Morgunblaðið - 24.05.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ1979
Flókalundur ok orlufshús AlþýÓusamhands Vestfjarða.
Alþýðusamband Vestfjarða
kaupir Hótel Flókalund
Alþýðusamband Vestfjarða
hefur keypt Hótel Flókalund af
ferðamálasjóói og ætlar að reka
þar greiða- og gistisölu og þjón-
ustumiðstöð fyrir orlofshús sam-
handsins, en í nágrenni Flóka-
lundar er sambandið nú að
byggja 15 orlofshús og verða 13
þeirra tekin í notkun í byrjun
júní. í sumar verður Eddu-hótel í
Flókalundi sem Ferðaskrifstofa
ríkisins sér um rekstur á.
Pétur Sigurðsson formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða sagði í
samtali við Mbl., að kaupverð
Flókalundar væri 70 milljónir
króna, en brunabótamat á húsi og
innbúi er um 130 milljónir.
Skammt frá hótelinu, utan við ána
Pennu, eru að rísa 15 orlofshús og
sagði Pétur að á því svæði, sem nú
er byggt á, væri ætlunin að reisa
30 hús.
Söngskólinn í Reykjavík:
9 nýir einsöngvarar
SJÖTTA starfsári Söngskólans í
Reykjavík er nú senn að ljúka og
verður skólanum slitið sunnudag-
inn 27. maf n.k. kl. 15.00.
í vetur stunduðu 85 nemendur
nám við skólann. f söng. hljóð-
færaleik, tónfræði, tónheyrn, tón-
listarsögu og hljómfræði.
Skólinn starfar i tveim deildum,
almennri deild og kennaradeild.
Nám í almennri deild stunduðu 72
nemendur og luku 7 þeirra VIII
stigs prófi, sem er lokaáfangi í
almennri deild og jafnframt inn-
tökuskilyrði í kennara og / eða
sólósöngdeild. Hluti af VIII stigs
prófinu eru tónleikar, sem þeir
nemendur halda er stóðust prófið,
en þeir eru: Ásta Valdimarsdóttir,
Baldur Karlsson, Ingunn Ragnars-
dóttir, Jóhanna G. Möller,
Kolbrún Ágrímsdóttir, Kjartan
Ólafsson og Magnús Magnússon.
Á tónleikunum nú syngja enn-
fremur Dóra Reyndal og Unnur
Jensdóttir, en þær luku báðar VIII
stigs söngprófi í fyrra.
Ilinir nýju einsöngvarar: Frá vinstri fremsta röð: Jóhanna G. Möller.
Magnús Magnússon og Kolbrún Ásgrímsdóttir. Miðröð frá vinstri:
Baldur Karlsson. Ingunn Ragnarsdóttir og Dóra Reyndal. Aftasta röð
frá vinstri: Kjartan ólafsson. Unnur Jensdóttir og Ásta Valdimars-
dóttir.
Kauplagsnefnd hefur reiknað verðbótavísitölu:
Launahækkun 1. júní 11,4% á
láglaun, 9,22% á hærri laun
SAMKVÆMT ákvörðun Kaup-
lagsnefndar, skulu verðbætur á
laun á mánuði fyrir fulla dag-
vinnu vera 11.40% á laun lægri en
210 þúsund krónur, en á laun 220
þúsund krónur eða hærri er verð-
bótin 9.22%. Á laun hærri en 210
þúsund krónur skal verðbótin
11.40%, fara stiglækkandi uns
220 þúsund króna markinu er náð
og skal þá verðbótin hafa náð
markinu 9.22%.
Hækkun framfærsluvísitölunn-
ar frá febrúarbyrjun til maíbyrj-
unar er 159.94 stig eða 12.38%. Var
um að ræða hækkun á fjölmörgum
vöru- og þjónustuliðum, innlend-
um og erlendum. í fréttatilkynn-
ingu frá Hagstofunni, sem
Morgunblaðinu barst í gær, segir
m.a.: „Á tímabilinu júní-agúst 1979
og síðan á hverju 3ja mánaða
greiðslutimabili skal greiða verð-
bætur á laun samkvæmt fyrirmæl-
um í VIII. kafla laga nr. 13 10.
apríl 1979 um stjórn efnahagsmála
o.fl. sbr. og ákvæði reglugerðar nr.
214 21. maí 1979 sem gefin hefur
verið út samkvæmt heimild í
þessum lögum.
Samkvæmt 6. grein nefndrar
reglugerðar skulu verðbætur
Kjaraskerd-
ingin 2-5%
GAMLA verðbótavísitölukerfið
hefði gefið launahækkun á lág-
laun, sem verið hefði 2 til 3%
hærri en vísitölukerfi laga ríkis-
stjórnarinnar um stjórn
efnahagsmála. Láglaun. þ.e.a.s.
laun undir 210 þúsund krónum á
mánuði, hefðu samkvæmt gamla
kerfinu fengið verðbót, sem væri
13,4 til 14,4%, en samkvæmt
lögunum fá láglaunin nú 11,4%.
Kjaraskerðing vegna laga rík-
isstjórnarinnar er þó enn meiri á
hærri laun, þ.e.a.s. á laun, sem
eru hærri en 220 þúsund krónur.
