Morgunblaðið - 09.11.1978, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
Stefna Sjálfstæðisflokksins verði
í heild mótuð og gerð markvissari
á næsta landsfundi
— segir í greinargerö með tillög-
um nefndar miðstjórnar flokksins
IV. Greinargerð
með tillögunum
Hér fer á eftir greinargerð með
tillögum þeim, sem settar eru fram
í kaflanum hér að framan. Þá er
jafnframt drepið á nokkur atriði,
sem rædd voru í nefndinni, en ekki
gerðar sérstakar tillögur um.
1. Málcfnaleg
stefnumótun
Það er skoðun nefndarinnar að
málefnastaða flokksins hafi ekki
verið nægilega sterk s.l. kjörtímabi
og sé það reyndar ekki enn. Ekki
var gengið til stjórnarsamstarfsins
1974 með nægilega traustan mál-
efnagrundvöll nema í landhelgis-
málinu og varnarmálunum, en í
þeim málum vann ríkisstjórnin sína
stærstu sigra. Vilji flokksins til að
leysa ýmis önnur vandamál þjóð-
félagsins kom ekki nægilega skýrt
fram og stefnan ekki mörkuð
nægilega ákveðið í öðrum málum.
Nauðsynlegt er í samsteypustjórn-
um að vilji flokksins sé skýr frá
upphafi, þannig að kjósendur geti
gert sér grein fyrir, hvar slá hefur
þurft af í málamiðlun við sam-
starfsaðila innan ríkisstjórnar.
Nota hefði þurft kjörtímabilið betur
til að koma fram ýmsum stærri
málum, sbr. kjördæmamálið, verk-
efnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,
tekjustofnakerfi sveitarfélaganna,
kerfisbreyting almannatrygginga
o.fl. Um málefnastöðu flokksins á
kjörtimabilinu vísast að öðru leyti
til úrdráttar úr svörum flokkssam-
taka um þetta efni í II. kafla
. þessarar greinargerðar. Verkefni
dagsins í dag hlýtur að vera að
svara því, hvernig bæta megi
málefnastöðuna og hvernig vinna
eigi að stefnumótun í framtíðinni.
Samkvæmt skipulagsreglum
flokksins mótar landsfundur stefnu
flokksins, en síðan miðstjórn og
þingflokkur. Landsfundarályktanir
flokksins eru ekki nægilega virtar
og í raun móta ráðherrar flokksins
og þingflokkur stefnuna í fram-
kvæmd. Störf málefnanefnda
flokksins hafa ekki gefið nógu góða
raun.
Nauðsynlegt er að vanda betur til
undirbúnings stefnumótunar á
landsfundi. Stefnan þarf á hverjum
tíma að vera mörkuð þannig að
tryggt sé að flokksmenn taki þátt í
stefnumótuninni frá grunni. Nefnd-
in telur nauðsynlegt að á næsta
landsfundi verði stefna flokksins í
heild mótuð og gerð markviss. Til
undirbúnings þessu starfi þurfa
málefnanefndir að vinna vel. Eftir
landsfund þurfa málefnanefndir
síðan áfram að starfa, þannig að
stefna flokksins fyrir næstu kosn-
ingar og reyndar í stjórnarandstöðu
á þessu kjörtímabili sé glögg og
ákveðin. Rétt er að málefnanefndir
komi á laggirnar óformlegum sam-
starfshópum um ýmsa málaflokka,
er séu opnir öllum, sem áhuga hafa
á. Jafnframt verði hverri málefna-
nefnd gert að skyldu að halda
ráðstefnu a.m.k. einu sinni á ári um
eitthvert mál, sem tilheyrir starfs-
sviði hennar. Slík ráðstefna sé
öllum opin, en að sjálfsögðu væri
unnt að haida hana í samvinnu við
ýmis flokkssamtök. Æskilegt er
einnig að málefnanefndir leiti eftir
sjónarmiðum sem viðast að m.a.
með fundarhöldum úti um land. Á
þennan hátt'verði reynt að virkja
áhugasama og hugmyndaríka
flokksmenn, þótt þeir séu ekki
sérstaklega kallaðir til formlegrar
setu í málefnanefndum. —
Nauðsynlegt er að móta heilsteypta
og markvissa stefnu flokksins á
næsta landsfundi — stefnu, sem
nauðsynlegt er að fylgja fram og
koma í framkvæmd. í því efni
skiptir miklu máli að þingmenn og
forystumenn flokksins starfi heils-
hugar með þeim, sem að málefna-
undirbúningnum vinna og að
flokkurinn veiti þeim aðhald, sem
dugir. I þessu efni verður að leggja
áherzlu á að stefnan í einstökum
málaflokkum sé markviss, en ekki í
formi óljósra ályktana. Til greina
kemur að málefnanefndirnar semji
lagafrumvörp eða drög að þeim auk
þess, sem nauðsynlegt er að þær fái
sem flest þingmál til meðferðar.
