Morgunblaðið - 24.05.1979, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ1979
'»
Eitt bezta
landslið heims á
Laugardals-
vellinum
EITT BEZTA knattspyrnulandslið heims, lið Vest-
ur-Þýzkalands, leikur hér vináttulandsleik á laugardag-
inn á Laugardalsvellinum. Það er mikill heiður sem
þýzka knattspyrnusambandið sýnir KSÍ með að mæta
hér til leiks með sitt sterkasta lið, því Þjóðverjar fá
ógrynni boða víðs vegar að úr heiminum um að koma og
leika. Vestur-þýzk knattspyrna hefur ávallt verið hátt
skrifuð og er þess skemmst að minnast, að lið þeirra
varð heimsmeistari árið 1974. Sjö leikmenn, sem voru í
liðinu þá, koma hingað og leika hér.
Þetta eru þeir Sepp Maier
(Bayern Múnchen), Dieter Burd-
enski (Warder Bremen), Manfred
Kaltz (SV Hamburg), Harald
Konopka (FC Köln), Hansi Muller
(Stuttgart), Herberg Zimmer-
mann (FC Köln) og Karl Heinz
Rummenigge (Bayern Munchen).
En eftirtaldir eru í hópnum:
Burdenski, Maier, Schumacher,
Gullmann, Bernd Foerster, Harl
Vestur-þýzka liðið lók við lið írlands f fyrrakvöld og sigraði örugglega 3—1. Myndin sýnir fyrsta mark
Þjóðverja cr þeir jöfnuðu leikinn 1 — 1. Það var Rummenigge sem skoraði með þrumuskoti og sést hann
ekki á myndinni. Pcyton markvörður íra kom engum vörnum við.
Heinz Foerster, Groh, Kaltz, Kon-
opka, Schuster, Hartwig,
Nemering, Hansi Múller, Herbert
Zimmermann, Klaus Allofs,
Dieter Hoeness, Kelsch,
Rummenigge.
Eins og sjá má er valinn maður
í hverju rúmi. Reyndasti leikmað-
urinn í hópnum er markvörðurinn
Sepp Maier en hann hefur leikið
93 A-landsleiki. Þá má nefna
Manfred Kaltz sem leikið hefur 27
A-landsleiki og Karl Heinz
Rummenigge með 23 A-landsleiki.
Hinn efnilegi Hans Múller er í
hópnum en hann hefur leikið 9
A-landsleiki.
Það verður fróðlegt að sjá
hvernig liði Islands gengur á móti
þessum þrautþjálfuðu atvinnu-
mönnum. Sjálfsagt verður það
þungur róður, en þó er aldrei að
vita.
Islenska liðið lék mjög vel í
Sviss, þegar það náði sér á strik.
Að vísu er skarð fyrir skildi að
Ásgeir, Arnór og Pétur skuli ekki
geta leikið með. En þá fá aðrir
ungir og efnilegir leikmenn tæki-
færi til að sýna hvað í þeim býr.
Á myndinni sést núverandi þjálfari V-Þjóðverja , Jupp Derwall,
ræða við einn efnilegasta knattspyrnmann þeirra í dag, Hansa Miiller.
Derwall tók við liðinu af hinum fræga Helmut Schön eftir
heimsmeistarakcppnina 1978 í Argentínu. Hann er 52 ára gamall, lék
tvo landsleiki í knattspyrnu á árinu 1954 og þótti knattspyrnumaður
góður.
Þotukeppni Flugleiða
hjá Golfklúbbnum Keili
Karl Ileinz Rummenigge. einn
besti leikmaður þýska liðsins.
Sigurður
bætir sig
Sigurður P. Sigmundsson, hafnfirski frjálsfþróttamaðurinn sem
stundar nám í Edinborgarháskóla, setti persónuleg met í 5.000 metra
hlaupi og 3.000 metra hindrunarhlaupi á frjálsfþróttamótum á
Bretlandseyjum sfðustu tvo laugardaga.
Á meistaramóti skozkra háskóla 12. maí varð Sigurður í öðru sæti í
5.000 metra hlaupi á 15:10.0 mfnútum. Átti Sigurður bezt áður 15:11.8
, en þeim árangri náði hann í V-Þýskalandi er hann dvaldist þar við
æfingar í fyrra.
