Morgunblaðið - 09.11.1978, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
I
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
X
Björgvin Björgvinsson verður undir smásjá íslenska landsliðsþjálíarans um næstu helgi ásamt þeim Ólafi
og Axel er lið þeirra leika saman.
Jóhann Ingi fer út
til að horfa á Ólaf,
Axel og Björgvin
Knattspyrnusnillingurinn
Johan Cruyff lék sinn síðasta leik
í fyrrakvöld. Cruyff lagði áherslu
á að leika kveðjuleik sinn með
Ajax. félaginu scm hann hóf íeril
sinn hjá fyrir 14 árum og átti
sínar ánægjulegustu stundir hjá.
Mótherjar Ajax voru leikmenn
Baycrn Munchen og 65.000
manns tróðu sér inn á leikvöll
Ajax í Amstcrdam. Leikurinn
varð til lítillar gleði íyrir Cruyff
fyrir þær sakir helstar, að
Bayern tók leikinn strax í sínar
hendur og þegar yfir lauk var
staðan 8—0 fyrir þýska liðið. Og
fjöldi manns yfirgaf leikvanginn
löngu áður en að lokaflautan
gall. Þetta er versta tap sem Ajax
hefur nokkru sinni orðið að þola
og eins, einn stærsti sigur sem
Bayern hefur nokkru sinni unnið.
Breitnar og Rummenigge skor-
uðu sín þrjú mörkin hvor, en
markavélin og fyrirliðinn Gerd
Miiller skoraði tvívegis.
Þrátt fyrir hina háðulegu með-
ferð, var Cruyff fagnað innilega af
mannfjöldanum og hann var eini
leikmaður Ajax sem nokkuð kvað
að í leiknum og í leikslok var hann
borinn á öxlum manna fram og
aftur um allan völl.
Eftir leikinn var Cruyff bitur og
sagði að leikmenn Bayern hefðu
misskilið hvað til stóð: — Það átti
að fara út og hafa gaman að þessu,
við lékum eftir engum kerfum.
Leikmenn Bayern höfðu á hinn
bóginn aðeins áhuga á að vinna
leikinn og léku sem um einhvern
úrslitaleik væri að ræða. Það átti
að fara fram knattspyrnusýning,
en vegna hugarfars Þjóðverjanna
fór sú áætlun út um þúfur.
Hér eftir mun snillingurinn
Cruyff aðeins leika einstaka sinn-
um í góðgerðaleikjum, en það er
einmitt það sem viðureignin í
fyrrakvöld var. Allur ágóöinn af
leiknum rann að beiðni Jóhanns til
hinna ýmsu góðgerðastofnana.
Einnig dálítið til hollenska áhuga-
mannasambandsins í knattspyrnu.
Geir Halisteinsson veröur meö landsliðinu í vetur
Kveðjuleikur
Cruff-0-8 tap
fyrir Bayern!
IA sigraði IBK 26-13
4
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
í BLAÐINU í gær, þar sem greint var frá úrslitum 3. deildar í
handknattleik, féll niður leikur ÍA og Keflavíkur en það var fyrsti
leikurinn sem fram fór í 3. deildinni. Leiknum lauk með sigri ÍA, 26—13.
þr.
KR mætir IR í
körfunni í kvöld
EINN leikur fer fram í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. KR
leikur við IR og fer leikurinn fram í íþróttahúsi Hagaskólans oghefst kl.
20.00.
Liðin eru nú jöfn að stigum í úrvalsdeildinni og búast má því við
miklum hörkuleik þeirra á milli. þr.
• Opna Stokkhólmsmótið í tennis fer fram dagana frá 6. til 11.
nóvember. Þetta er í 10. skipti sem mót þetta er haldið. Björn Borg
hefur, ótrúlegt nokk, aldrei unnið mót þetta. Hann verður meðal
kcppenda að þessu sinni og ef frá eru taldir þeir Jimmy Connors og
Guilermo Vilas, verða flestir toppmennirnir einnig með, þ.á m. Ilie
Nastase og Vitas Gerulatis. Það er engin smáfúlga sem keppt er um á
móti þessu. ein milljón sænskra króna, takk fyrir, og því verða fleiri
en Borg sem fýsa mun að vinna mótið. Á mcðfylgjandi mynd er Björn
ásamt unnustu sinni Mariönnu Simonescu.
