greiddra atkvæða að þeir ættu á fá
keyptar falskar tennur hjá tann-
smiðum, en ekki eingöngu hjá
tannlæknum. Tannlæknar höfðu
varið um 410 þúsund dollurum til
að koma í veg fyrir þessa sam-
þykkt.
Loks voru víða samþykkt ákvæði
um takmörkun á sköttum og á
útgjöldum opinberra aðila.
Klein læknir kvaðst, hafa skoðað
myndir af þekktri sovézkri fim-
leikakonu þar sem greinilega má
sjá stöðuga rýrnun brjóstanna á
fjögurra ára tímabili.
Niels Peter Nielson forseti
danska fimleikasambandsins sagði
í þessu sambandi: „Mér líkar ekki
þessi þróun. Þarna eru litlar
stúlkur, sem ég hef grun um að séu
undir áhrifum lyfja... það er
verið að koma í veg fyrir að þær
verði konur.“
Brezkur sérfræðingur, sem ekki
vildi láta nafngreina sig, sagði að
samkvæmt þeim heimildum, sem
fyrir hendi væru, gæti vissulega
hugsazt að lyf væru notuð. En því
til sönnunar þyrfti nákvæmar
rannsóknir og nána samvinnu
viðkomandi íþróttakvenna.
Klein læknir skýrði frá því að
fyrir keppnina í Strasbourg hafi
fulltrúar ónefnds Austur-Evrópu-
ríkis krafizt staðfestingar á því
fyrirfram að ekki yrðu gerðar
neinar lyfjarannsóknir á keppend-
um.
„Ég er hræddur um að þessi
krafa þeirra sé sízt til þess fallin
að kveða grunsemdirnar niður,“
sagði Klein. „Þeir sem hafa ekkert
að fela hljóta að fallast á lyfja-
rannsókn." Hann bætti því við að
aðst.aða hefði verið til þess í
Strasbourg að kanna hvort kepp-
endur væru undir lyfjaáhrifum, en
að Yuri Titov forseti alþjóða
fimleikasambandsins, sem áður
var fimleikamaður í Sovétríkjun-
um, hafi ekki óskað eftir neinum
skoðunum. Aðspurður hafði Titov
aðeins sagt: „Fimleikamenn nota
ekki lyf.“
Khrushchev ekki í
náðinni hiá Brezhnev
Moskvu, 8. nóv. AP.
KOMINN er út í Moskvu þriðji
kafli af endurminningum
Leonids Brezhnefs forseta. og
nefnist hann „ónumið land".
Þar segir Brezhnev mcðal
annars að góður leiðtogi verði
að forðast „tíðar stefnubrcyt-
ingar" og „óyfirvegaðar
ákvarðanir. án samráðs við
aðra" — en þessir tveir lestir
leiddu að því er virðist til þess
að fyrirrennari Brezhnevs.
Nikita S. Khrushchev. var
vikið frá völdum.
Endurminningarnar birtast í
bókmenntatímaritinu Novy Mir,
og er þessi kafli 52 blaðsíður.
Endurminningarnar eru fjörleg-
ar og læsilega skráðar, en þar er
mjög lítið gert úr Khrushchev
og starfi hans, og hann aðeins
nefndur „N. S. Khrushchev“ án
þess að embættisheiti fylgi.
Khrushchev var vikið úr em-
bætti 14. október 1964, og hann
lézt sjö árum síðar.
Khrushchev.
Brezhnev lýsir Khrushchev
sem lélegum leiðtoga, er þver-
móðskaðist við að leita eða
þiggja ráð sérfræðinga.
Fyrsti kafli endurminninga
Brezhnevs nefndist „Malaya
Zemlya" og fja,llaði um herþjón-
ustu hans á dögum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Annar
kaflinn nefndist „Endurfæðing"
og fjallaði um hlutverk hans við
uppbyggingu iðnaðarins eftir
1945. Nýjasti kaflinn fjallar um
landbúnað, og þá sérstaklega
ákvörðunina frá 1953 um að
breyta ónumdum löndum í
ræktarlönd. Þótt þessi ákvörðun
hafi verið talin helzta afrek
Khrushchevs, neitar Brezhnev
honum um heiðurinn, en segir
ákvörðunina eiga rætur að rekja
til frábærrar framtakssemi
flokks og þjóðar.
Grunur um
lyfjatöku fím-
leikakvenna
París, 8. nóv. AP.
ÝMSIR sérfræðingar á Vesturlöndum halda því fram að fimleikakon-
ur í Sovétríkjunum og öðrum rikjum Austur Evrópu taki inn
„bremsulyf" til að tefja kynþroska.
Franski læknirinn Robert Klein. sem var yfirlæknir við nýafstaðna
heimsmeistarakeppni í íimleikum í Strasbourg, segist gruna að sumir
þjálfaranna frá Austur-Evrópu hafi notað lyf, sem hann kann ekki að
greina nánar. en það hafi áhrif á heiladingulinn og dragi úr
kynþroska. Aðrir læknar benda á að smávaxnar og lcttar
fimleikastúlkur skari fram úr stærri og þyngri stallsystrum sinum
vegna hagstæðara hlutfalls þyngdar og styrkleika.