Morgunblaðið - 09.11.1978, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matfhías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn GuAmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2200.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 110 kr. eintakið.
FRÁ FIDE-ÞINGINU OG SKÁKMÓTINU í BUENOS AIRES FRÁ I
Friðrik Ölafsson
forseti Alþjóða
skáksambandsins
Þegar þær fregnir bárust til íslands í gær, að Friðrik Ólafsson
hefði verið kjörinn forseti Alþjóðaskáksambandsins vakti
það almennan og innilegan fögnuð. Landsmenn allir hafa fylgzt
með skákferli hans og afrek hans hafa stuðlað meir að því en
nokkuð annað, á hversu háu stigi skáklistin stendur hér á landi. En
árangurinn af þeirri grósku kom m.a. fram í því að
heimsmeistaraeinvígi Fishers og Spasskys var haldið hér á sínum
tíma.
Forsetakjörið er mikill persónulegur sigur fyrir Friðrik
Ólafsson, ekki aðeins sem skákmeistara heldur kannski fyrst og
fremst sem mann. Með drengskap sínum og prúðmennsku hefur
hann unnið sér traust og viðurkenningu skákmanna víðs vegar um
heim, eins og stuðningsyfirlýsingar manna á borð við Kortsnoj og
Spassky bera glöggt vitni.
Þegar Friðrik Ölafsson ákvað að keppa að kjöri sem forseti
Alþjóðaskáksambandsins sagði hann m.a.: Eg tel að Alþjóðaskák-
sambandið sé komið á villigötur með afskiptum af pólitískum
hlutum sem ekki koma skákinni beint við. Einnig hefur sambandið
illa vanrækt ýmis málefni skákmanna sjálfra og þessum hlutum
hefði ég hug á að kippa í lag og um leið að gera útbreiðslustarfsemi
sambandsins sem og alla starfsemi þess sem öflugasta."
Af þessu má ljóst vera, að Friðriks Ólafssonar bíða mörg örðug
og vandasöm verkefni. Með kjöri hans má vænta þess, að
höfuðstöðvar Alþjóðaskáksambandsins flytjist til Islands, en það
getur að sjálfsögðu ekki orðið, nema honum verði búin til þess
fullnægjandi starfsskilyrði, sem tafarlaust verður að fara að vinna
að.
Buenos Aires 8. nóvember.
Frá Högna Torfasyni fréttaritara Morgunbladsins.
FRIÐRIK Ólafsson er orðinn forseti Alþjóðaskáksambandsins. Þetta er dagur íslands í
Argentínut Annar sigur íslands í Buenos Aires. Árið 1939 vann ísland Copa Argentina,
Argentínubikarinn. í dag unnum við Fide.
Þegar þingið kom saman í
morgun voru mættir rúmlega 90
fulltrúar eða umboð fjarverandi
landa. Loft var lævi blandið, allir
frambjóðendurnir voru vongóðir
og bjartsýnir um sinn hlut og
þrátt fyrir endalausan áróður og
ráð og leiðir til að afla einum eða
öðrum fylgis, vissi enginn hver
staðan var. Almennt var því trúað
að Friðrik og Gligoric næðu hærri
atkvæðatölu en Rabell-Mendes og
því yrði baráttan háð milli þeirra
tveggja fyrstnefndu. En margt fer
öðruvísi en ætlað er.
Eftir mikið málþóf og eftir
lélega fundarstjórn fráfarandi
forseta, var loks búið að velja þrjá
menn, sem skyldu annast talningu
atkvæða. Einn þeirra var
Guðmundur G. Þórarinsson, fyrr-
um forseti. Skáksambands íslands,
og einn af samverkamönnum
Friðriks hér á þinginu. Á milli
þess sem kosið var voru umræður
um ýmis dagskráratriði en loks
komu teljendur fram á sviðið og
Harry Golombek, framsögumaður
teljenda, las upp úrslitin úr fyrstu
atkvæðagreiðslu.
Þau úrslit komu eins og reiðar-
slag yfir þingheim allan: Rabell
Mendes 31 atkvæði, Friðrik Ólafs-
son 30, Svetozar Gligoric 29
atkvæði og einn seðill ógildur.
