Morgunblaðið - 04.08.1979, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.08.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979 9 Liósm. - kk. • Þessi fallegi morgunafli var dreginn úr Álftá á Mýrum 13. júlí síðastliðinn. en þar byrjaði veiðin mjög vel. betur en oftast áður. En í þurrkunum að undanförnu hefur veiðin dregist saman. „Vantar vatn í Norðurá" Mbl. fékk þær upplýsingar í veiðihúsinu við Norðurá í gær, að komnir væru á land tæplega 1300 laxar. En að undanförnu hefur veiðin verið í tregara lagi, sólin hefur skinið glatt og vatnið í ánni farið þverrandi. „Það vantar vatn í ána,“ sagði viðmælandi blaðsins. Það er þó aldrei steindautt. Obbinn af laxinum sem veiðist þessa dagana er 4—6 pund, en fyrir skömmu veiddist þó stærsti lax sumarsins. Var það 17,5 punda fiskur sem franskur laxafangari dró í Skeifunni svokölluðu, en hún er í Stekknum. Agnið var fluga, innlend smíð, Skröggur númer tíu. Algerar andstæður hængsins stóra hafa einnig veiðst, tveir tveggja punda laxar og margir 3 punda. Besta veiðisvæðið er nú milli Lax- foss og Glanna, en lítið er að sjá af fiski neðan Laxfoss. Það vantar ferska göngu í ána og er það von manna að hún láti sjá sig í næstu rigningu. Gljúfurá: Laxinn felur sig í ósnum „Það eru komnir milli 150 og 160 Iaxar á land, en veiðin hefur verið treg að undanförnu, laxinn tekur illa í þessari birtu,“ sagði Sigurður Tómasson í Sólheimatungu í spjalli í gærdag. Sagði Sigurður ennfremur, að lax sæist víða í ánni, en hvergi þó meira en í hinum dimma og djúpa ósi árinnar, þar sem hún samein- ast Norðurá. Hann hreyfir sig líklega ekki þaðan fyrr en vatns- borð árinnar hækkar. Að sögn Sigurðar, er Gljúfurá þó ekki svo ýkja vatnslítil, því hún nýtur góðs af vatnsmiðlun við upptök sín í Langavatni á Mýrum. Meðalþungi laxa Gljúfurár er svipaður og áður, 4—5 pund, stærsti lax sumarsins til þessa vó 14 pund. Tví- og þríveiða sömu laxana í Grímsá „Það eru komnir um 700 laxar á land, sem er ekki ósvipað og á sama tíma í fyrra," sagði Guðmundur í veiðihúsinu við Grímsá í stuttu spjalli í gær. Guðmundur skýrði Mbl. frá því, að miklu af laxinum sem dreginn hefði verið á land í sumar, hefði verið gefið líf. Tveir hópar útlend- inga slepptu t.d. öllum löxum sínum og margir úr öðrum hópum skiluðu sínum í strauminn aftur. Enginn lax hefur þó fengið að fara fyrr en að lokinni merkingu, en slíkt var einnig gert síðasta sumar. Margir merktir laxar hafa veiðst, t.d. einir tíu vænir boltar sem merktir voru í fyrra og einnig hafa þó nokkrir merktir nú í sumar verið dregnir öðru sinni! Og nú þegar Islendingar hefja veiðar í Grímsá innan skamms, er viðbúið að nokkrir laxar verði dregnir á land í þriðja sinn! Að sögn Guðmundar hefur veið- in verið frekar dræm síðustu dag- ana vegna veðurs, sól og blíð- skaparveður er ekki besta veiði- veðrið, auk þess sem áin er orðin vatnslítil. Meðalþunginn í Grímsá er u.