Sfðastliðinn laugardag, 19. maí, varð Sigurður svo fimmti af 12
keppendum í 3.000 metra hindrunarhlaupi í Southampton, en þar
hljóp hann í brezku deildarkeppninni fyrir félag sitt og hlaut tfmann
9:24.8 mfnútur. Árangur Sigurðar í hindrunarhlaupinu er, eins og
ráða má af skrá sem Mbl. hirti í gær, þriðji bezti árangur íslendings í
greininni frá upphafi.
í viðtali við Mbl. sagðist Sigurður ekki vera ánægður með árangur
sinn í keppni ytra það sem af er sumri. Hann kvaðst ekki enn hafa hitt
á réttu keppnina og vonaðist því til að eiga eftir að bæta sigenn
meira. - ágás.
Landskeppni við Færeyjar
í badminton á Selfossi
Björn
Þjálfar
Ólafsvík
Knattspyrnulið ólafsvíkur
hefur ráðið KR-inginn Björn
Árnason sem þjálfara í sumar.
Björn mun ekki leika með
liðinu heldur eingöngu þjálfa
það. Lið Ólafsvíkur leikur í 3.
deild.
íslenska landsliðið f badminton
leikur landsleik við Færeyinga
föstudaginn 25. maí og fer hann
fram í hinu glæsilega fþróttahúsi
á Selfossi.
Þetta er fyrsti landsleikur í
hadminton. sem fer fram utan
Reykjavíkur og er það von stjórn-
ar BSÍ, að Selfyssingar og
nágrannar þeirra fjölmenni á
þennan landsleik, því með því að
koma í fþróttahúsið á föstudag-
inn koma þeir til með að sjá alla
sterkustu badmintonleikmenn
þjóðanna.
Þetta er fimmti landsleikur
þessara þjóða og hefur ísland
unnið þá alla hingað til.
í þessum landsleikjum er keppt
um forkunnar fagran bikar, sem
gefinn er af Föroya Fiskasölu.
Undanfarin ár hefur aðeins
verið keppt í karlagreinum, vegna
þess að Færeyingar hafa ekki talið
sig eiga nægilega sterkt kvenfólk
til að mæta okkur.
En nú hefur komið ósk frá þeim
um að bæta við kvenna-keppni í
þennan landsleik og verður því
keppt í 3 einliðaleikum karla, 1
einliðaleik kvenna, 2 tvíliðaleikj-
um karla og 1 tvenndarleik.
Leikirnir verða því sjö í staðinn
fyrir fimm á undanförnum árum.
Fyrir ísland keppa eftirtaldir
leikmenn:
EINLIÐALEIK KARLA:
Jóhann Kjartansson
Sigfús Ægir Árnason
Broddi Kristjánsson.
EINLIÐALEIKUR KVENNA:
Kristín Magnúsdóttir
TVÍLIÐALEIKUR KARLA:
Sigfús Ægir Árnason
Sigurður Kolbeinsson
Broddi Kristjánsson
Guðmundur Adólfsson
TVENNDARLEIKUR:
Jóhann Kjartansson
Kristín Berglind.
Fyrir Færeyjar keppa eftirfarandi
leikmenn:
EINLIÐALEIK KARLA:
Kári Nielsen
Pétur Hansen
Hans Jacob Stenberg
EINLIÐALEIKUR KVENNA:
Sigrid Andreasen
TVÍLIÐALEIKUR KARLA:
Kari Nielsen
Petur Hansen
Hans Jacob Stenberg
Paul Michelsen
TVENNDARLEIKUR:
Jóan Paturs Midjord
Sigrid Andreasen.
Hin árlega þotukeppni Flugleiða hjá Golfklúbbnum Keili, verður
haldin á Hvaleyrarvelli þann 26. og 27. maí. Þotukeppnin er fyrsta.
stigamót sumarsins og verða allir okkar bestu kylfingar landsins
meðal þátttakánda. Leiknar verða 36. holur með og án forgjafar og
hefst keppnin kl. 08.30 laugardaginn 26. maí. Þátttaka tilkynnist í
síma 53360 fyrir kl. 19.00 föstudaginn 25. maí.
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að sýna forgjafakort sitt.
Golfvöllurinn verður opinn til æfinga fimmtudag 24. maí og
föstudag 25. maí.