Samkvæmt lögum fá þessi laun
9,22% hækkun, en samkvæmt
gamla kerfinu hefði launahækk-
unin verið 4,2 til 5,2% hærri en
Blásaratónleikar
BLÁSARATÓNLEIKAR verða á Kjarvalsstöðum á morgun, föstudag
kl. 20.30.Bernard Wilkinsson, Duncan Campell, Einar Jóhannesson,
Rúnar Vilbergsson og Gareth Millison munu flytja verk eftir
Danzi, Milhaud, Debussy, Hindemith og Malcolm Arnold.
greiddar á grunnkaup, sem svo er '
ákveðið: Greitt kaup í marz 1979,
þ.e. grunnlaun, verðbætur og verð-
bótaauki samkvæmt þágildandi
samningum og lögum.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
verðbótavísitölu vegna tímabilsins
júní—ágúst og er hún 108.77 stig
miðað við grunntölu 100 svarandi
til framfærsluvísitölu í febrúar
1979. Þessi vísitala gildir ekki
óbreytt til ákvörðunar verðbóta á
laun frá 1. júní 1979, þar eð í
bráðabirgðaákvæðum laganna er
kveðið svo á, að frádráttur vegna
viðskiptakjararýrnunar, sem hefur
þegar verið reiknaður inn í verð-
bótavísitöluna, skuli að svo stöddu
ekki koma fram nema að takmörk-
uðu leyti. Þar er svo fyrir mælt, að
við ákvörðun verðbóta frá 1. júní
1979 skuli frádráttur vegna rýrn-
unar viðskiptakjara nema hæst
2% af verðbótavísitölu þann dag,
og að enginn slíkur frádráttur
skuli að svo stöddu eiga sér stað
við ákvörðun verðbóta á laun lægri
en 210 þúsund krónur á mánuði
fyrir fulla dagvinnu."
Tónleikarnir verða haldnir í
Tónleikasal Söngskólans, að
Hverfisgötu 44. Söngskólinn tók
þennan sal nýlega á leigu og hefur
undanfarið verið unnið við að
standsetja hann. Verður tónleika-
salurinn vígður við þetta tækifæri.
Starfsári söngskólans lýkur
síðan með vortónleikum í Gamla
bíói, n.k. sunnudag kl. 19.00. Þar
munu nemendur skólans flytja
fjölbreytta söngskrá.
Nemendur sem syngja á tónleik-
um fimmtudaginn 24. maí kl. 15.00
eru Dóra Reyndal sópran —
Magnús Magnússon tenor og
Unnur Jensdóttir mezzo-sópran.
Nemendur sem syngja á tónleik-
um föstudaginn 25. maí kl. 20.00
eru Ingunn Ragnarsdóttir sópran
— Kjartan Ólafsson baritón og
Kolbrún Ásgrímsdóttir sópran.
Nemendur sem syngja á tónleik-
um laugardaginn 26. maí kl. 15.00
eru Ásta Valdimarsdóttir
mezzo-sópran — Baldur Karlsson
baritón og Jóhanna G. Möller
sópran.
Fyrirhugaðar ráðstafanir Félags íslenskra leikara:
Munu leita stuðnings alþjóðasambands
leikara og leikara á Norðurlöndum
FÉLAG íslenskra leikara sam-
þykkti á félagsfundi s.l. mánudag
með öllum greiddum atkvæðum að
grípa til ráðstafana eftir 10. júní
verði ekki fyrir þann tíma gengið
frá samningi milli ríkisútvarpsins
og F.Í.L. um það hver hlutur
leiksins efnis skuli vera f dagskrá
ríkisútvarpsins. Félagið hafði áð-
ur sent menntamálaráðherra. út-
varpsstjóra og útvarpsráði bréf
þar sem ráðstafanir þessar voru
kynntar. Bréfið var sent 15. maí
en að sögn stjórnar FÍL hefur
ekkert samhand verið haft við
stjórnina enn varðandi kröfur
leikara og hótanir.
Ráðstafanir þær sem félagið
hyggst grípa til eru: 1. F'élagar í
FÍL munu ekki taka að sér nein ný
verkefni í ríkisútvarpi eða sjón-
varpi eftir 10. júní n.k. 2. Leikarar
hyggjast nýta til fulls það ákvæði í
kjarasaniningum þeirra að banna
endurflutning leikins efnis í sjón-
varpi og útvarpi. 3. FÍL hyggst leita
til Alþjóðasambands leikara um að
allt erlent leikið efni verði bannað í
íslenska sjónvarpinu. 4. FÍL mun
leita til Bandalags íslenskra lista-
manna, Félags íslenskra leikstjóra
og leikritahöfunda um að þessir
aðilar styðji leikara í ’baráttu
þeirra, 5. íslenskir leikarar munu
leita til starfsbræðra sinna á
Norðurlöndum um að þeir felli úr
gildi svonefndan íslandssamning er
gerir íslenska sjónvarpinu kleift að
fá efni frá Norðurlöndunum
ódýrara en ella.
Gísli Alfreðsson formaður FÍL
sagði á blaðamannafundi í gær að
þessar aðgerðir væru ekkert ný-
mæli. Sænskir leikarar hefðu beitt
svipuðum aðferðum vorið 1976 og
hefði sú deila le.vstst farsællega.
Einnig munu svipaðar aðgerðir
verið uppi í Grikklandi í fyrrahaust
og á írlandi nú í vetur. Gísli kvað
þessum aðgerðum ekki vera nema
að litlu leyti beint gegn ríkisút-
varpinu og forráðamönnum þess.
„Við vonumst til að þeir sem ákveða
afnotagjöld ríkisútvarpsins sjái að
sér og gefi ríkisútvarpinu kost á að
rétta við fjárhag stofnunarinnar."
Stjórn Félags íslenzkra leikara. Talið írá vinstri Þóra Friðriksdóttir,
Bessi Bjarnason, Guðmundur Pálsson, Sigurður Pálsson og Gísli
Alfreðsson formaður félagsins. Ljósm. Emilfa