Morgunblaðið - 24.05.1979, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ1979
Faðir okkar. t JÓN SIGURJÓNSSON,
Karfavogi 25,
lést 22. maí. Unnur Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson.
t
Faöir okkar,
HELGI HALLGRÍMSSON,
andaöist í Landspítalanum, miövikudaginn 23. þ.m.
Astríður H. Andersen,
Hallgrimur Helgason,
Sigurður Helgason,
Gunnar Helgason,
Halldór Helgason.
t
Mágkona mín og fraenka okkar,
ELÍN BJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Stóru-Háeyri,
lést í Landakotsspítala mánudaginn 21. maí.
Ingimar Jóhannesson
og frændsystkini hinnar látnu.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa
VIGNIS ÁRSÆLSSONAR,
veröur gerö frá Akureyrarkirkju laugardaginn 26. maí kl. 13.30.
Jóhanna Eliasdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Jaröarför fööur míns, tengdafööur og afa okkar,
GUDLAUGS GUOMUNDSSONAR,
frá önnuparti, Þykkvabæ,
Leifsgötu 21,
fer fram frá Hábæjarkirkju laugardaginn 26. maí kl. 2.
Guólaug Guólaugsdóttir Níels Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kristín M. Jónsdóttir
kaupkona — Minning
Á morgun verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík Kristín
- M. Jónsdóttir, kaupakona. Hún
var fædd 17. desember 1891, að
Syðstu-Móum í Fljótum í Skaga-
firði. Foreldrar hennar voru Jón
Þorfinnsson, skipstjóri og kona
hans Björg Sæmundsdóttir. Á
fyrsta aldursári Kristínar fluttust
foreldrar hennar að Arnarstöðum.
Skömmu síðar, eða þegar hún var
á öðru ári. fékk faðir hennar
brjósthimnubólgu og dó, en
mæðgurnar fluttu að Felli í
Sléttuhlíð. Þar var Björg í hús-
mennsku hjá Jórunni Sæmunds-
dóttur systur sinni og Sveini
Árnasyni. Bærinn að Felli brann,
þegar Kristín var átta ára, og
fluttust þá mæðgurnar að Engidal
við Siglufjörð. Þar voru þær þar
til leiðin lá til Ameríku, Kristín
var þá tólf ára að aldri. Fyrsti
dvalarstaðurinn var Selkirk í
Kanada og dó Björg þar skömmu
síðar, en Kristín fluttist til Önnu
Guðmundsdóttur, ömmu sinnar.
Kristín og Anna héldu síðan til
Winnipeg og bjuggu þar hjá Elínu
Jónsdóttur og Gísla Ólafssyni.
Átján ára að ajdri fluttist Kristín
aftur heim til Islands og lærði nú
og vann hjá Elínu Briem á
Sauðárkróki.
Elín útvegaði henni skólavist á
Kunstflyd-skólanum í
Kaupmannahöfn, en þar fékk hún
verðlaun fyrir frammistöðuna.
Hún balderaði þar m.a. tösku
sem síðan var höfð til sýnis í
skólanum áratugum saman. Frá
Kaupmannahöfn fór Kristín til
Skotlands til Sigrúnar Christian-
sen frænku sinnar og dvaldist þar
t
Jaröarför
KRISTÍNAR M. JÓNSDÓTTUR,
kaupkonu,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 25 þm kl
13.30.
Fyrir hönd aöstandenda,
Einar Eyfells.
t
Kveöjuathöfn vegna fráfalls móöur okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SESSELJU BÆRINGSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. maí kl. 10.30. Jaröaö
veröur aö Hvammi, Hvammssveit, Dalasýslu laugardaginn 26. maí
kl. 14.
Fjóla Sigurðardóttir,
Hanna Rath,
Margrót Sigurðardóttir, Jón Hjálmtýrsson,
Eiður Sigurösson, Ása Árnadóttir,
Stefnir Sígurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faöir minn, tengdafaöir, afi okkar og bróöir,
ARNBJÖRN SIGURGEIRSSON,
Selfossi,
veröur jarösunginn frá Selfosskirkju, laugardaginn 26. maí kl. 2.
Sigrún Arnbjarnardóttir, Kristján Asgeirsson,
Arna Kristjánsdóttir, Ásgeir Kristjánsson,
Guörún Sígurgeirsdóttir, Bjarni Sigurgeirsson
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og vináttu viö andlát og útför systur
okkar
UNNARJÓHANNSDÓTTUR,
Hátúni 10 b.