Menn trúðu vart sínum eyrum, að
Gligoric skyldi falla út í fyrstu
umferð. Því hafði enginn spáð og
menn höfðu almennt búizt við því,
að baráttan mundi standa á milli
hans og Friðriks. Ef til vill var það
þetta eina atkvæði, sem var ógilt,
sem réði þeim örlögum að Friðrik
Ólafsson er í dag forseti Fide því
að í raun og sannleika hefði enginn
vitað hvor þeirra ætti að falla út á
jöfnum atkvæðum, 30 fyrir hvorn.
Um það eru reglur Fide alls ekki
nógu ljósar og um þetta atriði var
spurt áður en atkvæðagreiðsla
hófs, en engin skýr svör fengust og
var það vafalaust vegna þess að
enginn hafði trú á að þessi staða
kæmi upp.
Loftið var rafmagnað í þing-
salnum hér á Sheraton. Það tók
menn nokkra stund að átta sig á
því að Gligoric, sem hafði verið
talinn sterkur frambjóðandi, var
búinn að vera og í skyndingi urðu
menn að söðla um og gera sér
grein fyrir því, hvort Rabell
Mendes eða Friðrik Ólafsson ætti
að verða næsti forseti Fide. Nú
kom í haginn að fulltrúar
íslendinga höfðu undirbúið jarð-
veginn. Eins og fram kom í viðtali
Mbl. við Gligoric fyrir fáum
dögum var hann spurður hvort
hann myndi styðja Friðrik ef svo
ólíklega tækist til að Gligoric
sjálfur félli út við fyrstu atkvæða-
greiðslu. Gligoric sagði þá fullur
sjálfstrausts og öryggis að slíkt
gæti aldrei skeð.
Þýfgaður um það kvaðst
Gligoric persónulega myndu
styðja Friðrik ef þessi staða kæmi
upp, þar sem hann teldi heppilegra
að stórmeistari skipaði forsetaem-
bættið. Við þessi orð hefur
Gligoric staðið í dag. Hann hefur
reynzt heiðursmaður, sem vill
standa við orð sín. Og enda þótt
hann segist ekki geta talað fyrir
munn stuðningsmanna sinna voru
það einmitt þeir, sem færðu okkur
sigurinn í dag. í rauninni er þetta
aðeins framhald af þeim við-
ræðum, sem forystumenn Skák-
sambands íslands, Einar S.
Einarsson forseti og Högni Torfa-
son varaforseti áttu í fyrrasumar
úti í Evien í Frakklandi eftir
aukaþing Fide í Lauzerne í Sviss.
Þá ræddum við við Baturinsky,
helzta ráðamann sovézka skák-
Fyrirlitning Sovét-
ríkjanna á manninum
Hér á íslandi er ákaflega auðvelt að fara háðulegum orðum um
þau almennu mannréttindi, sem rótgróin eru á Vesturlöndum
og okkur þykja jafn sjálfsögð og loftið sem við öndum að okkur.
Orði eins og þjóðfrelsi er af öfgamönnum og marxistum hampað til
þess að gera lítið úr þessu frelsi, — orði, sem Jón Sigurðsson forseti
beitti í baráttu sinni fyrir þeim lýðréttindum, sem nú eru orðin að
veruleika hér á landi, og helgaði þannig merkingu þess. Orðaskak
af þessu tagi er auðvelt, af því að viðkomandi þykist ekki eiga neitt
á hættu, af því að hann treystir því að hann fái áfram að njóta
lýðfrelsis hinna vestrænu þjóða, — en það lýsir um leið
óumræðilegri mannfyrirlitningu og skeytingarleysi fyrir örlögum
annarra.
Ákall skákmeistarans Viktors Korchnois til þings Alþjóðaskák-
sambandsins um að fá fjölskyldu sína til sín svo að hún þurfi ekki
að svelta áfram í Sovétríkjunum og búa við tortryggni, reiði og
fyrirlitningu stjórnvalda ásamt félagslegri einangrun kemur
hverjum einasta manni við. Hér eru ekki aðeins í húfi örlög fáeinna
einstaklinga, heldur er þetta spurningin um það, hvort mannkynið
nái því háleita marki að tryggja frelsi einstaklingsins, hvar sem
hann býr á hnettinum. I þeirri viðleitni eigum við Islendingar
ávallt að vera í fylkingarbrjósti og láta okkar rödd heyrast.
