Morgunblaðið - 24.05.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ1979
13
Næstbesti kosturinn er regluleg
fluortöflugjöf. Sú aðferð er hins
vegar háð þeim annmarka að
treysta verður á millilið, þ.e.
forráðamann barns til að aðferðin
nái tilgangi sínum. Þar er því
hætt við að of margir fari á mis
við þessa varnaraðgerð. Þá er
þessi aðferð ekki eins árangursrík
og vatnsblöndun og töluvert dýr-
ari. Sá skammtur sem börnum í
Reykjavík er látinn í té, 365 töflur,
kostar 292 krónur og hvert barn
þarf 1—3 glös á ári eftir aldri.
Fluorskolun og penslun og
fluortannkrem gera verulegt gagn,
en hvergi nærri því sem fluor-
blandað drykkjarvatn og regluleg
fluortöflugjöf gera. Þá dregur
regluleg tannlæknisþjónusta veru-
lega úr afleiðingum tannskemmda
og þeir sem njóta hennar á ungum
aldri og komast á fullorðinsár með
sæmilegar tennur eru ekki í eins
mikilli hættu eftir það.
Til þess að draga úr tann-
skemmdum og lækka kostnað við
þennan þátt heilsugæslu þarf því
samræmdar aðgerðir:
1) Hver einstakur tannlæknir
þarf að leggja meiri áherslu á
varnir gegn tannsjúkdómum og
fræðslu til sjúklinga sinna þar að
lútandi.
2) Tannlæknafélagið og opin-
berir aðilar þurfa að taka höndum
saman og koma af stað markvissri
upplýsingadreifingu á þessu sviði.
3) Tannlæknisþjónustu, sér-
staklega fyrir börn og unglinga,
þarf að skipuleggja og tryggja að
sem flestir fái notið hennar og til
þess er óhjákvæmilegt að til sé
landstarinlæknir, sem hafi veg og
vanda af því starfi á sama hátt og
landlæknir sér um aðra þætti
heilbrigðisþjónustu og skipu-
lagningu þeirra og hefur þar nóg á
sinni könnu.
4) Landstannlæknir þarf að sjá
um að fluor verði beitt á þann
hátt, sem best á við á hverjum
stað til að draga úr tannsjúkdóm-
um, afleiðingum þeirra og
kostnaði vegna þeirra.
A þann hátt má spara mikla
peninga, miklar þjáningar og
margar tennur.
Karlakór KeflavíKur
í söngför norður
Keflavík 22. maí
Að undanförnu hefur Karlakór Keflavíkur sungið fyrir Grind-
víkinga og Keflvíkinga við góðar undirtektir.
Á efnisskránni eru íslensk og erlend lög. Með kórnum syngja að
þessu sinni 4 einsöngvarar: Haukur Þórðarson, Jón M. Kristinsson,
Steinn Erlingsson og Sverrir Guðmundsson. Stjórnandi er Siguróli
Geirsson og undirleik annast Ragnheiður Skúladóttir.
Á uppstigningardag heldur kórinn í söngför um Norðurland og
syngur þá um kvöldið í Miðgarði í Skagafirði. Daginn eftir syngur
hann í Hafralækjarskóla í Þingeyjarsýslu.
Laugardaginn 26. maí lýkur söngförinni með því að sungið verður
fyrir Akureyringa í Borgarbíói.
Formaður Karlakórs Keflavíkur er Haukur Þórðarson.
Fréttaritari.
";;Á
77/ Luxemborg
eða lengra...
Luxemborg er fridsæll töfrandi
ferdamannastadur, mótaöuraf frönskum
og þýskum menningaráhrifum - þar
sameinast franska gladlyndid og þýska
nákvæmnin. Þarsem landid erlítid, erstutt
að skjótast til ýmissa stórborga í
nágrannalöndunum. Þannig er25 mínútna
akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og
klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur
þarsem frægustu fljótahéruö Evrópu
sameinast, á mótum Mosel og Rínar.
LUXEMBORG - EINN FJÖLMARGRA STAÐA
íÁÆTLUNARFLUGI OKKAR.
FLUGLEIÐIR