Morgunblaðið - 24.05.1979, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1979-
fltofgpsiiIiIaMft
símanúmer
FRETTABRÉF UR STYKKISHOLMI
V arpid hálf um mánuði
seinna en venjulega
HJ
10100
-a,
#
22480
Stykkishólmi 20. maí.
Sólskin og hægvirði hefir verið
hér seinustu daga, en kuldinn
geysimikill. Frost á hverri nóttu
og hiti sáralítill á daginn þótt sól
sé hátt á lofti. Frost er mikið í
jörðu og hefir engum dottið í hug
að setja niður í garða og er það
mun seinna en áður. Fuglinn enn
lítið farinn að verpa. Helst svart-
bakurinn og liggur hann þá fast á
og eggin fljót að stropa og unga.
Ber mönnum saman um að varpið
sé hálfum mánuði eða meir á eftir
því sem venja er. I mýrum eru
svell og klöknar ekki. Gróðurnálar
sjást ekki, allt sviðið og ömurlegt.
Sauðburður hefir gengið vel það
sem frést hefir hér úr nágrenninu
en allt orðið að bera inni og vaka
vel yfir. Um heyskort heyrir mað-
ur ekki talað enn sem komið er en
allir bíða í spenningu eftir að
sumarið komi.
I vikunni sem leið fór ég út í
eyjar og var þar sem annars
st.aðar kuidalegt um að lítast,
klaki á ölluin pollum og minna af
fugli en oft áður.
Ekki hefir maður enn orðið
mjög var við vöruskort þrátt fyrir
að skipin hafi stöðvast. Mikill
vöruflutningur hefir verið með
bifreiðum undanfarið, en með því
að þungatakmarkanir hafa verið
settar á vegi hefir þetta haft mjög
mikil óþægindi í för með sér.
Bílstjórarnir benda á að þótt
svona sé framorðið af vori, þá sé
frostið svo mikið í jörð að það nái
m
Vorferð Félags sjálf-
stæðiskvenna í vestur-
og miðbæjarhverfi
83033
ARLEG eftirmiðdagsfcrð með eldri
borgara í vcstur- og miðbæ, þ.e.
fyrir þá sem eru 65 ára og eldri,
verður farin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík n.k. laugardag 26. maí
kl. 13.30.
Ekið verður að Reykjalundi í
Mosfellssveit þar sem staðurinn og
uppb.vgging vinnuheimilis S.I.B.S.
verður kynnt. Einnig verður dælu-
stöð hitaveitunnar skoðuð og ekið
um nýb.vggð svæði í Mosfellssveit.
Að lokinni kynnisferð býður félagiö
þátttakendum til sameiginlegrar
kaffidrykkju í húsi Sjálfstæðis-
flokksins, Valhöll v/Háaieitisbraut.
Áætlað er að ferðinni Ijúki milli kl.
17 og 17.30 við Dómkirkjuna. Fólk er
beðið að tilk.vnna þátttöku sína í
síma 23Íj33 í dag, fimmtudag, milli
17 og 19. Aðeins þeir sem láta skrá
sig á áðurnefndum tíma tryggja sér
sæti í ferðinni.
Félag sjálfstæðiskvenna í vestur-
og miðbæjarhverfi Reykjavíkur hef-
ur undanfarin ár staðið fyrir ferðum
sem þessum eitt laugardagssíðdegi
að vori og hafa þær jafnan verið
fjölmennar.
vegunum ekkert þótt ekki séu
takmörk á þeim sem stendur. Var
mikill kurr í bílstjórum hér og
sérstaklega kom það sér illa fyrir
þá sem voru að flytja efni í
byggingar að þurfa að lúta þessu
að ástæðulausu en einhver lagfær-
ing hefir nú fengist.
Síðan netaveiðibannið kom hér
á hafa bátar stundað tog- og
handfæra veiðar. Gæftir hafa
verið fremur lélegar fyrri hluta
þessa mánaðar og því reynt að
minna á aflabrögð.
Á handfæri hefir verið reytings-
afli en meira fiskast í troll. Minni
bátar hafa verið með lóðir ásamt
handfærum og hefir verið góður
afli og allt að 2 lestir í veiðiferð af
sæmilegum fiski.
Byggingarframkvæmdir verða
með meira móti í sumar og hafa
báðar trésmiðjurnar hér meira en
nóg verkefni. Mörgum lóðum hefir
verið úthlutað í nýjum hverfum og
margir huga að því að byrja að
byggja og er því nóg að gera í
byggingariðnaði allt þetta ár. Má
segja að vanti fremur vinnukraft í
þá grein og er það gleðilegt til að
vita. Ekki er enn vitað hve margar
íbúðir verða í byggingu og fer það
eftir því hvað trésmiðjurnar geta
tekið að sér.
Fréttaritari.
Starfsstúlknafélagið Sókn:
Stjórnvöld ganga á kjör
almenns launafólks
„í STAÐ þess að snúast gegn
þessari óheillaþróun af festu og
einurð, hafa stjórnvöld valið
þann kost að ganga enn á kjör
almenns launafólks með skerð-
ingu vísitöluákvæða gildandi
StaÖur hagstæðm
stórinnkaupa
Kjöt, mjólk, brauö, pakkavörur
og niðursuðuvörur. Pappírsvörur,
kerti-leikföng og gjafavörur.
samninga," segir í ályktun, sem
Morgunblaðinu barst í gær frá
Starfsstúlknafélaginu Sókn, en í
henni segir einnig, að undanfarn-
ar vikur hafi flest snúizt til vcrri
vegar í þróun kjara- og verðlags-
mála. „Hátekjuhópar hafa hrifs-
að til sín ómældar hækkanir og
stöðugt berast nýjar kröfur frá
hálaunastéttum. Á sama tfma
eykst verðbóiga hröðum skrefum
og ber þar mest á stórfelldum
hækkunum á opinberri þjón-
ustu.“
Ályktunina samþykkti fundur
Sóknarfélaga í „opnu húsi“ á
fimmtudaginn 17. maí. Þar segir
ennfremur: „Fundurinn skorar á
stjórnvöld að gera nú þegar ráð-
stafanir til þess að hemja grunn-
kaupshækkanir hálaunastéttanna
og setja þak á vísitölu. Jafnframt
að tryggja almennu launafólki þau
3%, sem opinberir starfsmenn
hafa þegar fengið. Veröi úrkosta
en knýja fram leiðréttingu sinna
mála með þeim aðferðum sem
duga.“
STORMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI
Mótmælaað-
gerðir vegna
Kópavogshælis
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frétt frá starfsfólki
Kópavogshælis:
I ár var stórfelldur niðurskurð-
ur á fjárveitingum til Kópavogs-
hælis.. Starfsfólki á deildum hefur-
víða fækkað um þriðjung eða
meira. Vegna þess hefur starfsfólk
hælisins ákveðið að efna til mót-
mælaaðgerða. Safnast verður
saman á Lækjartorgi klukkan 16 á
föstudaginn 25. maí og gengið að
Arnarhvoli. Þar verða afhent bréf
til fjármálaráðuneytisins. Að-
standendur þroskaheftra eru
hvattir til þess að mæta með
skjólstæðinga sína og allir aðrir,
sem styðja vilja aðgerðirnar.
Undirbúningsnefnd.