Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 4

Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 Tveggja ára fangelsi fyrir smygl á hassi SAKADÓMUR í ávana- og fíkniefnamálum dæmdi nýlega mann í tveggja ára fangelsi Lögreglan af- vopnaði mann LÖGREGLAN í Reykjavík þurfti að hafa afskipti af vopnuðum manni í gær, en ekki kom til neinna átaka vegna þessa. Maðurinn var í samkvæmi í heimahúsi skömmu eftir hádegi í gær og bárust lögreglunni fregnir af því að hann væri með hagla- byssu og riffíl. Ekki ógnaði maðurinn neinum með þessum vopnum, en þar sem hann hafði hvorki heimild til þess að vera með slík vopn né var þekktur að reglu- semi þótti lögreglunni vissara að taka vopnin af honum. fyrir smygl á miklu magni af hassi til landsins. Smyglmál þetta er eitt hið umfangsmesta sem upp hefur komið á síðari árum. Tveir menn voru ákærðir síðla árs 1985 fyrir að hafa smyglað sameiginlega um 13,5 kílóum af hassi til landsins í tveimur ferðum. Þar af var þeim gefíð að sök að hafa smyglað 11,2 kílóum í einni og sömu ferðinni með togaranum Karlsefni. SÚ ferð var farin í októ- ber 1983, en lögreglan lagði hald á efnið við komu skipsins til lands- ins. Annar mannanna var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir aðild sína að málinu, en hinn var sýkn- aður. Hann var hins vegar dæmdur til 9 mánaða fangelsis- vistar fyrir önnur fíkniefnabrot, auk þess sem honum var gert að greiða 30 þúsund króna sekt og málskostnað. Guðrjón S. Marteinsson, fulltrúi, kvað upp dóminn. Morgunblaðið/KGA Umhverfis borðið sitja helstu aðstandendur keppninnar frá vinstri: Hilmar Oddson, Sæbjörn Valdimars- son, Rut L. Magnússon, Kristín Jóhannesdóttir, Birgir Sigurðsson og Jón Þórarinsson. Listahátíð 1988: Efnt til samkeppni um gerð stuttra kvikmynda ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til kvikmyndasamkeppni í tilefni VEÐUR I DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR IDAG, 28.05.87: YFIRLIT á hádegi í gær: Fyrir norðaustan land er aðgerðalítil 1030 millibara hæðarsvæði. SPÁ: Víðast hvar hæg breytileg eða suðaustlæg átt á landinu. Skýjað verður að mestu suðaustanlands og einnig sums staðar við suövesturströndina, en annars staðar bjartviðri. Hiti verður á bilinu 8 til 12 stig við strendurnar en 14 til 18 stig sums staðar í innsveitum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Fremur hæg austlæg eða suðaustlæg átt. Skýjað með köflum um sunnanvert landið og sums staðar þokubakkar við ströndina en víðast bjart veður norðantil. Hiti á bilinu 7 til 15 stig. LAUGARDAGUR: Búast má við aö heidur þykkni í lofti með austan- átt. Dálítil súld verður líklega við suður- og austurströndina en úrkomulítið að kalla í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 5 til 12 stig. x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -|Q° Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V El = Þoka — Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður i w V 1: VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 7 lóttskýjaö Reykjavík 8 láttskýjaö Bergen 7 þokumóða Helsinki vantar Jan Mayen 4 heiöskfrt Kaupmannah. 10 þokuruðningur Narssarssuaq 1 skýjað Nuuk -2 léttskýjað Osló 7 rigning Stokkhólmur 6 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 12 skýjað Aþena vantar Barcelona 1 lágþokublettir Berlín 13 heiðsklrt Chicago 23 skýjað Feneyjar vantar Frankfurt 14 þokumóða Hamborg 9 lóttskýjað Las Palmas vantar London 10 léttskýjað Los Angeles 14 léttskýjað Lúxemborg 12 súld Madríd 10 hélfskýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 16 þokumóða Miami 24 léttskýjað Montreal 17 alskýjað NewYork 13 skúr Paris 12 rigning Róm vantar Vín 12 þokumóða Washington 17 alskýjað Winnipeg 16 alskýjað Listahátíðar