þ.b. 6—7 pund og nokkrir 19 punda fiskar eru það stærsta sem komið hefur úr ánni í sumar. Oddstaðafljótið er besti veiði- staðurinn. Sama sagan í Þverá Það var sama uppi á teningnum er Mbl. hafði samband við veiði- húsið við Þverá. Þar varð fyrir svörum Markús Stefánsson og sagði hann að af neðra svæðinu væru komnir um 1220 laxar á land, en veiðin síðustu dagana hefði verið fremur treg vegna hinna óhagstæðu veiðiskilyrða sem áður er getið um. Nýjar göngur hafa þó sést og lofar það auðvitað góðu. Veitt er á 7 stangir á neðra svæðinu, en á því efra, Fjallinu svokallaða, eru 6 stangir leyfðar. Þar hefur aflast vel að undanförnu þó að Mbl. lúri ekki á aflatölum þaðan. Mikið af laxinum sem veiðist í Þverá er 7—10 pund, stærstur til þessa er 20 punda og nokkrir 18—19 punda laxar. Venjulega veiðast þó nokkrir í kringum 20 pund í ágúst, fiskar sem legið hafa á hinni svokölluðu Brennu við Hamraenda allt sumarið og renna sér síðan síðsumars á vit uppruna síns í Þverá. T.d. sagði Markús, að síðasti veiðihópur sumarsins í fyrra hefði veitt marga 20 punda laxa. En mikill lax er fyrir í Þverá og um leið og eitthvað rignir að ráði er viðbúið að veiðin rjúki upp. Flestir fá eitthvað „Veiðin hefur verið dræm vegna vatnsleysis og sólar, en flestir fá þó eitthvað," sagði Ingvar Ingvars- son á Múlastöðum um veiðina í Flóku í sumar. „Þegar aðstæður eru þessar. liggur laxinn í dýpstu hyljum og hreyfir sig lítið,“ bætti Ingvar við. — gg. Plöntugrein- ingarferð Skógræktar- félags Hafn- arfjarðar Skógræktarfélag Hafnarfjarðar gekkst fyrir plöntuskoðunarferð í Gráhelluhrauni og Hvaleyrar- vatnsgirðingu sl. mánudagskvöld. Tóku 60 manns þátt í ferðinni, þar af nokkrir úr Garðabæ og Reykja- vík. Veður var hið besta þetta kvöld og var farið með einkabílum frá íþróttahúsi Hafnarfjarðar kl. 20.15. Fararstjóri var formaður félagsins, Ólafur Vilhjálmsson, en að auki voru stjórnarmenn félags- ins með í förinni. Til Ieiðbeiningar voru þeir Hákon Bjarnason og Valdimar Elíasson. I Gráhelluhrauni er mikið fjöl- gresi og sakir þess, hve seint voraði voru margar plöntur enn í blóma, sem mönnum hefði sést yfir að öðrum kosti. Skoðunin tók því lengri tíma en ætlað hafði verið, en að auki furðuðu flestir sig á hinni miklu fjölbreytni í hrauninu. Ræktun trjáa í hraun- inu hefur gefið því hlýlegan og mildan svip, aukið skjólið í því og er það að verða snotur bæjargarð- ur. Þar eð hraunið er víða mjög úfið þyrfti að leggja nokkra gang- stíga um það. En þá yrði það líka sannkölluð bæjarprýði. Frá Gráhelluhrauni var gengið í Hvaleyrarvatnsgirðingu skóg- ræktarfélagsins, skoðuð gróðrar- stöð þess og litið á brunaskemmd- irnar frá í vor, en þær eru mjög tilfinnanlegar. Flestir létu undrun sína í ljós yfir því, hve lúpínan frá Alaska er fljót að græða örfoka mela og gróðurlítil holtin, og að lokum var staðnæmst á Húshöfða, þar sem Ólafur Vilhjálmsson og Jón Magnússon í Skuld greindu frá örnefnum og staðarheitum. Með því lauk þessari skemmtilegu og fróðlegu för rétt um klukkan 11, en þá var rökkrið að síga á þessa lygnu og heiðu júlínótt. Þá kvöddust menn með virktum og hver hélt til síns heima með ánægjubros á vör. Stjórn Skógræktarfélags Hafn- arfjarðar á þökk og heiður skilið fyrir þetta framtak sitt. Einn úr hópi þátttakenda. AlKíl.YSINCASlMINN Elí: i 0 •Wovfltinbla&iö ÚTKALL um land altt [lunarmannahelgin ÁRNES 3. 4. og 5. ágúst Fjölskylduskemmtun Ókeypis aðgangur er að fjölskylduskemmtun- inni fyrir alla fjölskylduna. Nsag tjaldstæöi. Sérstakir gestir Magnús og Jóhann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.