2. Skipulagsleg uppbygging
2.1. Forystusveit flokksins
Sú gagnrýni hefur komið fram að
forystumenn flokksins (formaður
og varaformaður) séu svo störfum
hlaðnir sem þingmenn og ráðherr-
ar, þegar flokkurinn er í ríkisstjórn,
að þeir geti ekki sinnt flokksstarfi
sem skyldi. Jafnframt sé æskilegt
að útvíkka forystusveit flokksins.
Því er gerð tillaga um, að lands-
fundur kjósi ritara flokksins og sé
verkefni hans fyrst og fremst að
starfa að innri málefnum flokksins.
Hann sé jafnframt formaður 5
manna framkvæmdanefndar (sjá
nánar tölulið 2). Ritari flokksins
þurfi að víkja úr því sæti, ef hann
verður ráðherra. I nefndinni voru
ræddar fleiri hugmyndir, sem uppi
hafa verið um forystumynstur
flokksins. Má þar einkum nefna
annarsvegar hugmynd um tvo
varaformenn, þ.e. 1. og 2. svo og
Ilér cr birtur síðari hluti greinargerðar nefndar þeirrar er miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skipaði til að
kanna orsakir úrslita kosninganna í vor og f jalla um skipulagsmál flokksins og fleira. Þessi kafli er
greinargerð með tiliögunum sjálfum. sem þegar hafa birst.
Nefndina skipuðu eftirtaldir. Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður, Ellert B. Schram, Inga Jóna
Þórðardóttir, Ingólfur Jónsson, Jón Magnússon, Pétur Sigurðsson og Sigurlaug Bjarnadóttir. Jafnframt
störfuðu með nefndinni Sigurður Ilafstein. framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Þorvaldur G.
Kristjánsson, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
ritara. Hinsvegar hugmynd um
þrískiptingu þ.e. formaður og vara-
formaður flokksins, miðstjórnar og
þingflokksins. Tillagan í tölulið 1.
hafði mest fylgi í nefndinni. Nefnd-
in telur það höfuðnauðsyn að
forystumenn flokksins vinni vel
saman og er það ein af meginkröf-
um, sem flokksmenn gera til sinna
forystumanna.
2.2. Framkvæmdanefnd
Miðstjórn flokksins er of fjöl-
menn til að geta verið hið virka afl í
innra flokksstarfi, sem þarf. Því er
gerð tillaga um, að eftir hvern
landsfund kjósi miðstjórn sérstaka
framkvæmdastjórn. Formaður
nefndarinnar sé ritari flokksins,
sem sérstaklega sé kjörinn af
landsfundi (sjá tölulið 1), en
miðstjórn kýs 4 menn. Verkefni
framkvæmdastjórnar eru í megin-
atriðum talin upp í tillögunum.
Framkvæmdastjórn skal starfa í
náinni samvinnu við framkvæmda-
stjóra flokksins, sem situr alla
fundi stjórnarinnar og er jafnframt
framkvæmdastjóri hennar.
Framkvæmdastjórn starfar í um-
boði miðstjórnar, sem leggur
meginlínur um flokksstarfið.
Fundargerðir framkvæmdastjórnar
skulu lagðar fram á fundum mið-
stjórnar, þar sem þær eru ræddar
eftir því, sem tilefni gefst til.
2.3. Aðrar nefndir
Lagt er til að skipulagsnefndin í
núverandi mynd verði lögð niður,
enda hluti af verkefnum hennar
lögð undir framkvæmdastjórn. Þess
í stað verði settar á stofn tvær
nefndir, þ.e. útbreiðslu- og áróðurs-
nefnd, sem hafi með höndum
daglega upplýsingamiðlun flokksins
svo og fræðslunefnd, sem annist
grundvallar fræðslustarfsemi. í
tillögunum eru verkefni þeirra
nánar skilgreind.