í Reykjavík 1988, en það verður í tíunda skipti sem hátíðin er haldin. Keppnin er tvíþætt: annars vegar um hand- rit og hins vegar um mynd, en kveðið er á um að handritin og myndirnar skuli vera stuttar — átta til fimmtán mínútur. Keppnin um handrit er í tengsl- um við Kvikmjmdahátíð, sem hefst 19. september næstkomandi. Verða þá valin 2-4 handrit til framleiðslu og er miðað við að hvetju verkefni verði úthlutað 850.000 krónum í vinnslukostnað, en auk þess mun Hans Petersen hf. og Kodak gefa alla hráfílmu til upptöku á myndun- um. Handritin, sem verða að berast eigi síðar en 6. ágúst, þurfa að vera fullunnin bæði hvað varðar texta og myndatöku. Dómnefnd sú er §alla mun um handritin er skip- uð þeim Birgi Sigurðssyni, Sigurði Sverri Pálssyni og Sveinbimi I. Baldvinssyni. Myndimar skulu vera tilbúnar til sýninga 5. maí á næsta ári, enda verða þær sýndar í tengslum við Listahátíð og mun enn óskipuð dómnefnd nefna bestu myndina að sínum dómi og veita henni viður- kenningu. Keppnin er öllum opin, en að sögn aðstandenda hennar vom keppnisreglur samdar með það fyr- ir augum að fagmennska í vinnu- brögðum réði miklu, enda tilgangur keppninnar m.a. sá að ýta undir samvinnu handritshöfunda og kvik- myndaleikstjóra, en því ku gjaman hafa verið ábótavant hér á landi sem annars staðar. Ástæðan fyrir því að keppt er um gerð „stuttmynda", en ekki mynda í fullri lengd, er sú að þessi grein kvikmyndagerðarlistarinnar er oft vanrækt — líkt og smásagan hefur verið í láginni á undanfömum árum. Er helst að menn reyni fyrir sér í gerð stuttra mynda í kvik- myndaskólum, en leggi þá iðju niður að prófi loknu. Teikn em þó á lofti um að þetta sé að breytast erlendis — líkt og smásagan er að ryðja sér rúms að nýju — og gæti hið sama gerst hér, t.a.m. með hvatningu sem þessari keppni. Útgjöldum vegna keppninnar verður mætt með ýmsu móti. Til dæmis hefur Kvikmyndasjóður út- hlutað 1.500.000 krónum til þess ama, Hans Petersen hf. og Kodak gefa sem áður segir alla hráfílmu og mun Búnaðarbankinn auk þess styrkja Listahátíð vegna þessa. 011 gögn varðandi keppnina skal sækja fyrir 25. júní á skrifstofu Listahátí- ðar, Amtmannsstíg 1, en hún er opin frá kl. 14.00 - 17.00 virka daga. Þá má geta þess að á vegum Listahátíðar er nú háð önnur sam- keppni. Er þar á ferðinni samkeppni um höggmynd, sem nota mætti bæði sem verðlaunagrip og tákn hátíðarinnar. Verðlaunaféð er 250.000 krónur, sem fyritækið Nathan & Olsen hf. gaf til að minnast 75 ára afmælis fyrirtækis- ins. Skilafrestur til þeirrar keppni er einnig 6. ágúst nk. Unglingar í Hafnarfirði: Hræddu veg- farendur með táragasbyssu ÞRÍR ungir piltar í Hafnarfirði óku víða um bæinn og nágrenni hans síðastliðinn laugardag og beindu byssu að öðrum vegfa- rendum. Ekki var annað að sjá en þeir væru með venjulega skammbyssu, en þarna var um táragasbyssu að ræða. Að sögn rannsóknarlögreglunn- ar í Hafnarfirði sögðust piltarnir þrír, sem eru 15, 16 og 17 ára, hafa fundið byssuna og skot í hana á víðavangi, en sú skýring þykir ekki trúleg. Byssan er hlaðin litlum hylkjum, sem innihalda táragas, og hefur hún að öllum líkindum verið keypt í Þýskalandi. Að sögn lögreglu er þessi byssa ekki hættuleg, en eðlilegt að fólki yrði illa við. „Þeim þótti þetta sniðugt strákunum, en núna hafa þeir víst gert sér grein fyrir alvöru þessa," sagði lögreglumaður í Hafnarfirði í gær. Þórður Halldórs- son íLaugar- holtí látínn ÞÓRÐUR Halldórsson í Laugar- holti í Nauteyrarhreppi við ísafjaðrardjúp, fyrrum sýslu- nefndarmaður og oddviti, lést á sjúkrahúsinu á Isafirði 26. maí síðastliðinn, 95 ára að aldri. Hann var merkur bóndi og áhrifamaður við Djúp. Eftirlif- andi kona hans er Helga Jóns- dóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.