Morgunblaðið - 24.05.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1979
5
Bændastéttin hef-
ur unnið sigur
— segir Eyjólfur Konráð Jónsson
„BÆNDUR hafa nú unnið þann
sigur, sem verkamenn unnu fyrir
hálfri öld, að fá fjármuni sína
beint í hendur og gera út af við
innskriftakerfið. Þetta er því sig-
ur bændastéttarinnar og kemur
sér vel að þessi sigur vinnst
einmitt nú í erfiðleikum þessa
harða vors“, sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson alþingismaður, er
blaðið ræddi við hann í framhaldi
af samþykkt þingsályktunar-
Eyjólfur Konráð Jónsson
tillögu hans og fleiri um beinar
greiðslur til bænda.
„Tillagan gerir ráð fyrir að
næsta skref í þessu máli verði í
höndum ríkisstjórnarinnar og það
er ánægjulegt að landbúnaðarráð-
herra hefur í blaðaviðtali lýst því
yfir að hann muni fela bönkum að
annast framkvæmdina varðandi
lánin, sem er sjálfsagt og eðlilegt.
Ég er sannfærður um að þetta
verður auðvelt í framkvæmd og
bankarnir munu sannfærast um
það einnig. En ef þeir verða í
einhverjum erfiðleikum með að
setja slíkt kerfi upp, er ég tilbúinn
að eyða með þeim dagstund til að
finna lausn á því verki.
Um síðari lið tillögunnar um að
niðurgreiðslur- og útflutningsupp-
bætur fari beint til bænda eins og
lánin eða að minnsta kosti að
niðurgreiðslurnar fari beint til
eiganda vörunnar, bændanna, þá
er það kannski mikilvægara
hagsmunamál fyrir bændur en
hitt, því þarna er um vaxtalausa
peninga að ræða.
í jafn gífurlegri verðbólgu eins
og hér er, þá segir það sig sjálft að
það skiptir sköpum fyrir eigendur
þessara fjármuna að fá þá sem
fyrst,“ sagði Eyjólfur að lokum.
Skrítin fugl —
ég sjálfur
Leikfélag Akureyrar frumsýnir næst-
komandi föstudagskvöld gamanleikinn
SKRÍTINN FUGL - ÉG SJÁLFUR
(Absurd Person Singlar) eftir enska
leikritahöfundinn Alan Ayckbourn.
Þýðinguna gerði Kristrún Eymundsdótt-
ir. Leikstjóri er Jill Brooke Árnason.
Leikmynd gerði Hallmundur Kristinsson en
Freygerður Magnúsdóttir annast búninga.
Leikendur eru Sigurveig Jónsdóttir, Gestur
E. Jónasson, Svanhildur Jóhannesdóttir,
Viðar Eggertsson, Þórey Aðalsteinsdóttir
og Theódór Júlíusson.
Skrítinn fugl — ég sjálfur er síðasta
verkefni Leikfélags Akureyrar á þessu
leikári.
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins Framsóknar veröur haldinn
sunnudaginn 27. maí kl. 14 í Alþýðuhúsinu viö
Hverfisgötu.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf.
Sýniö skírteini viö innganginn. Stjórnin.
Leonidas Lipovetsky leikur
með Sinfóníuhljómsveitinni í
kvöld.
Verk eftir Beethoven
'SINFÓNÍUHUOMSVEIT íslands nmn halda tónleika í Háskólabiói í
kvold og hefjast þeir kl. 20.JO. A þessuni tónleikum verða eingongu flutt
verk eftir Beethoven og verða á efnisskránni Leonara, forleikur nr. 3,
píanókonsert nr. 1 og sinfónía nr 1.
Illjómsvoitarstjóri á þessum tónleikum er Englentlingurinn John Steer.
Steer hefur vorið meðlintur í Fílharmóníuhljóntsveit Lundúna og N'ýju
Fílharmóníuhljómsveitinni. Hann hefur einnig starfað með hljómsveit-
unum Fires of Lomion, Aeadenty og St. Martins in the Fields. London
Sinfonietta og Kammersveit Yehudi Monuhins. Síðustu ár hefur hann
einbeitt sér að hljómsveitarstjórn og hefur nt.a. stjórnað Orchestra N’ova
of London og hljómsveitinni I’hilharmonia víðs vegar um heimaland sitt.
I’íanóleikari með hljómsveitinni að jiessu sinni verður Leonadis
Lijiovetsky og er hann fa'ddur i Uruguay. Hann hefur ferðast til
tónleikahalds um gjörvöll Bandaríkin, Kanada, Mið- og Suður-Ameríku
og Evrópu. Meðal hljómsveita sent hann hefur leikið með má nefna
Fílharmóníuhljómsveit Liverjiool og Tékknesku fílharmóníuhfjómsveit-
ina. Síðan liltifi hefur hann kennt sem prófessor i píanóleik við
Ríkisháskólann í Flórida. Leonidas Lipovetsky er kvæntur islenskri konu,
Astríði l'lfarsdóttur, og eru jiau húsett í Flórída í Bandaríkjunum.
kr. 51.890
SENDUM
BÆKLINGA
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Ennþá eru
fáein sæti
laus í
brottförunum
1. og 8. júní
— 3 vikur.
Gisting í íbúðum
Santa Clara, El Remo, La Nogalera,
Iris og Tamarindos.
Góðir og vel þekktir gististaöir.
Kynnisferöir til Granada, Marokko, Malag’a o.m.fl. [ Fer8askri«stofan
Austurstræti 17, vUTSYN,
símar 26611 og 20100
Næsta brottför 22. júní
— fá sæti laus.