2.4. Flokkssamtök
Raddir hafa heyrst um það, að
rétt sé að afnema þá skiptingu, sem
tíðkast hefur, þ.e. að sérstök félög
séu fyrir ungt fólk, sérstök félög
fyrir konur o.s.frv. Nefndin telur
ekki efni til að breyta núverandi
skipan. Líklegt er að í heild séu
fleiri einstaklingar virkjaðir til
starfa með núverandi skiptingu,
þótt viðurkenna verði að á vissum
stöðum er erfitt vegna fólksfæðar
að halda uppi mörgum félögum. Það
verður þá að vera mat heimamanna,
hvort rétt sé að leggja einhver félög
niður.
Enginn vafi er á því, að mörg
flokksfélög starfa mjög lítið og því
væri æskilegt að blása í þau lífi og
að verkefni þeirra verði fyrst og
fremst að útbreiða stefnu flokksins,
finna fólk til forystu í flokknum og
auka honum fylgi. Nefndin er
sammála um, að slaka beri á
skilyrðum þess, að félag njóti fullra
flokksréttinda, einkum varðandi
félagsgjöld félagsmanna. Vitað er
um mörg félög sem ekki uppfylla
þessar lágmarkskröfur, en æskilegt
er að þau hafi full réttindi.
Að öðru leyti leggur nefndin til,
að þegar í haust og vetur, verði
skipulögð stutt stjórnmála- og
félagsmálanámskeið í öllum kjör-
dæmum landsins. Verði þau skipu-
lögð í samvinnu við S.U.S., Lands-
samband Sjálfstæðiskvenna og
Verkalýðsráð. Jafnframt verði öll
samtök heimsótt til að kanna
ástand þeirra. Slíkt heimsóknar
„program" verði skipulagt af mið-
stiórnarskrifstofu (framkvæmda-
nefnd miðstjórnar og framkvæmda-
stjóra) og fari það eftir atvikum
hverjir heimsæki hvern stað.
Ákvörðun um það veröi tekin í
samráði við þingmenn.
Nefndin telur nauðsynlegt að
reynt verði að koma upp skrifstofu í
hverju kjördæmi, sjá nánar í þætti
um starfsmannahald flokksins.
Nefndin er eindregið þeirrar
skoðunar, að flokkurinn verði að
reyna að treysta stöðu sína innan
launþegasamtakanna. Nefndin telur
því nauðsynlegt að efla starfsemi
verkalýðsráðs og auka áhrif þess
innan flokksins. Tillögurnar eiga að
miða að því marki.
2.5. Þingflokkurinn
2.5.1. Sú gagnrýni er mjög hávær
meðal flokksmanna að ákvarðana-
taka þingflokksins sé ekki í nægi-
legu samræmi við vilja flokks-
manna og ályktanir landsfunda.
Þykir á það skorta að nægilegt
samráð sé haft við aörar stofnanir
flokksins eins og t.d. miðstjórn. Þá
hefur því og verið haldið fram að
stefnumótun þingflokks sé ekki
nægilega markviss. Tillögurnar
miða að því að reyna að bæta úr
þessum atriöum.
2.5.3. Allmiklar umræður hafa farið
fram um starfsmann þing-
flokksins, stöðu hans og verkefni.
Nefndin bendir á eftirfarandi
verkefni, sem nauðsynlegt er að
starfsmaðurinn annist:
a. Starfi sem einskonar blaðafull-
trúi þingflokksins. Veki meiri
athygli á störfum þingflokksins og
einstakra þingmanna en gert hefur
verið, hafi starfsmaðurinn sam-
bönd við blöð og fjölmiðla í því
sambandi.
b. Aðstoði þingmenn eftir föngum
við undirbúning mála og öflun
gagna.
c. Hafi frumkvæði að því, að
þingmál þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins fái meðferð hjá málefna-
nefndum.
Fram hefur komið að óheppilegt sé
að þingmaður sé jafnframt starfs-
maður þingflokksins. Starfsmaður
þingflokksins eigi að gegna því sem
fullu starfi og sé rétt að tengja
starfið frekar ýmsum öðrum störfum
á miðstjórnarskrifstofu frekar en
þingmennsku.
Bent er á, að þingmenn sæki um of
að vera kosnir í stjórnir ýmissa
ríkisstofnana eða ráð, sem hafa
stjórnun með höndum. í öðrum
löndum t.d. Noregi gegna þingmenn
ekki slíkum störfum.
2.6. Prófkjör.
Allmikil gagnrýni hefur komið
fram á prófkjör flokksins og beinist
hún einkum að eftirtöldum atriðum:
a. Barátta milli einstakra frambjóð-
Frá flokksráðs- og formannaráðstefnunni um helgina.
Hluti fundarmanna á einum fundinum á flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins um
helgina.