FREKAR hljótt hefur verið um
íslenska landsliðið í handknatt-
leik að undanförnu. Máske ekki
nema eðlilegt þar sem engin
verkefni hafa verið. Landsleikirn-
ir sem áttu að fara fram við
Austur-Þjóðverja féllu niður.
Nú fer hins vegar að styttast í
að landslið verði valið til æfinga
og keppni því að í lok nóvember
tekur liðið þátt í handknattleiks-
móti í Frakklandi, eða nánar
tiltekið 28. nóv. til 2. des. Leikur
liðið þá við A- og B-lið Frakk-
lands, Túnis, Pólland og Alþýðu-
lýðveldið Kína.
Ætti þetta að geta verið góður
undirbúningur fyrir tvo landsleiki
við Dani sem eiga að fara fram hér
heima þann 16. og 17. des.
Til að kanna undirbúning fyrir
Frakklandsferðina o.fl. var rætt
við Jóhann Inga landsliðsþjálfara.
— Hvernig kemur þú til með að
haga undirbúningi undir þessa
landsleiki sem eru framundan?
Islenskir
handknatt-
leiksmenn
fá góöa
dóma í
erlendum
blöðum
í HINA virta í Vestur-þýska
íþróttablaði „Der Kicker“ er nú
nýiega fjallað um handknatt-
leikinn í 1. deildinni þýzku. Er
þar rætt um möguleika liðanna
á meistaratitli og fjallað er um
leikmennina í deildinni. Þeir
Olafur Jónsson og Axel Axels-
son fá báðir sérlega góð ummæli
í biaðinu. Sagt er að Ólafur sé
einn sterkasti varnarleikmaður-
inn í deildinni og jafnframt einn
besti línuspilarinn. Sagt er að
Axel sé einn sá skotfastasti í 1.
deild og markmenn eigi í mikl-
um erfiðleikum með skot hans.
Séu Islendingarnir mikilvæg-
ustu leikmenn Dankersein liðs-
íns.
Ólaíur H. Jónsson fær góða
dóma í' þýskum blöðum.
í danska blaðinu BT, er skýrt
frá því síðastliðin föstudag að
Aarhus KFUM væri með besta
markmannstríóið í 1. deildinni
dönsku um þessar mundir. Og í
því sambandi er getið um góða
frammistöðu Gunnars Einars-
son í undanförnum leikjum.
— Fyrst er mér hugleikið að
kynnast getu þeirra leikmanna
sem leika í Vestur-Þýzkalandi, og
þess vegna ætla ég að gera mér
ferð út um næstu helgi og horfa á
leik Dankersen og Grambke í
þýzku 1. deildarkeppninni. Þar
mun ég sjá Ólaf Jónsson, Axel
Axelsson og Björgvin Björgvins-
son. Þá mun ég einnig ræða við
þessa leikmenn og kynna mér
áhuga þeirra á þátttöku með
landsliðinu í verkefnum vetrarins.
Eg mun líka afla mér upplýs-
inga um þá Gunnar Einarsson og
Þorberg Aðalsteinsson sem leika
með Göppingen.
— Nú strax og ég kem heim eða
á mánudag mun ég velja landsliðs-
hóp til æfinga og munum við æfa
saman í fjóra daga í næstu viku.
Hugsanlega leika svo einn opin-
beran leik hér á móti einhverju
úrvalsliði.
Ég hef að undanförnu haft fundi
með þjálfurum 1. deildar liðanna
varðandi þjálfun ofl. og hafa
pólsku þjálfararnir verið mér
innan handar í þeim efnum.
— Ég er búinn að ræða við
okkar reyndasta handknattleíks-
mann, Geir Hallsteinsson, og hann
hefur gefið mér vilyrði fyrir því að
verða með í vetur og er gott til
þess að vita að landsliðið fái enn
að njóta krafta hans. Það mun að
sjálfsögðu ekki skýrast fyrr en ég
kem heim frá Þýzkalandi hvort ég
vel útlendinga í liðið eins og þeir
eru svo oft kallaðir.
— Hvað með Gunnar Einarsson
sem leikur í Danmörku?
— Jú, hann kemur sterklega til
greina eins og aðrir en ég hef ekki
kynnst mér ennþá hvort hann
hefur tök á því að verða með verði
hann valinn i' liðið.
Nú átti landsliðið að fá mynd-
segulband til afnota, bólar eitt-
hvað á því?
— Já, það er í pöntun og verður
væntanlega tekið í notkun á
næstunni, sagði Jóhann Ingi að
lokum.
þr.