Stjömustríð á Alþingi
Ineke Bakker var í eær endurkjörinn framkvæmdastjóri Fide. Þessi mynd var tekin af
henni og Friðrik Olafssyni er Bakker kom hingaö til lands í fyrrasumar vegna
framboðs Friðriks.
Umræður utan dagskrár á Alþingi eru orðnar næsta
hversdagslegur viðburður, en þó farnar að vekja athygli. Ekki
fyrir þá sök, að þar séu mikilsverð mál tekin til umfjöllunar, heldur
fyrir hitt, hversu lítilfjörlegar þær umræður eru. Það var
dæmigert, þegar 12 alþingismenn fluttu um það langar ræður sl.
þriðjudag, hvort rétt væri staðið að ráðningu Magnúsar Torfa
Ólafssonar sem blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar eða ekki. Á meðan
biðu um 50 mál á dagskrá, en aðeins örfá þeirra voru tekin til
umræðu fyrir vikið. Þetta gerist á sama tíma og verðbólgan heldur
áfram að magnast, grundvellinum hefur verið kippt undan
heilbrigðum rekstri atvinnuveganna og fjárlög hafa verið lögð
fram, þar sem milljarða vantar til þess að endar nái saman. Til
umræðna utan dagskrár af þessu tagi er vitaskuld stofnað til að
láta ljós sitt skína, en útkoman verður sú, að afhjúpað er, að
viðkomandi aðilar hafa músarholu fyrir alheiminn. Ennfremur: að
á örlagastund fer fram „stjörnustríð" á Alþingi íslendinga.
Nú er það að vísu rétt, að nauðsynlegt er að hafa festu í
mannaráðningum hjá ríkinu. En það er líka rétt, að ríkisstjórninni
veitir ekki af Magnúsi Torfa Ólafssyni. Hann ber af henni sakir
umburðarlyndis og pólitísks þroska. Og í þessu sérstaka máli er
það aðalatriði, að hæfur maður hefur verið ráðinn blaðafulltrúi
ríkisstj órnarinnar.
Sigur hjá konunum
en karlarnir töpuðu
Buenos Aires, 8. nóvember.
ÍSLENZKA kvennasveitin vann
Púcrtó Rico á öllum borðum í 11.
umferðinni, en karlmennirnir urðu
að lúta í lægra haldi fyrir Ungverj-
um L3. Guðlaug Þorsteinsdóttir
vann Castellon, ()löf Þráinsdóttir
vann Rodrigues og Svana Samúels-
dóttir vann óvænt Paniagva, er hún
lék af sér drottningunni í betri
stöðu. Guðmundur Sigurjónsson
tapaði fyrir Portish, Helgi Olafsson
tapaði fyrir Ribli. Margeir Péturs-
son gerði jafntefli við Sax og
Ingvar Ásmundsson gerði jafntefli
við Csom. Eftir 11. umferðir hefur
karlasveitin þá 25 vinninga og
kvennasveitin er með 7'Æ vinning
eftir 4 umferðir í D-riðlinum.
Fyrir þessa viðureign höfðu ísland
og Ungverjaland teflt átta sinnum
saman á Olympíuskákmóti og var
staðan 22:10 fyrir Ungverja, þannig
að þeir hafa bætt um betur í þessari
viðureign. í fyrstu þrjú skiptin:
Hamborg 1930, Folkestone 1933 og
Stokkhólmi 1937, unnu Ungverjar á
öllum borðum. í Moskvu 1956 vann
íslenzka sveitin aftur á móti 3:1, í
Múnchen 1958 skildu sveitirnar
jafnar í Leipzig 1960 unnu Ungverjar
3:1. I Varna 1962 unnu Ungverjar
2.'h:\'h en í Nizza 1974 unnu
íslendingar með 2V^:1
ht.