Systkini og vandamenn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
HALLFRÍÐUR INGIBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Innri-Njarövíkurkirkju, laugardaginn 26. maí
kl 3.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Keflavíkur.
Guörún Skúladóttir,
Ellert Skúlason, Elín Guönadóttir,
Trausti Skúlason, Guöríöur Kristjánsdóttír,
Svavar Skúlason, Guömunda Guóbergsdóttir,
Ásgeir Skúlason, Sigrún Siguröardóttir,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaöir,
SVAVAR ANTONÍUSSON,
frá Vestmannaeyjum,
Slóttahrauni 25,
Hafnarfirói,
sem lést 19. maí, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum n.k. laugardag kl. 2.
Kristín Halldórsdóttir
Ólöf Svavarsdóttir
Kristjana Svavarsdóttir Hjálmar Guönason
Halldór Svavarsson Vigdís Ásgeirsdóttir
Vaiur Svavarsson Halldóra Valdimarsdóttir
Antoníus Svavarsson Hrafnhildur Siguröardóttir
Margrót Svavarsdóttir Jens Parbo.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR
frá isafirði.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur minnar, tengdamóður, fóstru og ömmu
SOFFÍU H. ÓLAFSDÓTTUR.
María Jóhannesdóttir, Bjarnleifur Bjarnleifsson,
Guölaugur Guðmundsson,
Erla Strand, Einar Strand.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
eitt ár við nám í fatasaumi og
matreiðslu.
Eftir heimkomuna til íslands
hóf Kristín kennslu við Kvenna-
skólann á Blönduósi og kenndi þar
handavinnu frá 1913 fram á
frostaveturinn 1918. Á Blönduósi
kynntist hún Ingibjörgu Eyfells,
móðir minni og hófst þar æfilöng
vinátta þeirra og samstarf. Flutt-
ust þær stöllur til Reykjavíkur og
hófu fyrst kennslu í handavinnu í
heimahúsum, en stofnuðu 1922
verzlunina Baldursbrá, sem þær
ráku saman meðan kraftarnir
entust, eða meira en hálfa öld.
Framan af árum kenndu þær
handavinnu á kvöldin í stofunni
inn af búðinni og var þá vinnu-
dagurinn oft langur. Eru ótaldar
þær íslenzku konur, sem þar nutu
leiðsagnar þeirra við allskonar
handavinnu og saum. Auk
almennrar hannyrðavöru og er
óvíst að aðrir hafi stuðlað meira
að útbreiðslu og vinsældum þess
klæðnaðar bæði innanlanda og
utan en þær vinkonur Ingibjörg og
Kristín. Kristín var vakin og sofin
við verzlunina og fór hún margar
innkaupaferðir til Danmerkur og
Englands.
Eftir að mamma og Kristín
voru orðnar rosknar og varla
manneskjur lengur til að reka
verzlunina, vildu þær samt ekki
hætta, en drógu saman seglin og
fluttu verzlunina í bakhluta húss-
ins og höfðu opið aðeins hálfan
daginn. Þar var staðið meðan
stætt var og býst ég við, að helzt
hefði Kristín viljað fá að deyja við
búðarborðið.
Síðan hún gat ekki lengur rekið
verzlunina eða búið á Skólavörðu-
stígnum hefur hún verið á mínu
heimili, nema þann tíma sem hún
þurfti að vera á spítala vegna
veikinda.
Kristín lézt á Landspítalanum
að morgni föstudagsins 18. maí,
eftir stutta legu þar.
Kristín var ógift og bjó í sama
húsi og foreldrar mínir og rak
heimilið með þeim. Ég er elztur af
mínum systkinum og einhvern
veginn vildi það þannig til, að
Kristín fékk mig strax á fyrsta ári
og sá hún að mestu um mitt
uppeldi og kostaði mig síðan til
náms til Ameríku. Hún var þannig
uppeldismóðir mín og mér að
sumu leyti meira tengd en mín
eigin móðir.
Einnig var hún mínum dætrum
og barnabörnum ævinlega hin
bezta amma. Ég og fjölskylda mín
eigum henni mikið að þakka og við
kveðjum hana með söknuði.
Einar Eyfells.
Á MORGUN. föstudag. fer fram
frá Fossvogskirkju útför Páls
Geirs Þorbergssonar fyrrum verk-
stjóra til heimilis að Mánagötu 16
hér í Reykjavík. — Minningar-
grein um hinn látna eftir Þórarin
Árnason frá Stórahrauni varð
vegna þrengsla að bfða birtingar
til laugardagsins.